Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Side 40
40 Björn Grímsson lést 26. mars sl. Hann var fæddur 15. maí 1891 að Möðruvöllum í Héðinsfirði. Foreldr- ar hans voru Ásta Gísladóttir og Grímur Björnsson. Björn útskrifað- ist úr Verslunarskóla íslands árið 1913. Hann giftist Vilborgu Soffíu Lilliendahl en hún lést árið 1974. Þau hjónin eignuðust átta böm en misstu eitt. Útför Björns verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Theodór Gíslason, fyrrum hafnsögu- maður í Reykjavík, lést í Landspítal- anum 3. apríl sl. Guðmundur Kristjánsson frá Vest- mannaeyjum, Álfhólsvegi 153, » verður jarðsunginn frá Kópavogs- kirkju miðvikudaginn 9. apríl kl. 15. Útför Einöru A. Jónsdóttur sauma- kennara, Þórsgötu 21, er lést 27. mars verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 9. ápríl kl. 13.30. Útför Jónínu Eyþóru Guðmunds- dóttur, Hringbraut 73 Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 8. april kl. 13.30. Guðný Hjálmarsdóttir, sem lést að Vífilsstöðum 27. mars, verður jarð- sungin frá Hallgrímskirkju mánu- daginn 7. apríl kl. 13.30. Útför Sigurleifs Jóhannssonar járn- smíðameistara, Isafirði, sem lést 2. apríl sl., verður gerð frá Garða- kirkju, Garðaholti, þann 9. apríl kl. 13.30. Snorri Jónsson verslunarmaður verður jarðsunginn frá Fossvogs- kapellu þriðjudaginn 8. apríl kl. 15. Guðmunda Þórunn Gísladóttir, Lindargötu 13, verður jarðsungin þriðjudaginn 8. apríl kl. 13.30 frá Dómkirkjunni. Dr. med. Sigurður Sigurðsson, fyrr- verandi landlæknir, lést laugardag- inn 5. apríl sl. Tónlist Háskólatónleikar Sjöundu og næstsíðustu Háskólatón- leikarnir á vormisseri 1986 verða haldnir í Norræna húsinu miðviku- daginn 9. apríl. Kjartan Óskarsson klarínettleikari og Hrefna Eggerts- dóttir píanóleikari flytja verk eftir Dario Castello, Jenö Takács og Bo- huslav Martinu. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og standa í u.þ.h. hálftíma. Tónleikar í apríl 1986 Mánud. 7. apríl, Norræna húsið kl. 20.30: Timothy Beilby, fiðla, Christopher Collins, píanó. Miðvd. 9. apríl, Norræna húsið kl. 12.30: Háskólatónleikar, Kjartan Óskarsson, basset-horn, Hrefna Eggertsdóttir, píanó. Fimmtud. 10. april, Háskólabíó kl. 20.30: Sinfóníuhljómsveit Islands, stj. Guð- mundur Emilsson. Söngsveitin Fílharmónía, einsöngv. Sylvia McNair, Sigríður Ella Magn- úsd., Guðbjörn Guðbjörnsson, Will- iam Sharp. Stabat mater e. Dvorák. Sunnud. 13. april, Kjarvalsstaðir kl. 20.30: Blásarakvintett Reykjavíkur og Martin Berkofsky píanóleikari. Miðvikud. 16. apríl, Norræna húsið kl. 12.30: Háskólatónleikar, Carmel Russill, selló, Stephen Yates, píanó. Fimmtud. 17. apríl, Háskólabíó kl. 20.30: Sinfóníuhljómsveit íslands, stj. Páll P. Pálsson, einsöngv. Ellen Lang, sópran. Verk eftir Pál P. Pálsson og Sibelius. Laugard. 