Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd ferðar. En einn af viðskiptavinum hans hafði látist af vineitrun. Fjórir til viðbótar lágu þungt haldnir af eitrun. Giovannini ætlaði að bera vitni til þess að njóta vemdar réttví- sinnar en mafían var vitaskuld ekki á þeim buxunum að láta hann sleppa þann veg. Milljarðahagnaður Þegar um er að ræða jaíh svívirði- leg vélabrögð og þama hafa verið höfð í frammi, það er að segja blönd- un víns með metýlalkóhóli (tréspírit- Umsjón: Guðmundur Pétursson us) til þess að auka vínandainnihald þess þá skapast óhugnanlegur hagn- aður á skammri stundu. Prófessor Mario Fregoni, sem starfaði við há- skólann í Piacenza, hélt þvi fram, að sá timi hefði virst liðinn, þar sem menn ykju alkóhólmagnið í víninu með því að bæta út í það sykri. Með því móti lækkar kostnaðurinn við vínfiramleiðsluna um einn þriðja. Með notkun methýlalkóhóls tutt- ugufalJast sá spamaður. Japan vill láta í sér heyra Japanir vinna nú stöðugt að því að ávinna sér aukin völd og áhrif á alþjóðavettvangi og kvarta yfir því að áhrif þeiira á þeim vettvangi séu ekki i neinu samræmi við efnahags- legt ríkidæmi landsins og fjáríram- lög þeirra til alþjóðastofnana. Japanskir stjórnmála- og embætt- ismenn hafa ekki hikað við að gagmýna bágborinn hlut Japans í valdahringum alþjóðastofhana og segja að á sama tíma og'þjóðir heims líti til landsins sem fyrirmyndar í efnahagslegum skilningi og fari fram á japanska efnahagsaðstoð hunsi þær óskir Japans um aukna beina aðild að alþjóðastofnunum. Japanskir embættismenn hafa nú lýst áhuga sínum á því að Japan öðlist aukin áhrif í alþjóðastofnun- um eins og Alþjóða gjaldeyrissjóðn- um, Alþjóðabankanum og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ný þjóðerniskennd Sterk þjóðemiskennd hefur löng- um einkennt japanskt þjóðfélag og stjómkerfi, þó minna hafi borið á henni eftir ósigurinn í síðari heims- styrjöld. Vestrænir fréttaskýrendur í Japan em ekki frá því að ný þjóðemis- kennd sé að rísa upp á meðal japanskra viðskipta- og embættis- manna, er margir hverjir hafa af eigin raun tekið þátt í uppbyggingu lands síns frá rústum síðari heims- styrjaldar og hafa með eigin augum séð þá gífúrlegu efnahagsbyltingu er átt hefur sér stað í landinu á örf- áum áratugum. Það em þessir menn er fréttaskýr- endumir segja að séu óánægðir með skertan hlut lands síns á alþjóða- vettvangi, á sama tíma og kröfur viðskiptaþjóða Japans um heim all- an um japanska forystu í efnahags- og viðskiptamálum aukast um allan helming. „Sem einn efhahagsrisa heimsins erum við beðnir að taka að okkur margs konar hluti fyrir hendur en á hinn bóginn eigum við okkur hvergi talsmenn. Þurfum við raunvemlega að gerast herveldi aftur til að rödd okkar heyrist?" sagði kunnur jap- anskur viðskiptafrömuður er ekki vildi fáta nafns síns getið. Aukinn hlutur á alþjóðavett- vangi Japanski ríkiskassinn leggur ár- lega fram 5 prósent af heildarfjár- magni Alþjóða gjaldeyrissjóðsins en á móti hefur Japan aðeins 2 prósent UMSJON: HANNES HEIMISSON af starfsmönnum sjóðsins. Á sama tima leggja Bandaríkjamenn fram 20 prósent af heildarfjármagni sjóðs- ins en hafa 25 prósent starfsmanna hans. „Við vinnum nú að því að fá hlut okkar aukinn meðal starfsmanna Alþjóða gjaldeyrissjóðsins," sagði talsmaður fjármálaráðuneytisins í síðustu viku. Hjá Alþjóðabankanum starfar nú 51 Japani af 3175 starfsmönnum bankans. Þar em nú 803 Banda- ríkjamenn og 