Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Side 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986.
9
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Hittast Gor-
batsjov og
Reagan í júlí?
Reagan Bandaríkjaforseti og Ana-
toly Dobrynin, fráfarandi sendiherra
Sovétríkjanna í Washington, hittast í
dag til viðræðna sem menn telja að
geti orðið undanfari leiðtogafundar
risaveldanna síðar á þessu ári.
Bera viðræðumar í dag upp á sama
tímann sem Bandaríkjamenn eru að
undirbúa nýjar tilraunir með kjama-
vopn en þær árétta enn andstöðu
Bandaríkjastjómar við banni Sovét-
stjómarinnar á tilraunum við kjama-
vopn sem Kremlverjar telja lykilinn
að afvopnun (kjamavopna).
Frá því í nóvember í vetur, þegar
Reagan og Gorbatsjov urðu ásáttir um
það á fundi þeirra í Genf að hittast
aftur á þessu ári í Bandaríkjunum,
hafa Bandaríkjamenn lagt upp úr því
að Moskva ætti frumkvæðið að slíkum
fundi. Hafa þeir kvartað undan því
að Rússar virtust tregir til. En í gær
lét háttsettur embættismaður i Was-
hington eftir sér hafa að Moskvu-
stjómin hefði veitt Dobrynin
sendiherra umboð til viðræðna við
Reagan til undirbúnings leiðtogafundi
hans og Gorbatsjovs. Fyrst er þó að
ákveða fund utanríkisráðherranna,
Eduard Shevardnadze og George
Shultz, til undirbúnings fyrir fund yfir-
manna þeirra.
Dobrynin, sem verið hefúr sendi-
herra í Washington í aldarfiórðung,
hitti Shultz að máli í gær en í orði
kveðnu var það til þess að kveðja.
Hitt hefur kvisast að hann hafi fært
Shultz mikilvæg skilaboð Moskvu-
stjómarinnar varðandi utanríkisráð-
herrafund.
Helst er rætt um júní eða júh' í sum-
ar sem líklegastan fundartíma fyrir
Gorbatsjov og Reagan.
Reagan og Gorbatsjov, leiðtogar risaveldanna, hittust í Genf í vetur og urðu ásáttir um að eiga annan fund á
þessu ári.
Segja kengúr-
ur ofveiddar
í Ástralíu
Samtök dýravemdunarmanna í
Ástralíu sögðu í gær að allt að sex
milljón kengúrur hefðu veiðst í Ástra-
h'u í fyrra, þrisvar sinnum fleiri en
má samkvæmt opinberu leyfi stjóm-
valda.
Talsmaður opinbers náttúmvemd-
arráðs landsins hefúr aftur á móti
neitað fúllyrðingum dýravemdunar-
manna og segir þær ýkjur einar.
Dýravemdunarmenn segja að veiði-
menn með veiðileyfi frá hinu opinbera
veiði allt að helmingi fleiri kengúrur
árlega en þeir mega og nefiiir sem
dæmi að í fyrra hafi löglegir veiðimenn
veitt helmingi fleiri dýr í Queensland
ríki en heimild var gefin fyrir.
Segja vemdunarmenn ennfremur
hafa undir höndum gögn er sanni að
yfir helmingi fleiri kengúmskinn hafi
verið flutt út frá Ástralíu en opinberar
tölur segja til um.
Harðsnúni Hany
í bovgarstjóra-
kosningum
Bæjarbúar í heimabæ leikarans
Clint Eastwood ganga í dag til at-
kvæða í kosningum sem gætu leitt
til hlutverkaskipta hjá „Harðsnúna
Harry“ og komið honum í bæjar-
stjórastólinn.
Hinn 55 ára gamli Clint Eastwood
bauð sig fram gegn Charlotte Tow-
nsend, sem verið hefur borgarstjóri
í Carmel, sem er við sjávarsíðuna
um 240 km sunnan við San Franc-
isco. Þar hefur Eastwood búið
síðustu fjórtán árin.
Eastwood þykir hafa farið fremur
hljóðlega fram í kosningabaráttunni
og háð hana á gmndvelli kosninga-
loforða um betri borgarstjóm. Hjá
hinu fór þó ekki. Hvar sem „Harðsn-
únj Harry“ lét sjá sig, ætlaði allt af
göflunum að ganga. T.d. hafði hann
ekki verið nema fimm mínútur á
gangi um götu í Carmen síðasta
sunnudag til þess að heilsa kjósend-
um og öðrum vegfarendum með
handabandi þegar um 2000 manna
lið var komið á hæla á honum og
elti. Undir lokin stakk hann sér inn
í verslun og forðaði sér út bakdyra-
megin.
Tveir aðrir vom í framboði, en
annar þeirra dró sig í hlé í síðustu
viku og kvaðst styðja Eastwood.
Skoðanakannanir gáfu til kynna
að rúm 60% styddu Eastwood og
25% Townsend.
Clint Eastwood eða „Harðsnúni
Harry“ á atkvæðaveiðum í
heiimabæ sínum Carmen, þar sem
hann er í framboði sem borgar-
stjóraefni.
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTAN S21Sra,i 17111 hæð
Til sölu eru nú þegar eftir-
talin fyrirtæki:
Veitingastaðir með vinleyfi
Barnafataverslanir
Vefnaðarvöruverslanir
Fatabúðir
Videoleigur
Sjoppur
Kjörbúðir með kvöldsöluleyfi
Kjötbúðir
Matvöruverslanir með videoleigum
Byggingavöruverslun
Heildsölur
Fiskbúð
Bilaverkstæði
Bjórpöbb
Pylsuvagn
Prentsmiðja_____
Einangrunarverksmiðja
Kjötvinnsla
Harðfiskverkun og -sala
Ryðvarnarskáli og margt fleira
Matvöruverslun með kjötvinnslu ósk-
ast. Fiskbúðir óskast á söluskrá
Sölumenn:
Magnús Sigurjónsson, hs. 79542,
Birgir Þorvaldsson. hs. 15299.
%SANYö