Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Síða 3
3
Flugslysið á Snæfellsnesi:
Snjóbílamir voru bestu leitartækin
- því að þyrlurnar þoldu ekki ísinguna við Ljósufjoll
„Snjóbílar voru bestu björgunar-
tækin við þær aðstæður sem voru í
Ljósuíjöllum þegar flugslysið varð.
Þar var snarvitlaust veður og því
ekki hægt að gera betur en gert var,“
sagði Hannes Hafstein, framkvæmda-
stjóri SVFÍ.
Enginn snjóbíll er til á norðanverðu
Snæfellsnesi. Því varð að fara þangað
með snjóbíla af Stór-Reykjavíkur-
svæðinu og úr Borgarfirði. „Héðan
fóru einnig mjög vanir og færir fjall-
göngumenn með mikla reynslu,"
sagði Hannes.
Það var reynt að leita með þyrlum
á svæðinu við Ljósufjöll. Þyrlurnar
gátu lítið gert vegna ísingar. „Þyrlur
geta ekki leyst allan vanda eins og
oft hefur verið sagt, ekki við þau skil-
yrði sem voru við Ljósufjöll," sagði
Hannes.
„Jú, það er rétt að gallinn við þyrl-
Yfir tíu
tíma stans-
laust flug
„Jú, það er rétt. Flugmennirnir Sig-
urjón Einarsson og Snæbjörn Guð-
bjömsson unnu geysilega gott starf í
sambandi við leitina á TF-ORM. Þeir
voru á yfir tíu tíma stanslausu flugi
yfir leitarsvæðinu," sagði Pétur Ein-
arsson flugmálastjóri þegar hann var
spurður um gott starf flugmanna
Flugmálastjórnar á TF-DCA.
Pétur sagði að þeir Sigurjón og
Snæbjöm hafi oft með hæfni sinni
bjargað mönnum og veitt ómetanlega
aðstoð. TF-DCA sá um fjarskipti á
leitarsvæðinu og flugmenn vélarinn-
ar leiðbeindu leitarmönnum í leitinni
að TF-ORM.
-SOS
361 m
fyrir
neðan
fjallstopp
Það er Ijóst að fall TF-ORM
hefur verið mikið þegar flugvél-
in var yfir Ljósufjöllum. Hér á
myndinni má sjá flugvélina í
fjallshlíðinni á milli írafells og
Botna-Skyrtunnu. Flugvélin
var í 640 metra hæð, eða 361
metra fyrir neðan fjallstopp.
DV-mynd: GVA
urnar er að þæt þola ekki ísingu. Það
eru aðeins' örfáar tilraunaþyriur í
heiminum sem þola ísingu," sagði
Pétur Einarsson flugmálastjóri.
Pétur sagði að þyrla hefði komið
að góðu gagni ef aðeins skárra veður
hefði verið á leitarsvæðinu. „Það
munaði ekki miklu. Það er svo ekki
hægt að loka augunum fyrir því að
ekkert annað tæki í heiminum hefði
getað leyst það verkefni sem þyrla
Landhelgisgæslunnar gerði um nótt-
ina í Ljósufjöllum. Að na í hina
slösuðu menn upp í fjallshlíðina,"
sagði Pétur.
-sos
BITTKORT
AUAlíHf
með Samvinnuferðum-Landsýn
Frá staðfestingargjaldi
- með einu símtali
Tilafborgana
- fyrir eða eftir heimkomu
ÞETTA ER EINSTAKT BOÐ Á ÍSLANDI
06 BÝÐST EINUNGIS ÞEINISEM HAFA EUROCARD
í raun og veru er þarna um tvenns konar þjónustu að ræða:
Staðfestingargjald (hvort sem er á staðnum eða í gegn um síma),
eða innborgun á ferðjalla undir hina hefðbundnu notkun kreditkorts.
Greiðsla afborgana og vaxta af láni Samvinnuferða-Landsýnar
fer fram samkvæmt alveg nýju þjónustufyrirkomulagi: |=URÖ
EURÖ ™
Grundvöllur KREPg er sá að korthafanum er treyst.
Hann þarf ekki að verða sér úti um ábyrgðarmenn, heldur skrifar hann
undir samning um viðskiptaskuld, rétt eins og þegar hann undirritar
úttektarseðil.
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986.
Fréttir
Fréttir
Fréttir
EUROCARD - GILDARA EN ÞIG GRUNAR.