Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Blaðsíða 35
DV. FÖSTUDAGUR14. MARS1986.
47’
Föstudagur
14 mars
Sjónvarp
19.15 Ádöfinni.
19.25 Húsdýrin. 4. Sauðkindin.
Bamamyndaflokkur í íjórum þátt-
um. Þýðandi Trausti Júlíusson.
(Nordvision Finnska sjónvárp-
ið).
19.35 Björninn og refurinn.
Fjórði þáttur. Teiknimynda-
flokkur í fimm þáttum. Þýðandi
Trausti Júlíusson. (Nordvision
Finnska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Unglingarnir í frumskóg-
inum. Umsjónarmaður Jón
Gústafsson. Stjórn upptöku
Gunnlaugur Jónasson.
21.10 Þingsjá. Umsjónarmaður
Páll Magnússon.
21.25 Kastljós. Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður Helgi
E. Helgason.
22.00 Ævintýri Sherlock
Holmes. Lokaþáttur. Bresk-
ur myndaflokkur í sjö þáttum
sem gerðir eru eftir smásögum
Conan Doyles. Aðalhlutverk:
Jeremy Brett og David Burke.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.50 Seinni fréttir.
22.55 Villta vestrið (Westworld).
Bandarísk biómynd frá 1973.
00.30 Dagskrárlok.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfi-egnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Opið
liús'* eftir Marie Cardinal.
Guðrún Finnbogadóttir þýddi.
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir les
sögulok(ll).
14.30 Upptaktur Guðmundur
Benediktsson.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Helgarútvarp barnanna.
Stjórnandi: Vernharður Linnet.
17.40 Úr atvinnulífinu Vinnu-
staðir og verkafólk. Umsjón:
Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
18.00 Tónleikar. Tilkvnningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.35 Tilkynningar.
19.45 Þingmál. Umsjón: Atli
Rúnar Halldórsson.
19.55 Daglegt mál. Örn Ólafsson
flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
BjörgThoroddsen kvnnir.
20.40 Kvöldvaka
21.30 Frá tónskáldum. Atli
Heimir Sveinsson kvnnir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfrognir.
22.20 Lestur Passíusálma (41).
22.30 Kvöldtónleikar.
23.00 Heyrðu mig - eitt orð.
Umsjón: Kolbrún Halldórsdóttir.
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur Tómas R.
Einarsson.
01.00 Dagskrárlok. Nœturútvarp á
RÁS 2 til kl. 03.00.
Útvaipiásll
14.00 Pósthólfið í umsjá Valdíaar
Gunnarsdóttur.
16.00 Léttir sprettir. Jón Ólafs-
son stjórnar tónlistarþœtti með
íþróttaívafi.
18.00 Hlé.
20.00 Hljóðdósin. Umsjón: Þórar-
inn Stefánsson.
21.(X) Kringlan. Um.sjón: Þórar-
inn Stefánsson.
21.00 Iíringlan. Kristján Sigur-
jónsson kynnir tónlist úr öllum
heimshornum.
22.IX) Nýræktin. Snorri Már
Skúlason og Skúli Helgason
stjórna þætti um nýja rokktón-
list, innlenda og erlenda
23.00 Á næturvakt með Vigni
Sveinssyni og Þorgeiri Ástvnlds-
syni.
03.CK) Dagskrárlok.
Þriggja mínútna fréttir sagðar klukk-
an 11.00,15.00,16.00 og 17.00.
SVÆDISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR FRÁ
MÁNUDEGl TIL FÖSTU-
DAGS
17.03 18.00 Svæðisútvarp fyrir
Reykjavik og nágrenni KM
90,1 MHz
17.03 18.30 Svæðisútvárp fyrir
Akureyri og nágrenni FM
96.5 MH/,
Utvarp Sjónvarp
Myndin Villta vestrið lýsir skemmtigarði framtiðarinnar á ansi óhugnanlegan hátt.
Sjónvarpið kl. 22.55:
Framtíðarvestri
Myndin gerist í Delos, stærsta
skemmtigarði heims. Er hann ætlaður
fullorðnu fólki til skemmtunar. Er þar
notuð tækni framtíðarinnar til að
endurskapa tímabil úr fortíðinni á
mjög nákvæman hátt. Gestir eiga að
geta ímyndað sér að þeir lifi í raun
og veru á þeim tíma sem þeir velj a sér.
Hægt er að velja eftirfarandi tíma-
bil: Miðaldir í Evrópu þar sem gestir
eru meðhöndlaðir sem konungar og
drottningar. Vélmenni í mannslíki
eiga síðan að sjá til þess að hveri ósk
sé fullnægt. Annað tímabil sem stend-
ur til boða er Róm á tímum keisa-
ranna. Þar eru það svallveislur sem
eru í aðalaðdrátaraflið. Þriðja og
síðasta tímabilið sem boðið er upp á
er síðan villta vestrið. Ameríska ve-
strið eins og það gerðist blóðugast.
Villta vestrið er fullt af byssubar-
dögum, slagsmálum á krám, og fall-
egum dansstúlkum, allt framkvæmt
af vélmennum. Þau eru hönnuð til
að fullnægja öllum draumum Peter
Martins og John Blane. Blane hefur
komið áður til Delos og hefur að þessu
sinni tekið Martin vin sinn með sér.
I byssubardögum eiga mennimir
auðvitað að sigra vélmennin. Er það
raunin þar til dag einn að allt fer
úrskeiðis... Bilanir fara að gera vart
við sig og fyrr en varir verður þessi
tækniheimur að martröð fyrir þá sem
þar dveljast.
