Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1986, Page 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. MARS1986.
Utvarp
Sjónvarp
Jóhann Briem:
Er kennslusjonvarp
næst á dagskrá?
Dagskrá sjónvarps og útvarps er
það umfangsmikil að ég get aðeins
nýtt mér lítinn hluta hennar. Þess
vegna horfði ég á þáttinn sjónvarp
næstu viku sl. sunnudag sem Guð-
mundur Ingi og Hinrik Bjarnason
kynntu. Með þvi að fylgjast með
þessum þætti getur maður valið það
besta sem sjónvarpið býður upp á.
Úr mörgu er að velja. Dagskráin
er núna án efa sú fjöibreyttasta og
áhugaverðasta frá upphafi.
í gær hlustaði ég á fréttir um leið
og ég ók í vinnuna. Morgunfréttir
mætti lengja og hafa þær milli 7.30
og 8, þannig að þeir sem hefja vinnu
kl. 8 gætu náð fréttum.
Að degi til hlusta ég aðeins á rás
2 ef ég er á ferð í bíl, en sú dagskrá
er lífleg og hefúr sannað tilverurétt
sinn.
I gærkvöldi hlustaði ég á fréttat-
íma útvarps og á þáttinn um daginn
og veginn. Fréttir útvarpsins eru
yfirleitt vandlega unnar en þó finnst
mér sjávarútvegsumfjöllun Gis-
surar Sigurðssonar fréttamanns oft
bera af umfjöllun fjölmiðla um þau
mál.
Þær breytingar, sem gerðar hafa
verið á fréttaútsendingu sjónvarps,
eru til bóta. Hinir nýju fréttamenn
standa sig vel þó sumir séu óöruggir
i upphafi eins og við má búast.
Þá sá ég íþróttaþátt Bjama Felix-
sonar en hann fjallaði um hand-
bolta og körfubolta, skauta- og
skíðaíþróttina. Slík fjölbreytni gerir
þættina áhugaverða.
Að lokum hlustaði ég á Önund
Bjömsson ræða við þá Davíð
Scheving Thorsteinsson iðnrek-
anda, Sigurð Helgason stjórnarfor-
mann og Láms Jónsson banka-
stjóra. Stjómandinn hafði greini-
lega undirbúið sig vel og spurningar
hans voru hnitmiðaðar. Hver þess-
ara manna gat haldið uppi sjálf-
stæðum og áhugaverðum þætti en
hann slitnaði nokkuð í sundur
þegar skipt var um viðmælendur.
Það efni sem enn vantar í dagskrá
sjónvarpsins er kennsluefni. Það er
hægt að sýna það að degi til. Þar á
ég við kennsluefhi tengt atvinnulíf-
inu, skólastarfi eða tómstundum.
Sem dæmi um slíkt efni er hægt að
halda námskeið fyrir bændur um
búskaparhætti, fyrir fiskvinnslufólk
um gæðamál og fl. Kennsluefni í
sjónvarpi getur þýtt gjörbreytingu
og þá sérstaklega fyrir fólk úti um
hina dreifðu byggðir landsins.
Tómstundakennsla getur einnig
verið kærkomin fyrir þá sem eru
heima daglangt.
Margir möguleikar em fyrir hendi
og sá ég einn þeirra á námskeiði í
upplýsingatækni í Madisonháskóla
í Bandaríkjunum. Þar var verið að
kenna nemendum í Alaska. Sjón-
varpið er því fræðslumiðill nútíðar
og framtíðar.
Málfríður Guðmundsdóttir lést 28.
febrúar sl. Hún fæddist að Korpúlfs-
stöðum 21. mars 1923, dóttir hjón-
anna Bjamveigar Guðjónsdóttur og
Guðmundar Þorlákssonar. Eftirlif-
andi eiginmaðyr hennar er Geir
Herbertsson. Þeim hjónum varð fjög-
urra barna auðið og eru þrjú á lífi.
Árið 1971 hóf Málfríður störf á Borg-
arspítalanum og gegndi hún því
starfi til æviloka. Utför hennar var
gerð frá Dómkirkjunni í morgun.
Ásta Kjartansdóttir, Fellsmúla 4,
andaðist á Reykjalundi 8. mars sl.
Guðbjörg Tómasdóttir,Grettisgötu
57a, lést fimmtudaginn 6. mars á
Elliheimilinu Grund. Jarðarförin fer
fram frá Fossvogkirkju föstudaginn-
14. mars kl. 15.
