Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 26
DV. MÁNUBAGUR í,< APRÍIÍ4986J
26.
Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga - Handknattleikur unglinga
Allir
flokkar
Stjörnunnar
íúrsÚt
Stjarnan í Garðabæ gerði það sem
ekkert annað félag getur státað sig
af á þessu ári, það er að allir flokkar
félagsins eru í úrslitum yngri flokk-
anna í handknattleik. Og meira en
það, þetta er 3. árið í röð sem félagið
fór í 7 flokka í úrslit. Aðeins 4. flokk-
ur kvenna er ekki í úrslitum og það
aðeins vegna þess að liðið tók ekki
þátt í íslandsmótinu í vetur. Stjarnan
bar einnig sigur úr býtum í stiga-
keppninni sem unglingasíða DV setti
á fót í haust. Hlutu þeir 29 stig eða
8 stigum meira en næsta félag.
Þennan frábæra árangur Stjörnu-
manna má helst þakka góðu ungl-
ingastarfi og ráðningu góðra þjálfara
undanfarin ár. Meðal þjálfara hjá
Stjörnunni eru þeir Brynjar Kvaran
og Magnús Teitsson sem báðir eru
íþróttakennarar og hafa þeir náð
mjög góðum árangri riíeð flokka sína
undanfarin ár.
Það félag sem næst kemst Stjöm-
unni e ,foss, en þeir hafa 5 flokka
íúrslitu.. 1 stig í stigakeppninni.
Fram er m. 4 flokka í úrslitum.
einnig 21 stig. Týr og ÍR hafa 4 flokka
í úrslitum og eru með 15 stig hvort
félag.
Mörg félög eru með 3 flokka í
úrslitum. Unglingastarf hjá Stjörn-
unni, Fram, Selfossi, Tý og ÍR er
mjög öflugt þessa dagana og virðist
það skila sér í góðum árangri á
handboltavellinum. Forsenda góðs
árangurs er m.a. góðir þjálfarar og
góðar stjórnir sem sinna unglingun-
um og veita þeim tækifæri til að æfa
vel og reglulega undir leiðsögn góðra
þjálfara.
Þýsk ungÞ
ingalið í
heimsókn
Um páskana voru í heimsókn hér
á landi tvö þýsk unglingalið, frá
héraðinu Niedersaxen. Þetta voru
héraðslið, skipuð piltum 17 ára og
yngri, og stúlknalið með stelpum frá
15-17 ára. Unglingarnir höfðu aðset-
ur í Fellahelli og líkaði þeim dvölin
vel.
Liðin léku við íslensku unglinga-
landsliðin og fóru leikar á þann veg
að 18 ára landslið pilta sigraði þýsku
strákana þrívegis en íslensku stelp-
urnar sigruðu tvívegis og töpuðu
einu sinni.
Á laugardag fyrir páska var haldið
hraðmót með þátttöku þýsku lið-
anna, A- og B-liði 18 ára piltalands-
liðsins og landsliði skipuðu strákum
16 ára og yngri. B-liðið sigraði í þessu
móti, vann A-landsliðið í úrslitaleik
með 7 mörkum. Piltalandsliðið 16 ára
og yngri kom mikið á óvart með getu
sinni. Strákarnir stóðu sig mjög vel
og töpuðu öllum leikjunum naum-
lega. Liðið hafði aldrei æft saman
fyrir þetta mót og er árangurinn því
enn betri.
í hraðmóti stelpnanna léku ungl-
ingalandslið skipað stúlkum 19 ára
og yngri, þýska liðið og tvö stelpna-
landslið. 19 ára liðið sigraði í mótinu
og þýska liðið varð númer tvö. Þetta
var gott tækifæri fyrir landsliðin að
spreyta sig gegn jafnöldrum sínum.
18 ára piltalandsliðið er nú á förum
til Danmerkur til þátttöku í Norður-
landamóti og hefur æft mjög vel að
undanfömu.
Hér að neðan er birt lokastaðan í
keppni_yngri flokkanna í handknatt-
leik. Urslit vantar í einhverjum
flokkum þar sem þau hafa enn ekki
borist skrifstofu HSÍ. Ennfremur
voru úrslit í nokkrum flokkum birt
á síðustu unglingasíðu fyrir páska.
Lokastaðan í 2. flokki karla, A-riðli.
Þór, Ve.
Týr
UMFN
ÍBK
Haukar
12 237-185 9 0 3 18
12 251-208 8 1 3 17
12 226-232 6 0 6 12
12 267-264 5 1 6 11
12 223-315 2 0 10 4
Lokastaðan í 2. flokki karla, B-riðli.
Lokastaðan í 2. flokki kvenna,
D-riðli.
