Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1986, Blaðsíða 40
68*78*58
Hafiz þú ábendingu eða vitn-
eskju nm frétt - hringdn þá i
sima 683858.
Fyrir hvert firéttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri vikn greiðast 3.000
krénnr.
Fullrar nafirieyndar er gætt.
Við töknm við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 1 3. MARS1986.
BSRB íhugar að beita banka þvingunum:
Hétar að taka sjóði sína
úrbönkumsemekkilækka
Meðal forystumanna BSRB er nú
alvarlega rætt um að grípa til rót-
tækra aðgerða til að halda verðlagi
Ingi R. Helgason,
forstjóri
íBrunabót:
niðri. Annars vegar er rætt um að
taka sjóði hreyfingarinnar út úr
þeim bönkum sem ekki hafa lækk-
að gjaldskrár sínar og færa þá yfír
í þá banka sem hafa lækkað. Hins
vegar að krefjast þess að Bruna-
bótafélagið slíti sig úr samráði
tryggingarfélaganna og félags-
menn hvattir til að beina viðskipt-
um sínum til þess.
„Við höfum verið að ræða ýmsar
leiðir til að samningarnir nái til-
gangi sínum. Þeir eru enginn
gamanleikur og við viljum ekki að
það fari eins og þegar myntbreyt-
ingin var gerð, sem aldrei náði til-
gangi sínum. Það verður að grípa
til öflugra aðgerða því menn virð-
ast ekki skilja fyrr en skellur í
tönnum," sagði Gunnar Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Starfs-
mannafélags ríkisstofhana, í við-
taliviðDV.
Gunnar sagði að verkalýðshreyf-
ingin réði yfir geysilegu fjármagni,
nokkrum milljörðum, í formi
ýmissa sjóða. Hugmyndin væri að
þetta fjármagn yrði ekki hýst í
þeim bönkum sem neita að lækka
þjónustugjöld sín.
„Tryggingarfélögin eru einnig að
keyra upp tryggingar miðað við
30% verðbólgu. Þetta eru að okkar
mati timburmenn gærdágsins. Það
kemur því til greina að krefjast
þess að Brunabótafélagið, sem er í
ríkiseign, hætti því samráði sem
tryggingarfélögin hafa um verð-
lagningu trygginga," sagði Gunnar
Gunnarsson. -APH
Erum
á núlli
Hvorki erindi né orðrómur hafði
borist til Brunabótafélags íslands
í morgun varðandi áskoranir um
að félagið sliti sig frá hinum
tryggingafélögunum og riði á
vaðið með lækkanir á iðgjöldum.
Ingi R. Helgason forstjóri sagði
DV þetta og eins að félagið væri
í núllrekstri í bifreiðatryggingum,
miðað við sameiginlegt yfirlit átta
tryggingafélaga í þessari trygg-
ingagrein.
Forstjóri Brunabótafélagsins
sagði að samstarfenefhd þessara
félaga hefði það hlutverk að hafa
heildaryfirsýn í sambandi við bif-
reiðatiyggingarnar. Síðan væru
iðgjaldareglur félaganna mismun-
andi og því alls ekki um sama
taxta að ræða hjá þeim.
-HERB
T
RAUSTIR
MENN
25050
SETlDIBiLBSTÖÐin
LOKI
Björgvin
til Björgvin.
Danski dávaldurinn George Frisenette kom til landsins í gær og ætlar að dáleiða íslendinga. Frise-
nette er 85 ára gamall og heldur upp á 50 ára starfsafmæli sitt um þessar mundir. Hann er að mestu
hættur sýningarhaldi en vinnur þess í stað við að lækna landa sína af ýmsum kækjum og tóbaksr-
eykingum.
Frisenette getur talið fólki trú um að vatn sé viskí, konur séu kettir og karlmenn hundar og att þeim
síðan saman. Er þá fátt eitt talið af brögðum danska dávaldsins sem verður með miðnætursýningar í
Háskólabiói á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag. -EIR DV-mynd GVA.
Veðrið á morgun:
Óbreyttveður
umalltland
—litlar breyting-
arframundan
Veður á morgun verður nánast
óbreytt frá því sem er í dag. Suð-
austanátt verður ríkjandi um allt
land og sama rigningarsvæðið á
sunnan- og suðvestanverðu landinu
og í dag.
Hitinn verður á bilinu 5-6 stig og
bjartara veður fyrir norðan og aust-
an. Jafnvel má búast við svipuðu
veðri með litlum breytingum frám
á helgi.
-S.Konn.
Hólm-
fríður
íHvita
húsið?
Ungfrú heimur - Hólmfríður
Karlsdóttir - er núna stödd í
Bandaríkjunum og þar stendur
yfir mikill undirbúningur að hún
fái tækifæri til að heimsækja
Hvíta húsið þar sem hún myndi
þá hitta forseta Bandaríkjanna,
Ronald Reagan.
Síðastliðinn þriðjudag kom
Hólmfríður fram i bandaríska
sjónvarpsþættinum TODAY hjá
NBC sjónvarpsstöðinni og er
þetta einn vinsælasti morgun-
þátturinn í Bandaríkjunum. Talið
er að um sjö milljónir manna hafi
horft á þáttinn og vakti frammi-
staða Hólmfríðar mikla athygli. I
framhaldi af því hefur síðan verið
unnið að heimsókn hennar í Hvíta
húsið sem yrði þá annaðhvort í
dag eða á morgun.
Haft var samband við foreldra
Hólmfríðar sem könnuðust við að
þetta væri í undirbúningi. -baj
Breytingará
húsnædiskerfinu:
Ný lög afgreidd
fyrir þingslit
Á næstu dógimi verður skipuð
nefnd til að útfæra nýjar hug-
myndir um breytingar á hús-
næðismálakerfinu, sem sam-
þykktar voru í nýgerðum kjara-
samningum.
f þessari nefnd munu sitja full-
trúar frá VSÍ, ASf, BSRB og
Húsnæðisstofnun. í samkomulagi
ríkisstjórnarinnar og aðila vinnu-
markaðarins er gert ráð fyrir að
þessar breytingar hetjist 1. sept-
ember nk. Til þess að það geti
orðið verður að heljast handa við
gerð nýrra laga. Þessi lög verður
Alþingi síðan að fjalla um áður
en þingstarfinu lýkur nú í vor.
-APH