Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Síða 23
DV. FIMMTUDAGUR13. MARS1986.
23
Tilkynningar Tilkynningar Tilkynningar Tilkynningar
Viðtal við Heinrich
BölliTMM
Fyrsta hefti Tímarits Máls og menn-
ingar er að hluta helgað þýska nób-
elsverðlaunahöfundinum Heinrich
Böll sem dó í fyrra. Halldór Guð-
mundsson skrifar grein um hann,
birt er síðasta langa viðtalið sem
tekið var við hann, „Frelsið þverr
dag frá degi“, og löng smásaga í
þýðingu Guðmundar Georgssonar.
Sagan heitir Ekki aðeins á jólunum
og er ein af bestu smásögum Böll,
fyndin og hvöss ádeila á velferðar-
samfélagið.
Stefán Hörður Grímsson leggur tvö
ný ljóð til þessa heftis og Vilborg
Dagbjartsdóttir á athyglisverða
grein um ljóðið Söknuð eftir Jóhann
Jónsson. Hún bendir á tengsl þess
við sjálfsævisögulegt kvæði Gests
Pálssonar, Árin líða, og fléttar örlög
þessara tveggja skálda skemmtilega
saman.
Af öðru efni í tímaritinu má nefna
minningargrein Stefáns Karlssonar
handritafræðings um Jón Helgason
prófessor, hina frægu ræðu Sigurðar
A. Magnússonar við styrkveitingu
Ríkisútvarpsins á gamlársdag, svar
Ástráðs Eysteinssonar við greinum
Einars Kárasonar og Sigfúsar Daða-
sonar um þýðingar og umfjöllun
Dagnýjar Kristjánsdóttur um
Kvennamál og kvennamenningu.
Tvær greinar varða fornsögurnar,
Goðgá Hjalta Skeggjasonar eftir
Ásgrim Albertsson, og „Milliganga",
um félagslegar rætur Islendinga-
sagna, eftir Jesse L. Byock. Einnig
er athyglisverð grein um Mótun nýja
Kína eftir Ragnar Baldursson.
Auk Stefáns Harðar eiga ljóð í
heftinu þau Magnús Skúlason,
David Radavich, Carolyn Forché,
bandaríska blökkukonan Nikki Gio-
vanni, frnnska verðlaunaskáldið Bo
Carpelan og Ezra Pound.
Ritdómar eru um Ydd Þórarins
Eldjárn, Við giuggann eftir Fríðu
Sigurðardóttur og Um sálina eftir
Aristoteles.
Frjáls verslun,
1. tbl. 1986, er komin út. Meðal efnis
tímsritsins er forsíðuviðtal við Sig-
urð Helgason, forstjóra Flugleiða
hf„ greinar um greiðslukortavið-
skipti, Verslunarskólann, ferðaþjón-
ustu, strikamerki, afkomu iðnaðar,
greiðsluerfiðleika íslenskra fyrir-
tækja og margt fleira. Þá er í blaðinu
grein um nokkur álitamál við upp-
gjör til skatts, eftir Ólaf Nílsson,
löggiltan endurskoðanda. Útgefandi
Frjálsrar verslunar er Frjálst fram-
tak hf. og ritstjóri er Kjartan Stef-
ánsson.
„Ólögleg ávana- og fíkniefni1
Komið er út ritið „Ölögleg ávana-
og fíkniefni" á íslandi eftir Ómar
H. Kristmundsson sem dóms- og
kirkjumálaráðuneytið gefur út. Bók
þessi er byggð á rannsókn á notkun
ólöglegra ávana- og fíkniefna sem
Norræna sakfræðiráðið og dóms-
málaráðuneytið styrktu og var kynnt
í desember síðastliðinn. Hún skiptist
f eftirfarandi meginhluta: Hugtök
Lögjöf í ávana- og fíkniefnamálum
Gagnasöfnun Refsiframkvæmd
Löggæslan Heilbrigðiskerfið
Neysla vímugjafa Niðurstaða
könnunar 1984 Innflutningur og
dreifing ólöglegra ávana- og fíkni-
efna. Ritið, sem er filmuunnið og
prentað hjá Isafoldarprentsmiðju, er
selt hjá Bókasölu stúdenta og bóka-
búð Lárusar Blöndal.
Saga Vöku er komin út
Fyrir skömmu kom út ritið Vaka
1935 1985. Ágrip af sögu félags lýðræðis-
sinnaðra stúdenta. Ritið er gefið út í
tilefni af 50 ára afmæli félagsins sem var
á síðasta ári. Sagan er rituð af Páli
Björnssyni sagnfræðinema. Byrjað er á
því að rekja aðdragandann að stofnun
Vöku en síðan er Vökumönnum fylgt í
störfum þeirra alveg til síðasta árs, jafnt
í stúdentaráði sem innan félagsins. Varp-
að er ljósi á helstu stefnumál Vöku og
hverju Vökuliðum tókst að hrinda í
framkvæmd. í ritinu eru einnig listar
yfir alla stjórnarmenn Vöku, stúdentar-
áðsliða félagsins, alla formenn stúdent-
aráðs og einnig er yfirlit yfir úrslit stúd-
entaráðskosninga síðustu áratuga. Ritið
er 124 blaðsíður, í stóru broti og verður
til sölu í Bóksölu stúdenta og fleiri
bókabúðum.
Söguleg árshátíð
í ár gengst Hjúkrunarnemafélag ís-
lands fyrir heldur óvenjulegri árs-
hátíð. Árshátíðir Hjúkrunarskóla
íslands hafa áður verið haldnar fyrir
nemendur skólans en í þetta sinn er
boðið til leiks öllum nemum sem
brautskráðir eru frá skólanum, allt
frá því útskriftir hófust, árið 1933.
