Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Qupperneq 19
18
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986.
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986.
31
Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
- Haukar bikarmeistarar 1986 eftir æsispennandi
úrslitaleik gegn Njarðvík. Aðeins eins
stigs munur í lokin, 93-92
Bikarinn aftur í FJörðinn
Einstaklingsverðlaun að loknu korfutímabili:
PÁLMAR SIGURÐSSON BESHJR -
UNDAFÉKK ALLT HJÁ KONUNUM
BESTA VÍTASKYTTA:
1. Birgir Mikaelsson,.....KR, 72/
66 = 92%
2. Tómas Holton..Val, 52/43 = 83%
3. Pálmar Sigurðsson, ....Haukum, 80/
62 = 78%
BESTl VARNARMAÐUR:
1. ívar Webster,........Haukum
2. ísak Tómasson...........UMFN
3. Torfi Magnússon.........Val
FLESTAR 3-STIGA KÖRFUR:
1. PálmarSigurðsson....Haukum,
55 = 165 stig
2. Karl Guðlaugsson, ..ÍR, 31 = 93 stig
3. Valur Ingimundarson,.UMFN,
31 = 93 stig
BESTIDÓMARINN:
1. Kristbjörn Albertsson,.UMFN
2. Jón Otti Ólafsson,........KR
3. ÓmarSchewing,.............KR
EFNILEGASTIDÓMARINN:
1. ÓmarSchewing,............KR
2. Jóhann Dagur Björnsson,.Fram
3. Kristinn Albertsson,.....Val
KONUR
BESTILEIKMAÐUR:
1. Linda Jónsdóttir.........KR
2. Þórunn Magnúsdóttir..UMFN
3. GuðlaugSveinsdóttir,....ÍBK
STIGAHÆSTU LEIKMENN:
1. Linda Jónsdóttir, KR.205 stig
2. GuðlaugSveinsdóttir, ÍBK.145stig
3. Ásta Óskarsdóttir, Haukum.118
stig
BESTA VÍTASKYTTA:
1. Linda Jónsdóttir, KR......70%
Ragnheiður Steinback, ÍS.....68%
3. Cora Barker, KR...........67%
Pálmar Sigurðsson, Haukum, var í
nótt í lokahófi KKÍ útnefndur besti
leikmaðurinn í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik á keppnistímabilinu
sem lauk í gærkvöldi með úrslitaleik
Hauka og Njarðvíkur í bikarkeppn-
inni. Valur Ingimundarson, UMFN,
varð í öðru sæti en jafnir í 3.-5. sæti
urðu þeir Birgir Mikaelsson, KR,
Guðni Guðnason, KR, og Ragnar
Torfason, ÍR.
Fjölmörg einstaklingsverðlaun
voru veitt í lokahófinu í nótt. Þessir
hrepptu hnossin:
FLEST STIG í ÚRVALSDEILDINNI:
1. Valur Ingimundarson, UMFN ..513
2. PálmarSigurðsson, Haukum ....496
3. Birgir Mikaelsson, KR.....397
BESTINÝLIÐINN:
1. Jóhannes Kristbjörnsson... UMFN
2. Guðjón Skúlason,..........ÍBK
3. ÓlafurGottskálksson,......ÍBK
• Pálmar Sigurðsson sést hér með verðlaun sin. Hann var kosinn besti leik-
maðurinn á keppnistímabilinu. DV-mynd G. Bender.
VERSLANIR!
Hin sívinsœla og myndarlega
FERMINGAR -
GJAFAHANDBÓK
kemur út 20. mars nk.
Þeir auglýsendur, sem áhuga
hafa á að auglýsa í
FERMINGA RGJA FA HA NDBÓKINNI,
vinsamlegast hafi samband við
auglýsingadeild D V,
Þverholti 11, eða ísíma 27022,
kl. 9-17 virka daga,
í síðasta lagi
mánudaginn 17. mars.
Eins og sjá má á þessari upptaln-
ingu hjá konunum vann Linda Jóns-
dóttir, KR, til allra einstaklingsverð-
launanna lflákvenfólkinu.
