Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Síða 38
Ð V; MÁiNrUDAGUR Í.APRfU í986.
38
Vorveiði stangaveiðimanna:
SJÓBIRTINGURINN
„Hvar er hægt að komast í sjóbirt-
ing? Við félagarnir höfum verið að
spá í þetta og okkur langar að
skreppa. En það er erfitt að fá
upplýsingar, við ætlum eitthvað
núna í apríl, en hvert?“
1. apríl er kominn og veiðimenn
biðu ekki boðanna, sjóbirtingurinn,
vorveiði stangaveiðimanna, er haf-
inn. Þeir sem stunda þetta sport
bíða ekki og leggja af stað snemma
á morgnana, það getur lítið stoppað
veiðimenn.
Allir veiðimenn hafa áhuga á að
veiða snemma dags og fá fiska, en
deilt er um vorveiði á sjóbirtingi,
eru þetta ekki hálfgerð morð? Eða
eins og einn veiðimaðurinn sagði:
„Hér áður fyrr fór ég oft í vorveiði
og þá eitthvað austur, þetta var
gífurlega gaman og við veiddum
vel. Eitt sinn veiddum við 60-70
sjóbirtinga og hann var svo gráðug-
ur á, í hverju kasti, við tæmdum
veiðistaðinn. Eftir að hafa séð þetta
mörgum sinnum held ég að þetra
sé að leyfa fiskinum að ganga til
sjávar og veiða hann blessaðan
þegar hann kemur aftur úr sjónum,
feitur og fallegur.
Þrátt fyrir vangaveltur um það
hvort vorveiði sé æskileg munum
við veiðimenn halda áfram að veiða
sjóbirting. Það væri kannski ekki
svo fáránlegt að vorveiðin væri
eingöngu leyfð á flugu? Eða hvað
finnst þér?
En hvar er hægt að veiða? Hvar
fá menn sjóbirting núna? Ef við
byrjum á Varmá (Þorleifslæk) er
Þó voru veiðimenn mættir í Þor-
leifslæk, Geirlandsá og Ytri-Rangá.
Við Ytri-Rangá var kalt og fyrsta
morguninn var 8 gráða frost, en það
var veitt. Var einhver að segja að
veiðimenn hefðu ekki áhuga á
veiði? G. Bender
- en hvar er hægt að veiða hann?
hægt að fá bæði sjóbirting og regn-
bogasilung, fiskurinn veiðist víða í
læknum. Á Hrauninu (Ölfusá) er
góður vorveiðistaður og neðst við
Ölfusá að vestan er bærinn Hraun.
Sandar eru með ánni og er Hraun
eftirsóttur staður til silungsveiða. I
Eystri-Rangá er leyfð vorveiði og
veiðivon þar töluverð. Ennþá aust-
ar fara margir veiðimenn og má þar
nefna Tungufljótið, Geirlandsá,
Vatnamótin, Fossála, Hörgsá eða
Grenlæk, en bændur voru að bjóða
veiðileyfí í honum um daginn og
Gunnar Bender
seldu daginn á 1300 krónur, veiði
getur veríð góð þar.
Við höldum upp í Kjós, en norðan
Esju og sunnan Hvalfjarðar er
Kjósin, umlukt fjöllum, hálsum,
heiðum og hafi.
f Laxá i Kjós hefst sjóbirting-
sveiðin 15. apríl og þar hefur veiðin
vtírið þokkaleg á vorin. í Laxá í
Leirársveit fara margir til veiða á
hverj u vori og veiðist oft vel, bænd-
ur hafa vissan fjölda veiðileyfa og
hægt að fá veiðileyfi hjá þeim. Bestu
veiðistaðirnir eru Laxfossinn og þar
fyrir neðan og ofan. Leirá getur
gefið góða veiði en erfitt er að fá
veiðileyfi í henni. Úti á Snæfells-
nesi veiðist eitthvað af silungi og
Símon í Görðum býður veiðileyfi á
Vorveiðin er hafln og veiðimenn byijaðir að fá hann.
100 krónur i apríl. Gæsung væri lík-
lega hægt að veiða en gæsungur er
aðeins mjórri en sjóbirtingur um
sporðinn, en feitur og sprettharður,
menn segja að gæsungur sé Græn-
landslax og hann getur orðið vænn.
Það er ýmislegt hægt að fara og
veiða, með því stytta veiðimenn
biðina eftir laxinum.
Það kuldakast sem gengið hefur
yfir landsmenn síðustu daga hefur
sett strik í vorveiðina og færri farið
fyrstu dagana en menn áttu von á.
Veiðivon
VEIÐIEYRAÐ
Ármenn, félag áhugamanna um
stangaveiði með flugu, ætla að
halda „vorfagnað“ í sjálfstæðis-
húsinu í Kópavogi, en það hús er í
Hamraborginni, á fimmtudaginn kl.