Stjarnan 12 247-91 11 0 1 22
ÍBK 12 181-149 9 0 3 18
Ármann 12 213-148 6 0 6 12
Fylkir 12 145-168 4 0 8 8
Þróttur 12 58-288 0 0 12 0
Lokastaðan í 3. flokki karla, C-riðli.
KR 12 269-145 12 0 0 24
Ármann 12 222-203 8 0 4 16
Týr 12 199-211 6 0 6 12
Víkingur 12 184-223 4 0 8 8
Þór 12 164-256 0 0 12 0
KR og Ármann fara í úrslit.
FH 12 288-143 11 0 0 22
Selfoss 12 203-170 7 0 4 14
Fram 12 236-203 6 0 5 12
Þróttur 11 181-225 2 0 9 4
Reynir 8 94-271 0 0 8 0
Úrslit í 2. flokki C- og D-riðli hafa
enn ekki borist skrifstofu HSÍ, en í
þessum riðlum unnu lið Stjörnunnar,
Vals, ÍR og Víkings sér rétt til að
leika í úrslitum.
Lokastaðan í 2. flokki kvenna,
A-riðli. Fram 12 170-97 10 1 1 21
FH 12 139-99 9 1 2 19
Grótta 12 141-123 6 2 4 14
UMFA 12 120-172 2 1 9 5
ÍA 12 98-177 0 1 11 1
Fram og FH fara í úrslit.
Lokastaðan í 2. flokki kvenna,
B-riðli.
UBK 12 131-88 9 2 1 20
KR 12 125-99 7 2 3 16
Selfoss 12 105-85 6 2 4 14
HK 12 103-99 4 0 8 8
Valur 12 75-168 0 0 12 0
UBK og KR fara í úrslit.
Lokastaðan í 4. flokki karla, A-riðli.
Valur 15 304-143 15 0 0 30
Selfoss 15 229-189 9 0 6 18
UMFN 15 223-214 9 0 6 18
Fylkir 15 212-196 6 1 8 13
UMFA 15 223-229 5 1 9 11
UFHÖ 15 119-339 0 0 15 0
Valur og Selfoss fara i úrslit.
Lokastaðan í 4. flokki karla, B-riðli.
Þór, Ve. 12 153-90 10 0 2 20
Týr, Ve. 12 142-92 10 0 2 20
ÍBK 12 130-130 5 0 7 10
ÍA 12 112-115 4179
UBK 12 79-189 0 1 11 1
Þór og Týr fara í úrslit.
Lokastaðan í 4. flokki karla, C-riðli.
Stjarnan 15 249-161 10 2 3 22
Víkingur 15 186-169 8 2 5 18
Þróttur 15 217-193 7 2 6 16
ÍR 15 198-203 6 1 8 13
Ármann 15 189-249 6 0 9 12
Haukar 15 176-240 4 1 10 9
Stjarnan og Víkingur fara í úrslit.
Lokastaðan í 4. flokki karla, D-riðli.
Fram 15 243-144 15 0 0 30
Grótta 15 181-161 9 2 4 20
FH 15 169-158 8 1 6 17
KR 15 149-195 4 2 9 10
HK 15 167-197 4 1 10 9
Skallagr. 15 169-223 2 0 13 4
Fram og Grótta fara í úrslit.
Lokastaðan í 4. flokki kvenna,
B-riðli.
Selfoss 9 72-28 7 0 2 14
UMFG 9 61-23 6 1 2 13
UMFN 9 60-40 4 1 4 9
Haukar 9 10-112 0 0 9 0
Lokastaðan í 4. flokki kvenna,
C-riðli.
KR 15 96-32 14 0 1 28
Fram 15 85-46 11 1 3 23
Víkingur 15 62-49 7 3 5 17
Reynir 15 44-85 4 0 11 8
UBK 15 29-55 3 1 11 7
HK 15 29-78 3 1 11 7
Lokastaðan í 5. flokki karla, A-riðli.
Grótta 15 196-116 13 1 1 27
Stjarnan 15 207-127 13 0 2 26
Selfoss 15 131-143 6 2 7 14
ÍBK 15 147-164 6 1 8 13
Fylkir 15 164-187 4 2 9 10
HK 15 88-196 0 0 15 0
Grótta og Stjarnan fara í úrslit.
Lokastaðan í 5. flokki karla, B-riðli.
UMFA 15 192-134 12 0 3 24
ÍA 15 189-123 12 0 3 24
KR 15 198-171 9 1 5 19
Víkingur 15 150-163 5 2 8 12
Þróttur 15 136-202 3 0 12 6
UFHÖ 15 131-203 2 1 12 5
UMFA og ÍA fara í úrslit.
