Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 6
6
DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65 74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextireru 15% ogársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir.hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 13,75% nafnvöxtum og
14,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar em
annaðhvort með 10,5‘X> nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildirhvern mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára af mælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á mcðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25‘X», 3 mánuði
8,50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir
6 mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vcxti.
Utvegsbankinn: Ábót ber annáðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 12,4‘%», eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnúm gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 8‘X„ þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjóröunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekiö út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9'%, cða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir
sparisjóðsvextir, 8,5%. og eins á alla innstæð-
una innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluöum trompvÖxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði
vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mán-
uði, óverðtryggða en á 15,5‘%, nafnvöxtum.
Þeir eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun
er því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18
mánuði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2%
ársávöxtun. Sparisjóðimir í Keflavík, Hafn-
ariirði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund áð nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
menntl2 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 195 þúsund. 2 4 manna fjölskylda
fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars
mest 248 þúsund. 5 manna íjölskylda eða
stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa,
annars mest 290 þúsund. Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vext.i og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1(XX) þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Ijíinin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir
í einu lagi yftr þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður
því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verð-
bólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur
og hún getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir
6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Bygg*ngarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stigágrunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01.-10.04. 1986
INNLÁNMEÐSÉRKJÖRUM SJÁSÉRLISTA llli H Hii íí iiii íi ii
INNLAN ÓVERÐTRYGGÐ
SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.0 8.0 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 10,0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán.uppsogn 12.5 12.9 12.5 9.5 10.5 10.0 10.0 12.0 10.0
12mán.uppsögn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.0 12.0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTUR Sparaö3-5mán. 13,0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp.6mán.ogm. 13,0 13,0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERDTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsogn 3.5 2.5 2.5 3.0 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.0 7.0 6.5 7,5 7.0 7.0 7.5
Sterlingspund 11.5 11.5 10.5 11.0 11.5 11.5 11,5 11.5 10.5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.5 3.5 4.0 3.5 4.0 3.5 3.5 4.0
Danskar krónur 9.5 9.5 7.0 8.0 7.0 7.5 7.0 7.0 8.0
ÚTLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
ALMENNIR VlXLAR (forvextir) 15.25 15,0 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAViXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kgc
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20,0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR yfihdrAttur 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF Að 2 1/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lenqri en 2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU
SJÁNEÐANMÁLS1)
l)Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutnings, í
SDR 9,25%, í Bandaríkjadollurum 9,0%, í sterlingspundum 13,25%, í vestur-þýskum
mörkum 5,75%. 2)Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%, bæði á
verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm,
á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er
merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunmn.
Álafossmenn eru bjartsýnir þrátt fyrir allt og segja að nýju glansandi línunni hafi hvarvetna verið vel tekið. Myndin
er úr verksmiðju Álafoss.
Verður Þróunarfélagið
hluthafi í Álafossi?
Þróunarfélagið er engin læknissprauta, segir
Gunnar Ragnars stjórnarmaður
Á fundi sem Þróunarfélagið hélt á
Akureyri fyrir skömmu var farið fram
á það að félagið gerðist hluthafi í
fyrirtækinu Álafossi.
„Við ætlum að auka hlutaféð en það
er ekkert sérstaklega verið að leita
til Þróunarfélagsins,“ sagði Benedikt
Antonsson, stjórnarformaður Álafoss.
- En mun Þróunarfélagið hlaupa
undir bagga með ullariðnaðinum og
er félagið þá ekki að breytast í bjarg-
ráðasjóð?
Að sögn Gunnars Ragnars, stjórn-
armanns Þróunarfélagsins, var mál
Álafoss meðal þeirra sem kynnt voru
á fundinum.
