Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Side 2
DV. MÁNUDAGUR 7; APRÍp 1986.
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Hótel Varðborg, Akureyri:
Lvftinsfamaður
w O
gengur berserksgang
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
Ofsareiði greip einn gesta Hótel
Varðborgar á Akure.vri aðfaranótt
sunnudags og gekk hann berserks-
gang um hótelið, braut 2 hurðir og
3 rúður. Eina þeirra, í svalahurð,
braut hann þannig að hann óö í
gegnum hana.
Það var á þriðja tímanum um
nóttina sem maðurinn var yfir-
hevrður í hótelherbergi sínu á 3.
hæð hótelsins. Hafði berserksgang-
ur hans hafist á því að hann
mölhraut rúðu í herbergi sínu og
síðan spegil.
Að þessu loknu rauk hann út úr
herberginu meö tilþrifum, þ.e. stór-
skemmdi hurðina. Eftir það lagði
hann til atlögu við hurð í herberg-
inu á móti og sparkaði hana í mél.
Inni í herberginu svaf fólk sem var
allsendis óviðkomandi manninum.
Leiðin lá næst niður á 2. hseð
hótelsins. Þar fór hann inn í her-
bergi sem var opið. Óð hann út á
svalir herbergisins með því að ryðj-
ast í gegnum rúðu í svalahurðinni
og hoppaði þaðan niður.
Berserksgangurinn var ekki alveg
búinn. Maðurinn bráut stóra rúðu
í matsal hótelsins á leið sinni frá
: því. Lögreglan handtók hann síðan
í miðbæ Akureyrar. Hann var
ómeiddur eftir átökin.
í yfirheyrslu hjá lögreglunni í gær
kannaðist maðurinn ekki við að
hafa brotið rúðu í Búnaðarbankan-
| um sem er við hlið hótelsins. En þar
var gangstéttarhellu hent í rúðuna
um svipað leyti og maðurinn hvarf
frá hótelinu.
Samkvæmt heimildum DV mun
bótakrafa frá Hótel Varðborg
hljóða upp á 50-60.000 en berserkur-
inn hefur játað að vera valdur að
öllum skemmdum sem unnar voru
á hótelinu. Hann liggur ennþá und-
ir grun um að hafa brotið rúðuna í
Búnaðarbankanum en játning ligg-
ur ekki fyrir.
-S.Konn.
Á mynainni sést hurðin sem lyft-
ingamaðurinn braust í gegnura og
lá inn í herbergi annars hótelgests
sem reyndist vera Guðný Guð-
mundsdóttir konsertmeistari.
DV-mynd Jón G. Hauksson.
BSRB-ferðir:
ií
„Heilbrigt Ivf
- hagur allra
Þannig hljóða einkunnarorð dags-
ins í dag en 7. apríl ár hvert er haldinn
alþjóðaheilbrigðisdagur. Deginum er
ætlað að vekja fólk til umhugsunar
um mikilvægi heilsuvemdar og hollra
lífshátta, í stað þess á Iíta á heilsuna
sem eitthvað sem læknar gefa fólki.
Öllu fólki er nauðsyn að þjálfa sig
á einhvem hátt og hreyfing og hæfi-
leg^éreynsla eykur vellíðan sem er
grandvöllur góðrar heilsu. Þá er ekki
síðm- mikilvægt að neyta réttrar fæðu
og forðast skaðlega hegðun eins og
notkun tóbaks í öllum myndum, of-
notkun áfengis og misnotkun lyfja.
Heilsusamlegt lífemi þarf ekki að
vera leiðinlegt, eins og margir virðast
halda, heldur gefur það þvert á móti
einstaklingnum tækifæri til að njóta
lífsins eins og hægt er án þess að
skemma heilsuna með neyslu áfengis
eða lyíja, svo dæmi séu nefnd.
-VAJ
Akureyri:
Þær frönsku
brunnu yfir
Frá Jóni G. Haukssyni á Akureyri:
Slökkviliðið á Akureyri var kvatt
að Hrafnagilsstræti 21 á Akureyri um
klukkan 19.30 á laugardagskvöldið
vegna mikils reyks sem lagði frá efri
hæð hússins. Engin meiðsl urðu á
fólki. Atvik vora þau að húsfreyjan á
heimilinu ætlaði að ofnbaka franskar
kartöflur. Hún setti þær inn í ofn en
kveikti ekki undir.
Barn á heimilinu tók hins vegar að
fikta í eldavélinni, setti ofninn á
straum og hvarf síðan út úr húsinu.
Aíleiðingar urðu þær að þær frönsku
brunnu yfir.
Þeir fyrstu biðu í 15 tíma
eftsrferðtil Kaupmannahafhar
Á hverju ári hefur ferðanefnd
BSRB staðið fyrir sölu á ódýrum
sumarferðum til hinna ýmsu staða
víða í heiminum. Sala þessara ferða
hefur löngum vakið athygli þvi þær
hafa verið afgreiddar á einum
ákveðnum degi og fær sá fyrstur sem
fyrstur nær að helga sér stæði í bið-
röðinni sem hefur orðið margra tuga
metra löng.
