Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 44
I % DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986. '*°r IHi<l - pnnrn/Mf -/>t Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós íþá ffömlu ffóðu Nýjar myndir sýna Karl prins og Diönu með synina við sömu tækifæri og á meðfylgjandi ljósmynd frá 1937. Þarna var krýning föður Elísabet- ar orðin að veruleika. Bretar birta nú af kappi gamlar myndir frá æskuárum Elísabetar drottningar og rifja upp gamlar sögur frá yngri árum þeirra syst- ranna, Elísabetar og Margrétar Rósu. Líklega er þekktust sagan af þeim tveimur þegar þær, eftir krýningu föður þeirra, sátu saman og ræddu framtíðina. „Fyrst pabbi er orðinn kóngur Elisabet, sem síðar varð drott- ing Bretaveldis, með yngri syst- ur sinni, Margréti Rósu. verður þú þá að verða drottning einhvern tíma seinna?“ spurði Margrét stórusystur og hafði greinilega þungar áhyggjur. „Já, svo er víst,“ svaraði Elísabet þeirri stuttu. „Ojjjbara - aumingja þú,“ var síðasta viðbragð Margrétar áður en hún hentist í burtu. Elísabet sat ein eftir og það voru lítil gleði- merki að sjá í andlitsdráttunum. Ábyrgðin af krúnunni steyptist yfir prinsessuna litlu með fullum þunga strax við krýningu föður hennar. Og þá er loksins komið að trúlofun- armyndinni af nýjasta parinu í bresku kóngafamilíunni, Sarah Ferguson og Andrew Bretaprins. Með myndinni fylgdu þær upplýs- ingar að hann hefði borðið fram bónorðið á sama stað og Karl prins bað Diönu - Floors Castle í Skotl- andi. Það þarf stundum að leggja á sig heilmikinn flæking til þess að segja réttu setningarnar á rétt- um stað og stundu berirðu prinstit- il á bakinu. Valið á eiginkonunni herma fréttir hins vegar að Diana hafi séð um algerlega hjálparlaust fyrir Andrew mág sinn - hún hafði mikla þörf fyrir jafnöldru af hress- ari gerðinni í hina annars form- föstu konungsfjölskyldu. Prinsessu- plata Sú eldhressa Stefanía prins- essa i Mónakó sendi frá sér fyrstu plötuna fyrir nokkr- um vikum og viðtökumar hafa verið með ágætum. I Frakklandi einu saman eru strax seldaryfir 100.000 plötur. Platan er sérstök að því leyti að á annarri hliðinni er Irrestible á ensku en á hinni Ouragan á frönsku og ætti hún því að hafa sölu- möguleika utan heima- landsins. Örfáir dagar eru í útkomu skífunnar á Banda- ríkjamarkaði en þar er henni spáð ekki lægri sölu- tölum. Engin yfirlýsing hef- ur ennþá fengist frá Rainier fursta um málið. DÓTTIR TAYL0R 0G BURT0N Liz Taylor og Richard Burton hefðu síst getað kvartað yfir að vera ekki í sviðsljósinu en börnin þeirra hafa haldið sig ákveðið til hliðar. Hérna er þó fjölskyldu- mynd af einu barnanna, maka og afkomanda. Maria Burton heitir hún og starfar sem fyrirsæta en með á myndinni eru eigin- maðurinn, Steve Carson, og dóttirin, Elizabeth Diane, sem heitir eftir ömmunni heimsfrægu. Önnum kafin kona - CORY! Hin nýja súperstjarna í stjórnmálum þeirra Filippseyinga - Cory Aquino - er kona önnum kafin og þrátt fyrir þátttöku í hinum ýmsu málum á opinberum vettvangi hefur hún gefið sér tíma til annarra hluta - konan á til dæmis ein fimm börn. Þau eru að vísu orðin nokkuð stálpuð, ein dætranna gift og komin með barn. Fremur lítið hefur ennþá komið fram í fjölmiðlum um Cory Aquino til þessa, konuna sem á einum mánuði varð þjóðhöfðingi og bókstaflega stökk inn á spjöld sögunnar. Með- fylgjandi mynd sýnir Aquino, börn, tengdabarn og barnabörn - Kris, tengdasonurinn Edldon Cruz, Ballsy með soninn Justin, Cory, Noynoy, Pinky og Viel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.