19. april, Austurbæjarbíó kl. 14.30: Tónlistarfélagið, Ellen Lang, sópran, William Huckaby, píanó. DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986. Afmæli Samtíðarmaður: „ Vid xfium ikrtjut ttkku a r __ nokkni iantf > wftMpVMMMOfly kÍH* Utsttiiafa ^ Bifreiðaréttingaverkstæði opn- að Nýlega var opnað bifreiðaréttinga- verkstæði að Höfðabakka 3, Reykja- vík. Verkstæðið, sem er sérhæft í réttingum og almennum boddívið- gerðum er í eigu þeirra Björns Bjarnasonar og Kolbeins Reynisson- ar bifreiðasmíðameistara. Verkstæð- ið er opið virka daga frá kl. 8-18 og fyrir þá sem geta ekki misst bílana á daginn er boðið upp á kvöld- og helgarþjónustu. Síminn á verkstæð- inu er 672350. Að lokum má geta þess að þeir sækja bílana fyrir þá sem þess óska, gera verðtilboð og eru liprir í samningum. Karlakór Reykjavíkur 60 ára Kórinn heldur upp á afmæli sitt með ýmsu móti. Hann hélt sérstakan há- tíðarfund á sjálfan afmælisdaginn, 3. janúar sl. og hefur síðan æft undir hina árlegu styrktarfélaga-hljóm- leika sína sem verða haldnir í Langholtskirkju dagana 8., 9., 10. og 12. apríl nk., kl. 20.30 fyrstu þrjá dagana en kl. 14.30 síðasta daginn, sem er laugardagur. Þá verður fljótlega eftir síðustu hljómleikana tekin skóflustunga að nýju félagsheimili sem mun rísa að Skógarhlíð 20, eða nánar tiltekið í norðanverðri öskjuhlíð. Á framangreindum hljómleikum verður Páll Pampichler Pálsson stjórnandi og Guðrún A. Kristins- dóttir píanóleikari. Einsöngvarar eru þeir Friðbjörn G. Jónsson, Hjálmar Kjartansson, Hreiðar Pálmason og Ólafur Magnússon. Fjölmargir eldri félagar kórsins munu syngja með á tónleikunum nokkur lög. Næsta verkefni Karlakórs Reykja- víkur verður söngur með Sinfóníu- hljómsveit Islands hinn 10. maí nk. í Háskólabíói. Flutt verður þar m.a. verk eftir Skúla Halldórsson tón- skáld við ljóð Vilhjálms frá Skáholti, Pourqoui Pas, en verk þetta hefur kórinn og hljómsveitin flutt áður. Tilefni flutnings þessa nú er að lið- in eru 50 ár frá því er hið franska vísindaskip, er bar nafn þetta, fórst hér við land og með því hinn heims- þekkti vísindamaður Charcot. Karlakór Reykjavíkur hefur verið boðið að syngja í tilefni af þessu á fjórum stöðum á og við Bretagne- skaga í Frakklandi í byrjun júní nk. og þá m.a. þetta verk, en þar verður haldin mikil minningarhátíð um hið hörmulega slys. Kóngar í ríki sínu heitir nýútkomin barnabók eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur. Þetta er fyrsta bók Hrafnhildar en áður hefur hún birt smásögur og greinar í blöð- um og tímaritum. Sagan segir frá tveimur strákum í íslensku sjávarþorpi og ýmsu sem þeir taka sér fyrir hendur í sumarfríi sínu. Þeir eru bestu vinir í heimi og báðir níu ára en þó eru þeir ólíkir eins og dagur og nótt. Lalli er alltaf hreinn og strokinn en Jói er óttaleg- ur drullusokkur, eins og hann segir sjálfur. Samt er það Jói sem fær allar bestu hugmyndirnar, hann má líka oftast gera það sem hann langar til. Lalli getur ekki hugsað sér neitt skemmtilegra en vera með Jóa allan daginn, hugsa um villikettlinga, veiða físk, byggja kofa og slást við Frjáls verslun, 2. tbl. 1986, er komin út. Meðal efnis