Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Side 10
DV-:*MÁ5«UDAGljR7.-APfa.Liy'986(!
10»
ÚUönd Útlönd Útlönd Útlönd
„Okkur blöskrar
oflátungshátturinn“
-segja sendimenn Aquino
er vilja endurheimta
fjársjóði
Markosarfjölskyjdunnar.
Forvitnast í heimilisbókhald
Malacananghallar
Mr. P. 0. Domingo
Pr«aid«nt
Philippin* National Bonk
Pursuant to ay ataorandua of Nov«ab«r II, 197S,
you ar« hcrcby «uthóriz«d to disbur«« th« aaount of
TVO HITNDRED THOUSAND DOLLARS (USI200.000) froa th«
Int*llig«nc« Fund Account No. 2 and «ff«ct payasnt
for cxpcnscs incurr«d in conn«ction with th« official
trip of th« First Lsdy to N«w York.
Milllarðarnir
hans Markosar
„Okkur blöskrar oflátungshátturinn," segja sendimenn Aquino er nú vilja komast yfir Markosarauðinn. Malacan-
anghöll í Manila er nú opin almenningi er séð getur gullið og gersemarnar með eigin augum.
Imalda hafði dýran smekk og skorti ekki gulldjásnin.
síðustu forsetakosningar. Bifreiðin
er öll hin glæsilegasta með tveim
svefhsófum, fjórtán hægindastólum
og auðvitað eldhúsi og baði.
Skammt frá ferðabílnum var sérstök
sjúkrabifreið forsetans („sjúkrahús
á hjólum“) með fullkomnustu lækn-
ingatækjum. Tilvera hans minnti
menn á síhrakandi heilsu forsetans
fyrrverandi er sífellt eyddi meiri
tíma undir læknishendi.
Bruðl forsetahjónanna gekk fram
af mörgum fyrir þrem árum er þau
giftu Irenu dóttur sína, sem frægt
er orðið, á Filippseyjum.
„Hver vill ekki gifta dóttur sína
á sómasamlegan hátt,“ hefur Mar-
kos væntanlega spurt sjálfan sig
fyrir brúðkaupið og það var fátt sem
ekki var gert til að gera það sem
glæsilegast.
Hawaiiblómin flugleiðis
Teitið fór fram í fæðingarbæ
Markosar, smábænum Sarrat í
Norður-Luzón.
Varlega áætlaður kostnaður við
brúðkaupið var yfir tíu milljónir
dollara, eða rúmar 410 milljónir
íslenskra króna.
Imalda forsetafrú lagði heiður
sinn að veði fyrir því að allt tækist
nú vel og væri sem glæsilegast.
Hún kallaði til 3.500 vinnumenn
er dag og nótt unnu við endurbætur
á tveggja alda gamalli kaþólskri
kirkju bæjarins þar sem vígslan átti
að fara fram.
Tveim dögum fyrir brúðkaupið
opnaði forsetinn 400 milljóna króna
glæsihótel í bænum þar sem brúð-
kaupsgestimir fimm þúsund skyldu
búa.
Forsetinn opnaði einnig formlega
nýendurbyggðan flugvöll bæjarins
þar sem flugbrautir höfðu sérstak-
lega verið lengdar til þess að einka-
þotur langt að kominna brúðkaups-
gesta gætu athaíhað sig.
Sagan segir að flugvélar hafi síð-
an fært heilu farmana af nýafskorn-
um Hawaiiblómum til Sarrat til að
skreyta með kirkjuna.
Nú er öldin önnur og Hawaii-
blómin í Sarrat löngu fölnuð.
Komið er að skuldadögunum hjá
Markosarfjölskyldunni sem flúin er
til Hawaii og lætur ekki lengur
senda sér afskorin blóm með flugi.
Málaferli gegn Ferdinand Mar-
kos, fyrrum forseta Filippseyja, er
hrökklaðist frá völdum fyrir rúm-
um mánuði, spretta upp víðs vegar
um þessar mundir.
Þar eiga í hlut fulltrúar nýrrar
ríkisstjórnar á Filippseyjum er leit-
ar nú allra ráða til að endurheimta
ótrúleg auðæfi er MarkosarQcl-
skyldan og fylginautar hennar
sönkuðu að sér í skjóli einræðis-
stjórnar á löngum og illræmdum
valdaferli.
Nú vinnur ótalinn fjöldi lögfróðra
manna að gagnasöfnun er miðar að
því að varpa ljósi á allan þann auð
er Markos og skjólstæðingar komu
höndum yfir á ferli sínum.
Mest í Bandaríkjunum
Engin fordæmi eru fyrir umfangi
slíkrar rannsóknar og alls óljóst
hvort öll kurl koma nokkru sinni
til grafar. Sérfræðingar telja lang-
mestan hluta af Markosarauðæfun-
um niðurkominn i Bandaríkjunum.
Fram að þessu hefur ríkisstjóm
Filippseyja óskað eftir opinberum
réttarrannsóknum í New York,
Trenton, Houston, San Francisco
og Honolulu.