Á Kristín Einarsdóttir frá Prestshús-
um, Mýrdal, er látin.
María Ósk Jónsdóttir, Urðarstíg 6,
Hafnarfirði, sem lést í barnadeild
Landspítalans 5. mars sl., verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 12. mars kl. 13.30.
Þorgerður Einarsdóttir, áður til
heimilis að Öldugötu 13, Hafnarfirði,
andaðist á Hrafnistu miðvikudaginn
26. febrúar. Jarðarfórin hefur farið
fram.
Kjartan Björnsson, Hringbraut 52,
A Keflavík, lést 8. mars.
Kjartan Tómasson, Skjólbraut 11,
lést að morgni 9. mars á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi.
Sigurður H. Guðmundsson, Sólvalla-
götu 2, verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni miðvikudaginn 12. mars
kl. 10.30.
Tilkynningar
Borgarafundur hjá bæjarstjórn
Hafnarfjarðar
Bæjarstjóm Hafnaríjarðar hefur
ákveðið að halda borgarafund um
málefni bæjarins. F’undurinn verður
haldinn nk. fimmtuda^g, 13. mars, í
félagsheimilisálmu íþróttahússins
við Strandgötu og hefst hann kl.
20.30. Framsaga verður um stöðu
bæjarins og framkvæmdir á þessu
ári. Einnig verða kynntar skipu-
lagstillögur sem nú er unnið að. Að
loknum framsögum verður svarað
fyrirspurnum. Bæjarfulltrúar sitja
fyrir svörum ásamt bæjarstjóra og
skipulagsfulltrúa.
Dagskrá um mannréttinda-
fræðslu í skólum
verður haldin í kennslumiðstöð
Námsgagnastofnunar 11. og 12. mars
1986. Áð dagskránni standa: fslands-
deild Amnesty International, Náms-
gagnastofnun, Biskupsstofa, Banda-
lag kennarafélaga, Kennaraháskól-
inn, Rauði kross fslands og skólaþró-
unardeild menntamálaráðuneytis-
ins. Dagskráin hefst í dag, 11. mars,
kl. 16. A. Ávarp frá Islandsdeild
Amnesty International: Guðrún
Hannesdóttir námsráðgjafi. B. Hvað
eru mannréttindi?: Eyjólfur Kjalar
Emilsson kennari. 'C. Þjóðleg og
alþjóðleg sjónarmið í kennslu um
mannréttindi: Erla Kristjánsdóttir
kennari. D. Vinnustofa: Þátttakend-
unum skipt í hópa og þeir vinni að
athugun og skrásetningu á verkefn-
um. Hugsanlegt er að unnið verði
að verkefnagerð. Dagskránni lýkur
kl. 19. Miðvikudagur 12. mars kl.
16-18. A, Að rannsaka mannréttindi
með börnum: Hreinn Pálsson. B.
Yfirlit yfir mannréttindafræðslu í
grunnskólum: Sigþór Magnússon
námsstjóri. C. Umræður: stjómandi
Helgi Skúli Kjartansson sagnfræð-
^ingur.
Djass í Djúpinu
Næstkomandi mánudags- og þriðju-
dagskvöld verður djassað í Djúpinu,
þ.e. kjallara veitingastaðarins
Homsins (við Hafnarstræti). Þar
spila Egill Hreinsson á píanó, Tómas
R. Einarsson á kontrabassa og Pétur
Grétarsson á trommur. Egill Hreins-
son er enn sem komið er fremur
^jþekkt stærð í íslensku djasslífi en
ef að líkum lætur breytist það fyrr
en varir. Pétur Grétarsson hefur
verið einn af eftirsóttustu trommu-
leikurum landsins síðan hann kom
heim frá námi í Bandaríkjunum og
Tómas R. Einarsson er djassfólki
kunnur úr Nýja kmpaníinu, Jazz-
ófétunum og fleiri hljómsveitum.
Þeir félagar munu leika ýmsa eldri
dansa í nýjum búningi auk laga eftir
Charlie Haden, Eddie Gómez, Or-
nette Coleman, Thelonius Monk o.fl.
Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl.
21.
Erró fulltrúi íslands á Fen-
eyjabiennalnum 1986
Sýningamefndin fyrir íslenska mynd-
list erlendis hefur valið myndlistarmann-
inn ERRÓ sem fulltrúa íslands á Fen-
eyjabiennalnum sumarið 1986. Myndir
ERRÓ verða sýndar í Alvar Alto skálan-
um, sem íslendingar hafa fengið á leigu
næstu árin. En íslenska deildin fékk fyrst
inni í Altoskálanum á biennalnum 1984.