blaðsins er forsíðuviðtal við Ásmund Stefánsson, forseta ASÍ, viðtal við Jakúp Joensen, einn helsta fjármála- jöfur í Færeyjum, grein um samsettar tryggingar fyrir atvinnureksturinn, grein um tölvunet Pósts og síma, við- tal við Þorstein Haraldsson, fram- kvæmdastjóra Hlutabréfamarkaðar- ins hf., sagt frá aðalfundi Verslunarráðs íslands, grein um veitingahús og fleira. Útgefandi Frjálsrar verslunar er Frjálst fram- tak hf. en ritstjóri blaðsins er Kjartan Stefánsson. Norræna húsið kl. 16.00: Schubert-tónleikar, Anna Málfríður Sigurðardóttir og Martin Berkofsky, fjórhent píanó.. Tilkynningar Kvenfélag Kópavogs heldur spilakvöld þriðjudaginn 8.“ apríl kl. 20.30 í félagsheimilinu. Mætum allar. Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents Minningarspjöld sjóðsins eru seld í skrifstofu Háskóla íslands. Símar 21331 og 25088. Úthlutun styrkja úr Minningarsjóði Theódórs B. Johnsons Úthlutað hefur verið styrkjum úr Minningarsjóði Theódórs B. John- sons fyrir árið 1986. Tuttugu og þrjár umsóknir bárust að þessu sinni um styrki úr sjóðnum en tilgangur hans samkvæmt skipulagsskrá er að styrkja efnilega og efnalitla stúd- enta, einn eða fleiri, til náms við Háskóla íslands eða framhaldsnáms erlendis að loknu námi við Háskóla Islands. Að þessu sinni voru veittir tveir styrkir, kr. 60.000 hvor: Rannveig Trraustadóttir BA fékk styrk til að stunda framhaldsnám við háskóla í Bandaríkjunum. Hún hyggst stunda nám á sviði skipulagningar og stjórnunar félagslegrar þjónustu. Sigríður Sigurjónsdóttir BA fékk styrk til að ljúka cand. mag.-prófi í íslenskri málfræði. Frá Landssambandi islenskra vélsleðamanna I þætti Ómars Ragnarssonar Á líð- andi stundu, miðvikudaginn 26. fe- brúar sl., var dregin upp allófögur mynd af umgengni og óreglu þeirra ferðalanga er heimsótt hafi Hvera- vallasvæðið í vetur. LÍV fagnar í sjálfu sér að umræða hefur hafíst um þessi mál en harmar að allir ferða- langar Voru settir undir einn og sama hatt, því vissulega eru margir í svona Utvarp Sjónvarp Gunnlaugur Þorbergsson, 10 ára skólastrákur: Meíri spenna í fullorðinsþáttum Kjamakona er aðaluppáhaldið mitt í sjónvarpinu, ég horfi alltaf á hana, þetta er skemmtilegur þáttur, spennandi og svolítið fyndinn. Mér skilst að allir í bekknum mínum horfi á Kjarnakonuna, þannig að hún er ekkert frekar fullorðins- þáttur. Og ég hef yfirleitt horft á þá framhaldsþætti sem verið hafa á sunnudögum, þeir hafa verið mjög góðir, eins og til dæmis Stríðsvind- ar. Fílamyndin í gær var ofboðslega góð og meiriháttar fyndin. Mér finnst alltaf gaman að svona dýra- lífemyndum og það er gott að þær eru nokkuð algengar. Hana nú hefur oft verið skemmti- legri en í gær, þó þeir, aulabárðarn- ir, hafi verið mjög fyndnir þá líka. Á laugardag sá ég spurninga- keppnina og hafði dálítið gaman af. Ég vissi svona kannski einn tíunda af því sem spurt var um, það er að segja var alveg „sjúr“ á því, svo fattaði ég sumt eftir sirka 10 sek- úndur. En krakkamir voru