Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 39
DVt fMÁN'WAÖ u R 7,í A í 936.1 3% mm >» ''~~S- . "* ~w>í- Ernir eru nú í heimsókn á Reykjavikur- svæðinu, 2 eða jafnvel 3. Að sögn Ævars Petersen dýra- fræðings er algengt að ernir flækist hingað og þangað um landið utan varptímans en aðalheimkynni þeirra eru Vest- urland og Vest- firðir. Ævar sagði að ernir héldu sig mest í sjáv- armálinuen þeir lifa á fiski og hræjum. „Ég vona bara að fólk hafi gaman af þeim, þeir eru hættulausir og lítil hætta á að þeir birtist i túninu hjá fólki,“ sagði Ævar. Örninn á myndinni vakti athygli Sel- tjarnarnesbúa er hann sveim- aði um i fjör- unni við Gróttu. -KB Starfsfólk Rakara- og hárgreiðslustofu Leifs Osterby. Rakarastofa í gamla bankanum Frá Kristjáni Einarssyni, fréttaritara DV á Selfossi: Síðastliðin 22 ár hefur Leif 0sterby hárskeri rekið stofu við aðalgötu bæjarins, nánar tiltekið við Austur- veg númer 34. En nýlega tók Leif sig upp og flutti um set við sömu götu eða í Gamla bankann. Nýja húsnæðið er stærra en það gamla og hefur það verið innréttað á skemmtilegan máta. Gamli andinn svífur um burðarbita og annað gamalt tréverk sem fengið heíur að halda sér. Með tilkomu nýju stofunnar var þjónustan aukin, þrír hárskerar sjá um að klippa og raka, hárgreiðslu- dama hefur aðsetur í bankastjóra- skrifstofunni með sína þjónustu og tvær afgreiðslustúlkur sjá um við- skiptin í snyrtivörudeildinni. Ný- breytni þessi hefur mælst vel íyrir, Leif sagði að nú kæmu inn höfuð sem hann hefði aldrei séð áður (enda þjónustusvæðið stórt fyrir þær tvær stofur sem reknar eru á Selfossi). (Þessar tvær eru í Ámessýslu, engin í Rangárvallasýslu eða V-Skaftafells- sýslu.) Sumarhúsavist með fótboltaívafi Líklegt má telja að hugur margra, hérlendis sem erlendis, verði bundinn við hnöttótta tuðru allan júnímánuð. Þá fer fram heimsmeistarakeppni í knattspymu í Mexíkó. Fæstir hafa tök á að bregða sér alla leið til Mexíkó til þess að líta á dýrðina. Það vita Hollendingar sem bjóða íslend- ingum að sækja sig heim og sameina dvöl í sumarhúsum sjónvarpsglápi þar sem hægt er að horfa beint á leiki heimsmeistarakeppninnar. Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir- -Landsýn hefur um þessar mundir selt tíu þúsund Islendingum dvöl í siunarhúsum í Hollandi frá því að slíkar ferðir liófust. Vegna þessara tímamóta datt mönnum í hug að gera eitthvað til hátíðabrigða. Ferðaskrif- stofumenn báðu Hollendingana að gera eitthvað sniðugt og þeir stungu upp á fótboltaglápinu og veittu um leið afslátt á sumarhúsavistinni. Sá afsláttur er um ellefu þúsund krónur fyrir fjölskyldu sem er í sumarhúsi í þrjár vikur. Hollendingamir verða einnig í íþróttaskapi og skipuleggja um leið ýmsar íþróttir og uppákomur. Hafi menn alls ekki áhuga á fótbolt- anum er einfaldast að nýta afsláttinn en kveikja ekki á sjónvarpinu. Helgi Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Samvinnuferða-Landsýnar, sagði að með afslættinum kostaði sumarhúsaferð til Hollands um fimmtán þúsund krónur á mann, miðað við eina fjölskyldu í húsi. Það verð væri mjög hagstætt og líkur á að sumarhúsin í Hollandi seldust best af þeim ferðum sem í boði væru hjá ferðaskrifstofunni í sumar. Mall- orkaferðimar, um þúsund sæti, hefðu að vísu selst upp á skömmum tíma, en nú væru bókanir til Hollands nær tólf hundruð. Helgi sagði að greinilegt væri að fólk fylgdist vel með verði ferða og ódýrar ferðir seld- ust fljótt upp. Nýjung, sem ferðaskrifstofan reynir í ár, er að bjóða fólki svokölluð S/L hótel. Þá er pöntuð ferð á ákveðinn stað en á hvaða hóteli fólk lendir liggur ekki fyrir fyn- en tíu dögum fyrir brottför. Með þessu móti nást hagstæðari samningar en tryggt er að hótelið sé af ákveðnum gæða- flokki, hreinlegt og herbergi með baði. Þetta hefúr tíðkast í nálægum löndum en ekki verið reynt áður dögum. hérlendis. Margir voru efins um að Íietta gengi en raunin varð önnur. slendingar virðast tilbúnir að reyna þetta. Ferðirnar, sem í boði voru með þessum hætti, seldust upp á fimm + BARNFÓSTRUNÁMSKEIÐ Rauði kross (slands heldur námskeið fyrir barn- fóstrur dagana 14., 15., 16. og 17. apríl nk. kl. 19-22 daglega í Nóatúni 21. Námskeiðið er ætlað 11 ára og eldri og námskeiðsgjald er kr. 750. Innritun og nánari upplýsingar í síma 26722 frá kl. 10-16daglega. Rauði kross Islands Úrval vid allra hœfi ' J§ fijps Æ SLYSAVARNA FÉLAG iISLANDS, ' íítS ■ ->. Ætmm S ý'1- ■, >d,•■■: g# ■ v ’jÆtU t * stípmSwm JV1-1 XI ILIJjJIA I B UÐAH APPDRÆTTI IBUÐIR að verðmæti 1.8 milljón hver DRÖGUM ANNAÐ KVÖLD Miðasala við björgunarsveitarbíl í Austurstræti og á skrifstofu S.V.F.Í. Grandagarði, í dag og á morgun kl. 9—12 og 13—17. VIÐ ÞÖRFNUMST ÞÍN - ÞÚ OKKAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.