Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS 1986.
7
Atvinnumál
Atvinnumál
Atvinnumál
Atvinnumál
Ihuga að stofna eig
ið tiyggingafélag
Atvinnubílstjórar af öllu landinu,
rútubílstjórar, leigubílstjórar, vöru-
bifreiðastjórar, sendibílstjórar, og
vöruflutningabílstjórar ætla nú að
sameinast í samtökum atvinnubif-
reiðastjóra á íslandi gegn því órétti
sem þeir telja sig beitta. Þeim fmnst
þungaskatturinn, sem þeir borga,
allt of hár, tryggingagjöldin ósann-
gjörn, álagningin á sóluðum dekkj-
um óeðlilega há, bensín- og olíu-
hækkanir oft ótímabærar og fl.
Stofnfundur samtakanna verður
haldinn á laugardaginn kl. 13.00 í
Glæsibæ og vænst er að atvinnubíl-
stjórar alls staðar af landinu komi
eða sendi sinn fulltrúa.
Atvinnubílstjórar hafa fullan hug
á að stofna sitt eigið trvggingafélag,
þar sem tryggingafélögin hafi ekki
sýnt vilja til þess að koma til móts
við þá varðandi iðgjöldin.
-KB
Hagstættað byija refabúskap nú
- segir Reynir Bergdal loðdýrabóndi
„Það hafa alltaf verið sveiflur á verði
refaskinna. Verðið var óeðlilega hátt
í fyrra, þannig að vart er hægt að
miða við það ár og tala um verðfall
núna,“ sagði Reynir Bergdal sem
rekið hefur loðdýrabú nálægt Sauð-
árkróki síðan árið 1969.
Margir loðdýrabændur kvarta nú
sáran yfir verðfallinu á refaskinnum.
Sumir segjast vart geta alið læðurnar
út veturinn vegna lélegrar afkomu.
„Þeir sem hafa byggt hallir og lagt
út í óhemju fjármagnskostnað varð-
andi búskapinn eru nú í vandræðum.
Bændur sem draga saman í hefð-
bundnum búskap og vilja fara út í
loðdýrarækt þurfa ekkert að borga
með loðdýraræktinni. Það er í all-
flestum tilvikum hægt að nota þær
byggingar sem fyrir eru."
Reynir sagði að meðan lágt verð
væri á refaskinnunum, eins og nú,
væri mjög hagstætt fyrir bændur að
byrja loðdýrarækt. „Þegar skinnin
eru á lágu verði þá eru lífdýrin einnig
á lágu verði. Þetta er atriði sem engan
veginn má vanmeta og hefur skort i
umræðuna," sagði Reynir Bergdal.
„Annars mega bændur ekki ganga
með þær grillur i hausnum að þeir
geti lifað á refarækt éingönu. Þar er
hugsanlegt með minkinn og við-
gengst í nágrannaiöndum okkar.
Minkaskinnin eru klassísk en refa-
skinnin tískufvrirbrigði."
Riðuveikin
í Þingeyjar-
sýslum:
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
■ „Málið er enn hjá ríkisstjórninni.
Við eigum von á svari fyrir lok
mánaðarins,“ sagði Björn Guð-
mundsson, oddviti í Kelduhverfi, i
gær um það hvort fjárveiting fengist
fyrir bótum til þeirra bænda sem
hyggjast skera niður fé í haust
vegna riðuveikinnar í Þingeyjar-
sýslum.
Svar um bætur
innan skamms
Eins og fram kom í DV sl. laugar-
dag hafa bændur í Þingeyjarsýslum
bundist samtökum um að skera
niður fé í haust vegna riðuveikinn-
ar. Alls verður um 6000 fjár skorið
r.iður, þar af um 3000 í Kelduhverfi.
Það er um helmingur alls sauðfjár
þar.
Einn bóndi í Kelduhverfinu, Þor-
geir Þórarinsson á Grásíðu, hefur
mótmælt kröftuglega. Hann hefur
ekki samþykkt að skera niður, ekki
skrifað undir slíkt eins og aðrir
bændur.
„Vegna þeirra ummæla Þorgeirs
í DV sl. laugardag að riðuveikin
hafi komið upp fvrst á bænum
Laufási. þá er það ósannað með öllu.
Veikin kom upp á mjög svipuðum
tíma á tveim öðrum bæium." sagði
Björn.
.. Og fullyrðing Þorgeirs um að
það hefði átt að vera fjárlaust á
Laufási í eitt ár eftir að þar var
skorið niður. er ekki rétt. Þetta var
árið 1973 og sauðfjárveikivarnir
gerðu þá ekki kröfu um fjárlaus bú
og sótthreinsun fjárhúsa. Þess
vegna var fé tekið inn í húsið um
haustið." sagði Björn Guðmund-
sson oddviti.
