Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 12
12 DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Ávaxtarækt á íslandi: Epla- og perutre í gróðurskála og sólstofur Þótt enn sé snjór yfir öllu og klaki í jörð blundar vorið samt rétt á næsta leiti. Grös og jurtir bíða eftir því að rétta úr sér eftir vetrardval- ann. I mörgum gróðurskálum, bíls- kúrum, kjallaragluggum og jafnvel stofugluggum er vorið greinilega komið. Þar getur að líta sáðbakka og potta með laukblómum og litlum plöntum sem rétt eru að stinga upp kollinum. Við fórum á stúfana í leit að vor- inu og komum við í Blómavali í Sigtúni, þar sem er mjög gott úrval af alls kyns laukum, fræjum, plönt- um og öllu sem þarf til að koma vorinuafstað. Ávaxtatré á íslandi Það nýjasta fyrir gróðurhúsaeig- endur eru ávaxtatré, epla-, peru- og apríkósutré. Þau hafa runnið út eins og heitar lummur og er ekki ástæða til að ætla annað en að þau lifi og dafni hér og beri ávöxt ef þau eru ræktuð í gróðurskálum eins og þau gera t.d. í köldum löndum eins og Danmörku. Ávaxtatrén geta orðið þrír til fjór- ir metrar á hæð en þau verður að stýfa og klippa miskunnailaust, sagði Hafsteinn Hafliðason garð- yrkjumaður í samtali við DV. „Það hefur mikið verið spurt eftir ávaxtatrjám hjá okkur en reynslan á eftir að skera úr um hvort þetta séu réttu afbrigðin," sagði Haf- steinn. Hann sagði að ráðlegt væri að taka ekki minna en tvö tré af mismunandi sortum (en sömu teg- und) til þess að fá betri ávexti. Hann sagðist t.d. myndi velja saman epla- tegundirnar golden delicius og jo- nagold. „Það er langbest að rækta trén í stömpum og halda þeim í sæmilegri tukt með því að klippa þau vel með jöfnu millibih. Þegar kemur að umpottun er ráðlegt að fá til þess garðyrkjumann eða einhvern sem kann vel til verka. Þá þarf að klippa af rótunum o.s.frv.," sagði Haf- steinn. Ávaxtatrén eru á annan metra á hæð og kosta 795 kr. Rósir næstum allt árið Nýjar rósategundir voru á boð- stólum, t.d. litlar búkettrósir sem verða ekki nema 25-30 cm og svo aðrar sem verða 70-80 cm. Þarna voru einnig til margar aðrar teg- undir sem Hafsteinn sagði að hent- ugt væri að rækta í pottum í gróður- skálum. Þá blómstra rósirnar snemma vors og að blómgun lokinni um miðjan júní er hægt að setja þær út í garð. Þá knúppa þær sig á nýjan leik og verða tilbúnar að springa út þegar komið er að fyrstu frostum. Þá er hægt að taka þær inn í gróð- urskálann á nýjan leik og þá blómstra þær alveg fram í desember. Þá eru rósirnar settar út á ný undir yfirbreiðslu og fá þar sinn hvíldart- íma. Þær eru svo teknar inn aftur í mars og hringrásin heldur áfram. Svona rósir kosta 315 kr. Þá voru á boðstólum sólber, rifs og stikilsber fyrir gróðurskála, sömuleiðis græn og blá vínber og ný tegund af jarðarberjum, eins konar hengijarðarber. Hafsteinn sagði að þau væru tilvalin í svala- kassa. Plönturnar kosta, þrjár saman í pakka, 225 kr. Þessar plönt- ur bera ávöxt strax á fyrsta ári en fólk verður að „leika býflugur" og hjálpa til við frjógvunina með penslum. Þetta á einnig við um ávaxtatrén. Jarðarberjunum er komið til í litlum, 7-8 cm pottum. Síðan verður að stækka pottana eftir því sem plantan stækkar. Best er að nota léttmold á jarðarberin. Þá voru til ýmsir smárunnar á um 460 kr. Sumir eru nægilega harðger- ir til að vera utan dyra en flestir henta eingöngu fyrir garðstofúr og gróðurhús. Hafsteinn benti á að sumum af þessum runnum væri hægt að koma til innan dyra í stór- Ávaxtatrén, sem nú fást hér á landi fyrir tæpar 800 kr. stk., eru á annan metra á hæð. Þau geta orðið 3-4 metrar en það verður að klippa þau grimmt og haldaþeim í skefjum. DV-my nd G V A um pottum sem síðan gætu staðið á skjólsælum stað yfir sumarið. Plön- tumar eru svo teknar inn aftur að haustinu og geymdar á frostlausum stað yfir veturinn. Margir af þessum runnum eru einmitt í gróðurskála Garðyrkju- skóla ríkisins í Hveragerði þar sem þeir lifa og dafna sérlega vel við bestu hugsanlegu skilyrði. Stampur undir ávaxtatré eða runna kostar 880 kr. -A.Bj. Hvern skyldi hafa órað fyrir því að hægt væri að sá fyrir kartöflum og fá uppskeru strax á fyrsta ári? Ef þetta tekst eru kartöflusjúkdómar úr sögunni. DV-myndGVA Fegurð og hreysti í fræpokum Nú er hægt að fá kartöflufræ „Ef þessi fræ koma vel út er vanda- málið með hringrotið úr sögunni fyrir fullt og allt,“ sagði Hafsteinn Hafliða- son garðyrkjumaður er hann sýndi okkur kartöflufræ sem nú er hægt að fá hér á landi. Pokinn kostar 58 kr. Kartöflumar verður að forrækta inni við eins og hveijar aðrar kálplöntur og síðan er þeim plantað út þegar skilyrði em til þess. Hafsteinn