Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1986, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR 7. APRÍL1986.
43
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Stelpur ofan úr Breiðholti túlkuðu Friday Night úr kvikmyndinni Fame.
Henny Hermannsdóttir samdi dansinn.
í dansinn
Dansskóli Hermanns Ragnars var
með svonefnda uppskeruhátíð skól-
ans í Laugardalshöll á dögunum og
þar komu fram ýmsir nemendur
skólans. Þetta er eins konar nem-
endasýning sem miðuð er við að allir
geti verið með. Skólinn, sem hóf
starfsemi í gamla Skátaheimilinu við
Snorrabraut árið 1958, sprengdi
Broadway utan af sér í fyrra og því
varð að snúa sér að Laugardalshöll
núna. Þar var mikill mannfjöldi
saman kominn, gestir og sýningar-
fólk skemmti sér hið besta og engin
þreytumerki voru sjáanleg á þessum
fullorðna dansskóla. Framkvæmda-
stjóri hans núna er dóttir stofnend-
anna, Unnar Amgrímsdóttur og
Hermanns Ragnars Stefánssonar,
Henny Hermannsdóttir.
Höllin var yfirgefm í miklum flýti. Þessi mynd er úr svefnherberginu.
Múgurinn ruddist inn og allir vildu prófa að sitja í
sætiforsetans.
Hallarskoöun á Filippseyjum
Mannfólkið skiptir um bústað með mismikilli skyndingu.
Markos, forseti Filippseyja, var að flýta sér þegar hann flutti
úr höllinni sinni og því var kannski ekki allt hárfínt á sínum
stað þegar lýðurinn braust inn að valdbreytingu lokinni. Filipps-
eyingar eru engir ribbaldar og því var engu rænt og ekkert
skemmt í innrás múgsins. Menn létu sér nægja að tylla afturend-
anum í stóla forsetans, máta skó frúarinnar og skoða myndirnar
af fjölskyldunni í heimsókn hjá fræga fólkinu úti í hinum stóra
heimi. Og nú skömmu síðar er allt með kyrrum kjörum á eyjun-
um, búið að laga til í höllinni og líklega hafa skópörin öll verið
send með skilum á hinn nýja dvalarstað forsetafrúarinnar fyrr-
verandi.
Jafnvel við einkaskrifborð forsetans
er eftirsótt að tylla sér.
Fjárráða og frjáls:
Stefanía af Mónakó
Tuttugu og eins árs, ákveðin í að standa á eigin fótum
svo framarlega sem það gefst friður fyrir fjölskyld-
unni.
Þann fyrsta febrúar var haldið afmæli í Mónakó -
Stefanía prinsessa varð myndug og fjárráða. Tuttugu
og eins árs og fékk þá afhentan hluta af móðurarfinum
- þessi smáskerfur þar af taldi litlar sextíu milljónir
króna. Furstafjölskyldan mætti á staðinn með af-
mælisgjafir og hamingjuóskir. Uppáhaldsgjöfin var frá
Stefano mági - eiginmanni Karólínu. Hann mætti á
staðinn með bíllykla í vasanum og gengu þeir að
hvítum Porche 928 með einkennisstöfunum Monaco
0021. Stebba varð villt af gleði og gleymdi næstum að
Rainier pabbi var líka með lykla. Það voru húslyklar
- sem eiga sér skrá í París. Nánar tiltekið á St. Germa-
in-des-Prés í hjarta Parísarborgar og þar bíður lúxus-
íbúð þess að eigandinri láti svo lítið að flytja inn.