Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 25
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 8. APRÍL1986. 25 Sandkorn Sandkorn Landsbyggðarfólk er ekki allt- of hrifið af umferðarmenningu Reykvíkinga Reykvískur dónaskapur Það er alltof algengt að reykvískir ökumenn sýni kollegum sínum utan af landsbyggðinni ókurteisi i umferðinni. Það er ekki aðeins að fullorðið fólk ætti ■uð sjá sóma sinn i að sneiða hjá slikri framkomu. „Strákapör“ af þessu tagi gætu hreinlega valdið slys- um þegar hæst lætur, eins og eftirfarandi saga sýnir Ijóslega: Fyrir fáeinum dögum var kona utan af landi stödd í Reykjavík. Hún ók bíl með E-númeri eftir Kleppsveg- inum. Konan ók á vinstri akrein og var á 60 kílómetra hraða, þeim mesta sem leyfður er á Kleppsvegin- um. Segir nú ekki að ferðum konunnar fyrr en hún heyr- ir langdregið flaut fyrir aftan sig. Var þar komin Reykjavikurbill á fullri ferð. Konan hélt í fyrstu að þetta væri einhver sem hún þekkti. Það fóru þó að renna á hana tvær grímur þegar R-bíllinn skaust fram úr henni, sveigði síðan þvert fyrir bil hennar, þannig að hann henist upp á gangstétt. Um leið og R- billinn rauk fram úr sáu farþegar hans sóma sinn í að senda konunni dóna- merki, svona eins og krakkar tiðka fram til 6-7 ára aldurs. Nei, það er ekki ofsögum sagt af reykvískri umferð- armenningu. 1. apríl í Eyjum Þeir hafa liklega verið margir sem hlupu 1. april á þeim ágæta degi. Þó hefur þátttakan i hlaupinu hvergi verið jafnalmenn og í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Að sögn blaðsins Frétta var nemendum FIV til- kynnt fyrir páskahátiðina að þeir ættu að mæta i skól- ann strax næsta þriðjudag eftir páska. Þótti mörgum þetta heldur stutt páska- leyfi en um það þýddi ekkert að fást. Skipuninni skyldi hlýtt. A þriðjudagsmorguninn drifu menn sig í fötin og mættu galvaskir i skólann klukkan 8. En þegar þang- að kom blasti við þeim ófögur sjón. Á miða í einum glugga skólabyggingarinn- ar stóð einfaldlega: „Ha-ha! 1. april. Sjáumst á morgun kl. 8. Skólastjóri og kennarar FÍV.“ Nemendur gátu því lallað heim og lagt sig aftur. Útsala á flugmiðum Útsala á farmiðum BSRB til félagsmanna er að verða sérfyrirbæri í þjóðfélaginu. Fólk mætir um miðjar næt- ur og bíður fram á miðjan næsta dag til að verða ekki af hnossinu. Er það mál manna að þarna ráði frum- skógarlögmálið fyrst og fremst ferðinni. Hljóti að vera til einhver önnur og sómasamlegri aðferð til að útdeila farmiðunum. Og svo er það spurningin um félagsmenn sem eru hreyfihamlaðir eða ef til vill algerlega bundnir í hjólastóla. Skyldu þeir eiga einhvern sjens í selskapinn? Hættir Jón Baldvin? I nýjustu Viku er meðal annars galopinskátt viðtal við Bryndísi Schram. Þar lætur Bryndís hlutina heita réttum nöfnum eins og fyrri daginn og er ekkert að skafa utan af því sem hún segir. Hún er til dæmis spurð hvort hún ætli að halda ótrauð áfram i póli- tíkinni. Því svarar hún þannig: „Já, ég held að ég sé ekki að taka neina stóra áhættu. Þetta er spennandi og það verður gaman að sjá hvað kemur út úr þessu í vor. Ég er þekkt og það hjálpar mér líklega eitthvað. Ég veit að vísu ekki hvort nokkrir af yngri áhorfend- um mínum frá árum Stundarinnar eru komnir á réttan aldur, en pabbarnir eru það allavega...“ Og svo taka líklega ein- hverj ir góðkratar kipp þegar þeir lesa eftirfarandi fullyrðingu Bryndísar i við- talinu: „Ég er til dæmis alveg viss um að ef Alþýðuflokk- urinn fær ekki nógu mikið fylgi í næstu alþingiskosn- ingum, þá mun Jón Baldvin segja af sér. Þá er það kom- ið á hreint að þjóðin vill Bryndís lætur móðan mása i Vikunni. bara engar breytingar..." Það verður annars gaman að vita hvað telst vera nógu mikið fylgi fyrir Jón Bald- vin. Það kemur væntanlega í ljós í næstu alþingiskosn- ingum. Hættir Jón Baldvin? Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. ^UREYRI/VG/VAí/ Gerist Áskriftarslminn áskrifendur! á Akureyri er 25013 ATHUGIÐ! Afgreiðsla okkar Tekið er á móti smáauglýsingum Skipagötu 13 í síma 25013 og á afgreiðslunni. er opin virka daga kl. 13—19 Skipagötu 13. og laugardaga kl. 11 — 13. Blaðamaður á Akureyri, Jón G. Hauksson, hefur aðsetur á sama stað. Vinnusími hans er 26613, heimasími 26385. Laugaveg 1-120. oddatölur Lindarbraut Miðbraut Grandaveg Hringbraut 95-út Bræðraborgarstíg Holtsgötu Skipholt 27-70 Hjálmholt Laugaveg168-178 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Kvistalandi 3, þingl. eign Árna Gíslasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykja- vik á eigninni sjálfri fimmtudag 10. apríl 1986 kl. 15.00. Borgarfógetaembaettið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 134., 138. og 145. tbl. Lögbiitingablaðs 1985 á Lang- holtsvegi 19, talin eign Sigurðar Guðjónssonar, fer fram eftir kröfu Gjald- heimtunnar i Reykjavík og Landsbanka Íslands á eigninni sjálfri fimmtudag 10. apríl 1986 kl. 11.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 134., 138. og 145. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Sogavegi 156, þingl. eign Daníels Þórarinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 10. april 1986 kl. 16.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og siðasta á Kvistalandi 23, þingl. eign Guðmundar Ingimundarson- ar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík og Róberts Ama Hreiðars- sonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudag 10. april 1986 kl. 15.15. ___________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Huldu- landi 3, þingl. eign Leifs Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri fimmtudag 10. apml 1986 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 134., 138. og 145. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Skipasundi 85, þingl. eign Guðmundar Þórðarsonar, fer fram eftir kröfu Iðn- lánasjóðs á eigninni sjálfri fimmtudag 10. apríl 1986 kl. 11.30. Borgarfógetaembaettið i Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 119., 122. og 125. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Grundar- landi 2, þingl. eign Jónasar Jónssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Kópavogskaupstaðar á eigninni sjálfri fimmtudag 10. apríl 1986 kl. 13.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 120., 124. og 127. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Kjam/egi 4, þingl. eign Kristjáns A. Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 10. april 1986 kl. 16.30. ___________________Borgarfógetaembaettið í Reykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.