-SK
„Varhræddur*
I
I----------------------------- 1
j - sagði Einar Bollason j
„Ég verð að segja eins og er að a
I ég var mjög hræddur um að við I
I myndum tapa þessum leik þegar I
IValur fékk sina 5. villu. Þá fyrst I
fóru Njarðvikingarnir að berjast ■
Itil sigurs," sagði Einar Bollason, I
þjálfari Hauka, eftir úrslitaleik-
I inn í grkvöldi. |
J „Ég er viss um að Njarðviking- ■
I amir hefðu aldrci náð okkur ef I
- Valur hefði ekki þurft að fara af I
| leikvelli. Annars er ég auðvitað I
Imjög ánægður með þennan sigur I
og þetta er frábær cndir á þjálf- *
IaraferlimínumhjáHaukum.“ I
-SK 1
I______________________________I
• Einar Bollason endaði þjálfaraferil sinn hjá Haukum i gærkvöldi með því að
hampa bikarnum eftirsótta. DV-mynd Brynjar Gauti.
„Vægastsagt
■_ . . ■ wíT
huggulegt
-sagði Pálmar Sigurðsson
„Þetta var vægast sagt mjög
huggulegt,“ var það fyrsta sem
Pálmar Sigurðsson, Haukum, sagði
eftir sigurleikinn gegn Njarðvík.
„Mér hefði fundist það ósanngjarnt
ef við hefðum ekki unnið bikarinn í
ár. Þetta var gríðarlega erfiður leik-
ur og þeir efldust svakalega þegar
Valur fór út af. Eftir á að hyggja er
spurning hvort það hefði ekki verið
betra fyrir okkur ef Valur hefði aldr-
ei fengið 5 villur og leikið með allan
leikinn. Þetta var klassi og frábær
endir á skemmtilegu keppnistímabili.
Við erum í sjöunda himni og stað-
ráðnir í að gera enn betur á næsta
keppnistímabili," sagði Pálmar Sig-
urðsson en hann var í gær útnefndur
besti leikmaður úrvalsdeildarinnar.
-SK
Tólf leik
menn valdir
í Evrópuferð
- landsliðsins í körfu. Aðeins tveir úr Haukum
ogNjarðvík
Tólf leikmenn hafa verið valdir í
íslenska landsliðið í körfuknattleik
sem heldur þann 24. mars í Evrópu-
ferð á vegum KKÍ dagana 23. mars
3. apríl nk. Liðið mun leika gegn
hinum ýmsu félagsliðum í Þýska-
landi auk landsleikja gegn Austurríki
og Luxemburg. Ferð þessi er lo-
kaundirbúningur landsliðsins fyrir
Evrópukeppnina sem fram fer hér á
Iandi í apríl.
Eftirtaldir leikmenn voru valdir í
landsliðið:
Torfi Magnússon.......Val, fyrirfiði
Valur Ingimundarson, ...UMFN, var-
afl.
Pálmar Sigurðsson,.........Haukum
Jón Kr. Gíslason,..............ÍBK
Tómas Holton................. Val
Páll Kolbeinsson,...............KR
Guðni Guðnason,.................KR
Birgir Mikaelsson,..............KR
Hreinn Þorkelsson,............ÍBK
Símon Ólafsson,...............Fram
Þorvaldur Geirsson,...........Fram
RagnarTorfason,.................ÍR
Athygli vekur að aðeins tveir leik-
menn eru valdir úr Njarðvík og
Haukum. Á þriðjudaginn kemur mun
landsliðið leika gegn pressuliði í
Laugardalshöll en á þriðjudags-
kvöldið verður auk þess boðið upp á
margvísleg skemmtiatriði. -SK
• Pálmar Sigurðsson sækir að körfu Njarðvík-
inga. DV-mynd Brynjar Gauti.
„Ekki séð silfur í
-sagði Gunnar Þorvarðarson
sem líklega hættir sem þjálfari
Njarðvíkinga
„Ég skil ekki hvers vegna eftirlitsdómarar eru
á leikjum í körfuknattlciknum ef á þá er ekki
hlustað. Það sáu allir að skot Jóhannesar var
fyrir utan linuna nema dómararnir. Meira að
segja eftirlitsdómarinn á lciknum en á hann var
ekki hlustað,“ sagði Gunnar Þorvarðarson, þjálf-
ari Njarðvíkinga, í samtali við DV i gærkvöldi.
