Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1986, Qupperneq 36
Songvakeppnin:
_ Vögguvísa
~ inn, Draum-
urinnút?
..Alþjóðlegar reglur söngvakeppn-
innar vrði að túlka mjög þröngt ef
Vögguvísa ætti að falla út. Lagið var
aðeins flutt með einu ásláttarhljóð-
færi undir samtali í svæðisútvarpi
Akurevrar." sagði Pétur Guðfinns-
son. framkvæmdastjóri sjónvarpsins,
í morgun. „Athugun með hitt lagið,
Kg iifi i draumi, er skemmra á veg
komin en það lag mun hafa verið
flutt í fullri lengd á Lækjartorgi 1.
maí 1985 og útvarpað um leið. Ég
®**'treysti mér ekki til að tjá mig frekar
um (irlög þess. En það verður að taka
ákvörðun um bæði lögin í dag því
úrslitakeppnin fer fram á morgun,"
sagði Pétur.
Samkvæmt heimildum DV stefnir
nú állt í það að Vögguvísa verði flutt
í úrslitakeppninni. Ég lifi í draumi á
hins vegar erfiðara uppdráttar og
verður að öllum líkindum fellt út.
Vögguvísa lenti í þriðja sæti í
.-•koðanakönnun DV um besta
söngvalagið sem gerð var síðastliðið
<'Sjrmiðvikudagskvöld. Hlaut lagið 13
y pi'ósent atkvæða. Ég lifi í draumi
hafnaði í 7.-8. sæti með 5,4 prósent
atkvæða. -EIR
Sókn sam-
þykkir
samningana
Verkakvennafélagið Sókn
amþykkti kjarasamningana í gær.
Atkvæði féllu þannig að 134 voru
samþykkir og 116 á móti.
Að sögn Aðalheiðar Bjamfreðs-
."ílóttur, formanns Sóknar, komu fram
deildar meiningar á fundinum. Þá var
vísað frá tillögu um að taka upp
hanskann fyrir Þjóðviljann vegna
gagnrýni stjórnar Dagsbrúnar á
fréttaskrifblaðsins. „Eg visaði þessari
tillögu frá því hún er Sókn alveg
óviðkomandi," sagði Aðalheiður.
-APH
T
RAUSTIR
MENN
25050
SSJlDIBiLRSTÖÐin
LOKI
Ég skil ekkert í þessum
ferðalögum á Páli Péturs-
syni.
Flugmála-
stjóm fíytur
Stelngrím
- þarf að flytja ræðu á Framsóknarfundi
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra fer snemma í fyrra-
málið með flugvél Flugmálastjórnar
til Stokkhólms. Flugvélin flytur
Steingrím aftur til landsins annað
kvöld.
Steingrímur notar þennan ferða-
máta til þess að hann geti flutt ræðu
á miðstjórnarfundi Framsóknar-
flokksins sem hefst i dag og lýkur
á sunnudag.
Ríkið selur sjálfu sér hvern flug-
tíma á Flugmálastjórnarvélina á
12-15 þúsund krónur. Flugtímaverð
leiguflugfélaga er hins vegar í
kringum 27 þúsund krónur og mið-
að við það kostar þessi flugferð
Steingríms um 300 þúsund krónur.
Árni Gunnarsson, annar af full-
trúum Alþýðuflokks við útför Olofs
Palme, fór utan í morgun með Flug-
leiðavél og kemur heim síðdegis á
sunnudag. Flugmiði hans kostar um
48 þúsund krónur.
Benedikt Gröndal, sendiherra í
Stokkhólmi, verður sérstakur full-
trúi Matthíasar Á. Mathiesen utan-
ríkisráðherra sem ekki kemst til að
vera við útförina.
