Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Síða 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986.
25
Sandkorn Sandkorn
í panik
Við tæptum lítillega á því
hér í Sandkorni um daginn
að íslenskir prófessorar
gætu verið utan við sig ekki
síður en hinir útlensku. Og
það var ekki að sökum að
spyrja. Sögurnar fóru að
streyma inn.
Ein þeirra var til dæmis
um prófessor í Háskóla Is-
lands. Hann vippaði sér
einn daginn út úr skrifstofu
sinni og ætlaði að skjótast
út í bæ einhverra erinda.
En þegar hann settist upp
í bílinn sinn, sem stóð fyrir
utan háskólann, komst
hann að raun um að bil-
lyklarnir voru týndir.
Prófessorinn lagði nú
þreyttan heilann í bleyti.
Komst hann að þeirri nið-
urstöðu að lyklunum hlyti
hann að hafa gleymt ein-
hvers staðar um morgun-
inn því þá hafði hann verið
að snúast í bænum. Síðast
hafði hann komið við í
Landsbankanum á rúntin-
um. Því hringdi hann í
bankann og kvaðst vera í
algjörum vandræðum.
Hann kæmist ekki á bilnum
heim því hann hefði gleymt
lyklunum einhvers staðar.
Hvort það vildi nokkuð svo
heppilega til að þeir hefðu
orðið eftir í bankanum.
Viðmælandi prófessors-
ins benti honum þá þegar á
að hann hefði tæplega
gleymt lyklunum í bankan-
um úr því að hann hefði
komist á bílnum upp í Há-
skóla aftur!
Beggja hagur
Ásgeir Hannes Eiriksson,
tittnefndur pulsusali, deyr
yfirleitt ekki ráðalaus. Við
rákumst á eftirfarandi sögu
því til staðfestingar í Vík-
ingi:
Hættir Lára
hjá ASÍ?
Heyrst hefur að farið sé
að losna um Láru Júlíus-
dóttur, lögfræðing hjá AI-
þýðusambandi íslands.
Hún hefur sem kunnugt er
starfað hjá ASÍ nokkur
undanfarin ár. Lára hefur
notið vaxandi álits innan
þeirra stéttarfélaga sem
hún hefur starfað fyrir,
enda mjög fær í sínu fagi.
En hvernig sem nú á því
stendur var Lára sniðgeng-
in mjög í nýafstöðnum
samningaviðræðum. Segja
kunnugir að helst hafi virst
sem helstu forkólfarnir
hafi hreint ekki kært sig
Blankur maður hitti Ás-
geir Hannes í pulsuvagnin-
um við Útvegsbankann og
bað hann að lána sér pen-
inga.
-Því miður, ég bara get
það ekki, var svarið. -Ég
hef fastan samning við
Útvegsbankann um að ég
Iána ekki peninga og hann
selur ekki pulsur.
Ásgeir Hannes Eiríksson.
Marktækir
vinsældalistar
Útvarpið og dagblöðin
hafa sem kunnugt er mælt
vinsældir dægurlaga um
nokkurt skeið. Þeir eru til
sem halda því fram að þess-
ar mælingar séu ekki á
nokkurn hátt marktækar.
Til dæmis sé einstökum
útgefendum í lófa lagið að
gera veg „sinna “ hljóm-
platna sem mestan í könn-
ununum.
Á þetta verður ekki lagð-
Umsjón: Jóhanna S. Sig-
þórsdóttir
um að hleypa henni inn í
viðræðurnar. Hún hafi
helst ekki verið boðuð á
fundi. Eitt sinn hefði það
komið fyrir að hún hefði
verið boðuð þegar fundur-
inn var vel kominn af stað.
Á þann fund mætti Lára að
sjálfsögðuekki.
Þykir mönnum þetta fá-
Iæti ýmissa verkalýðsfröm-
Lára Júlíusdóttir.
uða í hennar garð bera vott
um að þeir óttist að hún
skyggi á þá, enda er hún
vinsæl, hæf og vinnusöm.
Þætti það til frásagnar á
næsta bæ ef hún yfirgæfi
skútuna af ástæðum sem
þessum.
