Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986.
5
Stjórnmál Stjórnmál
Líklegf að lánskjaravísitalan
lækkí um mánaðamótin:
Öll vísitölu-
lánin lækka
Frá upphafí verðtryggingar fjár-
skuldbindinga hér á landi fyrir
nokkrum árum hefur það ekki gerst
að vísitala þeirra hafi lækkað. En nú
búast menn við þeim sögulega atburði
að lánskjaravísitalan lækki um næstu
mánaðamót og þar með öll vísitölu-
bundin lán. Þetta verður þó ekki neitt
sem um munar og líklega innan við
1%.
Með þessar horfur í huga er ekki
ráðlegt að kaupa verðtryggðar
skuldaviðurkenningar, svo sem spa-
riskírteini ríkissjóðs, fyrr en eftir
mánaðamót. Þá verða þau ódýrari en
nú. Hins vegar er ekki að búast við
frekari lækkun lánskjaravísitölunn-
ar, þvert á móti hækkun á ný strax
í apríl.
A meðan þessi staða varir, að lán-
skjaravísitalan lækkar eða því sem
næst stendur i stað, verða gríðarlega
háir raunvextir á sumum óverð-
tryggðum innlánsreikningum í bönk-
um og sparisjóðum. Avöxtun þeirra
er allt upp fyrir 20%. Raunvextirnir
verða jafnháir á meðan lánskjaravís-
italan stendur i stað.
Þessi innlán eru á hinn bóginn
bundin til minnst 12 mánaða á þessum
kjörum og því verða raunvextir ekki
svo háir á innlánstímabihnu. Þar að
auki má búast við frekari vaxtalækk-
unum innan tíðar, haldist verðlags-
þróun í horfinu. HERB
Vorum að taka upp sendingu
af varahlutum í
AMC
Jeep,
Wagoneer,
Cherokee.
í sendingunni var m.a.
Neðri spindilkúlur E AGLE
Mótorpúðar
Aðalljósarofar
Fjaðrafóðringar
EDiðarljós
Spindilrær
Bakklj ósarofar
Hurðarrofar
Innsogsfjaðrir
Höggdeifar
Vatnslásstútar
Miðstöðvarelement
Miðstöðvarmótorar
og margt fleira.
Norðurlandaráð:
Norrænt sam-
starf um rann-
sóknir á eyðni
Haukur Lárus Hauksson, fréttaritari
DV í Kaupmannahöfn:
Á þingi Norðurlandaráðs var sam-
þykkt tillaga um norrænt samstarf
um upplýsingar um og rannsóknir á
eyðni. Meðal flutningsmanna var
Páll Pétursson.
í greinargerð með tillögunni segir
að eyðni hafi nú náð fótfestu á Norð-
urlöndum, en af Evrópulöndunum eru
hlutfallslega flestir eyðnisjúklingar í
Danmörku.
Þekking á eyðni er mjög lítil og er
hindrun á útbreiðslu undir árangri
fyrirbyggjandi aðgerða komin, þar
sem lyfjameðferð sem dugir fyrir-
finnst ekki ennþá.
1 greinargerðinni segir einnig að
þessi sjúkdómur geri auknar kröfur
til samfélagsins og að markvissar
aðgerðir þurfi að koma til. í öllum
löndunum séu í gangi aðgerðir til að
hindra útbreiðslu eyðni, en þær eru
ólíkar.
Þykir það ámælisvert að enn skuli
ekki vera samstarf milli Norðurland-
anna á þessu sviði þar sem góð sam-
vinna er milli landanna á sviði heil-
brigðismála.
í tillögunum um samnorrænar að-
gerðir er lögð áhersla á upplýsinga-
streymi milli landanna og samstarf
um rannsóknir á orsökum eyðni, smiti
þess og viðeigandi meðferð. Loks er
lögð áhersla á auknar upplýsingar til
Próf-
kjór um
helgina
Ihófkjtir vegna sveitarstjórnarkosn-
inganna í vor verða á nokkrum stöð-
um nú um helgina.
Á laugardaginn efna sjálfstæðis-
menn til prófkjörs á Patreksfirði.
Kosið verður í Félagsheimilinu. Al-
þýðuflokksmenn efna til prófkjörs á
Akranesi, Akureyri og Siglufirði.
Þátttaka í prófkjörum Alþýðu-
flokksins er háð því að menn hafi náð
18 ára aldri og séu ekki flokksbundnir
í öðrum flokkum. Prófkjör Sjálfstæð-
isflokksins á Patreksfirði gerir ráð
fyrir að kjósendur séu flokksbundnir,
hafi sótt um inngöngu eða hafi undir-
ritað stuðningsyfirlýsingu við flokk-
inn. -APH
almennings og þeirra sem vinna á
svæðum þar sem eyðni er útbreidd.
Dráttarbeisli frá VBG. tilbúin til að setja
undir bílinn. Höfum á lager beisli undir
yfir 40 gerðir bifreiða — gott verð.
Úrval varahluta í evrópska og japanskar bif-
reiðar eins og bremsuklossar,
stýrisendar, spindilkúlur, kveikjuhlutir,
kúplingar, bremsuljósarofar og hitarofar í
vatnskassa.
Sendum í póstkröfu um allt land.
VARAHLUTAVERSLUNIN
niLMVLT
If SÍÐUMÚLA3 j
g]Bl ÍST37273
Sendum um allt land.
NISSAN
Cherry“
Kristinn Sigmundsson söngvari segir:
„Af augljósum ástæðum verö ég að vanda valið. Ég verð
að máta bíla til að ganga úr skugga um að þeir þrengi
ekki að mér. Ég reymdi marga bíla af minni gerðinni áður
en ég valdi Nissan Cherry. Hann er sá eini sem er nógu
rúmgóðurfyrirmig. Ég mæli með Nissan Cherry."
Tökum flesta
notaða bíla
upp í nýja.