Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Side 2
2
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Skyndikönnun DV á besta laginu í sönglagakeppninni:
Flestir vilja að lagið EF sigri
Flestir sjónvarpsáhorfendur virðast
telja EF besta lagið í söngvakeppni
sjónvarpsins, samkvæmt skoðana-
könnun er DV gerði í gærkvöld.
Hringt var í 50 karla og 50 konur
strax eftir síðasta kynningarþáttinn,
sem sýndur var í gær. Þeir spurðu
voru valdir eftir ákveðinni reglu.
Spurt var: Hvaða lag vildir þú helst
að sigraði í Söngvakeppni sjónvarps-
ins?
Af þeim sem tóku afstöðu töldu
28,4% EF vera- besta lagið. Það lag
var síðasta lagið sem kynnt var og
söng Björgvin Halldórsson það.
Samkvæmt þessu verður þetta lag
framlag íslands á Söngvakeppni sjón-
varpsstöðva í Evrópu, sem haldin
verður í Bergen 3. maí nk. Næstbesta
lagið er Gleðibankinn, sungið af
Pálma Gunnarssyni. I þriðja sæti
hafnaði síðan umdeilda lagið Vöggu-
visa.
„Öll lögin eru frambærileg," sagði
Jónas R. Jónsson í seinasta kynning-
arþættinum í gærkvöld.
Stóra stundin rennur svo upp á
laugardaginn. Þá fer fram lokakeppn-
in hér á landi og valið verður það lag
sem sent verður til Bergen. Sérstakri
dómnefnd hefur verið falið það van-
dasama hlutverk að velja besta lagið.
Lagahöfundurinn fær vegleg verð-
laun, 200 þúsund krónur. Svo má ekki
gleyma því að norsku sigurvegararnir
frá því fyrra, Bobby Socks, mæta í
sjónvarpssal á laugardaginn og
skemmta íslenskum sjónvarpsáhorf-
endum.
Eftir keppnina verður svo valinn
verðugur söngvari til að kyrja það í
Bergen. Áður en það gerist verður
laginu komið á myndband og því
dreift um alla Evrópu.
Stærsta stundin rennur svo upp í
Bergen 3. maí nk. þegar allar Evr-
ópuþjóðirnar etja saman lögum sín-
um. Það getur orðið dýrt ef við sigr-
um því ekkert hús hér á landi getur
hýst keppni af þessu tagi og einnig
ku keppni þessi vera dýr í rekstri.
Vonandi lendum við þó ekki í neðsta
sæti eins og frændui' okkar Norð-
menn gerðu fyrir nokkrum árum.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar um besta lag söngvakeppninnar urðu þessar:
1. Gleðibankinn (Pálmi) .................................................... 13%
2. Ég lifi í draumi (Björgvin) ................................................ 4%
3. Vögguvísa (Erna) ........................................................ 10%
4. Með vaxandi þrá (Björgvin og Erna) ......................................... 5%
5. Þetta gengur ekki lengur (Eiríkur) ......................................... 1%
6. Út vil ek (Pálmi og Erna) .................................................. 4%
7. Syngdu lag (Pálmi) ......................................................... 0%
8. Gefðu mérgaum (Eiríkur) .................................................... 7%
9. Mitt á milli Moskvu og Washington(Eiríkur) ................................. 9%
10. Ef (Björgvin) .............................................................21%
Ekkertlag ................................................................. 11%
Óákveðnir og neita að svara ........................................... 15%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niðurstöðurnar þessar:
sæti:
1. Gleðibankinn (Pálmi) .......................... 17,6% (2)
2. Ég lifi í draumi (Björgvin) ...................... 5,4% (7-8)
3. Vögguvísa (Erna) ................................ 13,5% (3)
4. Með vaxandi þrá (Björgvin og Erna) ............... 6,7% (6)
5. Þetta gengur ekki lengur (Eiríkur) ............... 1,3% (9)
6. Út vil ek (Pálmi og Erna) ........................ 5,4% (7-8)
7. Syngdu lag (Pálmí) ............................... 0,0% (10)
8. Gefðu mér gaum (Eiríkur) ......................... 9,5% (5)
9. MittámilliMoskvuogWashington(Eiríkur) ........... 12,2% (4)
10. Ef(Björgvin) ..................................... 28,4% (1)
„Hefaldrei
heyrt annað
eins væl“
„Mér fannst seinasta lagið falleg- flytja þennan ósóma til Noregs.
