Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Blaðsíða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Það eru ekki
allirfátækir
á íslandi
- segir Helgi Þ. Jónsson sem reisir
heilsuhótel í Hveragerði
„Til mín geta menn komið og náð
upp dampi. Það á jafnt við um Is-
lendinga og útlendinga. Ég ætla þó
aðallega að reyna að ná til útlend-
inganna því þeir eru reiðubúnir að
greiða fyrir svona þjónustu." sagði
Helgi Þór Jónsson byggingaverk-
taki. Hann byggir nú lúxushótel í
Hveragerði, alls 5.200 m-. með
veislusölum, nuddi, ieirböðum,
gufuböðum, æfingasölum, þrek-
þjálfun og vínstúkum á tveim hæð-
um. Sumir þjónamir verða meira
að segja iæknismenntaðir.
„Ég ætla að ráða lækna og hjúkr-
unarfólk til starfa ú hótelinu og ég
hef þegar orðið var við mikinn
áhuga fólks í þessi störf. Það á
reyndar við um öll störf á hótelinu.
Ég er þegar langt kominn með
bygginguna, hún er nú fokheld og
rúmlega það,“ sagði Heigi Þór.
Helgi hefur kynnt heilsuhótel sitt
víða í Mið-Evrópu og fengið góðar
undirtektir að eigin sögn, sérstak-
lega í Þýskalandi.
Hafa íslendingar ráð á svona
þjónustu?
„Það eru ekki allir fátækir á ís-
landi. Fjölmargir landsmenn fara
út fyrir landsteinana til að ná
heilsu. Hvers vegna ættu þeir ekki
Heilsuhótelið í Hveragerði hefur verið kynnt víða í Mið-Evrópu og fengið góðar undirtektir, sérstaklega í Þýska-
landi.
að kaupa þessa sömu þjónustu í
Hveragerði?"
- Geta hótelgestir fengið dvalar-
kostnað endurgreiddan frá sjúkra-
samlagi?
„Ég hef aldrei gert ráð fyrir ríkis-
styrkjum í útreikningum mínum.
Hins vegar má vel vera að fólk geti
fengið einhverja reikninga endur-
greidda hjá sjúkrasamlagi ef það ber
sig eftir því sjálft. Um það veit ég
lítið,“ sagði Helgi Þór Jónsson. -EIR
Arnarflug fram-
lengirfrest
til hlutafjárkaupa
Akureyravflugvöllur:
Slæm reynsla af
umferðarljósum
Stjórn Arnarflugs ákvað í gær að
framiengja urn tíu daga frest þann
sem gefinn var til að skrifa sig fvrir
nýjum hlutabréfum. Fresturinn átti
að renna út í dag.
Frestur þessi er veittur að ósk
aðila sem lýst hafa áhuga á að koma
inn í félagið sem stórir hluthaf'ar.
Þessir aðilar telja sig þurfa lengri
tíma og meiri upplýsingar áður en
þeir ákveða hvort þeir kaupi hlut-
afé.
Staða leikhús-
stjóra
áAkureyri:
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
„Það eru margir sem sýna stöðu
leikhússtjórans áhuga og þegar hafa
tvær umsóknir borist. Alit í allt
reikna ég með svona 7-8 umsóknum,
sagði Theodór Júlíusson, formaður
Leikfélags Akureyrar, í gær. Um-
sóknarfrestur um stöðu ieikhússtjóra
hjá Leikfélagi Akureyrar rennur út
Eins og áður hefur komið fram í
DV eru það einkum hótel og ferða-
skrifstofur utan Flugleiða sem vilja
leggja fé til að trvggja áframhald-
andi rekstur Amarflugs.
Fyrir liggur það álit endurskoð-
enda að ef ekki koma tii sérstakar
aðgerðir til að rétta við fjárhag
Arnarflugs, þar á meðal hlutafjár-
aukning, blasir við greiðslustöðvun.
Eiginflárstaða Arnarflugs er talin
neikvæð um 160 milljónir króna og
veltufjárstaða neikvæð um rúmar
200 milijónir króna.
Auk hlutafjáraukningar um tæp-
ar 100 milljónir króna hyggst stjóm
félagsins laga fjárhagsstöðuna með
því að selja Boeing 707-vöruflutn-
ingaþotu, semja vió erlenda og
innlenda lánardrottna um greiðslu-
frest, fá aðstoð ríkissjóðs og með
því að auka hagkvæmni í rekstri.