„Ég er alveg sannfærður um að þetta umdeilda
skot skipti sköpum í leiknum. En burtséð frá því
þá er ég ánægður með mína menn. Ég er mjög
ánægður með frammistöðu strákanna en ekki
úrslitin. Liðið hefur staðið sig vel í vetur, unnið
gullverðlaun í þremur mótum og nú silfur. Við
böfum ekki séð silfur í þrjú ár.“
Hættir þú sem þjálfari liðsins?
„Já, það eru allar líkur á því. Ég er ekkert
bundinn Njarðvík og væri alveg til í að breyta
til. Ég er búinn að þjálfa liðið í þrjú ár og strák-
arnir eru eflaust orðnir þreýttir á mér,“ sagði
Gunnar Þorvarðarson. -SK
Það gekk ekki litið á í Laugardalshöllinni í gærkvöldi þegar Haukum
tókst, annað árið í röð, að tryggja sér bikarinn í körfunni eftir úrslitaleik
gegn Íslandsmeisturum Njarðvíkur. Höllin iék á reiðiskjálfi á lokaminút-
unum og það var ekki fyrr en á lokasekúndunum sem ljóst varð að
Haukar væru bikarmeistarar 1986 í körfuknattleik. Þeir sigruðu Njarðvík-
inga, 93-92, eftir æsispennandi og lengst af vel leikinn leik. Staðan i leik-
hléi var 48 45 Haukum í vil. Allt fór á annan endann i lcikslok er Njarðvik-
ingar vildu meina að karfa, sem Jóhannes Kristbjörnsson skoraði fyrir
UMFN, hefði átt að gefa þeim þrjú stig en ekki tvö eins og dómararnir
töldu. Og flestir i Höllinni vildu meina að Njarðvikingar hefðu haft rétt
fyrir sér. Þctta eina stig hefði svo sannarlega skipt máli í lokin eins og
úrslit lciksins bera með sér.
Æsispennandi lokamínútur
Þegar 3,18 mínútur voru til leiks-
ioka var staðan 85-82, Haukum í
vil. Áður í leiknum höfðu Haukarnir
náð tíu stiga forskoti sem Njarðvík-
ingar söxuðu á smátt og smátt. ívar
Webster kom Haukum í 87-82 en
þegar 2,20 mínútur voru til leiksloka
höfðu þeir Teitur Örlygsson og Ellert
Magnússon minnkað muninn í að-
eins eitt stig, staðan 87-86. ívar
Webster skoraði úr tveimur vítaskot-
um af öryggi, 89-86, en enn voru
þeir Teitur og Ellert á ferðinni. Teit-
ur skoraði úr einu víti og Ellert
skoraði körfu og þegar 1,19 mínútur
voru til leiksloka var staðan allt í
einu orðin jöfn 89-89. Og nú var allt
orðið sturlað í Höllinni. ívar Ás-
grímsson kom Haukunum í 91-89 en
þegar 50 sekúndur voru til leiksloka
átti Teitur ónákvæmt skot, Haukar
náðu knettinum og ívar Webster
skoraði og koni Haukum í 93-89.
Þegar aðeins 13 sekúndur voru eftir
skoraði Jóhannes Kristbjörnsson
þriggja stiga körfu og staðan orðin
93-92. Haukarnir klúðruðu knettin-
um samstundis og þegar 11 sekúndur
voru eftir voru Njarðvíkingar með
knöttinn en þeim tókst ekki að skora
og Haukar fögnuðu sigri.
Vægast sagt umdeilt atvik
í síðari hálfleik átti sér stað mjög
umdeilt atvik. Jóhannes Kristbjörns-
son skaut að því er virtist fyrir utan
þriggja stiga línuna og skoraði. En
Hörður Tuliníus, sem þarna dæmdi
sinn síðasta leik, taldi að Jóhannes
hefði verið fyrir innan þriggja stiga
línuna og gaf því merki um að tvö
stig væru fyrir körfuna. Þegar þetta
átti sér stað tjúlluðust Njarðvíkingar
alveg. Gunnar Þorvarðarson. þjálf-
ari þeirra, sparkaði stól einum lang-
ar leiðir og Njarðvíkingar almennt í
Höllinni höfðu vart hemil á reiði
sinni. Og ekki minnkaði reiði þeirra
í leikslok þegar ljóst var að eitt stig
skildi liðin að. Reynt var að komast
að hinu sanna í þessu máli með
aðstoð myndbands en það tókst ekki
og því stóðu úrslit leiksins óhögguð.
