Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Side 37
DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986.
i'i 87
Sandkorn Sandkorn
Starfsmenn
áflótta
Það hefur tíðkast mjög
að menn sem vinna í Búr-
felli flytji lögheimili sitt
þangað. Þetta eru einkum
menn sem búið hafa í
Reykjavík. Þetta fyrir-
komulag hefur haft ýmis
þægindi og hlunnindi í för
með sér fyrir viðkomandi
starfsmenn. Þeir hafa til
dæmis ekki þurft að ferðast
á milli heimilis og vinnu-
staðar. Þá hafa þeir fengið
frítt rafmagn, greidda stað-
aruppbót og fleira sem telst
af hinu góða.
En þarna er ekki allt eins
gott og sýnist. Skattstjór-
inn á Suðurlandi hefur
nefnilega tekið upp á þeim
ósið að skattleggja þessi
hlunnindi starfsmann-
anna. Hefur sú ráðstöfun
mælst afar illa fyrir. Er
raunar svo komið að marg-
ir þeirra sem flutt hafa í
Búrfell ætla nú að flytja
aftur til Reykjavíkur vegna
skattpíningarinnar. Það
þýðir aftur að hreppurinn
missir dágóðan skilding úr
sínum sjóðum. Má því ætla
að ráðamenn sveitarinnar
kunni skattstjóranum litl-
ar þakkir fyrir framtaks-
semina.
Vanþakk-
látt starf
Já, það er óvinsælt starf
að vasast í skattamálum
almennings. Skattheimtu-
mennirnir vaða ekkert í
þakklæti upp að öxlum,
eins og einhver gæti haldið.
Það sýnir eftirfarandi dæmi
ljóslega:
Ónefndur skattheimtu-
maður þótti ganga hart
eftir að menn í umdæmi
innheimta skattinn.
hans stæðu í skilum. Hlaut
hann af þessu nokkrar
óvinsældir. Því kom það
honum þægilega á óvart
þegar honum barst ein-
hverju sinni snyrtilegur
böggull, sem leit út fyrir að
geyma gjöf. En þegar
böggullinn var opnaður
reyndist vera í honum
snara, ásamt litlum miða
sem á stóð:
„Notist sem fyrst“.
500-kall í
Þórskaffi
Alltaf öðru hvoru berast
skondnar sögur af greiðslu-
kortum og notkun þeirra.
Það er rétt eins og landinn
hafi aldrei almennilega
komist upp á lag með að
nota kortin þau arna eins
og hvern annan gjaldmiðil,
heldur þurfi að koma til
einhverjar sérstakar reglur
og útúrdúrar við notkun
þeirra:
Nýlega fréttum við af
ungum manni sem var að
skemmta sér í Þórskaffi.
Vildi hann vökva sálar-
tötrið, svona eins og geng-
ur og gerist. Hann fór þvi á
barinn og keypti fyrir 480
krónur. Þótti honum sjálf-
um þetta nokkuð rausnar-
legt í fyrstu umferð og rétti
því krítarkortið sitt til bar-
þjónsins nokkuð borgin-
mannlegur á svip.
En - nei takk. Okkar
manni var tilkynnt að hann
yrði að versla fyrir minnst
500 krónur til að geta notað
kortið, ella yrði hann að
borgaíseðlum.
Aumingja maðurinn velti
nú nokkra stund fyrir sér á
hveiju hann gæti fest kaup
fyrir 20 krónur. Helst var
hann að hugsa um að
kaupa nokkra ísmola á
uppsprengdu verði. En
glösin voru enn full svo
hann hefði þá orðið að
stinga molunum í vasann,
sem var ekki fýsilegur kost-
ur.
A endanum gat hann
greitt veigarnar með sam-
skotum frá kunningjum
sem einnig voru þarna
staddir. Lítil skemmtun
það!
#**»*■'
Það er ekki sama snjór og
mikill snjór.
