Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Qupperneq 13
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986.
13
Neytendur Neytendur Neytendur
Hreinsir á baðherbergið
Og áfram um aðferðir til að skúra
upp hreinlætistækin í húsinu. Hrein-
lætisþjónustan hf. flytur inn efhi sem
virkar mjög vel í baráttunni við kísil-
inn og nefhist HREINSIR (nuddi).
A umbúðum, sem eru mjög vel
merktar á íslensku, segir að þetta sé
efhi til að hreinsa kísil og önnur
óhreinindi af vöskum, baðkerum,
sturtubotnum, flísum og salernisskál-
um. I pakkanum eru tveir svampar
og duft sem inniheldur bleikiklór. í
leiðbeiningum aftan á pakkanum
segir að bleyta skuli svampinn í volgu
vatni, strá duftinu yfir staðinn sem á
að hreinsa og nudda skuli óhrein-
indablettina í burtu með svampinum.
Eins og vera ber í góðum merking-
um eru viðvaranir um hvemig bregð-
ast skuli við ef duftið berst á hörund
eða i augu og varað er við að ef
nuddað er of harkalega geti glerung-
urinn á hreinlætistækjunum
skemmst. 1 pakki ætti að duga á einn
vask og 2 pakkar á baðker.
Hreinsirinn er seldur í Esso stöðv-
um um allt land og í mörgum mat-
vöruverslunum og sérverslunum.
Verð pakkans er á bilinu 135-180
krónur eftir verslunum en verkinu
fylgir talsverð vinna ef útlit hreinlæt-
istækjanna er orðið slæmt. Við höfð-
um okkur þó í gegnum þetta og stát-
um nú af gljáfægðum og fallegum
hreinlætistækjum.
-S.Konn.
BETRIUMFERÐARMENNING 9 - í UMSJÁ BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA
Til hvers neyðarliós?
Ég átti leið um Nýbýlaveginn í
Kópavogi fyrir skömmu. Þar hafði
orðið smáumferðaróhapp. Bíl var ekið
aftan á annan við gangbrautarljós.
Sá er ók aftan á hafði ekki sett neyð-
arblikkljósin á. Minnstu munaði að
einn ökumaðurinn, sem átti leið hjá,
æki aftan á þann kyrrstæða þvi ekk-
ert gaf til kynna að eitthvað óeðlilegt
væri að. Neyðarljósin eru einmitt
ætluð til notkunar við aðstæður sem
þessar. Ef við lendum í umferðaró-
happi, notum þá neyðarljósin, það
minnkar hættuna á að aðrir aki á
okkar bíl.
Ef bíll bilar á akbraut ber okkur
skylda til að ganga þannig frá honum
að sem minnst hætta stafi af honum
fyrir aðra vegfarendur. Hér eru neyð-
arljósin einnig ætluð til notkunar.
Þá eru endurskinsþríhymingar mjög
gagnlegir. Sums staðar erlendis er
skylda að hafa þá í bílum. Ef bíll
bilar, eða springur á hjóli, er þeim
komið fyrir í um 20 metra fjarlægð
frá bílnum. Það minnkar hættu á
aftanákeyrslu. Og ef neyðarljósin em
einnig notuð minnkar hættan enn
meir.
Það hefur borið á því að neyðarljós-
in séu misnotuð. Sumir leggja bílnum
ólöglega, t.d. upp á gangstétt, og setja
neyðarljósin á. Sem betur fer er sá
hópur ökumanna ekki stór og von-
andi fer hann minnkandi. Munum að
nota neyðarljósin rétt, það eykur
öryggi þitt og samferðamanna þinna
í umferðinni og stuðlar þannig að
aukinni umferðarmenningu. EG
í einstaka tilfellum getur verið nauðsynlegt að skilja bíla eftir þar sem þeir ættu helst ekki að vera eins og t.d. uppi
á gangstétt. Þá er tilvalið að nota blikkljósin til þess að vekja sérstaka athygli á bílnum. Blikkljósin skal einnig nota
ef bíll bilar úti á vegum. Blikkljósin eða neyðarljósin eru til þess að vekja athygli á óvenjulegum aðstæðum.
DV-mynd GVA.
A i sjónvarpstækjum, videotækjum,
a m ferðatækjum og raftækjum.
p:acc:3i
^ — ~ LjaaooqjJ'
U ____Z2 aupojq
UKf lUUUUV.I llll
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
Það er ekki bara
leðrið sem við leggjum áherslu á.
Satt að segja er hvergi hægt að finna
á einum stað stærra úrval af sófasett-
um og sófahornum með áklæðum.
Þessi fallegu, vönduðu sófasett bjóð-
um við á besta verðisem þekkist og
svo góðum greiðslukjörum að jafn-
vel strangasta fjárhagsáætlun heimil-
isins ræður við að kaupa sett.
45.880
Pallas 3 +1 +1
Hvemig Ust þér
Aðeins
4.580
á mánuði.
Aðeins
13.000
útborgun.
Við tökum að sjálfsögðu
greiðslukortin bæði sem útborg-
un á kaupsamninga og sem stað-
greiðslu með 5% afslætti.
■ ■
HUSGAGNAHOLLIN
BÍLDSHÖFÐA20-110REYKJAVÍK @ 91-6811 99og681410