Þar kennir
margra grasa
Á ísafirði var á dögunum
opnuð lagerverslun í
tengslum við Blikksmiðju
Erlendar. Blaðið „Bæjarins
besta" segir frá þessum
viðburði á þann hátt að „...
Erlendur blikksmiður sé
með lausar skrúfur og
ýmislegt fleira til sölu i
nýrri lagerverslun sinni...“
ur dómur hér. En líklega
eru kannanir ofangreindra
miðla ekki unnar eins
frjálslega og vinsældalisti
Snæfellska fréttablaðsins.
Þar vildi svo furðulega til
að valið var lag sem ekki
var til. Það átti að heita
Eiríkur Hauksson hefur fleytt
„Gaggó vest“ upp vinsældalist-
ann.
„Loft“ og vera með hljóm-
sveitinni Yfirsjón. Segir
blaðið að hefði lagið verið
til þá hefði það lent i 7. sæti.
Sem sagt allt pottþétt!
Kvikmyndir__________Kvikmyndir
Nýja bíó - Blóð annarra ★
Ástarsaga úr stríðinu
Sam Neill og Jodie Foster eru bæði á rangri hillu í þessari mynd.
Frönsk-ensk. Leikstjóri: Claude Chabrol.
Byggt á sögu Simone de Beauvoir. Hand-
rit: Brian Moore. Framleidd at Denis
Heroux og John Kemeny. Aöalhlutverk:
Jodie Foster, Michael Onikean og Sam
Nell.
Heimsstyrjaldirnar tvær, sem hafa
orðið á þessari öld, ætla að verða
endalaus uppspretta skáldverka af
ýmsu tagi. A þetta ekki hvað síst
við um kvikmyndalistina. Hvað
veldur þessum áhuga á heimsstyrj-
öldunum er erfitt að segja til um.
Það má þó leita skýringanna í þeirri
miklu röskun sem varð þá á lífi
fólks. Það sem áður var talið tak-
mark lífsins verður einskis vert
þegar út í hildarleikinn er komið.
Fólk tekur stakkaskiptum, allt er
breytingum undirorpið.
Þessi mynd hefst 1938 þegar
skuggi yfirvofandi styrjaldar er að
færast yfir. Helena er ung og falleg
stúlka í París sem vefur karlmönn-
unum um fingur sér. Hún er í sam-
bandi við Paul en er þó ekkert sérs-
taklega hrifin af honum. Hann er
of venjulegur. En þegar hún hittir
John, félaga Paul, verður hún undir
eins hrifin af honum. Og vegna þess
að Helena er einbeitt stúlka líður
ekki á löngu þar til hún er búin að
ná í hann en Paul situr eftir með
sárt ennið.
En þó Helena vilji helst ekkert
vita af stríðinu þá skellur það á og
breytir lífi hennar eins og annarra.
John verður að fara í stríðið þrátt
fyrir áköf mótmæli hennar. Stríðið
tapaðist hins vegar fljótt hjá Frökk-
um og John er tekinn til fanga. Til
að fá hann lausan vingast hún við
háttsettan Þjóðverja, Bergmann að
nafni. Fær hún John lausan og
hann snýr sér að störfum fyrir
andspymuhreyfinguna. Og þrátt
fyrir að Helena hafi lítin áhuga á
stríðinu neyðir ást hennar á John
hana til að taka þátt í störfum
andspyrnuhreyfingarinnar. Eru þá
örlög hennar ráðin.
Handrit að myndinni Blóð ann-
arra er byggt á sögu skáldkonunnar
frægu, Simone de Beauvoir. Hún
var gift skáldinu og heimspekingn-
um Jean Paul Sartre. Þau tók þátt
í starfi andspymuhreyfingarinnar á
stríðsárunum þó þau hefðu sínar
efasemdir um gagnsemi þess. Þessar
efasemdir birtast að nokkru í mynd-
inni þó það sé allt heldur yfirborðs-
kennt. Það er nefnilega þannig að
bæði handritshöfundar og leikstjóri
virðast ekki hafa hugmynd um
hvemig eigi að vinna úr þessum
efnivið. Ástarsagan með hildarleik-
inn mikla í baksýn verður fyrir
vikið ósköp venjuleg.
