Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 8. APRIL1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmáí Stjórnmál Eitft minnsta báknið er hér á landi - spörum okkur mikið með því að reka ekki eigin her Það kemur líklega einhverjum á óvart að opinbera báknið hér á landi er eitt það minnsta meðal ríkja Efaa- hags- og íramfarastofaunar Samein- uðu þjóðanna. í samanburði á opinberum umsvifam Norðurlanda- þjóðanna kemur í ljós að útgjöld eru langlægst hér. í nýju riti Þjóðhagsstofaunar, „Búskapur hins opmbera", er birtur margvíslegur samanburður á um- svifum hins opinbera hjá íyrrgreind- um ríkjum, sem almennt ganga undir heitinu OECD-ríkin. Samanburður- inn byggir á meðaltölum áranna 1980-1983. Sem hlutfall af landsframleiðslu voru opinberu útgjöldin hér 33,6%, í Danmörku 59,5%, í Finnlandi 44, 8%, í Noregi 53,1% og í Svíþjóð 64, 8%. Af 20 ríkjum í þessum saman- burði er það einungis Sviss sem er með lægra hlutfall, 29,8%. Svíar eiga metið en skammt á eftir þeim koma Hollendingar með 61,4% á árunum 80-82. Rúmlega hehningm- af opinberu útgjöldunum hér er samneysla. Þar í eru opinber stjórnsýsla 8%, menntamál um 11%, heilbrigðismál 17-18%, almannatryggingar og vel- ferðarmál 2,7%, húsnæðis-, skipu- lags- og hreinsunarmál 1,6%, menningarmál 2,1%, útgjöld vegna atvinnuveganna 6,5% og annað 2, 3%. Ef borin eru saman útgjöld hér og annars staðar á Norðurlöndunum er opinbera stjómsýslan langdýrust hlutfallslega hér. Þar í em útgjöld vegna réttargæslu og öryggismála. Við sleppum hins vegar við útgjöld af varnarmálum sem er nálægt því eins hár og stjómsýslukostnaður hinna þjóðanna, nema Finna. Þar kosta vamarmálin um helming á móti stjómsýslunni. Við erum með langhæsta hlutfall til heilbrigðismála, um helmingi hærra en Norðmenn og Finnar. Þar á móti leggjum við lítið í almanna- tryggingar og velferðarmál, þó lítið minna en Norðmenn en aðeins íimmtung á móti Dönum. Við erum í efri kantinum í menningarmálum og áberandi efstir í útgjöldum vegna atvinnumála. HERB Lánasjóðsfrumvarpið: Ekki lagt fram á þessu Nýtt frumvarp um Lánasjóð ís- lenskra námsmanna verður ekki lagt fram á þessu þingi. Menntamálaráð- herra, sem stefadi að því að leggja frumvarpið fi'am, segir að ekki hafi náðst samkomulag um það meðal stjómarflokkanna. „Ég mun hins vegar leggja fram „Mér sýnist að hér sé verið að leggja til óeðlilega skattheimtu á neytendur til að halda uppi óarðbærri fram- leiðslu," sagði Jón Magnússon, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, þegar fyrsta umræða fór fram um nýtt Edward Derwinski, sérlegur ráðgjafi George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur hingað til lands 29. þessa mánaðar til að ræða um lausn á svokölluðu Rainbowmáli. skýrslu í næstu viku á Alþingi til að upplýsa þingmenn um hvað ég hyggst fyrir í þessu efni,“ sagði Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra í viðtali við DV. Andstaðan gegn fyrirhuguðu frum- varpi menntamálaráðherra hefur aðallega komið frá þingmönnum úr stjórnarfrumvarp sem gerir ráð fyrir að lagt verði sérstakt jöfaunargjald á innfluttar búvöriu- sem eru í sam- keppni við innlendar. Jón lagðist hart gegn frumvarpinu og sagði að nær væri að leggja niður Utanríkisráðherra, Matthías A. Mathiesen, skýrði frá þessu í gær. Hann sagði að í bréfi frá Shultz hefði þetta komið fram. Aðspurður um hvort hann hygðist leggja fi'am einhverja Framsóknai-flokki. Þeir hafa gagnrýnt að settir verði vextir á lánin og að endurgi'eiðslur þeirra verði hertar, svo eitthvað sé nefnt. Aðspurður sagðist Sverrir búast við að frumvarpið yrði lagt fram á næsta þingi. „Ég hef þó ekki breytt um stefau í þessu máli. Ég vil enn að það verði framleiðslu hér innanlands sem ekki væri arðbær. Frumvarpið gerir ráð fyrir að lagt verði á sérstakt gjald á tollverð innfluttra búvara. Gjald þetta er nefnt jöfaunargjald og getur verið tvenns konar. Annars vegar þannig lausn á þessu máli sagðist hann fyrst ætla að heyra hvað Bandaríkjamenn ætluðu að leggja til málanna. „ En þolimnæði mín er senn á þrotum," sagði ráðherrann. i -APH þingi komið á reglu í lánasjóðnum og að- haldi,“ sagði ráðherrann. Ef útlánareglum sjóðsins verður ekki breytt fyrir úthlutun í haust er ljóst að um 300 milljónir króna vantar