KMU
MARGIR ÆTLA
AD SÆKJA UM
Tillaga hefur komið fram, eftir at-
burðinn á Reykjavíkurflugvelli á
mánudag, að setja upp umferðarljós
á Suðurgötu þar sem hún liggur við
vesturenda austur-vesturflugbrautar
Reykjavíkurflugvallar. Flugumferð-
arstjórar í flugtumi myndu þá setja
á rautt ljós til að stöðva umferð, bæði
bíla og gangandi vegfarenda, þegar
flugvél væri að lenda eða hefja sig tii
flugs af flugbrautinni.
Slík ljós voru lengi á þjóðveginum
sem liggur meðfram suðurenda Akur-
eyrarflugvallar. Þessi ljós voru tekin
úr notkun fyrir nokkmm ámm.
„Reynslan af þeim var slæm. Þau
gáfu ekki þá raun sem ætlast var til,“
sagði Rúnar Sigmundsson, umdæmis-
stjóri Flugmálastjórnar.
„í fyrsta lagi fengu þessi ljós ekki
að vera í friði. Þau vom brotin.
Með vaxandi flugumferð reyndist
ennfremur mjög erfitt að stjórna ljós-
unum. Þegar mikið var að gera í
einkaflugi, flugvélar kannski að fara
í loftið eða lenda á 5 til 10 mínútna
fresti, var erfitt fyrir flugumferðar-
stjóra að vera alitaf að kveikja og
slökkva á þeim. Það kom fyrir að það
gleymdist að siökkva á ijósunum.
Margir bílar tóku ekkert mark á
þeim. Sumir stöðvuðu við þau, aðrir
ekki.
Ljósin voru sett upp meðan hér var
malarbraut og kannski vegna þess að
þegar flugvélar voru að keyra upp
þyrluðu þær upp mikilli möl aftur
undan sér og gátu skemmt bíla. Ég
man eftir tveim slíkum tiivikum,'1
sagði Rúnar Sigmundsson á Akur-
eyri.
-KMU
um helgina.
Theodór vildi ekki gefa upp nöfn
þeirra tveggja sem sótt hefðu um. „Ég
get ekki sagt þér það. Þeir óska báðir
nafnleyndar."
Að sögn Theodórs verða flestir
umsækjendanna að sunnan. „Ég
hugsa að það komi ein eða tvær
umsóknir héðan að norðan.“
Hvenær verður ákvörðun um
ráðningu tekin?
„Ég veit það ekki nákvæmlega. En
eitt er víst, við ætlum ekki að gefa
okkur langan tíma. Við ætlum að
vera fljót að ákveða okkur.“
Núverandi leikhússtjóri, Signý
Pálsdóttir, hefur gegnt stöðunni í
fjögur ár. Henni bauðst starfið áfram
en þáði ekki, hún ætlar að snúa sér
að öðru.
Lögreglumenn
setjast að tafli
„Ég hef alltaf sagt að ekkert sé betra
en íþróttir til að menn kynnist. Við
þau kynni batnar samstarf manna,“
sagði Helgi Daníelsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá Rannsóknariögreglu ríkis-
ins. Lögreglumenn efna til fyrsta
FALLEGT NYTISKU SOFASETT
rnam a.
OPIÐ
ALLAR
HELGAR
A BETRA VERÐIEN
ÁÐUR HEFUR ÞEKKST
AQ000
jIwáklæði
—
rr *'
56
TM-HUSGOGN
SIÐUMUL A 30
SÍMI68-68-22
000
FRANSKT
GERVILEÐUR
TAKIÐ EFTIR
VERÐINU
landsmóts lögreglumanna í skák um
helgina. „Ég vonast til að 20-30 lög-
reglumenn mæti til leiks,“ sagði
Helgi.
Skákmótið hefst í félagsheimili
lögreglumanna að Brautarholti 30 á
föstudagskvöld kl. 20 og því lýkur
seinni part laugardags. Tefldar verða
níu umferðir eftir monradkerfi.
-sos
Bein
útsending
frá útför
Palmes
Bein útsending frá útfararathöfn
Olofs Palme forsætisráðherra verður
í sjónvarpinu ú morgun, laugardag,
og hefst hún klukkan 12.45. Stefán
Jóhann Stefánsson fréttamaður lýsir
athöfninni sem fer fram frá Adolf
Frederiks-kirkju. Aðalræðu flytur
Ingvar Carlsson, nýskipaður forsæt-
isráðherra Svía.