Yfirleitt er óskað eftir eignarhaldi
á verðmætum sem talið er að séu í
eigu Markosar, þar á meðal skrif-
stofubyggingar í New York og land-
areignir í Texas. Einn aðili leggur
fram kröfur um miskabætur vegna
meintra mannréttindabrota.
Enginn hefur fram að þessu þorað
að koma með opinberar staðhæfing-
ar um heildarverðmæti þess er
Markos skaut undan á valdaferli
sínum en það hefur varlega verið
áætlað um fimm milljarðar dollara.
Mestu er Markos talinn hafa stofið
undan frá ríkissjóði Filippseyja en
einnig er fullvíst að hann eignaði
sér milljónir dollara af bandarískri
hemaðar- og þróunaraðstoð, auk
margs konar mútugreiðslna frá er-
lendum stórfyrirtækjum er vildu
komast í góð viðskiptasambönd við
stjórnarherrana í Manila.
Plöggin opinberuð
Bandaríska vikuritið Time fjallar
í síðasta tölublaði sínu um nýlega
opinberuð plögg er Markos tók með
sér frá Filippseyjum til Hawaii eftir
Skjal, undirritað af Markosi fyrir heimsókn Imöldu forsetafrúar til Bandaríkjanna í nóvember 1975. Það endur-
speglar ágætlega heimilisbókhaldið í Malacananghöll.
kemur berlega í ljós þegar blaðað
er áfram.
Skjal, sem dagsett er i nóvember
1984, tiltekur 411 þúsund dollara
úttekt á margs konar skartgripum
á stuttri innkaupaferð til New
York. Sérfræðingar, er gluggað hafa
í pappírana, eru ekki frá því að
innkaupalisti forsetahjónanna beri
það með sér að þau hafi vitað að
Umsjón:
Hannes Heimisson
þeim yrði sparkað einn dag og hafi
því fjárfest í góssi er auðvelt yrði
að losna við síðar meir.
I skjölunum fundust einnig stað-
festingar á yfir 4 milljóna dollara
fjárfestingu í verðbréfum sem út-
gefin eru aðeins einum mánuði eftir
að Markosarfjölskyldan hrökkl-
aðist frá völdum.
Eitt skjal staðfestir yfir 800 þús-
und dollara útgjöld Imöldu forseta-
frúar i „opinberri" heimsókn til
íraks, Mexíkó, Kenýa og Banda-
ríkjanna.
Þar var reikningurinn reyndar
ekki beint stilaður á seðlabanka
Filippseyja heldur á vamarmála-
ráðuneytið og herinn.
„Imalda skrifaði útgjöldin á leyni-
reikninga hersins á sama hátt og
hún væri með gyllta kortið frá
American Express," segir banda-
ríski þingmaðurinn Solarz sem fylg-
ist með rannsókninni á Markosar-
auðæfunum fyrir hönd Bandaríkja-
stjómar.
Hvergi var auðlegðin þó eins
áberandi og á heimili Markosar-
hjónanna í Malacanang, forseta-
höllinni í Manila.
Ekki færri en fimmtán fægðar
glæsikerrur stóðu þar til þjónustu
reiðubúnar í tignarlegum bílskúr-
um, þar á meðal fimm úrvalsgerðir
af Mercedes Benz og nokkrar
BMW, Nissan og Datsun bifi'eiðir.
að hann hrökklaðist frq völdum.
Pappíramir vom opinberaðir eftir
tveggja vikna málaferli þar sem
lögfræðingar Markosar, Banda-
ríkjastjórn og nýir valdhafar i
Manila komu við sögu.
Hafa plöggin nú verið afhent
Jovito Salonga er yfimmsjón hefur
með rannsókninni á auðæfum
Markosar fyrir hönd stjórnar sinnar
á Fibppseyjum.
„Okkur blöskrar oflátungsháttur-
inn,“ sagði Salonga eftir að hafa
kynnt sér plöggin. „Ég á bágt með
að ímynda mér slíka græðgi."
Fylgdarmenn Markosar þurftu
alls sex meðalstórar ferðatöskur til
að bera skjölin frá Manila til
Honolulu um borð í bandaríska
herflugvél.
Þegar skjölunum er flett kemur í
ljós yfírlit yfir ótrúlegt magn
auðæfa er safnast hafa saman í fjöl-
mörgum löndum. Á aðeins einni
yfirlitsörk kemur fram að forsetinn
fyrrverandi átti 88,7 milljónir doll-
ara á reikningum í fimm bönkum í
Bandaríkjunum, Sviss og á Cayma-
neyjum.
Imalda með dýran smekk
Dýr smekkur Imöldu forsetafrúar
Ferðakostnaður ekkert mál
Ekki virtist ferðakostnaður hafa
valdið miklum áhyggjum í Markos-
arfjölskyldunni.
„Sjúkrahús á hjólum“
Imalda forsetafrú átti sérsmíðað-
an, plussklæddan ferðabíl er hún
notaði á kosningaferðalögum fyrir