Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Qupperneq 12
12
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986.
Neytendur Neytendur Neytendur
VEFNAÐARVÖRUDEILD
PASKAR
ERU KOMNIR
í Vöruhús Vesturlands
Senn líður að páskum og
vorið er á næstu grösum. Þá fer
að verða tími til að kasta
vetrarfeldinum og leita léttari
klæðnaðar sem hæfir hækk-
andi sól og komandi sumri.
Við fáum daglega mikið
úrval af vor- og sumarvörum,
m.a. frá MELKA, BRAND-
TEX, SIMBA, FERNANDO,
WEEKEND, HENNES og
MAURITZ. Og fyrir þá sem
sauma sjálfir minnum við á
afar fjölbreytt úrval okkar af
metravöru.
Við viljum að allir séu
flott í tauinu. Það erum við.
Vöruhús Vesturlands
Borgarnesi sími 93-7200
Geysilegur verðmunur var á því grænmeti sem Neytendasíðan kannaði í vikunni og afgreiðslufólkið vissi víða
ekki hvort um nýtt eða gamalt verð var að ræða.
VERÐKÖNNUN:
Geysilegurverð-
munur á grænmeti
Nú hafa tollar á grænmeti lækkað
úr 70% niður í 40% að paprikum
undanskildum og kemur þessi tolla-
lækkun til með að skila sér sem
15-20% verðlækkun út úr búð.
Neytendasíðan kannaði verð á
grænmeti í fjórum stórum verslun-
um í Reykjavík og varð niðurstaðan
sú að smásöluálagning virðist vera
mjög mismunandi og verðmunurinn
hreint ótrúlegur. Til glöggvunar
látum við fylgja með töflu um verð-
lækkunina á heildsöluverði og með
samanburði við þá töflu sést að lítil
regla virðist ríkja í verðlagningu á
grænmeti í smásölu.
Tafla um heildsöluverð.
Grænmeti
Hvítkál
Blómkál
Tómatar
Agúrk'tir
Paprika
Iceberg
Kínakál
fyrir eftir
35,- 22,-
103,- 80,-
159,- 116,-
183,- 159,-
159,- 177,-
258,- 197,-
182,- 123,-
1 þeim verslunum sem við fórum
i, sem voru Hagkaup, Skeifunni,
Vörumarkaðurinn, Armúla, SS,
Glæsibæ, og Víðir, Mjóddinni, var
greinilegt að ýmsu var ábótavant
varðandi verðmerkingar og upplýs-
ingar til handa viðskiptavinunum.
Til dæmis var erfítt að fá upplýsing-
ar um hvort grænmetið væri komið
á nýja verðið og þá hvaða tegundir
væru enn á hærra verði. Víða leit
grænmetið illa út og var síður en
svo gimilegt þrátt fyrir lægra verð.
En eftirfarandi urðu niðurstöður
verðkönnunarinnar.
Grænmeti Hagk. SS Vörum. Víðir
Hvítkál 27,00 37,80 49,70 33,60
Blómkál 127,00 127,30 109,60 298,00
Rauðkál 00,00 00,00 74,80 57,00
Kínakál 12Í.00 186,00 174,40 191,40
Iceberg 226,00 192,00 217,10 328,30
Paprika, rauð 224,00 231,15 268,40 269,00
Paprika, græn 210,00 195,30 261,30 000,00
Paprika, gul 299,00 254,30 328,00 369,00
Tómatar 168,00 227,50 189,20 198,00
Agúrkur 000,00 195,60 180,50 235,60
Gulrætur 85,00 84,50 128,90 00,00
Svo tekin séu dæmi til glöggvunar
þá má nefha að eftir lækkun kostar
kíló af Iceberg salati kr. 197,- í heild-
sölu en er selt á 328,30 kr. í Víði,
Mjóddinni, en undir heildsöluverði
í SS, Glæsibæ, eða á kr. 192,-. Hvít-
kálið kostar nú í heildsölu kr. 22,-
en er selt i Vömmarkaðinum, Ár-
múla, á 49,70 krónur og er greini-
lega of mikill munur á fleiri græn-
metistegundum ef töflurnar tvær
eru bomar saman. -S.Konn.
%. — -«• - — ÍLu W,—
Tollar hafa lækkað úr 70% niður í 40% af öllu grænmeti nema paprikum
semhafahækkaðíinnkaupi. Mynd-PK.
Uppþvottaburstahár
í bananastöng
Einn lesandi blaðsins varð fyrir
því í vikunni að kaupa bananastöng
sem innihélt ýmislegt sem vanalega
er ekki að finna í slíkum stöngum.
Þegar viðkomandi ætlaði að fara
að gæða sér á góðgætinu og beit í
það kom í ljós að stífir þræðir, svip-
aðir þeim og eru í uppþvottaburst-
um, lágu langsum inni í fyllingunni.
Anna Lilja Gunnarsdóttir hjá
Ópal, en þar eru bananastf.ngimar
framleiddar, sagðist kánnast við
þessa þræði og sagði að þau hefðu
orðið vör við þetta áður, en þá í
ópalpakka. „Þessir þræðir koma úr
burstum sem eru í vél sem notuð
er til að þvo pottana sem kremið
er búið til í. Við látum handþræða
burstana hér á landi því þrátt fyrir
að það sé dýrara en vélþræðing þá
hefur það reynst öruggara.“ Anna
Lilja sagði að hér hefðu átt sér stað
mannleg mistök þar sem eftirlitið
hefði átt að taka eftir þessu áður
en stöngin var súkkulaðihúðuð.
-S.Konn.
Á myndinni sést bananastöngin og
uppþvottaburstahárin sem standa
út úrfyllingunni.
Mynd Kristján Ari.