Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Side 4
4 DV. FÖSTUDAGUR14. MARS 1986. Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Matthías Bjarnason viðskiptaráðherra: Mun óska eftir ákveðnum lækkun- umínæstuviku - rök bankanna eiga ekki stoð í veruleikanum Matthías Bjarnason viðskipta- ráðherra er óánægður með þau svör bankanna að þeir hafi hækkað þjónustugjöld sín vegna hækkunar á gjaldskrá Pósts og síma. Ráð- herrann hyggst senda bönkunum nýtt bréf í næstu viku og fara fram á ákveðnar lækkanir. Ef bankamir fara ekki að hans tilmælum segist hann neyðast til þess að setja lagaá- kvæði til að lækkanirnar gangi eftir. „Ég er ánægður með svör sumra bankanna, annarra ekki. Eg tel það ákaflega slæman samanburð að bera þessar hækkanir saman við gjöld Pósts og síma. Póstburðar- gjöldin hafa aðeins hækkað um 52% síðastliðna 30 mánuði. Á sama tíma hafa símagjöld lækkað þannig að ef litið er á heildargjaldskrá Pósts og síma hefur hún aðeins hækkað um 4% þetta tímabil. Ég væri mjög ánægður ef einhverjir aðrir gætu sýnt fram á eitthvað í námunda við þetta. Þessi samanburður bankanna á sér því ekki stoð í veruleikanum og er engin rök,“ sagði Matthías Bjarnason í viðtali við DV. Ráðherrann ætlar í næstu viku að senda nýtt bréf til bankanna þar sem hann mun ákveðið fara fram á lækkun þjónustugjalda þeirra. „Ef einhver banki vill ekki fara eftir því neyðist maður auðvitað tii þess að fá lagaheimiid,“ sagði Matt- hías. -APH Gamla fólkið tapar á vaxta- lækkununum - það á yfir 20 milljarða af almenna sparífénu Innstæður á sparireikningum í bönkum og sparisjóðum, seld ríkis- skuldabréf og almenn skuldabréf eru samtals að upphæð um 40 milljarðar króna, gróflega reiknað. Af þessu eiga einstaklingar um 3/4 og þá aðallega þeir sem eru komnir yfir sextugt. Þannig er það fyrst og fremst gamla fólkið sem tapar, þegar vextir lækka. Það á líklega yfir 20 milljarða „í handraðanum". Þessu hafa ýmsir velt fyrir sér í sambandi við þá kröfu launþegasam- takanna og ýmissa stjórnmálamanna, að vextir verði Iækkaðir. Er þá átt við raunverulega lækkun þeirra og þar með umfram hjöðnun verðbólg- unnar. Krafan er augljóslega byggð á hagsmunum lántakenda fremur en lánveitenda, þá ekki síst hagsmunum yngra fólks sem er að byggja yfir sig. í því sambandi eiga fyrirtækin sömu hagsmuna að gæta. Raunvextir hér á landi, eða vextir umfram verðbólgu, eru ekki hærri hér en raunvextir víða annars staðar. Að vísu kunna þeir að slá upp í 20% í næsta mánuði, en líkiegra er þó að vextir verði lækkaðir áður en það kemur til. Annars eru þeir á róli kring um 10%. Það er svipað og á almenn- um fjármagnsmarkaði í Bandaríkjun- um, þar sem vextir eru nú 12-15% en verðbólga 3%. Vextir í Bandaríkjunum eru annars mjög breytilegir. Ríkisskuldabréf eru þar með 8% vöxtum og ríkisvíxlar með 7% vöxtum. Grunnvextir banka, sem gilda um lán til öflugustu lántak- enda, eru 9%. Á Englandi eru vextir á iánum í milliríkjaviðskiptum nú rúmlega 12%, en þar er 6% verðbóiga. Sams konar vextir í Frakklandi eru 14% á meðan verðbólgan þar er 5%. Vextir hér á landi eru nú mjög breytilegir eftir sparnaðar- og út- lánaformum. Þar að auki eru þeir að breytast til og frá vegna sviftinga í verðlagsþróun, og má búast við meiri eða minni breytingum á bankavöxt- um á 10 daga fresti. Meginviðmiðunin eru þó vextir á spariskírteinum ríkis- sjóðs. Á þeim eru fastir 