Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitn-
eskju um £rétt - hringdu þá í
sima 687858.
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta firéttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 1 986.
Helgi í
efsta sæti
~~ásamt6öðrum
Helgi Ólafsson gerði jafntefli við
Tyrkjann Smejkal í 8. umferð opna
skákmótsins í New York, sem tefid
var í gær. Hann er þar með efstur
með 6 vinninga ásamt sex öðrum.
Jón L. vann Bandaríkjamanninn
Bonin í gær og er Jón með 5 vinn-
inga. Margeir er einnig með 5
vinninga, hann gerði jafntefli við
Bischoff frá Vestur-Þýskalandi.
Karl Þorsteins tapaði fyrir Adrijan
frá Ungverjalandi og er með 4'/»
vinning eftir 8 umferðir.
Helgi var hress er DV hafði sam-
band við hann í morgun, sagðist
alveg eins eiga von á að vinna í
síðustu umferð, sem tefld verður í
—^éag, en hann hélt að andstæðingur
sinn yrði Bandaríkjamaðurinn
Benko. „Þetta getur þó farið alla
vega, ég get líka orðið efstur ásamt
mörgum eða alls ekki hlotið vinn-
ing,“ sagði Helgi.
Það er til mikils að vinna því
fyrstu verðlaun í mótinu eru 16
þúsund dollarar eða tæplega 700
þúsund íslenskar kr. -KB
Áfram ítölsk
- vín í Ríkinu
„Það er ekkert sem bendir til þess
að þau vín, sem hér eru til sölu, séu
eitruð," sagði Höskuldur Jónsson,
forstjóri ÁTVR, þegar DV grennsl-
aðist fyrir um hvort fyrirhugaðar
væru einhverjar sérstakar ráðstaf-
anir hjá ÁTVR vegna eiturefna sem
fundist hafa í ítölskum vínum.
„Ekkert þeirra fyrirtækja, sem selja
okkur, hafa verið bendluð við þetta
og auk þess eru þau vín, sem við
höfum á boðstólum frú Ítalíu, eldri
en þau vín sem eiturefni hafa fund-
ist í. Það stendur því ekki til að
s stöðva sölu á þeim vínum sem þegar
eru komin í verslanir en við munum
að sjálfsögðu viðhafa fyllstu vark-
ámi í viðskiptum okkar við ítalska
‘ " vínframleiðendur og fylgjast með
hvemig aðrar einkasölur á Norður-
löndum bregðast við. Og til frekara
öryggis höfum við beðið landlækni
að vera í sambandi við kollega sína
erlendis og fylgjast með þessu rnáli,"
sagði Höskuldur. -VAJ
Geriö uerösamanburö
og pantiö
úr
'Tsimi: 52866
LOKI
Ég býð mig ekki fram
sem smakkara í ríkinu.
Flakið af TF-ORM þar sem það liggur utan í fjallshlíðinni. Fyrir ofan má sjá
klettabelti, en slysstaðurinn er í um 700 metra hæð.
DV-mynd GVA.
Flugslysiö á Snæfeilsnesi:
Mennirnir tveir
mikið slasaðir
Líðan mannanna tveggja, Pálmars
Gunnarssonar og Kristjáns Guð-
mundssonar, sem komust af í flugslys-
inu í Ljósufjöllum, er eftir atvikum
góð.
Þeir liggja á gjörgæsludeild Borg-
arspítalans. Mennirnir, sem eru að
koma til meðvitundar, eru mikið slas-
aðir. Læknar gerðu að meiðslum
þeirra í gær. Þeir voru mikið brotnir
á útlimum.
Þeir Pálmar og Kristján voru fluttir
til Reykjavíkur aðfaranótt sunnu-
dagsins. Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti þá upp í Ljósufjöll á Snæfells-
nesi og flaug með þá til Stykkishóliíis.
Þar var TF-GTO, flugvél Sverris Þór-
oddssonar, til staðar. Hún flaug með
þá til Reykjavíkur. -SOS
FLUGLEIÐ FLUGVÉLARINNAR
Flugleið flugvélarinnar TF-ORM frá ísafirði, yfir Stykkishólm í blindflugi, og
slysstaðurinn í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi.
Veðrið á morgun
Aðgerða-
lítið veður
Á morgun verður hæð yfir Græn-
landi og fremur aðgerðalítið veður
á landinu og í kringum það. Vindur
verður hægur á norðan á Norður-
og Austurlandi og þar þykknar upp
með skúraveðri. Heldur mun birta
til á Suður- og Suðvesturlandi og
vindátt verða austlæg.
Víða verður skýjað og skúrir eða
él á stöku stað. Hitastigið verður
yfir frostmarki út við ströndina en
um 3-4 stiga frost inn til landsins.
-S.Konn.
Sjálfstæðismenn á
Egilsstöðum:
Helgi efstur
Einar Rafn Haraldsson, fréttaritari
DV á Egilsstöðum:
Sjálfstæðismenn ú Egilsstöðum
héldu prófkjör á laugardaginn
vegna sveitarstjómarkosninganna í
vor. Alls greiddu hundrað og tólf
atkvæði og er kosningin bindandi
fyrir öll sæti. Úrslit urðu sem hér
segir:
1. Helgi Halldórsson yfirkennari.
2. Guðbjört Einarsdóttir úrsmiður.
3. Ásdís Blöndal fóstra.
4. Sigurður Ananíasson matreiðslu-
maður.
5. Jónína Einarsdóttir verslunar-
maður.