Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Blaðsíða 13
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986.
13
Neytendur Neytendur Neytendur
2árframyfir
síðasta söludag
- morgunkomið komið til ára sinna
Neytendasíðunni bárust ábending-
ar írá lesanda varðandi morgunkorn
sem selt er í versluninni Austurborg
í Stórholti. Sagðist lesandi hafa keypt
sér einn slíkan pakka en þegar heim
kom og hann ætlaði að fara að gæða
sér á innihaldinu út á súrmjólk þá
kom í ljós að bragðið var ekki eins
og hann átti að venjast. Skýringin
reyndist sú að síðasti söludagur var
útrunninn fyrir tveimur árum og vel
það.
Neytendasíðan fór á stúfana og viti
menn, þrjár tegundir voru komnar
allvel til ára sinna, Kruska frá Nut-
ana, Fiber 45 frá Nutana og Alpen
morgunkorn.
Afgreiðslustúlkumar sögðust ekki
hafa vitað af þessu, enda hljóta pakk-
arnir að hafa verið orðnir ómissandi
í innréttingu verslunarinnar. Full
ástæða er til að vara fólk við að kaupa
vöru sem komin er fram yfir síðasta
söludag og ef slík vara er keypt í
ógáti ber að skila henni og vekja
athygli verslunarstjóra á þvi. En að
sjálfsögðu á verslunarfólk að fylgjast
náið með því að slík vara sé ekki á
boðstólum í verslunum.
-S.Konn.
Alpenpakkinn leit fremur þreytulega út, enda kominn til ára sinna.
Mynd-PK.
Filer45
Scwnm*
'.wm'dryspa
surm«:iki*prtKÍukl€ r gcme
meö Mt l'mgt
luRrcdítnxr: (jgncr, hvcdc-
libre,
Hvtikfihmveer bchamitct.
j.8 lyunoKlhutdcí cr untkr
Opbcvaríng: («*1, rdJukJtet
<>g ikkc ii»f varrm
IrcmMíikt i J>anmark for:
HUm*K
DK-mt Bf*vcí»kuv
JmnorterlMHorgc
NL'TANA NOKGlt \Sn
S- íÖSÖ Mpmdiílen
Jtnptwlór för Svcrigr;
ABÍíSnAKOST.
S>?föJ008«ttbo
Mkuíat holtföstr til og amút
0KT.1984 '
Eins og sést á myndinni er síðasti
söludagur Fiber 45 i október 1984 og á
Kruska mánuði seinna, nóvember
1984.
Þróun vöruumbúða
- íslenskir framleiðendur hafa dregist aftur úr
Félag íslenskra iðnrekenda hefur nu
undanfarið tekið til umfjöllunar
ástandið í umbúðamálum hérlendis. Á
undanfömum ámm hefur mikil breyt-
ing orðið á þessum málum erlendis
og greinileg þróun orðið í ákveðna
átt. Þannig má gera ráð fyrir að efin
eins og gler og blikk muni minnka
til mikilla muna og P.E.T. plast (eins
og er í 1,5 1 gosflöskunum) taki við
af PVC umbúðum eins og hafa verið
í djúsbrúsunum til þessa og svo mætti
áfram telja.
Neytendur hafa siðasta orðið
Páll Kr. Pálsson, deildarstjóri
tæknideildar FÍI, sagði að þróunin
væri greinilega sú að neytendur réðu
nú mestu um eðli og útlit umbúða og
kröfur þeirra væru í þá átt að umbúð-
irnar ættu að halda vömnni ferskri
til lengri tíma, þær mega ekki vera
hættulegar, útlit umbúðanna verður
að vera aðlaðandi og þær verða að
vera hentugar og raðast vel. „Það
verður að segjast eins og er að íslensk
fyrirtæki hafa ekki fylgt þeirri þróun
sem orðið hefur erlcndis, en núna er
þessi bylgja að hellast yfir okkur og
tími til kominn að fara að vakna til
vitundar um mikilvægi þess að koma
upplýsingum um vöruna beint til
neytenda og auka hagkvæmni í fram-
leiðslu og flutningum."
Norrænt samstarf
Félag íslenskra iðnrekenda hefur
verið aðili að samtökum umbúða-
framleiðenda á Norðurlöndum síðan
1985, en starfsemi þeirra samtaka felst
aðallega í upplýsingamiðlun, vöru-
þróun, rannsóknum, stöðlun, ráðgjaf-
arstarfsemi, námskeiðahaldi, mark-
aðs- og neytendakönnun og skipu-
lagningu sýninga og námskeiða.
Aðilar að samtökunum eru m.a.
mnbúðaframleiðendur, hráefnafram-
leiðendur, notendur umbúða, neyten-
dasamtök, verslunarsamtök og opin-
berir aðilar.
Páll sagði að aðhald neytenda væri
mjög mikilvægt bæði fyrir framleið-
endur umbúða jafnt sem alla aðra
framleiðendur.
„Við erumáeftir"
„Við verðum að viðurkenna að við
erum á eftir en það sýnir sig að þau
fyrirtæki sem huga vel að umbúða-
málum fá sín laun í aukinni markaðs-
hlutdeild en hinir eiga erfitt með að
halda sínum hlut. Þetta er sérstak-
lega mikilvægt varðandi útflutning-
inn.“
Félag íslenskra iðnrekenda hefur
skipað nefnd til að starfa að þessum
málum og kemur hún til með að funda
síðar í þessum mánuði og ræða tillög-
ur um samstarf og frekari þróun á
þessu sviði.
-S.Konn.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið nkkur þennan svarseðU. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í uppiysingamiðlun meðal almennings um hvert sc meðaltal heimiliskostnaðar
( (jolskvldu af siimu staerð og vðar.
I
1 Nafn áskrifanda
I -------------
I
Heimili
Sími
l Fjöldi heimilisfólks
i
• Kostnaður í febrúar 1986.
I
i Matur og hreinlætisvörur kr.
i Annað kr.
Alls kr.
I
V
MATVÖRUDEILD
PASKAR
ERU KOMNIR
í Vöruhús Vesturlands
Það er kannski óþarfi að taka það fram en við höfum á
boðstólum allan mat til hátíðarinnar: Úrvals svínakjöt, nauta-
kjöt, nýtt og létt reykt lambakjöt, rauðvínslegið lambalæri og
fuglakjöt, kalkúna, gæsir endur og kjúklinga. Og páskaegg.
En við hugsum ekki bara um hátíðarmatinn, við gerum
einnig vel við gesti og gangandi. Ferðamenn fá hjá okkur allt
nesti, s. s. heitar og kaldar samlokur og við eigum ávallt
nýgrillaða kjúklinga.
Og þótt menn lifi ekki á brauði einu saman bendum við á
Brauðhornið okkar, fullt af nýbökuðum brauðum og kökum frá
Brauðgerð KB.
Opið virka daga frá 9-18
laugardaga frá 9-12.
Vöruhús Vesturlands
Borgarnesi sími 93-7200