til að fullnægja útlánaáætlun sjóðsins. Ekki liggur fyrir hvemig þessa við- bótarfjármagns verður aflað. -APH að samanlagt tollverð og þ_,xa gjald verði ekki hærra en heildsöluverð sömu vöm framleiddrar innanlands og hins vegar er gert ráð fyrir að í ákveðnum tilfellum geti þetta gjald orðið allt að 200% af tollverði. I greinargerð segir að innflutningur búvara, t.d. garðávaxta, grænmetis og kartaflna hafi raskað mjög samkeppn- isaðstöðu innlendu framleiðsluniiar. Til að hamla gegn því er þetta gjald lagt á. Eiður Guðnason, Alþýðuflokki, og Stefán Benediktsson, Bandalagi jafn- aðarmanna, mæltu einnig gegn þessu frumvarpi. -APH Listi framsóknarmanna og frjálstyndra á Flateyri: Guðmundur í 1. sæti Frá Reyni Traustasyni, fréttaritara DV á Flateyri: Listi framsóknarmanna og frjáls- lyndra kjósenda á Flateyri hefar nú verið skipaður. í fyrsta sæti er Guð- mundur Jónas Kristjánsson skrif- stofúmaður, í öðm sæti er Ámi Benediktsson húsasmiður og í þriðja sæti er Áslaug Ármannsdóttir kenn- ari. Fjórða sætið skipar Rögnvaldur Guðmundsson rafveitustjórí, það fimmta Kristján Jóhannesson af- greiðshunaður og hið sjötta Gróa P. Haraldsdóttir verslunarstjóri. Sjöunda sætið skipar Sigurður Júl- íus Leifsson trésmiður. Fowal í Ölfusi Einar Gíslason, fréttaritari DV í Þor- lákshöfn: Á laugardag fór fram forval á lista dreifbýlis í Ölfushreppi til sveitar- stjómarkosninga. Fyrsta sæti hlaut Hrafnkell Karlsson, bóndi að Hrauni. Hrafnkell hefúr áður átt sæti í sveitarstjóm en hann gaf ekki kost á sér til núverandi sveitar- stjómar. í öðm sæti varð Guðmund- ur Baldursson, Kirkjuferju, og í þriðja sæti Guðmundur Ingvarsson, Akurgerði. Dreifbýli á nú tvo fúlltma í sveit- arstjóm Þorlákshafaar og ölfús. þá Engilbert Hannesson. faeppstjóra að Bakka. og Ölaf Tr. Ólafsson, garðyrkjubónda að Stuðlum. ólafúr tók við starfi sveitarstjóra í Þorláks- höfa, fyrir tæpu ári og tók þá Þrúður Sigurðardóttir, húsfrú í Hvammi. sæti hans i sveitarstjóm og mun ekkert þeirra þriggja gefa kost á sér til endurkjörs. Framboð dreifbýlisins er nú og hefúr ætíð verið óháð og blandað í pólitík. -VAJ Nykomió í Range Rover ★ Lugtargrindur ★ Svartir hjólbogalistar ★ Afturrúðugardínur ★ Kassar milli sæta ★ Stýrishjól (nýrri gerð) ★ Hliðarlistar (merktir) ★ Merktar aurhlífar ★ Þokuljós með svörtum grindum ★ Toppgrindarbogar, margar gerðir ★ Horn á stuðara ★ Felgur, nýrri gerð ★ Grill með innbyggðum Ijósum ★ Dráttarbeisli Sendum í póstkröfu samdægurs Höldur sf. varahlutaverslun Fjölnisgötu 1 b, Akureyri, símar 96-21365 og 96-21715. Ný útflutningsgrein? Einstaklingum og fyrirtækjum heimiluð framleiðsla áfengis Lagt var fram stjómarfrumvarp á Alþingi í gær sem heimilar öðrum aðilum en Áfengisverslun ríkisins að framleiða áfenga drykki. Áfengis- verslunin hefur nú ein heimild til þess að framleiða áfengi. Frumvarpið er m.a. tilkomið vegna þess að nýlega hófu íslenskir aðilar framleiðslu á vodka. Vegna einka- leyfis Áfengisverslunarinnar urðu þessir aðilar að láta framleiða drykkinn í Bretlandi og flytja hann þaðan hingað. Þeir hyggjast nú reyna að koma þessari vöm á fram- færi í Bandaríkjunum. En vegna þess að hún er framleidd í Bretlandi geta þeir ekki flutt hana inn þangað sem íslenska vöm þrátt fyrir að hug- myndin sé íslensk. f greinargerð frumvarpsins segir að vaxandi markaður sé fyrir vodka frá Norðurlöndunum í Bandaríkjun- um. Þar séu árlega 12,6 milljón lítrar af vodka fluttir inn. Um 30 prósent Ólafur Sigurðsson og Orri Vigfús- son hafa hug á því að koma Icy vodka á markað í Bandaríkjunum. af þessu magni er sænskt vodka. Ef íslendingar gætu náð slíkri mark- aðshlutdeild er áætlað að útflutn- ingstekjur okkar yrðu um 300 milljónir. „Tilgangurinn með flutningi þessa frumvarps er að gefa þeim aðilum, sem hafa áhuga á að framleiða áfenga drykki á íslandi til útflutn- ings, kost á þvi. Ef vel tekst til með slíkan útflutning getur verið um að ræða arðbæra atvinnugrein sem bæði aflar þjóðarbúinu tekna og skapar atvinnutækifæri,“ segir m.a. í greinargerð frumvarpsins. -APH Jöfnunargjald á innfluttar búvörur: „Óeðlileg skattheinrta á neytendur" - segir varaþingmaður Sjáifstæðisflokksins Utanríkisráðherra: „Þolinmæði mín senn á þrotum ”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.