Lokið hefur verið við að velja á sýning-
una og mun ERRÓ sýna yfirlit yfir hinar
frægu „Scapemyndir14 sínar. Þá mun
fylgja sýningunni vönduð sýningarskrá.
Sýningamefndin fyrir íslenska mynd-
list erlendis er þannig skipuð: Einar
Hákonarson formaður, Gylfi Gíslason og
Jóhannes Jóhannesson. Framkvæmda-
stjóri nefndarinnar er Gunnar B. Kvaran
listfræðingur.
Yfirskrift meginsýningarinnar á Fen-
eyjabiennalnum árið 1986 verður „List
og vísindi“. Verðurhún í umsjón Mauriz-
io Clavesi sem jafnframt er forstöðumað-
ur myndlistardeildar Feneyjabiennals-
ins.
„Plötusnúðar ársins 1986“
Síðustu vikur hefur verið í undir-
búningi diskótekarakeppni hjá fé-
lagsmiðstöðvunum í Reykjavík.
Undankeppnir hafa þegar farið fram
þar og komast 2 einstaklingar áfram
úr hverri þeirra, alls 12.
Undanúrslit fara síðan fram mið-
vikudag 19. og fimmtud. 20. mars,
keppa þar 6 upprennandi plötusnúð-
ar hvort kvöld og öðlast tveir þátt-
tökurétt á úrslitakvöldið í hvort
skipti.
Sjálf úrslitakeppnin verður svo
laugardagskvöldið 22. mars í Frosta-
skjóli kl. 20.30-00.30. Þá mætast þeir
hlutskörpustu í undanúrslitum og
berjast um 1. sætið í glæsilegri að-
stöðu diskóbúrs Frostaskjóls.
Sigurvegarinn hlýtur titilinn
„Plötusnúður ársins 1986“ og að auki
vegleg verðlaun: Diskómixer frá
Japis. Þ>á fær sigurvegarinn að reyna
hæfileika sína í öllum Félagsmið-
stöðvum, eitt kvöld í Hollywood, og
í þætti á rás 2.
Allir þátttakendur í úrslitakeppn-
inni fá síðan plötuverðlaun frá
Karnabæ.
Allar frekari upplýsingar eru veitt-
ar í Frostaskjóli í síma 622120. (Tóm-
as eða Ásta).
Stjúpsystur skemmta árshá-
tíða- og þorrablótagestum
Stupidsystur eða öllu heldur Stjúp-
systur hafa ekki slegið slöku við
þetta árið fremur en tvö síðustu ár
við að skemmta árshátíða- og þorra-
blótagestum. En leikkonurnar Guðr-
ún Alfreðsdóttir, Saga Jónsdóttir og
Guðrún Þórðardóttir eru þekktar
fyrir að semja yndislega andstyggi-
lega texta um það sem er að gerast
með þjóð vorri og syngja þá við
gömul dægurlög. Enn fremur fyrir
að flytja léttfríkuð gamanmál á milli
laga og þá helst um innanhússmál
viðkomandi fyrirtækis.
Stofnfundur iðnþrónarfélags í
Kópavogi
Mánudaginn 17. mars verður hald-
inn stofnfundur iðnþróunarfélags í
Kópavogi. Fundurinn verður í Fé-
lagsheimili Kópavogs, Fannborg 2,
og hefst kl. 20.30. Á síðustu misserum
hefur mikið verið fjallað um þá að-
stoð sem bæjarfélög, fyrirtæki og
stofnanir geti veitt hvert öðru í
uppbyggingu atvinnulífsins. Hér er
átt við mótun nýrra framleiðsluvara,
aðstoð við markaðssetningu, útveg-
un fjármagns til fyrirtækjareksturs
og vöruþróunar og búa fyrirtækjum
eðlilega aðstöðu innan bæjarfélag-
anna. Þetta er meðal annars eitt af
markmiðum fyrirhugaðs Iðnþróun-
arfélags Kópavogs. Félagið er ætlað
öllum þeim sem áhuga hafa á að
standa í atvinnurekstri, hvort heldur
er í iðnaði, þjónustu, sjávarútvegi
eða verslun. Einni er öllum þeim
aðilum á höfuðborgarsvæðinu, sem
áhuga hafa á rekstri í Kópavogi,
velkomið að gerast félagar.