benti á að óþarfi væri fyrir fólk almennt að vera með sér- stakan matjurtagarð. Vel megi hugsa sér að sameina fegurð og hagnýti og hafa matjurtimar innan um sumar- blóm og runna. Venjulegt sumarblómafræ kostar 25-30 kr. pokinn. En hægt er að fá alls kyns sjaldgæfar jurtir fyrir allt að 200 kr. pokann. Þama vom til gulrætur „á bandi“. Þá er fræjunum komið fyrir í borða sem lagður er á jörðina og hulinn með mold. Þá er rétt bil milli plantnanna og engin þörf á grisjun. Pokinn kostar 668 kr. Þá er á boðstólum alls konar krydd- jurtafræ sem hentar vel hvort sem er í eldhúsgluggann eða svalakassann. Með því að sá með jöfnu millibili til fljótvaxinna tegunda má lengja upp- skemtímann vemlega. Kryddfræið kostar 30 kr. pokinn. Þá em til ýmsar tegundir sumar- blóma og margar grænmetistegundir sem seldar em í sáðbökkum með mold og plastloki. Þá er fræjunum sáð í moldina og plastlokið sett ofan á og virkar þá eins og lítið gróðurhús. Við sáum ýmsar tegundir eins og t.d. blómkál, ísbergsalat og pínutómata. Verð er 137 kr. á kassa. - A.Bj. Voriaukamir fam- iraðkíkja upp hjá þeim áhugasömustu Nú er einmitt rétti tíminn til þess að koma vorlaukunum til i pottum. Vorlaukar nefnast þær plöntur sem komið er til fyrri part vors og blómstra um sumarið. Haustlaukar nefnast þeir laukar sem gróðursettir eru á haustin en blómstra svo að vori. Nú þegar eru fyrstu haustlaukarnir famir að blómstra. Það eru krókus- amir sem teygja undursamlega fögur blóm sín á móti sólinni, stundum jafh- vel í gegnum snjóinn. Páskaliljur og túlípanar era einnig farin að bæra veralega á sér á skjólgóðum stöðum. Begóníur era sérlega falleg blóm og er til ótrúlega mikið úrval af þeim. Þær era til fylltar, stórblóma og smáblóma, knipplingabegóníur og kögurbegóníur auk hinna venjulegu sem era til bæði með stóram og smáum blómum. Begóníur má rækta bæði úti og inni. Þær eru mjög dug- legar að blómstra og virðast þola vel að vera á móti sól, í það minnsta þar sem við þekkjum til. Best er að velja sér lauk sem er stinnur og aðeins farið að glitta í bram. Laukurinn er settur í 10-12 cm pott, notið léttmold sem ekki má hylja laukinn alveg. Laukurinn á að fara í miðjan pottinn. Hafið hæfilega rakt í pottinum og stillið honum á skugg- sælan en hlýjan stað. Um léið og stöngullinn er farinn að myndast má færa pottinn út í glugga þótt betra sé að verja plöntuna fyrst í stað fyrir skærastu hádegissólinni. Begóníu- laukamir kosta 54 kr. stk. Gloxeníur eru einnig ræktaðar upp af laukum en þær eru eingöngu stofu- blóm. Þær þola aftur á móti mjög vel að standa í sólríkum suðurglugga. Gloxeníurnar kosta 84 kr. Riddarastjarna er stór laukur. Hann er látinn í stóran pott, 13-15 cm, og á laukurinn að vera hálfur upp úr moldinni. Gætið þess að vökva ekki of mikið fyrr en blómstöngullinn er kominn upp. „Annars verður fósturlát, plönt- unni leysist höfn,“ sagði Hafsteinn Hafliðason garðyrkjumaður er hann sýndi okkur vorlaukadýrðina. Ridd- arastjama, öðra nafni amarylles, er gífurlega fallegt blóm. Það koma fjög- ur klukkulagablóm á stilkinn og geta staðið í allt að tíu daga. Margar aðrar laukjurtir eru til, sem sumar bera mjög óvenjuleg blóm, eins og t.d. hjarðliljur. Þær eru settar tvær til þrjár saman í 11-12 cm stóran pott og vökvað lítið í fyrstu. Þær blómstra svo í september og kosta 65 kr. stk. Þama voru líka tígrisliljur, ilmliljur og glóðarliljur sem skemmtilegast er að hafa margar saman. Þessar plönt- ur henta aðeins fyrir gróðurskála. 10 stk. í poka kosta 70 kr. Dalíumar biðu eftir að verða gróð- ursettar. Þær þurfa góða birtu en ekki of mikinn hita til að byrja með og mega ekki fara út í garð fyrr en eftir miðjan júní. Þá verða þær einnig að vera í „vernduðu umhverfi", á skjólgóðum og sólríkum stað. Dalíur eru ákaflega mismunandi en skiptast í þrjá aðalflokka, háar, með- alháar og lágar. Ljósu sortimar, þær gulu og hvítu, blómstra á undan þeim dökku og lágu tegundirnar á undan þeim háu. Hafsteinn benti á að nauð- synlegt er að binda allar háu dalíum- ar upp með einu priki á stöngul eins og reyndar er nauðsynlegt við flestar háar plöntur. Dalíurnar kosta 59 kr. stk. en til era 6 í pakka á 254 kr. Ekki má skiljast svo við vorlaukana að ekki sé minnst á skógarsóleyna eða anemonurnar eins og þær heita á útlensku. Það era stórkostlega fal- leg sumarblóm sem einnig er gaman að setja í vasa. Hnýði skógarsóleyjarinnar eru ein- kennileg í laginu, eiginlega líkust gamalli sveskju en áríðandi er að þau snúi rétt þegar þau era sett niður. Poki með 10 skógarsóleyjum kostar 70-100 kr. -A.Bj.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.