Páskahretið
Landsbyggðarmenn hafa
löngum gert grín að veður-
hræðslu Reykvíkinga.
Segja þeir að ekki megi
koma snjókorn úr lofti á
höfuðborgarsvæðinu öðru-
vísi en að allt fari í hnút.
1 þessu sambandi hefur
nokuð verið vísað til „harð-
indakaflans“ sem dundi
yfir Suðvesturlandið
nokkru fyrir páska. Víkur-
blaðið húsvíska segir svo
fráþeimatburði:
„Hvarvetna voru blaða-
ljósmyndarar á kreiki um
borgina Daviðs og filmuðu
ódauðleg atvik úr þessu
stríði, mann að skafa snjó
af bílrúðu, reiðhjól fast í
skafli og geysistór snjó-
ruðningstæki sem víðast
hvar tepptu alla umferð.“
En svo vildi til skömmu
síðar að það setti niður
kafsnjó á Húsavík. Frá því
sögðu Víkurfréttir þannig:
„A mánudag versnaði
ástandið um helming og
þegar þetta er skrifað eru
engar líkur á að Víkur-
blaðið komi út og sáralitlar
líkur á að blaðamaður
komist út af skrifstofu sinni
fyrren undir vor...
Ríkisútvarpið hefur und-
anfarið greint frá þessum
ósköpum hér nyrðra með
eftirfarandi orðum: „Élja-
gangur á Norðurlandi.““
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Framkoma í fjölmiðlum
Félög, starfsmannahópar, emstaklingar!
Námskeið
um framkomu í fjölmiðlum verða haldin í april og maí, tveggja
kvölda námskeið, 12-15 þátttakendur í einu. Allir taka virkan
þátt og fá persónulega leiðsögn.
Leiðbeinandi: Guðrún Skúladóttir.
Nánari upplýsingar í síma 83842 kl. 18-20 á kvöldin.
SUNDAKAFFI
V/SUNDAHÖFN
Kaffiterían opnuð kl. 7.00 á morgnana.
Heimilismatur í hádeginu.
Heimilismatur á kvöldin.
Hamborgarar, samlokur og franskar.
Næg bílastæði.
Opið alla virka daga frá kl. 7.00-21.00,
laugardaga frá kl. 7.00-17.00.
Sundakaffi v/Sundahöfn,
sími 36320.
ORÐSENDING FRÁ
LÍFEYRISSJÓÐI
VERZLUNARMANNA
^ureyri/\íg4/í/
Gerist Áskriftarsíminn
áskrifendur! á Akureyri er 25013
ATHUGIÐ! Afgreiðsla okkar
Tekið er á móti smáauglýsingum Skipagötu 13
í síma 25013 og á afgreiðslunni. er opin virka daga kl. 13—19
Skipagötu 13. og laugardaga kl. 11 — 13.
Jón G. Hauksson, hefur aðsetur á sama stað.
Vinnusími hans er 26613, heimasími 26385.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna sendi í mars yfirlit til
allra sjóðfélaga um greiðslur til sjóðsins þeirra vegna
á síðasta ári, 1985.
Yfirlit þessi voru send á heimilisföng sem sjóðfélagar
höfðu 1. desember 1985 samkvæmt þjóðskrá.
Þeir sjóðfélagar, sem fengið hafa sent yfirlit en hafa
athugasemdir fram að færa, svo og þeir sjóðfélagar,
sem telja sig hafa greitt til sjóðsins á síðasta ári en
ekki hafa fengið sent yfirlit, eru beðnir um að hafa
samband við viðkomandi vinnuveitanda eða skrifstofu
sjóðsins.
Lifeyrissjóður verzlunarmanna
TÖLVUBORÐ
Tilvalin fermingargjöf.
Borð fyrir heimilistölvur, stillaiúeg.
TÖLVUBORÐ
Nýbýlavegi 12, sími 44290,
Kópavogi