Félag makalausra
Árshátíð verður 15. mars í Skipholti
70. Pantið miða á skrifstofunni milli
kl. 19og21. Sími 17900.
Þórður H. Hilmarsson ráðinn
framkvæmdastjóri Steinullar-
verkmsiðjunnar hf.
Stjórn Steinullarverksmiðjunnar á
Sauðárkróki hefur ráðið Þórð H.
Hilmarsson rekstrarhagfræðing í
starf framkvæmdastjóra frá 1. apríl
nk.
Þórður lauk verslunarprófi frá
Samvinnuskólanum að Bifröst 1971.
Að loknu námi að Bifröst hélt Þórð-
ur utan til frekara náms og lauk
cand merc. prófi frá Verslunarhá-
skólanum í Kaupmannahöfn árð
1976.
Að loknu námi stundaði Þórður
kennslu- og stjórnunarstörf við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti frá 1.
sept. 1976 til hausts árið 1978.
Á árunum 1978-83 starfaði hann
hjá Hagvangi hf. við rekstrarráðgjöf
einkum á sviði skipulags og stjórn-
unar.
Frá 1. september 1983 til áramóta
1985 starfaði hann hjá Hafskip hf.,
fyrst sem forstöðumaður hagdeildar
og síðar við ýmis stjórnunarstörf
tengd m.a. skrifstofum félagsins og
vöruafgreiðslum.
Þórður er kvæntur Hjördísi Krist-
insdóttur.
ÉNHtMAí u^aUGUST
TRO.HÁB®
KÆRLIGHED
„Tro, háb og kærlighed“ frum-
sýnd í Regnboganum
Laugardaginn 15. mars nk. kl. 14
verður frumsýnd í A-sal Regnbogans
stórmyndin Tro, háb og kærlighed
sem er leikstýrt af fremsta leikstjóra
Dana, Billie August, þeim sem leik-
stýrði myndinni Zappa sem sýnd var
í Regnboganum 1984. Myndin Tro,
háb og kærlihed heitir á íslensku
Trú, von og kærleikur hefur slegið
öll met hvað aðsókn snertir og yfir
1 milljón Dana hefur séð hana. Billie
August verður viðstaddur frumsýn-
inguna í Regnboganum 15. mars sem
hefstkl. 14.
Kvennadeild SVFÍ í Reykjavík
heldur félagsfund þriðjudaginn 11.
mars 1985 kl. 20.30 í Slysavarnahús-
inu, Grandagarði. Spilað verður
bingó, kaffiveitingar.
Eiríkur Finnur Greipsson oddviti
varð efstur í prófkjöri sjálfstæðis-
manna á Flateyri. Hlaut hann 67 af
74 greiddum atkvæðum í fyrsta sætið.
Hann skipaði þetta sæti við síðustu
kosningar.
Aðrir sem hlutu bindandi kosningu
Háskólatónleikar í Norræna
húsinu
Sjöttu Háskólatónleikarnir á vor-
misseri 1986 verða haldnir í Norræna
húsinu miðvikudaginn 12. mars. Inga
Rós Ingólfsdóttir og Hrefna Eggerts-
dóttir píanóleikari flytja verk eftir
G. Fauré og B. Martinu. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 12.30 og standa í u.þ.b.
hálftíma.
Aöalfundur Kvenfélags Kópa-
vogs
verður fimmtudaginn 13. mars kl.
20.30 í félagsheimilinu.
Kvenfélag Kópavogs
Spiluð verður félagsvist í félags-
heimili bæjarins nk. þriðjudagskvöld
ll.apríl kl. 20.30.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitarinnar
heldur fund miðvikudaginn 12. mars
kl. 20.30. Spiluð verður félagsvist.
70 ára afmæli á í dag, 11. mars, frú
Ósk Ólafsdóttir frá Bolungarvík,
Skipasundi 21 hér í bæ. Hún ætlar
að taka á móti gestum á heimili sínu
í dag. Eiginmaður hennar var Hall-
dór Halldórsson fiskmatsmaður sem
er látinn.
eru Guðmundur Finnbogason, Guð-
mundur Helgi Kristjánsson og Sig-
ríður Sigsteinsdóttir. Þau eru öll ný
á listanum enda gáfu þeir sem skip-
uðu þessi sæti áður ekki kost á sér.
Á kjörskrá voru 103. Af þeim kusu
74. Þrír seðlar voru ógildir. -GK
Sjálfstæðismenn á Flateyri:
Eiríkur áfram
í fýrsta sæti