Aðalmistökin við þessa mynd
liggja þó í vali aðalleikkonunnar.
Þó Jodie Foster hafi staðið sig með
prýði sem barnastjarna í Taxi Dri-
ver þá er það furðuleg ákvörðun að
láta hana leika hlutverk ■ Helenu.
Hana skortir einfaldlega þann
þokka sem Helena á að hafa. Verður
hálfhjákátlegt að sjá alla karlmenn
í nágrenni hennar missa fótanna
vegna töfra hennar sem áhorfendur
sjá alls ekki hverjir eru. I stað þess
að minna á franska þokkagyðju
líkist Jodie helst bandarískri götud-
rós, og það meira að segja með
Brooklyn hreim. Einnig er hörkutó-
lið Sam Neill vandræðalegur sem
ástsjúkur nasistaforingi.
Sigurður Már Jónsson
★★★★ Frábær ★★★ Góð ★★ Miðlungs ★ Léleg 0 Afleit
% .
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Síðumúla 21, þingl. eign Selmúla sf., fer fram
eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl., Gjáldheimtunnar í Reykjavjk, Hauks
Bjarnasonar og Helga V. Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13.
mars 1986 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Grensásvegi 12, þingl. eign Bakhússins hf., fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. mars
1986 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Laugavegi 20A, þingl. eign Nýja Kökuhússins hf„ fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudaginn
13. mars 1986 kl. 10.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
r'
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Baldursgötu 12, þingl. eign Viðars Friðrikssonar o.fl., fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudaginn 13. mars 1986
kl. 15.30.
Borgarfógetaembættíð i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 111., 116. og 121. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Tunguseli 4, þingl. eign Guðbjarts Ágústssonar, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavik og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 13. mars 1986 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Tungu-
seli 10, þingl. eign Þórdisar Sigurðardóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar
Landsbankans og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudaginn
13. mars 1986 kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Baróns-
stíg 13, þingl. eign Eddu Guðmundsdóttur o.fl., fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavik og Gunnars Guðmundssonar hdl. á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 13. mars 1986 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 90., 99. og 101. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni mb. Græði HF-8, Hafnarfirði, þingl. eign Jóns Þ. Jónssonar og
Guðnýjar Sigurðardóttur, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og
Áma Einarssonar hdl. við eða i bátnum þar sem hann liggur við bryggju í
Hafnarfjarðarhöfn föstudaginn 14. mars 1986 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 90., 99. og 101. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á
eigninni Asbúðartröð 9, jarðhæð og 1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Árna
Gíslasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Hafnarfirði á eigninni sjálfri
föstudaginn 14. mars 1986 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
■cr'
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 90., 99. og 101. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Lækjarhvammi 1, Hafnarfirði, þingl. eign Leifs Ivarssonar, fer fram eftir kröfu Kópavogskaupstaðar á eigninni sjálfri föstudaginn 14. mars 1986 kl. 14.30. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 90., 99. og 101. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Smyrlahrauni 47, 1. hæð t.h., Hafnarfirði, þingl. eign Olgeirs Þor- steinssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands, Gjaldheimt- unnar í Hafnarfirði og Sigriðar Thorlacius hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 14. mars 1986 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. ★
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 90., 99. og 101. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eignini Hjallabraut 1, 3. h. nr. 6, Hafnarfirði, þingl. eign Ferdinands Hansen, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði og Guðjóns Armanns Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 14. mars 1986 kl. 16.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 135., 141. og 146. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Köldukinn 30, kjallara, Hafnarfirði, þingl. eign Hróbjarts Gunnlaugs- sonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar rikisins og Guðjóns Steingríms- sonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 14. mars 1986 kl. 17.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. jt
Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Stekkjarhvammi 27, Hafnarfirði, þingl. eign Einars M. Sigurbjömssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 14. mars 1986 kl. 17.30. Baejarfógetinn í Hafnarfirði *