Þrír yfirburðamenn hjá Haukum
Þeir I var Webster, Pálmar Sigurðs-
son og Henning Henningsson voru
langbestir lijá Haukum en samtals
skoruðu þeir 71 stig fyrir Haukana.
Kristinn Kristinsson stóð sig vel í
vörninni og sömu sögu er hægt að
segja um Hálfdán Markússon sem
sýndi gamla takta en hann hefur
ekki leikið með Haukunum í tvö ár.
Það var greinilegt að Haukaliðið var
banhungrað í sigur í þessum leik og
leikmenn lögðu sig alla fram í vörn
og sókn.
islandsmeistararnir gloppóttir
íslandsmeistarar Njarðvíkur máttu
þola tap í gærkvöldi og það er nokk-
uð sem þeir þekkja nánast af afspurn
i vetur. Þeir Jóhannes Kristbjörns-
son og Teitur Orlygsson voru lang-
bestir Njarðvíkinga en athygli vakti
hversu slakur Valur Ingimundarson
var. Hann skoraði aðeins 10 stig í
leiknum sem er nánast ekkert þegar
hann er annars vegar. Hann varð að
vísu að yfirgefa völlinn með 5 villur
þegar 15 mínútur voru eftir en þá
fyrst fór Njarðvíkurliðið í gang svo
um munaði þrátt fyrir að það dvgði
ekki til í þetta skipti. Teitur Örlygs-
son sýndi það og sannaði í þessum
leik að hann er mjög efnilegur leik-
maður sem á eftir að ná óralangt í
framtíðinni.
Dómararnir ekki öfundsveröir
Þeir Hörður Tuliníus og Jón Otti
Ólafsson dæmdu þennan erfiða leik
og voru ekki öfundsverðir af verk-
efninu. Svo fór á köflum að þeir
höfðu ekki nægilega góð tök á leikn-
um en ef ekki hefðu komið til nokkur
mjög vafasöm atvik þá hefði dóm-
gæsla þeirra verið til fyrirmyndar.
Stig Hauka: ívar Webster 28, Pálmar
Sigurðsson 24, Henning Hennings-
son 19, Kiistinn Kristinsson 6. Ólaf-
ur Rafnsson 5, Hálfdán Markússon
5, Eyþór Árnason 4 og ívar Ásgríms-
son 2.
Stig UMFN: Jóhannes Kristbjörns-
son 25, Teitur Örlygsson 20, Helgi
Rafnsson 12. Valur Ingimundarson
10, ísak Tómasson 9. Kristinn Ein-
arsson 6, Ellert Magnússon 6. Hreið-
ar Hreiðarsson 2 og lngimar Jónsson
2. -SK
„Égvarfyrir
utan línuna“
-sagði Johannes Kristbjörnsson, Njarðvík,
sem skoraði eina umdeildustu körfu vetrarins
ígærkvöldi
„Það er ekkert vafamál að ég var
fyrir utan þriggja stiga linuna þegar
ég skoraði," sagði Njarðvikingurinn
Jóhannes Kristbjörnsson sem skorði
körfuna umdeildu i leik Hauka og
UMFNígærkvöldi.
„Það var virkilega slæmt að bafa
Hörð dómara þeirra megin í þessuni
leik. Þá hafði það áhrif á okkur að
Valur skvldi fá 5 villur. En okkur
tókst þrátt fyrir það að jafna leikinn
og ég er mjög ánægður með síðustu
tíu mínúturnar hjá okkur. Haukarn-
ir eiga að vissu leyti skilið að vinna
bikarinn en við erum bestir í dag."
sagði Jóhannes. sem skoraði 25 stig
fvrirUMFN.
Hálfdán Markússon, Haukum:
„Það var stórkostlega gaman að
vera með í þessum leik hér í kvöld
en það var engu að síður sárt að ná
ekki að vinna íslandsmeistaratitil-
inn." sagði Hálfdán Markússon (Á.
