Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Síða 19
DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986.
19
Menning Menning Menning
Birgir Svan Simonarson og Ólaf-
ur Lárusson.
í lúkamum dauður maður
haggast ei
þótt púkablístrur
almannavarna séu þeyttar
rumskar ei
þótt síminn kalli
dyrabjölluna útaf frívakt
hann er dauður
ekkert getur vakið hann
nema sjóveik blók
sem öskrar ræs
inní bestikk
hann hefur siglt myrk höf
lýst mannlegum kyndlum
hefur horft uppá brimtröllin
tína vini sína af kili
hann hefur ótal sinnum
horfst í augu við dauðann
án þess að blikna
hefur horfst í augu við dauðann
þann ómerkilega léttadreng
það eina
sem hann óttast
er vakan
Tónlist
þá hluti þegar tjaldað er eins konar
„Festival Strings“, en þá höfum við
helst fengið að heyra á síðasta
konsert fyrir utanlandsferð. Fjölga
þarf í strengjum, sérstaklega í
djúpröddum og miðju, og væri jafn-
vel tilvinnandi að þola ónefndan
Vinarbúa með hellenskt ættarnafn
í heilar átta vikur ef það fengist í
staðinn. Við höfum verið einstak-
lega heppin með nýliðun í strengj-
unum þetta árið og full ástæða til
að ætla að svo gæti orðið áfram.
Áhyggjur að ástæðulausu
Áhyggjur mínar strengjanna
vegna reyndust þegar til kom
ástæðulausar. Eins og oft áður
spiluðu þeir yfir áætlaðri getu og
var hljómsveitin einleikaranum
fyllilega samboðin. Maður fyllist
monti yfir að heimamenn (við erum
jú fljótir að eigna okkur þá lista-
menn sem landinu og landanum
tengjast) skuli standa að svo æðis-
gengnum Lisztflutningi. Ef Martin
Berkofsky hefði komið utan úr
heimi til að spila þennan konsert
hefði maður víst örugglega hnýtt
hér aftan við klausu um að svo
frábærs listamanns væri vænst hið
allra fyrsta hingað aftur.
Ekkert „show“, heldur góð
fagmennska
Frank Shipway, sem stýrt hafði
hljómsveitinni svo örugglega til
stórátaka í Lisztkonsertinum
stjórnaði Tíundu Schostakowitsch
eftir minni. Ekki var það bara
,;show“ heldur er hér á ferðinni
maður sem virkilega kann sitt fag
og hefur nóturnar einfaldlega í
hausnum í staðinn fyrir að hafa
hausinn ofan í nótunum. Leikur
hljómsveitarinnar var frábær.
Þegar svo vel er spilað í heild fyrir-
gefst þótt lokatónn fyrsta kaflans
hafi ekki verið upp á það allra
hreinasta og þótt aðrir smáhnökrar
svipaðs eðlis hafi á verið. Því hér
var sálin lögð í leikinn. Enginn fór
í sólistaleik upp á eigin spýtur,
heldur var samleikurinn og jafn-
vægi, einkanlega milli strengja og
blásara, upp á það allra besta, en
einleikshendingar skýrt og fallega
leiknar - sem sagt, frábær Schos-
takowitsch.
EM
un stöðugilda frá því sem eitt sinn
var og því ber að fagna, en hún
hefur ekki orðið til þess að auka
jafnvægi og jafnræði í hljómsveit-
inni. Helst verður maður var við
EYJÓLFUR MELSTED
Frank Shipway.
Rakarastofan Klapparstig i
Hárgreiðslustofan '
Klapparstíg
Sími12725
Tímapantanir
13010
i
TOLLVÖRU
GEYMSLAN
AÐALFUNDUR
Tollvörugeymslunnar hf„ Reykjavík, verður haldinn í
Átthagasal Hótel Sögu miðvikudaginn 9. apríl 1986
kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Útgáfa jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnurmál.
Stjórnin.
iýttna'
HELSTU
GREIÐSLUSKILMÁLAR
í ERLENDUM VIÐSKIPTUM
OPNUN BANKAÁBYRGÐAR
REMBOURS
Tilgangur námskeiðsins er að
kynna helstu leiðir sem
notaðar eru til að tryggja
greiðslur milli landa. Sérstök
áhersla verður lögð á að kynna
opnun bankaábyrgðar í
mismunandi löndum.
Með hagnýtum verkefnum verða kynntar ýmsar
leiðir og margvísleg skjöl, sem nauðsynleg eru til að
gangafrá bankaábyrgð í mismunandi löndum.
Námskeiðið er ætlað þeim starfsmönnum í fyrir-
tækjum og bönkum, er hafa umsjón með greiðslum
vegna milliríkjaviðskipta eða ætla að hefja slík störf.
Leiðbeinandi
er Thorbjörn Bilden,
adst. bankastjóri
í Den Norske Credit-
bank, en hann hefur
haldið sams konar
námskeið víða
um Evrópu.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Tími: 11. apríl, kf. 9-16.30,
Stjómunarfélag
islands
UTFLUTNING5 OG
MARKADSSKÓU ÍSLANDS
Ánanaustum 15■ 101 Reykjavík-æ91-621063-Tlx2085