ast,“ sagði kona sem varð fyrir Kona ein var aðeins mildari: „Oll
svörum í skoðanakönnun DV í gær lögin em góð miðað við hvað lög í
um besta lagið í söngvakeppninni. svona keppnum eru yfirleitt léleg.“
önnur taldi að flest lögin væru „Þetta er bull og vitleysa. Lögin eru
sæmileg. „Það er dásamlegt að öll ömurleg,“ sagði einn ungur
heyra hversu mörgu hæfileikafólki maður. „Ekkert þeirra er fyrir minn
við eigum á að skipa,“ sagði einn smekk,“ sagði annar.
karl sem fylgst hafði með öllum „Mér líst best á Vögguvísuna -
þáttunum. bölvað að fella hana út,“ sagði ein
kona. „Ég get ekki svarað þessu,
En það kvað við annan tón. „Ef verð að heyra lögin oftar,“ sagði
þetta er það besta gæfi óg mikið karl í Reykjavík. Annar sagði að
fyrir að heyra það versta,“ sagði við hefðum ekkert í þessa keppni
kona ein í Garðabæ. „Þetta er að gera. „Bölvað rusl allt sarnan,"
ómögulegt, hef aldrei heyrt annað sagði einn karl. „Ikigin eru mjög
eins væl,“ sagði einn karl. Og annar góð en textarnir hálfgert hnoð,“
sagðist vona að þeir færu ekki að sagðikonaíReykjavík. -APH
Hvorki pönk né vísitala
- segir Dóra Einarsdóttir sem hannaði „Eurovision“-búningana á alla nema Björgvin
„Ég reyndi að klæða fólkið sem
best fyrir skerminn og draga það
besta fram i söngvaranum. Stundum
reyndi ég meira að segja að hafa
fötin í takt við lögin,“ sagði Dóra
Einarsdóttir fatahönnuður. Hún
klæddi upp söngvarana sem að
undanfömu hafa kynnt lögin í
söngvakeppni sjónvarpsstöðva, alla
nema Björgvin Halldórsson því
hann hefur einfaldan smekk og
velur aðeins það besta. Björgvin er
klæddur fötum frá Sævari Karli.
„Það skiptir að sjálfsögðu máli
hvort maður er að vinna fyrir rokk-
óperu eða klassíska óperu. Á sama
hátt er annað að vinna fyrir Euro-
vision en allt annað. í raun og veru
eru þessir búningar hvorki pönk né
vísitala eins og ég er vön að segja;
Söngvararnir og stórhljómsveit
sjónvarpsins í búningunum sem
hvorki eru pönk né vísitala nema
hjá Björgvin Halldórssyni því hann
hefureinfaldan smekk....
ég reyni að vera í takt við fyrir-
bærið.“
Dóra lét sér ekki nægja að klæða
söngvarana fjóra heldur er öll stór-
hljómsveit sjónvarpsins í sérhönn-
uðum búningum: „Ég nennti ekki
að hafa þá í slitnu smókingunum
sínum með þverslaufuna. Það er
léttara yfir þessu svona,“ sagði
Dóra.
Þegar ljóst verður hvaða söngvari
verður sendur með íslenska sigur-
lagið til Bergen 3. maí sest Dóra
niður og hannar enn einn búning-
inn. Hvernig hann verður veit eng-
inn: „Það fer eftir því hvort söngv-
arinn verður kvenkyns eða karl-
kyns eða hvort tveggja. Svo reynir
maður líklega að taka tillit til sjálfs
lagsins. Ef Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir yrði til dæmis send utan með
Vögguvísu þá myndi ég ekki láta
hana fara í leðurfötum. En það
verður aldrei því Vögguvísa hefur
verið dæmd úr leik,“ sagði Dóra
Einarsdóttir. -EIR