340 Bretar. Þrátt fyrir það er Japan nú annar stærsti hlut- hafi í Alþjóðabankanum á eftir Bandaríkjunum og leggur fram 20 prósent af fjármagni bankans, Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna er Japan í þriðja sæti á eftir Banda- ríkjunum og Sovétríkjunum hvað fjárframlög varðar. Japan er í raun- inni annar stærsti fjárstyrkjandi Sameinuðu þjóðanna ef miðað er við frjáls árleg framlög aðildarríkja. Japan telur það ennfremur ekki í samræmi við efiiahagslegt mikilvægi sitt að vera ekki varanlegur meðlim- ur í öiyggisráði Sameinuðu þjóð- anna. Til að svo megi verða þarf að gera breytingu á stofhsáttmála ráðs- ins er bannar Möndulveldunum rrverandi, báðum þýsku ríkjunum, ’talíu og Japan, fulla aðild að ráðinu. fyi Iti Aukinnar óánægju gætir nú í Japan með það sem embættismenn og stjórnmálamenn þar í landi kalla skertan hlut landsinsáalþjóðavettvangierekkisam- ræmist stöðu landsins í efnahagslegu tilliti og mikilvægi í efnahagslifi heimsins. Stendur mafían á bak við hneykslið um „vín dauðans“? Sextíu 200 lítra tunnur með methýlalkóhóli Aðrir, sem fangelsaðir hafa verið vegna rannsóknar þessa vínhneyksl- is, eru meðal annarra Mario Spar- rotti, eigandi fyrirtækisins Acri Cemica, og Gioseppi Franzoni, sem virðist einn aðalbakmaður þeirra aðila er selt hafa „vín dauðans" úr landi. Hjá Sparrotti var lagt hald á sextíu 200 lítra tunnur af methýl- alkóhóli. Franzoni hefur verið sakaður um að selja á síðustu fjórum mánuðum um 3000 lítra af víni blön- duðu með methýl og á meðal vínteg- unda, sem „göfgaðar" hafa verið á þennan hátt, er „Barbera E’Asti", en það er töluvert þekkt víntegund. Þekktar víntegundir í spilinu Nú liggur það ljóst fyrir að það eru ekki einvörðungu ódýr borðvín sem blönduð hafa verið methýl held- ur einnig þekktari tegundir. Svo sem „Mebiolo“, „Prosecco Dei Colli Trevidiani", norður-ítölsk Trokai- vín og „Barolo". Einnig hefur verið lagt hald á töluvert magn af Vermo- uth. Vínhneykslið á Ítalíu verður stöðugt umfangsmeira á meðan valköstur- inn hækkar nær daglega. Grunur leikur á því að mafían hafi haft fing- ur með í spilinu við blöndun vínsins, og að hinn illa fengni hagnaður nemi milljörðum króna. Gizur Helgason, fréttaritari DV í Zurich: Vínhneykslið á Ítalíu verður stöð- ugt umfangsmeira. Tuttugu manns hafa nú þegar látist af völdum hins eitraða víns og enn fleiri liggja þungt haldnir á sjúkrahúsum af víneitrun. Allt þykir benda til þess að mafían standi að baki þessari blöndun met- hýlalkóhóls. Napólí-mafían Giuseppe Zurlo, ritari i ítalska landbúnaðarráðuneytinu, lét hafa það eftir sér í síðustu viku, að senni- lega væru einhverjir „bakhjarlar" þessa hneyklismáls starfandi í sjálfu ráðuneytinu. Antonio Fusco, suður- ítalskur vínhöndlari, hefur verið fangelsaður og í yfirheyrslu sagði hann að hann hefði orðið fyrir vélr- áðum „camorra", eins og mafían í Napólí er kölluð. Dularfullt dauðsfall vitnis Fleiri spor liggja til Suður-Ítalíu eða nánar sagt Apulien, þar sem vit- að er að mafían hefur tögl og hagldir í vínverslunir.ni. Samkvæmt aðferð- um mafíunnar þá ríkir dularfull leynd um dauða Alto Giovannini, sem var ekinn niður á fáfarinni götu og beið samstundis bana af. Gio- vannini sem sjálfur verslaði með „vín dauðans" hafði ætlað sér að láta sig hverfa. Hafði hann þegar pakkað föggur sínar niður til brott- Tuttugu dánir og valkösturinn fer hækkandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.