„Almennt talað þá getur það oft
verið þjóðhagslega hagkvæmt að
rétta við fyrirtæki sem er komið í
þrot og skynsamlegra að rétta því
hjálparhönd en að stofna eitthvað
nýtt. En Þróunarfélagið á ekki að
vera læknissprauta fyrir fyrirtæki til
þess að fleyta þeim áfram einhverja
rnánuði," sagði Gunnar Ragnars.
Undanfarið hefur mikið verið rætt
um erfiðleikana í ullariðnaðinum í
landinu og margir verið með svart-
svnisspár. Benedikt Antonsson hjá
Álafossi sagðist hins vegar vera bjart-
sýnn á framtiðina: „Við vinnum að
þróun á nýjum tegundum af hand-
prjónagarni sem eru léttari og meira
glansandi en venjulegt ullargam og
nýju línunni frá Álafossi hefur hvar-
vetna verið frábærlega tekið.
Benedikt sagði ennfremur að það
hefði gætt misskilnings í fjölmiðlum
um stöðuna í ullariðnaðinum. Salan
hefði eingöngu minnkað í hand-
prjónagami en sala á tilbúnum fatn-
aði ekki. _gjj
HAGFRÆÐIMEÐ
MORGUNMATNUM
Næstkomandi fimmtudag boðar
ICC - landsnefnd Alþjóða verslunar-
ráðsins - til morgunverðarfundar í
Átthagasal Hótel Sögu. Gestur fund-
arins verður Dr. Eamonn Butler,
framkvæmdastjóri Adam Smith Inst-
itute í London og ritstjóri The British
Insurance Broker Joumal. Dr. Butler
er fæddur í Bretlandi 1952, lauk MA
gráðu í hagfræði og sálarfræði ’74,
doktorsgráðu í heimspeki ’77 og hefur
skrifað sjö bækur um aðskiljanleg
efni, meðal annars kenningar Heyeks
og Friedmans. Hann hefur farið víða
til að kynna hugmyndir sínar um
leiðir til að draga úr ríkisrekstri og
auka umsvif einkarekstrar. Megin-
markmið landsnefndarinnar með því
að bjóða honum hingað er að skýra
nýjar hugmyndir sem efstar em á
baugi í Evrópu um þessar mundir.
Þær ganga undir nafninu „privatizat-
ion“ sem hefur það verið íslenskað
„frá ríkisrekstri til einkarekstrar" og
hafa fjölmargar ráðstefnur verið
haldnar á vegum ICC - Alþjóða versl-
unarráðsins til þess að fjalla um
reynslu Evrópu og leitun nýrra leiða
á þessu sviði.
-baj
A kreditkorti
til útlanda
Dr. Eamonn Butler, morgunverðar-
gestur ICC á íslandi.
Viðskiptavinir Samvinnuferða-
Landsýnar og Krediktkorta hf. geta
nú greitt fyrir orlofsferðir sínar að
öllu leyti með Eurocard kreditkorti.
I frétt frá þessum fyrirtækjum segir
að hægt sé að greiða staðfestingar-
gjald með einu símtali, innborganir
með Eurocard og sömuleiðis mánað-
arlegar eftirstöðvar með mánaðar-
legum afborgunum sem færðar eru
inn á úttektarreikning viðkomandi
korthafa hjá Kreditkortum hf.
„Það er ljtil reynsla komin á þetta
ennþá,“ sagði Helgi Daníelsson hjá
Samvinnuferðum-Landsýn í samtali
við DV í gær. „Samningarnir voru
gerðir nú í vikunni. Þetta er ein leið
til að mæta nútímanum því það er
orðinn viðurkenndur viðskiptamáti
að nota greiðslukort. Þetta er þægi-
legra fyrir kúnnann," sagði Helgi.
Að sögn munu Samvinnuferðir-
Landsýn eigi að síður bjóða ferðir
sínar með hefðbundnu greiðslufyrir-
komulagi, en með þessum nýgerða
samningi við Krediktkort hf. er riðið
á vaðið með nýjung í átt til betri
þjónustu við íslenska ferðalanga.
-EH