svolítið klárir og greinilega mjög vel þjál- faðir. Á föstudag sá ég Rokkarnir geta ekki þagnað, Kikk, og þótti ekkert æðislegt en samt betra en ekkert. Ég sleppi svona einum fjórða af barnaefni í sjónvarpinu - eða missi af því - en ég horfi heilmikið á sjón- varp og held ekki að það sé endilega slæmt fyrir mig, sumt er samt kannski ekki gott íyrir litla krakka. En mér finnst alveg jafngaman að horfa á fullorðinsþætti því þeir eru oft meira spennandi. Ég horfi stundum á sjónvarps- fréttir en ekki af miklum áhuga. Ef ég hlusta á útvarpið þá er það rás tvö og bestu þættimir þar finnst mér vera Listapopp og Vinsælda- listinn. Jú, og svo líka Morgun- þátturinn. vetrarferðum er ganga vel um, skilja ekki eftir sig rusl né neyta áfengis. Frá upphafi hefur stjórn LlV for- dæmt neyslu áfengis í vetrarferða- lögum. LlV hvetur því félagsmenn sína, einnig alla aðra er á slíkum ferðalögum eru, þar með talda alla jeppa-hópa og 4x4 klúbbfélaga, að taka nú saman höndum, kappkosta að ganga vel um sæluhús, taka allt rusl og afganga með sér til byggða og einnig að forðast neyslu áfengis á vetrarferðum sínum, því það er óvirðing við öræfin. r/áls vershm m stóru strákana. Þetta er ævintýra- legt sumar. Kóngar í ríki sínu kemur út hjá Máli og menningu. Þar var einnig gerð tilraun í fyrra til að gefa barnabækur út að vori og gafst prýðilega. Margir foreldrar rifjuðu upp þann gamla sið að gefa börnum sínum sumargjafir og notuðu nýju bækurnar til þess. Kóngar í ríki sínu er 104 bls., mynd- skreytt af Brian Pilkington sem einnig teiknaði kápumynd. Prent- stofa G. Benediktssonar prentaði bókina en Bókfell sá um kiljuband. 75 ára er í dag, mánudaginn 7. apríl, Guðrún Guðbjarnardóttir, Flateyri við Önundarfjörð. Eiginmaður henn- ar er Jóhann Guðbjartsson, fyrrv. verkstjóri. Guðrún dvelst í dag á heimili sonar síns, Svans Jóhanns- sonar skipstjóra, að Kleppsvegi 128, Reykjavík. Fundir Kvennadeild Skagfirðingafé- lagsins í Reykjavík er með félagsfund í Drangey, Síðu- múla 35, miðvikudaginn 9. apríl kl. 20.30. Þar verður rætt um fjáröflun 1. maí og spilað bingó. Félag velunnara Borgarspítal- ans Framhaldsaðalfundur Kélags vel- unnara Borgarspítalans verður haldinn i matsal Borgarspítalans þriðjudaginn 8. apríl kl. 20.30. Venju- leg aðalfundarstörf. Bókin „Listin að lifa með kransæðasjúkdóm" verð- ur kynnt á fundinum. Kaffiveitingar. Kaþóiskur fundur I dag, mánudag 7. apríl, verður hald- inn „Patrisíafundur" í systraheimil- inu í Stigahlíð 63. Þetta eru mánaðarlegir fundir undir leiðsögn prests og fjalla um eitthvert trúarlegt efni. Að þessu sinni verður rætt um það, hvað við þurfum að gera til þess að komast til himnaríkis. Allt ka- þólskt fólk er velkomið. Kundurinn hefst stundvíslega kl. 20. Kvennadeild Skagfirðingafé- lagsins í Reykjavík er með félagsfund í Drangey, Síðu- múla 35, miðvikudaginn 9. apríl kl. 20.30. Þar verður rætt um fjáröflun 1. maí og spilað bingó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.