Lokastaðan í 5. flokki karla, C-riðli.
Fram 15 222-132 11 3 0 25
ÍR 15 208-113 11 2 1 24
UBK 15 186-166 8 1 5 17
Skallagr. 15 136-205 4 1 9 9
UMFG 15 107-150 1 1 8 3
Ármann 15 122-215 0 2 12 2
Fram og ÍR fara í úrslit.
Lokastaðan í 6. flokki karla, A-riðli.
HK 18 151-68 14 3 1 31
Stjarnan 18 139-84 12 1 5 25
Víkingur 18 139-99 11 2 5 24
FH 18 125-102 9 2 7 20
Fram 18 70-106 7 2 9 16
KR 18 83-145 3 0 15 6
Haukar 18 73-176 2 0 16 4
HK og Stjarnan fara í úrslit.
Lokastaðan i 6. flokki karla, B-riðli.
UBK 12 122-66 11 0 1.22
Selfoss 12 112-94 7 1 4 15
Reynir 12 94-89 7 0 5 14
Fylkir 12 97-98 4 1 7 9
Grótta 12 54-132 0 0 12 0
UBK og Selfoss fara í úrslit.
3. flokkur karla, Norðurland.
Þór 3 49-39 2 0 1 4
KA 3 39-49 1 0 2 2
4. flokkur karla, Norðurland.
Þór 6 108-62 5 0 1 10
KA 6 94-68 4 0 2 8
Völsungur 6 46-118 0 0 6 0
5. flokkurkarla, Norðurland.
Þór 3 46-19 3 0 0 6
KA 3 19-46 0 0 3 0
3. flokkur kvenna, Norðurland.
Þór 3 37-18 2 1 0 3
Völsungur 3 18-37 0 1 2 1
Þór vann sér rétt til að leika í úrslit-
um allra flokka.
Ætlum að
yerða íslands-
meistarar!
- sögðu Valgarð Thoroddsen og
Njörður Árnason úr 5. flokki ÍR
Valgarð Thoroddsen er h egri bak-
vörður í 5. flokki ÍR og , efur æft
handbolta í 2. ár. Félagi har, i, Njörð-
ur Árnason, er hornamaður )g hefur
hann leikið handbolta í eitt ár. Þeim
finnst báðum mjög gaman að leika
handbolta.
í viðtali við unglingasíðuna sögðu
þeir að þjálfararnir þeirra væru
strangir og hefðu mikinn áhuga á
þvi að þjálfa þá.
Markvarslan og varnarleikurinn
eru okkar helsti styrkleiki en við
klúðrum mikið dauðafærum, sögðu
Valgarð og Njörður.
Við ætlum að laga þetta fyrir úr-
slitin, þar ætlum við að reyna að
vinna íslandsmeistaratitilinn.
En fylgdust félagarnir með heims-
meistarakeppninni á dögunum?
Já, og við lærðum mikið af henni.
Þetta er allt öðruvísi handbolti en
við spilum. Hjá okkur er meira um
leikkerfi.
w 'mmmœmi n jmm ■
Valgarð Thoroddsen og Njörður Árnason úr 5. flokki ÍR.
Daníel Stefánsson og Friðrik Nikulásson, leikmenn í 5. flokki Fram.
Stefnum á
úrslitaleik
gegn V al
Daníel Stefánsson er markvörður í
5. flokki Fram. Hann hefur æft hand-
bolta í tæp 3 ár og segir að Einar
Þorvarðarson sé sín helsta fyrir-
mynd. Hann fór að stunda handbolta
af því að pabbi hans var í handbolta
og stefnir hann á að komast í ís-
lenska landsliðið þegar tímar líða.
Friðrik Nikulásson, félagi hans,
sem hefur æft í 4 ár, hefur Kristján
Arason að fyrirmynd. Hann ætlar sér
einnig að komast í landsliðið og
reyndar langar hann til að verða
atvinnumaður í handknattleik í
Þýskalandi. Friðrik fór að stunda
handbolta þar sem hann átti marga
vini í handboltanum.
5. flokkur Fram hefur nú tryggt sér
sæti í úrslitum. Hvernig halda þeir
félagarnir að þeim komi til rneð að
ganga? Við ætlum að laga vörnina
fyrir úrslitin og stefnum að því að
leika við Val í úrslitaleik og best
væri að vinna. Þeir félagar voru
sammála utn það að dómararnir
væru nokkuð slappir en einnig hefðu
þeir kosið að leika í stóru húsi.
Við óskum þeim góðs gengis í úr-
slitunum og biðjum hin liðin að vara
sig á strákunum í 5. flokki Fram.