Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 22
Iþróttir
230:
Iþróttir íþróttir íþróttir
Óvænt tap PSG
- og liðið hefur nú aðeins þriggja stiga
forskot í Frakklandi
Paris Saint-Germain tapaði sínum
fjórða leik í 1. deildinni í Frakklandi
um helgina og virðist óðum vera að
glata forystu sinni niður. Að þessu
Aberdeen
og Hearts
í úrslitin
- í skoska bikamum
Menn eru ekki á eitt sáttir um það
hvort kalla eigi velgengni Hearts í
skosku knattspyrnunni draugasögu
eða ævintýri. Fæstir reiknuðu með
stórræðum frá liðinu í upphafi
keppnistímabilsins en það hefur farið
á annan veg. Liðið er nú í efsta sæti
úrvalsdeildarinnar og um helgina
tryggði það sér rétt í úrslitaleikinn
um skoska bikarinn sem fram fer á
Hampden Park 10. maí.
Andstæðingar Hearts í undanúr-
slitum voru Dundee Utd og lauk
viðureigninni með sigri Edinborgar-
liðsins, 1-0. Það var kantmaðurinn
John Colquhoun sem skoraði eina
mark leiksins á 14. mínútu.
Aberdeen tryggði sér einnig sæti í
úrslitaleik bikarsins með öruggum
sigri á Hibernian, 3-0. Það voru þeir
Billy Stark, Eric Black og Joe Miller
sem skoruðu mörkin. -fros
Frost sigraði
. - í einliðaleik á EM
í badminton
Daninn Morten Frost varð um
helgina Evrópumeistari í einliðaleik
karla í badminton er hann sigraði
landa sinn Ib Frederiksen i úrslitum,
15-8 og 15-2, í úrslitaleik keppninnar
sem fram fór í Svíþjóð. Frost vann
einnig sigur í keppninni á síðasta ári.
Önnur urslit í mótinu urðu þau að enska
stúlkan Helen Stroke sigraði dönsku stúlkuna
Kirsten Larsen í úrslitaleiknum í einliðaleik
kvenna. 1 tvíliðaleik karla sigruðu Danirnir
Steen Fladberg og Jesper Helledie, í tvíliðaleik
kvenna sigruðu ensku stúlkumar Gillian Clark
og Gillian Gowers og í tyenndarkepninni vann
enska parið Martin Dew og Gillian Gilks.
-fros
sinni tapaði liðið óvænt fyrir næst-
neðsta liði deildarinnar, Strasbourg,
1-0 á útivelli en aðalkeppinautarnir,
Nantes og Bordeaux, unnu sigra í
leikjum sínum
Það var varamaðurinn Serge Jenn-
er sem skoraði sigurmark Strasbourg
en mörk liðsins hefðu getað orðið
fleiri ef ekki hefði komið til stórgóð
markvarsla Joel Bats í marki PSG.
Nantes lék gegn Sochaux á heima-
velli sínum og sigraði, 3-2, og
Bordeaux, meistararnir frá því í
fyrra, sigruðu Laval, 2-1.
PSG hefur nú hlotið 51 stig, Nantes
hefur 48 og meistararnir frá því í
fyrra, Bordeaux, hafa hlotið 45 stig.
-fros
• Ólafur Haukur sést hér glíma við Jón Unndórsson í Íslandsglímunni á laug-
ardaginn. DV-mynd Brynjar Gauti
Ólafur hlaut
Grettisbeltið
- lagði alla andstæðinga sína að velli í íslands
glímunni
Ólafur Haukur Ólafsson vann sigur
í Islandsglímunni er fram fór um
helgina. Sjö keppendur tóku þátt i
mótinu og lagði Ólafur alla að velli
og hlaut því sex stig. Keppt var í
Iþróttahúsi Kennaraháskólans.
Jón Unndórsson frá Leikni varð í
öðru sæti. Jón hlaut fjóra og hálfan
vinning og Pétur Yngvason frá HSÞ
varð í þriðja sæti með fjóra vinninga.
Eyþór Pétursson, HSÞ, varð í
fjórða sæti með þrjá vinninga en
aðrir keppendur á mótinu voru Þing-
eyingarnir Hjörtur Þráinsson og
Geir Arngrímsson, auk KR-ingsins
Helga Bjarnasonar.
Fyrir sigur sinn í Islandsglímunni
hlaut Ólafur Grettisbeltið en Ólafur
hlaut það í fyrsta sinn í fyrra.
-fros
Léku með Glasgow Rangers á
alþjl. móti í V-Þýskalandi
Eins og kunnugt er bauð skoska
stórliðið Glasgow Rangers þeim
Rúnari Kristinssyni, KR, og Olafi
Viggóssyni og Þorsteini Halldórs-
syni, Þrótti, Nesk., til æfinga og
keppni með U 18 ára liði þeirra
Rangersmanna. Strákarnir komu
heim sl. laugardag eftir 2ja vikna
dvöl með skoskum. DV hafði sam-
band við Rúnar Kristinsson og
spurði hvernig til hefði tekist með
ferðina.
Rúnar kvað þá félaga vera mjög
ánægða. öll aðstaða hefði verið
firábær. U-18 ára liðið æfði með
aðalliði Rangers og gerði það dvöl-
ina enn skemmtilegri.
Farið var í keppnisferð til Laup-
heim í Þýskalandi, sem er í
námunda við Stuttgart. Hér var um
alþjóðamót U 18 að ræða. Þeir
urðu neðstir í sínum riðli, töpuðu
fyrir Eintrakt Frankfurt, 0-1, og
Galatsari frá Tyrklandi, 0-2. Bay-
ern Leverkusen sigraði síðan
Galatsari í úrslitaleik, 4-3, eftir
vítaspyrnukeppni.