Undirbúningur hátíðarinnar hófst
upp úr áramótunum með könnun á
almennum áhuga á þátttöku meðal
fyrri nema sem reyndist vera gífur-
legur. Hugmyndin að hátíðinni er
reyndar ekki ný en mun nú sjá dags-
ins ljós í tilefni þess að næsti út-
skriftarhópur frá HSÍ er jafnframt
Arleg skólasýning Asgríms-
safns
1 Ásgrímssafni hefur verið opnuð hin
árlega skólasýning safnsins. 1 vipnu-
stofu Ásgríms Jónssonar, á efri hæð
hússins, eru sýndar eldgosamyndir
frá ýmsum tímabilum í list Ásgríms.
Elsta eldgosmyndin er unnin árið
1908 en þær yngstu um miðjan 6.
sá síðasti innan HNFÍ (Hjúkrunar-
nemafélags Islands).
Árshátíðin ,sem hlotið hefur nafnið
Nemamót HSÍ, verður haldin í veit-
ingahúsinu Broadway föstudaginn
11. apríl og hefst með borðhaldi kl.
20.00. Eftir borðhaldið verða nem-
endur skólans með ýmsar uppákom-
ur og skopmyndir úr nemalífmu. Að
sjálfsögðu munu eldri nemarnir
draga fram úr pússi sínu gullkorn
úr fortíðinni og taka þátt í skemmti-
dagskránni.
Aðgöngumiðasala hefst föstudag-
inn 14. mars nk. hjá símavakt skól-
ans og er þátttakendum bent á aug-
lýsingar um hátíðina á sjúkrastofn-
unum víðs vegar um landið.
áratuginn. I heimili málarans á neðri
hæð hússins hafa verið valdar til
sýningar myndir af dýrum og fuglum,
unnar með vatnslitum og olíulitum.
Ásgrímssafn er til húsa að Berg-
staðastræti 74 og er safnið opið
sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 13.30 -16 yfir vetrarmánuð-
ina. Skólasýning safnsins verður
opin til aprílloka.
Asatrúin í máli og myndum
Listaverk af goðúm og gyðjum ásatrúar-
innar eru nú komin út í formi eftirprent-
ana, ásamt útskýringum á myndum og
stuttri frásögn Sveinbjörns Beinteins-
sonar, allsherjargoða ásatrúarmanna,
um hvert goð, bæði á íslensku og ensku.
Myndirnar eru í litum í stærðinni 40 sm
x 50 sm, á vönduðum Ikonofix pappír.
Nú þegar eru komnar út 5 myndir: Óðinn
æðstur goða, Þór, þrumuguð, Freyja
ástargyða, Iðunn hin unga og saklausa
æskugyðja og Loki, er talinn var til goða
þrátt fyrir jötnaætterni sitt, slægur og
bragðvís. Sjötta myndin, Ægir sjávaroð,
kemur út í mars. í framtíðinni verða svo
gefnar út myndir af fleiri goðum, jötnum
svo og frægum víkingum svo sem Leifi
heppna og Eiríki rauða. Ragnarök, þegar
heimurinn ferst, og lýsing á heimunum
níu ásamt Yggdrasil, veraldartrénu,
verða gefnar út í stærðunum 60 sm x 80
sm. Listamaðurinn og hugmyndafræð-
ingurinn bakvið myndaflokk þennan,
sem hefur verið í bígerð í nokkur undan-
farin ár, er Haukur Halldórsson mynd-
listarmaður, þekktari sem „tröllateikn-
ari“, fyrir túlkanir sínar á þjóðsögum.
Hér er um ákaflega vandaðar, fallegar
og þjóðlegar myndir að ræða sem vert
er að safna. Þær kosta kr. 295 og fást í
flestum bókabúðum og ferðamannaversl-
unum. Áður en myndirnar voru gefnar
út voru þær kynntár erlendis og hafa nú
þegar komið fyrirspurnir um þær frá
Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi
og Þýskalandi. Nokkuð hefur verið um
að fyrirtæki hérlendis hafi sent myndirn-
ar sem nýárskveðjur til viðskiptavina
erlendis svo og hafa margir sent þær
póstleiðis sem þjóðlegar jólagjafir og
ódýrar. Áberandi hefur verið hve útlend-
ingar eru hrifnari af myndum þessum en
íslendingar, sbr. söluhraða á Keflavíkur-
velli, bæði hjá íslenskum markaði og*"~
sérstaklega hjá hernum. Útgefandi er
Goðaútgáfan, Dunhaga 18.
\Jet
Fólksbílar og Sport
Afar hagstæð greiðslukjör
VERÐSKRA:
LADA1200 .................Uppseldur
LADA1500 skutbíll, 4ra gíra ..Var 249.694,- Nú 178.440,- Ný sending áætluð 182.955,-
LADA1500 skutbíll, 5 gíra.Uppseldur
LADASAFÍR.................Var 229.794,- Uppseldur Ný sending áætluð 166.526,-
LADALUX...................Var 259.888,- Nú 189.869,- Nýsending áætluð 189.869,-
LADA SPORT LS, 5 gíra ....Var 426.915,- Nú 315.874,- Ný sending áætluð 317.283,-
Ryðvörn innifalín í verði.
Allir okkar bílar eru árgerð 1986, ryðvarðir og tilbúnir til afhendingar strax.
Mikið úrval af notuðum bílum til sýnis og sölu
< BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF,
M-.'iiíj' SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEELD: 31236