Þeir fyrstu upp úr miðnætti
Salan í ár var engin undantekning
þegar 3 vikna ferðir til Kaupmanna-
hafnar voru seldar í Félagsmiðstöð
BSRB við Grettisgötu. Undanfarin
ár hafa ferðirnar verið afgreiddar að
morgni og hefur það orðið til þess
að fólk hefur komið á miðnætti og
staðið úti í biðröð til morguns.
Ferðanefnd BSRB ákvað því í ár að
heíja ekki sölu fyrr en klukkan 16
laugardaginn 5. apríl svo fólk þyrfti
ekki að standa úti næturlangt. Þess-
ar ráðstafanir urðu þó til lítils því
að fyrstu kaupendurnir vora komnir
upp úr miðnætti nóttina áður og
lengdist svo röðin jafnt og þétt þar
til fólkinu var hleypt inn um klukkan
9 um morguninn. Þar hreiðruðu
ferðaglaðir BSRB-félagar um sig á
stólum, borðum og í stigunum og
biðu eftir því að hinar eftirsóttu ferð-
ir yrðu seldar klukkan 16.
Gott tímakaup við biðina
Þegar blaðamaður og Ijósmyndari
DV komu á staðinn um klukkan 14
á laugardag voru þar u.þ.b. 300-400
manns sem sátu, stóðu og lágu á
göngum og í stigum félagsmiðstöðv-
arinnar. Meiri hlutinn hafði ekki
komið fyrr en búið var að opna um
morguninn en þeir allra hörðustu
voru komnir um eittleytið nóttina
áður. Það er líka eftir nokkru að
slægjast því að flug fram og til baka
kostar einungis 7.900 fyrir fullorðna,
4000 fyrir börn á aldrinum 2-12 ára
og 1.400 fyrir börn yngri en 2 ára.
Flestir voru hressir og þegar fólk
var spurt hvort biðin væri ekki leiði-
gjörn sVöraðu flestir því til að þetta
væri bara skemmtilegt og að andinn
í biðsölunum væri góður. „Þetta er
bara gamán með góðu fólki. Hér
fáum við kaffi og spjöllum við náung-
ann,“ sagði sá sem náð hafði í númer
7 en hann sagðist hafa komið um
hálfsex um morguninn og staðið til
hálfníu. „Ég er hérna með nesti með
mér og það fer alveg ágætlega um
mig,“ sagði kona sem hafði setið
lengi og nestað sig með appelsínum,
‘■'ílátk'ölfúm' ðg 'káffi:"" *" *«•
Björn Þór Gunnlaugsson var sá
sem fyrstur kom á staðinn og fékk
því númer 1. „Ég kom upp úr klukk-
an 3 í nótt og beið í bílnum þangað
til fór að íjölga. Ég hef verið hér
mestallan tímann nema hvað mág-
kona mín hefur hlaupið stutta stund
í skarðið fyrir mig.“ Björn er í starfs-
mannafélagi Strætisvagna Reykja-
víkur og sagðist vera búinn að reikna
út að tímakaupið sem hann hafði við
biðina sé eitthvert það besta sem
hann hafi haft um ævina. „Ég kom
hérna í fyrra og beið í biðröðinni en
fékk ekki ferð og ég var ákveðinn í
að tryggja mér ferð í þetta skiptið.
Maður hefur lesið blöðin og rætt við
fólkið hérna og stemmningin hefur
verið mjög góð. Það er bara gaman
að þessu,“ sagði Björn að lokum.
Sigrún Aspelund, formaður ferða-
nefndar BSRB, sagði að þetta
númerakerfi hefði orðið til um morg-
uninn og væri fyrst og fremst til
hagræðingar við afgreiðsluna. „Við
ætluðum einnig að koma þessu þann-
ig fyrir að fólk þyrfti ekki að koma
fyrr en um morguninn en það kom
allt fyrir ekki því 'þeir fyrstu voru
komnir hér um eittleytið í nótt. Við
seljum um 1000 sæti í Kaupmanna-
hafnarferðina enda eru þetta líka
vinsælustu ferðirnar,“ sagði Sigrún
að lokum.
-S.Konn.
Hér sést farþegi númer 1, Björn Þór Gunnlaugsson, kaupa fyrstu ferðina.
„Fljótt á litið sýnist mér að þetta sé besta tímakaup sem ég hef haft hjá
Reykjávíkurborg,“,sagði Björn glaðbeittuF.' • •
Það var fólk á öllum aldri sem beið eftir að geta keypt ferð til Kaup-
mannahafnar og nokkuð var um að heilu fjölskyldurnar væru þarna
saman komnar. Sumir voru farnir að þreytast á biðinni en aðrir léku við
ahvorn sinnfingWiOgíkieTOBitu sér sýnilega hið.besta. MyncbGVA