Einarssonar veðurfræðings) eftir
leik Hauka og Njarðvíkur í gær-
kvöldi. Hálfdán var fyrir nokkru
einn allra besti leikmaður Hauka en
hefur ekki leikið með liðinu síðast-
liðin tvö ár.
„Ég held að aðalástæðan fyrir því
að við sigruðum í kvöld hafi verið
sú að við vorum þyrstári í sigur en
Njarðvíkingarnir. Við mættum mjög
ákveðnir til leiks og vorum vel
stemmdir fyrir leikinn. Þetta var
skenmitilegur og spennandi leikur
og það gat allt gerst." sagði Hálfdán.
Teitur Örlygsson, Njarðvík:
„Auðvitað var mjög sárt að tapa
enn einurn úrslitaleiknum í bikarn-
um. Það eru einhver álög á okkur
hér í Höllinni." sagði Teitur Örlygs-
,son, Njarðvík, eftir leikinn gegn
Haukum í gærkvöldi en Teitur lék
mjög vel og skoraði 20 stig.
„Það var hrikalega slæmt að missa
Val út af í síðari hálfleik en þó er
ekki hægt að horfa framhjá því að
eftir að hann fékk 5. villuna tókum
við fvrst við okkur. Ég er ánægður
með minn leik og ég vona að okkur
takist loks að vinna bikarkeppnina
á næsta ári. Við erum alltaf að
komast nær og nær titlinum." sagði
Teitur. -SK
• Hörður Tuliníus með styttuna
sem hann fékk frá KKÍ. DV-mynd
G. Bender.
„Tel mig
hafa skilað
minu
- segir Hörður Tuliníus
sem dæmdi sinn síðasta
leik í gærkvöldi
„Ég er ánægður með að ferli mín-
um sem dómara sé lokið. Ég er búinn
að dæma síðan árið 1968 og tel mig
því búinn að skila mínu varðandi
dómgæsluna,'4 sagði hinn kunni
körfuknattleiksdómari, Hörður Tuli-
nius, frá Akureyri en í gærkvöldi
dæmdi hann sinn síðasta opinbera
leik í körfu, leik Hauka og Njarðvík-
„Þetta hefur verið mjög skemmti-
legur tími sem ég sé alls ekki eftir.
Það má eiginlega segja að ég sé
búinn að fá mig fullsaddan af körfu-
knattleik. Ég byrjaði sjálfur að spila
árið 1949 og dæma 1968. Þetta er
orðinn góður tími."sagði Hörður
ennfremur.
Hörður fékk blómvendi og gjafir
fyrir leikinn í gærkvöldi og í lokahófi
KKÍ í Sigtúni í gærkvöldi afhenti
KKÍ honum forláta stvttu fvrir fórn-
fúst starf fyrir körfuknattleiksíþrótt-
ina.
-SK
Linda skor-
aði meira
en Stúdentar
-ogKR meistari
Það á sér ekki oft stað i körfu-
knattlcik að einn og sami leikmaður-
inn skori fleiri stig en andstæðingar
hans til samans. Þetta afrekaði þó
Linda Jónsdóttir, KR, í gærkvöldi er
hún skoraði 33 stig fyrir lið sitt þegar
KR sigraði IS örugglega i úrslitaleik
bikarkeppni kvenna í Laugardals-
höllinni. Lokatölur 47-28 eftir að
staðan i leikhléi hafði verið 18-15 KR
ivil.
KR-stúlkurnar voru allan tímann
betri aðilinn í leiknum og það var
aldrei spurning hvort liðið væri
sterkara. Linda var í sérflokki á
vellinum en einnig átti Kristjana
Hrafnkelsdóttir góðan leik fyrir KR
og hirti mikið af fráköstum. Lið ÍS
var allt álíka lélegt og engin skar sig
úr.
Stig KR: Linda 33, Cora 6. Erna 4
og Kristjana 4.
Stig ÍS: Hafdís 12. Kolbrún 6, Anna
Björk 4. Vigdís 2. Ragnhildur 2 og
Helga 2. -SK
• Cora Barker, fyrirliði KR, hamp-
ar bikarnum. DV-mynd Brynjar
Gauti.