Þekktir leikarar
Þessi mynd vakti töluverða athygli
á sínum tíma en hún var framleidd
1973 en síðan hefur tækninni í kvik-
myndagerð fleygt fram. Myndin var
sýnd við mikla aðsókn i kvikmynda-
húsi hér og hefur notið nokkurra
Yul Brvnner fer með aðalhlutverkið
í myndinni en hann lést á síðasta ári
úr krabbameini.
vinsælda á videoleigum. Kvikmvnda-
handbókm gefur myndinni *★ og
segir hana spennandi og vel leikna
þó ýmislegt megi að henni finna.
sérstaklega tæknilega séð.
Leikararnir eru ekki af verri endan-
um. í hlutverki vélmennisins óhugn-
anlega er hinn sköllótti Yul Brynner
sem lést í lok síðasta árs. Skallinn
var hans vörumerki en sérkennilegt
útlit hans (hann var af austrænum
uppruna) færði honum mörg hlut-
verk. Ekki þar fyrir, Brvnner var
prýðisgóður leikari. Frægasta hlut-
verk hans var trúlega í leikritinu The
King and I sem var sýnt í mörg ár á
Broadway og kvikmyndað síðan. allt-
Jim Brolin, sem leikur hótelstjórann
i Hótel, fer með stórt hlutverk í
mvndinni í kvöld.
af með Brvnner í aðalhlutverkinu.
Brynner lék aðallega i vestrum og
spennumvndimi og er myndin The
Magnificent Seven trúlega þeirra
frægust ásamt Westwold.
Það vekur án efa athygli margra
aö hótelstjórinn úr Hótel-þáttunum
vinsælu birtist í einu aðalhlutverki
myndarinnar. Reyndar er það leikar-
inn Jim Brolin en ekki hótelstjórinn
Pétur sem birtist en Brolin hefur
aðallega leikið í ýmsum sjónvarps-
þáttum.
Þess ber að geta að í mvndinni eru
ýmis óhugnanleg atriði og er myndin
alls ekki við hæfi barna.
-SMJ
í kvöld er siðasti þáttur um þá félaga, Holmes og Watson. Eiga án efa margir
eftir að sakna þeirra.
Sjónvarpið kl. 22.00:
Lokaævintýri
Sherlock
Holmes
í kvöld verður lokaþáttur ævintýra
Sherlock Holmes. Að vísu hafa verið
gerðir nokkrir þættir í viðbót í þessari
röð en óvíst er hvenær þeir verða
sýndir hér á landi. í staðinn fyrir
Sherlock Holmes kemur þáttaröð um
þýskan levnilögreglumann Sá
gamli.
I þessum lokaþætti fæst Holmes við
óhugnanlegan mátt dularfulls steins
sent hefur rn.a. valdið nokkram
dauðsföllum.
I dag verður vestanátt á landinu,
víða allhvöss en lægir heldur með
kvöldinu, skúrir eða él verða um
vcstanvcrt landið og sumstaðar norð-
anlands en léttir til austanlands. Hiti
verður kringum frostmark vestan-
lands en 1 2 stiga hiti um landið
austanvert.
Veðrið
ísland kl. 6 í morgun:
Akurcvrí hálfskýjað 5
Egilsstaðir rigning 6
Gaharviti alskýjað 4
Hjarðarnes úrkoma 6
Kefla víkurflugv. rigning 4
Kirkjubœjarkla ustur alskýjað 5
Raufarhöfn alskýjað 5
Reykjavík rigning 4
Sauðárkrókur skýjað 5
Vestnmnnaevjar rigning 4
Útlönd kl. 6 í morgun:
Bergen alskýjað 4
Helsinki þokumóða 6
Kaupmannahöfn þokumóða 0
Osló snjókoma 0
Stokkhólniur þokumóða 1
Þórshöfn rigning 7
Útlönd kl.18 í gær:
Algarve léttskýjað 15
.Amstcrdam mistur 4
Aþena skýjað 11
Berlin mistur 7
Chicago þokumóða 12
Fenevjar rigning 7
(Rimini/Lignano) Frankfurt mistur 5
Glasgow mistur" 6
London mistur 6
Los Angeles alskýjað 14
Lúxemborg mistur 2
Montreal snjókoma 7
.Yc’iv Yoi k rigning 3
Xuuk skafrcnn- 16
París ingur þokumóða 6
Róm skýjað 12
Vín rigning 3
Winnipeg skýjað 0
Gengið
Gengisskráning nr. 51. -14. mars 1986 kl. 09.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 41,240 41.360 41.220
Pund 60.419 60.594 60.552
Kan.dollar 29.543 29.629 28.947
Dönskkr. 4.9302 4.9446 5.0136
Norsk kr. 5.7698 5.7866 5.9169
Sænsk kr. 5.7044 5.7210 5.7546
Fi. mark 8.0500 8.0734 8.1286
Fra.franki 5.9249 5,9421 6.0323
Belg.franki 0.8898 0.8923 0.9063
Sviss.franki 21.6739 21.7370 21.9688
Holl.gyllini 16.1377 16.1847 16,4321
V-þýskt mark 18.2236 18.2766 18.5580
Ít.lira 0.02677 0.02685 0.02723
Austurr.sch. 2.5984 2.6060 2.6410
Port.Escudo 0.2786 0.2795 0,2823
Spá.peseti 0.2836 0.2904 0.2936
Japansktyen 0.23381 0.23449 0,22850
Írskt pund 55.076 55.236 56.080
SDR (sérstök dráttar- réttindi) 47.3663 47.5035 47.8412 í
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
Á V
’RENGISAI' r i/D,
L A
-SMJ