Rúnar kveðst ekki vera í nokkr-
um vafa um að þeir hafi haft gott
af þessari ferð þótt hún hafi verið
stutt. „Við kynntumst nýjum hlið-
um knattspyrnunnar. Svona til
gamans má geta þess að allir verða
að mæta til æfinga og leikja hjá
Rangers uppstrílaðir og með bindi.
Þetta er hefð hjá Rangers, sjálfsagt
til þess að skapa meiri virðingu
meða) leikmanna og einnig út á
við,“ sagði Rúnar að lokum. -HH
Mynd þessi birtist miövikudaginn 2. april i Rangers News, blaði félags-
ins, og er tekin á hinum stóra leikvelti Rangers, Ibrox, sem rúmar um
70.000 áhorfendur. Frá vinstri: Ólafur Viggósson, Þrótti Nesk., Rúnar
Kristinsson, KR, og Þorsteinn Halldórsson, Þrótti Nesk. - Strákarnir
kváðu ferðina til Skotlands hafa verið mjög skemmtilega.
Markahátíð hjá
Bayern og Bremen
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara
DV í V-Þýskalandi:
Topplið v-þýsku Bundesligunnar,
Werder Bremen og Bayern
Múnchen, unnu bæði stórsigra um
helgina. Á föstudagskvöldið sigraði
Werder Bremen lið Bayer Leverkus-
en 5-0 á heimavelli sínum. Á laugar-
daginn léku síðan meistarar Bayern
þetta eftir með því að vinna sigur á
Kaiserslautern með sama mun. For-
ysta Bremen er því enn fjögur stig í
deildinni. Liðið hefur hlotið 47 stig,
Bayern 43, Mönchengladbach 39 og
Stuttgart 36. Öll þessi lið unnu leiki
sína um helgina en önnur úrslit í
v-þýsku knattspyrnunni urðu þessi:
Mönchengladb.-Bor. Dortmund ..2-0
Hamburger-Núrnberg.........2-1
Schalke-Bochum.............0-1
Köln-Uerdingen.............1-1
Hannover-Mannheim..........1-1
Saarbrúcken-Dússeldorf..........1-1
Stuttgart-Eintr. Frankfurt......2-1
Leikur Bremen og Leverkusen var
talinn einn sá besti í V-Þýskalandi
um nokkurra ára skeið. Þrátt fyrir
að lið Leverkusen ætti allan tímann
undir högg að sækja lék liðið alltaf
sóknarknattspymu og mörk Bremen
létu ekki á sér standa. Það var aust-
urríski landsliðsfyrirliðinn Bruno
Pezzey sem skoraði fyrsta mark
leiksins en þeir Manfred Burgsmúll-
er, tvö, Gúnther Hermann og Frank
Neubarth sáu um að auka muninn.
Sören Lerby var aðalmaður Bayern
í sigri liðsins á Kaiserslautern,
danski landsliðsmaðurinn skoraði
tvö af fimm mörkum liðsins og lagði
auk þess þriðja markið upp. Aðrir
markaskorarar Bayern voru þeir
Hellgren Wilmer, Roland Wolfhart
og Michael Rummenigge.
Stuttgart vann sinn sjötta sigur í
röð undir stjórn Willie Entemann,
hins nýja þjálfara liðsins. Bæði mörk
liðsins komu á fyrstu mínútunum.
Pasic skoraði á þriðju mínútu og
Michael Nushöhr á þeirri sjöundu
úr vítaspyrnu eftir að Karl Allgöver
hafði verið brugðið. Eina mark
Frankfurt kom úr vítaspyrnu í síðari
hálfleiknum. Ásgeir Sigurvinsson
fékk ágæta dóma fyrir leik sinn í
Bild. Hann fékk þrjá í einkunn.
Það var markvörður Bayer Uerd-
ingen, Vollack, sem var besti leik-
maður helgarinnar í Þýskalandi.
Hann bjargaði liði sínu frá tapi gegn
Köln. Wolfgang Funkel náði foryst-
unni fyrir Uerdingen á sjöttu mínútu
en Uwe Beim jafnaði metin mínútu
síðar. Atli Eðvaldsson lék allan leik-
tímann með liði Uerdingen en Lárus
var ekki með. Atli fékk fjóra í ein-
kunn hjá Bild. -fros
- Bæði liðin unnu leiki sína í Bundesligunni.
Sjötti sigur Stuttgart í röð
• Sören Lerby.
Lerby til
Frakklands
- til samningaviðræðna
og semur hugsanlega í
vikunni við Marseilles
eða Monaco
i
Frá Atla Hilmarssyni, fréttarit-
ara DV í V-Þýskalandi:
Fullvíst þykir nú að danski
landsliðsmaðurinn hjá Bayern
Múnchen, Sören Lerby, muni
leika í Frakklandi á næsta
keppnistímabili. Samningur
hans við þýska liðið rennur út
í lok þessa keppnistímabil og
ekki er búist við að Lerby taki
boði um samning frá félaginu.
Lerby flaug til Frakklands
strax eftir leik Bayern
Múnchen við Kaiserslautern
sem fram fór á laugardaginn.
Talið er að hann muni annað-
hvort leika með liði Marseille
sem fyrrum þjálfari franska
landsliðsins, Michael Hildago,
hefur nýlega tekið við eða liði
Monaco.
Lerby mun leika landsleik
með Dönum á miðvikudaginn
og hann mun því ekki koma
aftur til Þýskalands fyrr en á
fimmtudaginn. Telja þýskir að
búast megi við því að allt verði
um garð gengið þá og Lerby
verði búinn að semja við
franskt lið.
-fros