„Refaskinn er tískuvara en minka-
skinn klassik." segir Reynir Bergdal
loðdýrabóndi. Refaskinn eru greini-
lega ekki eins mikið í tisku og þau
voru í fyrra, þau ganga á mun lægra
verði nú.
Hótel full í febrúar
Erlendum ferðamönnum. sem ieggja
leið sína til íslands, fjölgaði mjög á
fyrstu tveimur mánuðum þessa árs. 1
janúar og febrúar komu 21,4 prósent
fleiri útlendingar til landsins en :i
sama tima í fyrra.
1 ár komu frá áramótum til febrúar-
loka alls 6.515 útlendingar til lands-
ins. A þessum tíma í fyrra komu 5.366
útlendingar.
Aukningin í febrúarmánuði er ótrú-
leg, eða 38,7 prósent. Norðurlandabú-
um fjölgaði mest, sérstaklega Dönum.
Fjöldi danskra ríkisborgara í íslands-
ferðum í febrúar næstum tvöfaldaðist
frá árinu áður. úr 257 í 490.
„Það hefði einhvern tíma þótt sagá
til næsta bæjar að öll hótei í borginni
væru full um helgar í febrúar. Það
voru dæmi um að ekki væri liægt að
fá inni á hóteli hér um helgi í febrú-
ar,“ sagði Sæmundur Guðvinsson.
blaðafulltrúi Flugleiða.
Sæmundur taldi að meðal skýringa
á þessari fjölgun férðamanna væru
lielgarferðir Flugleiða frá Norður-
löndum sem væru mjög vinsælar.
-KMU
Bændur:
Vilja tengsl við Ijölmiðla
Á nýafstöðnu Búnaðarþingi höfðu
sumir miklar áhyggjur af litlum
tengslum bænda við fjölmiðla. Bún-
aðarsamband Austur-H únavatns-
sýslu flutti erindi á þinginu þar sem
ítrekuð var nauðsyn þess að samtök
bænda nýttu sér betur en verið hefur
fjölmiðla til að koma á framfæri
hagsmunamálum sínum „og vera til
andsvara óvægum áróðri á stéttina,
meðal annars með því að ráða hið
bráðasta blaðafulltrúa til starfa hjá
bændasamtökunum“.
Ályktun, sem samin var í þessum
dúr, var sam|)ykkt á þinginu. Bænd-
ur hafa hingað til ekki allir verið
jafnhrifnir af þessu fjölmiðlafári, eða
eins og einn hóndinn sagði á þinginu:
„Þetta er bara fyrir þá sem vilja
tranasérfram."
Að undanförnu hafa þó fleiri bænd-
ur bæst í þann hóp sem telur nauð-
synlegt fyrir stéttina að kvnna sinn
málstað betur. í greinagerð, sem fvlg-
ir erindi Búnaðarsambands Austur-
Húnavatnssýslu, segir: „Markviss
upplýsingaöflun verður æ mikilvæg-
ari eftir því sem samkeppni harðnar.
Á þetta bæði við um þætti senr lúta
að sölu búvara í samkeppni við aðrar
matvörur, sem og á félagslegum svið-
um. Tillaga um ný og áhrifaríkari
vinnubrögð á þessurn sviðum var
send Búnaðarþingi á síðastliðnu ári.
Ekki verður séð að neinar markviss-
ar aðgerðir sóu uppi í þeim anda scm
lagtvartil.
Verkefni upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins verður að annast á breið-
um grunni kynningar- og fræðslu-
starf um landbúnaðinn og fram-
leiðsluvörur hans. Gefið. skal út
fréttabréf um málefni landbúnaðar-
ins, komið á blaðamannafundum og
haft við blaða- og fréttamenn sam-
starfum málefni stéttarinnar." -KB
JL-HÚSIÐ HJALPAR UPPA
KJARASAMNINGANA
DÆMI
SEM VERT ER AÐ ATHUGA
í HÚSGAGNADEILDJ||
\N(,I i lQl t
Dæmi 1:
Húsgagnakaup fyrir kr. 25.000, kr. 5000 út og kr. aö 8 mánuði með
5000 pr. mánuð í 4 mánuði. VAXTALAUST. 20% útborgun |
Dæmi 2:
Húsgagnakaup fyrir kr. 50.000, kr. 10.000 út og
kr. 10.000 pr. mánuð í 4 mánuði. VAXTALAUST.
Engir vextir í 4 mánuði
Ath. Adeins 1 husqaqnadeild
VfSA
-HUSSINS
o
ST«nGI*EIÐSLU-
AFSLATTUR
PASKATILBOÐ
ATH. Einnig
skuldabréf í allt
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
Húsgagnadeild - Sími 28601