Hugsanlegt er að Jón Baldvin
Hannibalsson, sem fór til Stokk-
hólms frá Portúgal í gær, þiggi far
með Flugmálastjórnarvélinni til
íslands. Þannig myndi Jón Baldvin
ekki missa af afmælishátíð Alþýðu-
flokksins á sunnudag. -KMU
- *t\i
"It\ ^
Reikningurinn, sem Sveinn fékk frá Bílaborg, var upp á rottudráp i
aðrar lagfæringar.
Á litlu myndinni sést Sveinn benda á staðinn þar sem rottan tók s
bólfestu. DV-mynd GVA.
Umhleypinga-
samtogdregur
úrfrosti
Á morgun verður víðast sunnan-
og suðvestankaldi á landinu og
dregur smám saman úr frosti. É1
verða um vestanvert landið, sums
staðar skúrir með suðurströndinni.
Um norðan- og austanvert landið
verður víðast bjartviðri.
Á landinu verður hitastigið frá
frostmarki og niður í 6 stiga frost
inn til landsins. Umhleypingarnar
halda því áfram á sunnan- og suð-
vestanverðu landinu en á Norður-
landi helst sæmilega gott veður.
-S.Konn.
Herjólftir
úrleik
- bilun kom upp í
vélarrúmi skips-
insímorgun
Frá Grími Gíslasyni, fréttamanni
DV i Vestmannaeyjum:
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur
er úr leik. Bilun kom upp í vélar-
rúmi skipsins í morgun kl. 7.30
þegar Herjólfur var að fara að
leggja af stað til Þorlákshafnar.
Andvægi á sveifarásnum losnaði
og það kom gat á olíupönnu.
Unnið er nú við að kanna
skemmdir og það getur farið svo
að Herjólfur verði úr leik næstu
daga eða vikur. Það fer allt eftir
því hvað skemmdir urðu alvarleg-
ar. Þá getur farið svo að það þurfi
að fá sérfræðinga frá Noregi til
að gera við skemmdimar.
Tíu vindstig voni í Eyjum í
morgun, þannig að ekki var flogið
þangað. Eyjamenn em því sam-
bandslausir við meginlandið.
„Það er ekkert hægt að segja hvað
þessi bilun er alvarleg. Við mun-
um kanna skemmdir í dag og þá
kemur í ljós hvað gert verður,"
sagði Gísli Eiríksson, vélstjóri á
Herjólfi, í stuttu spjalli við DV í
morgun. -SOS
Rottaí
vélar-
húsiá
Mözdu
- það tók verkstæðis-
menn Bílaborgar
tvo tíma að koma rott-
unni fyrir kattarnef
„Við höfum aldrei upplifað annað
eins hér á verkstæðinu. Fljótlega
eftir að húið var að opna húddið á
Mözdunni sást rotta kúra sig ofan
á gírkassa bifreiðarinnar og bærði
hún ekki á sér,“ sagði Magnús
Ingólfsson, starfsmaður á verkstæði
Bílaborgar. Rottan hafði séð til þess
að eigandi bifreiðarinnar, Sveinn
Guðmundsson. þurfti að fara með
bíl sinn á verkstæði.
„Ég var á leið til vinnu þegar
þurrkurnar duttu úr sambandi,"
sagði Sveinn Guðmundsson.
Magnús hjá Bílaborg sagði að það
liefði tekið starfsmenn verkstæðis-
ins tvo tíma að vinna á rottunni.
„Hún var okkur svo sannarlega
erfið. Fyrst var reynt að frysta hana
með slökkvitæki þar sem hún lá
ofan á gírkassanum. Rottan lét sig
hverfa og fór undir vélina. Þar var
erfitt að eiga við hana. Rottan
skaust síðan upp undir annað fram-
brettið. Við komum kústskafti þar
að henni og náðum að vinna á
henni. Þetta var tveggja tíma stríð
og gekk á ýmsu, sagði Magnús
lngólfsson hjá Bílaborg.
Þess má geta til gamans að nótan,
sem Sveinn fékk frá Bílaborg, var
upp á viðgerð - þ.e. rottudráp og
aðrarlagfæringar. -SOS