Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986.
9
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Frakkland
MitteirandSeggjut aHt undir
Á sunnudag eru þingkosningar í
Frakklandi. Það sem fyrst og fremst
gerir þessar kosningar spennandi er
að í fyrsta skipti í sögu fimmta lýð-
veldisins er hugsanlegt að forsetinn
lendi í þeirri undarlegu aðstöðu að
þurfa að deila framkvæmdavaldinu
með pólitískum andstæðingum sín-
um.
Skoðanakannanir hafa bent til
þess að kosningabandalag hægri
manna muni verða sigurvegari kosn-
inganna. Verði sú raunin blasir við
sósíalistanum Mitterrand að þurfa
að skipa einhvern sinna höfuðand-
stæðinga forsætisráðherra, ellegar
segja af sér embætti forseta þó kjör-
tímabili hans ljúki ekki fyrr en eftir
tvö ár.
Situr Mitterrand áfram?
Miklar bollaleggingar hafa verið
um það í Frakklandi hvort Mitter-
rand muni sætta sig við að deila valdi
sínu með borgalegri ríkisstjórn. En
kostirnir sem honum bjóðast í þess-
ari stöðu eru ekki góðir. Sumir sós-
íalistar hafa reyndar sagt að þeir
hafi ekkert á móti því að embætti
forsætisráðherra fái meira vægi, á
kostnað forsetaembættisins. En Mit-
terrand er ekki í þessum hópi. Hann
hefur lýst því yfir að hann hafi ekki
hugsað sér að vera neinn mála-
myndaforseti.
Pólitískir árekstrar sýnast því
óhjákvæmilegir komi sú staða upp,
sem allt útlit er fyrir, að borgara-
flokkarnirnái meirihluta.
Sósíalistar leggja allt að veði
Þessi staða og eins sá möguleiki
Hægri sigurlík-
leguríFrakklandi
Síðustu skoðanakannanir fyrir
frönsku þingkosningarnar á sunnu-
dag benda til sigurs hægri manna
og meirihluta flokks Gaullista og
UDF, er telst vera flokkur hægra
megin við miðju.
Vonir sósíalista um fylgisaukn-
ingu á síðustu klukkutímunum fyrir
kosningar fara nú dvínandi vegna
aukinnar óvissu um afdrif frönsku
gíslanna í Beirút.
Gíslamálið er búið að setja mikinn
svip • á kosningabaráttuna síðustu
daga og hefur málið aukið mjög
þrýsting á stjórn sósíalista að gera
eitthvað til frelsunar gíslanna.
Jákvæðir efnahagsþættir eins og
til dæmis minnkandi verðbólga og
minna atvinnuleysi á síðustu mán-
uðum falla algerlega í skuggann
fyrir gíslunum í Beirút.
Verð á hráolíu fellur hratt
Hráolía féll skyndilega í verði í
gær eftir orðróm um að OPEC ríkj-
unum gengi ekkert að semja um að
draga úr framleiðslu.
Viðræður um leiðir til að binda
enda á verðstríðið hafa verið í gangi
milli OPEC ríkjanna og hafði verð
á hráolíu stigið örlítið upp á við
síðustu daga. Verðið féll síðan hratt
aftur eftir að haft var eftir olíumála-
ráðherra Venesúela að ólíklegt væri
að þessi aukafundur OPEC kæmist
að nokkru samkomulagi. '
að Mitterrand segi af sér embætti
forseta vinni hægri menn sigur, veld-
ur mörgum kjósendum, bæði til
hægri og vinstri, áhyggjum. Þetta
virðast sósíalistar ákveðnir í að nota
sér. I útvarpsviðtali í vikunni skor-
aði ritari Sósíalistaflokksins, Lionel
Jospin, á kjósendur að kjósa sósíal-
ista þannig að komist yrði hjá
„meiriháttar pólitískum árekstrum
og lömun framkvæmdavaldsins“ eins
og hann orðaði það.
Því nær sem dregur kosningunum
því meir leggja sósíalistar að veði. í
grein í franska blaðinu Le Monde
er haft eftir samstarfsmönnum for-
setans að Mitterrand kunni að segja
af sér undireins, nái hægri menn
yfirtökum á þinginu. Skoðanakann-
anir hafa sýnt að fylgi sósíalista
hefur verið að aukast síðustu daga
og með því að setja Mitterrand að
veði vonast sósíalistar til að óá-
kveðna kjósendur á sitt band.
Mitterrand Frakklandsforseti: Segir hann af sér eftir kosningar?
Fjáriagatíllögur
Reagans felldar
Fjárlagatillögur Reagans forseta
fyrir árið 1987 voru felldar í fulltrúa-
deild bandaríska þingsins í gær með
miklum meirihluta atkvæða. Demó-
kratar eru í meirihluta í fulltrúadeild-
inni, en það er ekki eina ástæðan
fyrir þessum úrslitum því tæplega
áttatíu þingmenn úr Repúblikana-
flokknum sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Fjárlagatillögur Reagans voru helst
gagnrýndar fyrir of mikil útgjöld til
varnarmála og of mikinn niðurskurð
á ýmsum öðrum verkcfnum, svo sem
til félagsmála.
Fjárhagsnefnd fulltrúadeildarinnar
mun að öllmn líkindum leggja fram
nýjar tillögur bráðlega, fallist öld-
ungadeildin á slíka málsmeðferð.
m-------------------►
lteagan Bandaríkjaforseti kemur
ekki fjárlagatillögum sínum gegnum
þingið.
LÍTILLÁRANGUR
AF AFVOPNUNAR-
VIÐRÆÐUM
Lítill árangur hefur enn sem komið
er orðið af afvopnunarviðræðum stór-
veldanna sem fram fara i Genf, að því
er Paul Nitze, sérfræðingur Banda-
ríkjamanna í afvopnunarmálum, seg-
ir.
Sovétmenn hafa lagt fram gagntil-
boð við hinni svokölluðu núll lausn
Reagans, en bandarísku viðræðu-
mennirnir segja það tilboð fyrst og
fremst vera hannað með pólitiskt
áróðursgildi í huga.
Reagan segist engu að síður sann-
færður um að Gorbatsjof vilji komast
að samkomulagi um takmörkun víg-
búnaðar.
Hangikjöt, úrbeinaöur frampartur, London lamb, úrbeinaður frampartur, Nautakjöt á mjög lágu verði: Var kr. kr. 338 kg 398 kr. 389 kg 448 Hakk kr. 325 kg 378 Buff kr. 215 kg 795 Innralæri kr. 767 kg 848
Svali á 69 kr., 6 í pakka. Egg á kr. 105 kg. Heildósir af niðursoðnum ávöxtum, 25 kr. Allir fá að smakka.
Páskaegg komin í hillurnar á niðursettu verði.
Opiö f rá 9-18 mánud.-fimmtud., 9-19 föstud., 10-16 laugard. Öpið í hádeginu alla daga.
Starmýri 2, s. 30420-30425.