9% vextir, auk verðtryggingar. Þar að auki eru skírteinin undanþegin við eignar- skattsálagningu, sem þýðir næstum 1% viðbótarávöxtun fyrir þá sem eiga eignir umfram skuldir. Þannig verða aðrir sem sækjast eftir sparifé landsmanna að miða ávöxtunarboð sín við þennan skæða keppinaut, ríkið, sem að sjálfsögðu er traustasti lántakandinn í landinu. Til þess að skáka ríkinu verða aðrir að bjóða minnst 10,5% ársávöxtun og gullnar tryggingar eða ailt upp í 16% með iakari tryggingum. Lægri ávöxtun er svo boðin, þegar um er að ræða styttri bindingu eða enga bindingu sparifjárins. Þrátt fyrir kröfur um raunvaxta- lækkun eru ekki horfur á að hún komi til í bráð, að minnsta kosti ékki á meðan ríkið heldur sínu striki. En vissara er fyrir spariíjáreigendur að fylgjast vel með þeim vaxtabreyting- um, sem verða á næstunni, og endur- meta ávöxtun sparifjárins eftir þörf- um. Á meðan fjármagn skortir ætti að vera óþarfi fyrir þá sem eiga pen- inga að hafa ekki þokkalegan arð af þeim. HERB Norðurlandaráð: Fjáriagatillögur fyrir 1987 felldar Haukur Lárus Hauksson, fréttaritari DV í Kaupmannahöfn: Þingfulltrúar Norðurlandaráðs felldu fjárlagatillögur ráðherranefnd- arinnar fyrir árið 1987. Er þetta í fyrsta skipti i sögu Norðurlandaráðs sem slíkur ágreiningur kemur upp milli þingfulltrúa og ráðherranefnd- arinnar, þar sem sitja fulltrúar þeirra ríkistjóma sem aðild eiga að Norður- landaráði. Fjárlögin hljóðuðu upp á um það bil fimm hundruð og fjörutíu milljónir danskra króna, sem er um fímm og hálfs prósents hækkun, að því er ráðherranefndin telur. Þingfulltrú- arnir iiéldu því aftur á móti fram að raunveruleg hækkun væri nær ongin, bæði vegna hækkaðs verðlags og nýrra útgjaidaliða. Samþykktu þing- fulltrúar einróma tillögu um fimmtán milljón króna hækkun fjárlaganna. Þar sem Norðurlandaráð er einung- is ráðgefandi er ráðherranefndin ekki bundin af þessari samþykkt, en hún mun fjalla um hana áður en endanleg fjárlög verða ákveðin 15. mars næst- komandi. Lagt hefur verið til að þessar fimmt- án milljónir danskra króna verði meðal annars notaðar til að tvöfalda tónlistar- og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og til að styrkja alþjóðlega endurhæfingar- og rann- sóknarmiðstöð fyrir fórnarlömb pynt- inga, sem staðsett er í Kaupmanna- höfn. Stefnt er að þvíað samningaviðræð- um ljúki við fyrirtækið Rio Tinto Zink vegna kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði um miðjan sejjtember á þessu ári. Að loknum samningavið- ræðunum verður síðan lagt fram Kísilmálmverksmiðja: Samningaviðræðum Ijúki næsta haust frumvai-p á Alþingi um brevtingar á fyrri lögum um verksmiðjuna. Ef allt gengur að óskum hefst fram- leiðsla úr fvrstá ofni verksmiðjunn- ar 1989. Upphaflega var gert ráð fyrir að hægt yrði að leggja fram frum varpið á þessu þingi. Þá var miðað við að tilteknum áfanga viðræðnanna yrði lokið. Á fundi aðila í þessum nián- uði var horfið frá þessum áformum. Þess f stað skuli stefnt að því að Ijúka heildarsamningiun í haust. Þá vorður lagt fyrir Alþingi frum- varp sem felur í sér breytingar um eignaraðild hins erlenda fyrirtækis. Samningum um einstaka verk- þætti við byggingu verksmiðjunnar á að vera lokið fyrir 1. janúar lf)87. Fyrsti ofninn kumst í gagnið 1989 og sá næsti ári síðar. Þá er fram- leiðslugeta verksmiðjunnar 28.800 tonn á ári. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.