8. Gylfi Pálsson, formaður Lands-
sambands stangaveiðifélaga, mun
flytja erindi og veglegt happdrætti
verður, auk þessa mun ýmislegt
verða á boðstólum. Það er sam-
kvæmisklæðnaður, veiðivesti eða
veiðihattur.
Þór Guðjónsson veiðimálastjóri
sagði starfi sínu lausu frá 1. apríl
að telja, en þann dag hafði hann
setið í 40 ár og mun landbúnaðar-
ráðherra hafa farið fram á við Þór
að hann sæti þar til nýr veiðimála-
stjóri væri skipaður. Veiðimenn
hafa töluvert spáð í hver það verði
en þeir fimm sem sóttu eru: Ámi
Isaksson, deildarstjóri á Veiðimála-
stofnun; Gísli Már Gíslasson, dós-
ent við Líffræðistofhun Háskóla
íslands; Hákon Aðalsteinsson,
rannsóknarmaður á Orkustofnun;
Sigurður Guðjónsson, verkefhis-
stjóri á Veiðimálastofnun og Sig-
urður R. Þórðarson, verkefnisstjóri
hjá Alpan hf. á Eyrarbakka. Hver
hlýtur „hnossið" er óvíst og sýnist
sitt hveijum. Við spáum Áma ís-
akssyni starfinu og ekki orð um það
meira.
Nýlega kom félagsblað Stanga-
veiðfélags Reflavíkur út og kennir
þar margra grasa. Kynnt er veiði-
svæðið Hamrar í Grímsnesi, rætt
um villta laxastofna og hvort þeir
séu í hættu, nokkur orð um Heiðar-
vatn í Mýrdal, hvert stefni í stanga-
veiðimálum og verð í veiðiám fé-
lagsins og hvað veiddist í þeim í
fyrra. Stangaveiðifélag Keflavíkur
býður upp á veiðileyfi í Flókadalsá,
Hömmm, Hallá, Langá á Mýmm,
Heiðarvatni, Vatnamótum, Geir-
landsá og Seltjöm eins og greint
er ffá í blaði þeirra. Ritstjóri er
Guðjón Sigbjömsson en ábyrgðar-
maður Sigmar Ingason, formaður
félagsins.
Laugardagsins fyrir páska biðu
margir með töluverðum eftirvænt-
ingi, dorgkeppni átti að halda á
Mývatni og böfðu margir skráð sig
í keppnina. En veðurguðirnir tóku
í taumana og ekkert varð af dorg-
inu. Við höfum heyrt að laugar-
daginn 12. apríl eigi að reyna aftur
og skulum vona að betur viðri þá.
Landssamband stangaveiðifélaga
ætlar að halda veiðimannaráð-
stefnu á Hótel Loftleiðum dagana
26.-27. apríl. Þar verður víst fléttað
saman fróðleik og skemmtun. Báða
dagana verða fluttir fyrirlestrar og
munu þessir flytja erindi: Vilhjálm-
ur Lúðvíksson, Kolbeinn Grímsson,
Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Kristj-
ánsson, Skúli Hauksson, Hans
Nordeng ffá Háskólanum í Osló,
Hannes Hafstein, Stefán Jónsson
og Rafn Hafnfjörð. Ekki hefur verið
haldin svona ráðstefna áður og
verður fróðlegt að sjá hvernig til
tekst.
Ekkert verður af sýningunni
„Stangveiði" sem haldin var í fyrsta
skipti í fyrra og tókst vel og sem
veiðimenn vonuðu að yrði árlega.
Heyrst hefur að svoleiðis sýning
verði á þriggja ára fresti. En, sem
sagt, veiðimannaráðstefnan verður
í ár og er þetta gott tækifæri til að
ffæðast um veiðiskapinn. Mætir þú
ekki?
Veiðileyfi og aftur veiðileyfi,
hugsa margir veiðimenn þessa dag-
ana. Mjög misjafnt er hvað veiði-
menn ætla að fá sér mörg veiðileyfi
í sumar en við heyrðum að sumir
væru komnir með 40 daga, aðrir
með 45 og einn og einn með 50 daga.
Við nefnum engin nöfn en...
DV hefur eitt blaða birt veiðitölur
fyrir sumarið 1985 og þar varð
smáskekkja hjá Veiðimálastofnun,
tölur um veiði í Laugardalsá höfðu
eitthvað skolast til. Veiðin var 421
lax en ekki 363, það munar um
minna og rétt skal vera rétt.
G.Bender
Veiðikofinn við Korpu hefur geymt margan veiðimanninn en hann gerir það liklega ekki lengur því í vetur hefur
hann tekist á loft og endað aldur sinn niðri í fjöru. Það er margt sem gerist á veturna.
DV-mynd G.Bender
Veiðimenn eru farnir að kíkja og athuga hvort eitthvað sé að sjá. Myndin
er tekin við Korpu (Úlfarsá) i vikunni og menn þóttust hafa séð silung.
DV-mynd G.Bender