Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Blaðsíða 16
16
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 8. APRÍL1986.
Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir
Hvammstangahlaup
12. apríl
Hvammstangahlaup USVH fer
fram laugardaginn 12. apríl og hefst
kl. 14 við féiagsheimilió. Karlar
hlaupa 8 km, konur, sveinar og
drengir 3 km, stelpur, strákar, telpur
og piltar 1,5 km. Þátttökutilkynning-
ar þurl'a að berast í síðasta lagi 10.
apríl til Páls Sigurðssonar. símar
95-1328 og 1310 eða Flemming Jess-
en, símar 95-1368 og 1367.
Víðavangshlaup IR sum-
ardaginn fyrsta
Víðavangshlaup ÍR fer fram á sum-
ardaginn fyrsta - fimmtudaginn 24.
apríl í 71. sinn og hefst cins og áður
klukkan 14.00.
Hlaupin verður svipuð leið og und-
anfarin 20 ár. Byrjað í Hljómskála-
garðinum vestanverðum og eftir
hlaup í garðinum og hring suður í
Vatnsmýrina suður að flugvelli verð-
ur síðan endað í Tjarnargötunni rétt
við gamla Tjarnarbió.
Hlaupið, sem er tæpra 4 km langt,
er bæði einstaklingshlaup og sveita-
keppni félaga. Karlar keppa í þriggja,
fimm og tíu manna sveitum auk
þriggja manna sveitar 30 ára og eldri.
Konur í þriggja kvenna sveít og þá
er einnig keppt í þriggja sveina sveit
og þriggja meyja sveit.
Sigurvegari hlaupsins hlýtur hinn
veglega Morgunblaðsbikar til varð-
veislu. Sigurvegari 1985 var Sigurður
P. Sigmundsson FH.
Keppt er um mjög veglega sveita-
bikara er Morgunblaðið hefur gefið.
Þátttökutilkynningar þurfa að ber-
ast til Guðmundar Þórarinssonar eða
í síma 10082 í síðasta lagi sunnudag-
inn 20. apríl. Þátttökugjald er að
þessu sinni 200 krónur.
Verðlaunafhendingin fer fram í
ÍR-húsinu við Túngötu sama dag kl.
16.00 þar sem keppendum og starfs-
fólki verður boðið upp á hrcssingu.
Þetta er elsta frjáisíþróttakeppni
landsins og fylgir vorkomunni og
ætti að vera öllum keppikefli að hafa
hlaupið eða farið í gegn sem mann-
dómspróf einstaklingsins.
BECKENBAUER
••
VALDIHONESS
- sem lék síðast landsleik gegn íslandi
fyrir sjö árum
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara
DV í V-þýskalandi:
„Ég hef engu að tapa. Þetta er
gott tækifæri og ég mun reyna að
tryggja mér sæti til Mexíkó. Ef það
tækist þá yrði það það mesta sem ég
hef náð á mínum ferli,“ sagði Dieter
Höness, hinn 33 ára gamli sóknar-
leikmaður Bayern Miinchen en hann
var um helgina valinn í v-þýska
landsliðshópinn er mæta mun Belg-
um.
„Höness mun byrja leikinn á mið-
vikudaginn. Hann sýndi reyndar
ekkert sérstakt gegn Kaiserslautern
en það var erfitt að skína í þeim
leik,“ sagði Beckenbauer sem fygld-
ist með leik Bayern á laugardaginn.
Höness lék síðast landsleik fyrir sjö
árum, þá á Laugardalsvellinum í 3-1
sigri þýskra. Hann skoraði tvö mörk
í þeim leik en hefur ekki fengið tæki-
færi síðan með landsliðinu.
Ástæðan fyrir því að Höness er
valinn nú er fyrst og fremst slæm
meiðsli sóknarmannanna Pierre
Littbarski og Rudi Völler.
-fros
Tímar
• Dieter Höness, hinn 33 ára gamli
leikmaður Bayern Munchen á ný í
vestur-þýska landsliðshópnum.
hjá samtökum 1.
er sömdu
Jock hættur
.
Kunzt er markahæstur i
I Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara
DV í V-Þýskalandi:
I Stefan Kunzt er nú markahæsti
Ileikmaður v-þýsku Bundesligunn-
ar i knattspyrnu. Kunzt sem leikur
| með liði Bochum hefur skorað 20
mörk í deildinni til þessa.
Frank Neubarth, Werder Bremen
og Karl Allgöver Stuttgart fylgja
honum fast á eftir með nitján mörk.
Af íslendingunum hefur Ásgeir
Sigurvinsson skorað mest eða sjö
mörk, Lárus Guðmundsson hefur
I
Jock Wallace sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri skoska knattspyrnufé-
lagsins Glasgow Rangers hefur hætt
störfum hjá félaginu þegar sjö mán-
uðir eru eftir af samningi hans.
Miklar líkur eru taldar á því að Gra-
eme Souness taki við af Wallace sem
„leikandi stjóri“. Rangers mistókst
að vinna titil á þessu txmabili og á í
ströggli með að tryggja sér rétt til
að leika í Evrópukeppni.
Samtök leikmanna í 1. deild í knatt-
spyrnunni og Sjóvá sömdu fyrir helgi
en tryggingarfélagið hefur tekið að
sér að tryggja leikmenn í fyrstu deild.
25 leikmenn hjá hverju liði deildar-
innar verða tryggðir.
Bætur þær er Sjóvá skuldbindur
sig til að greiða eru fimm þúsund
krónur á viku, með tveggja vikna
biðtíma. Leikmaður þarf að greiða
skoraðscxogAtliEðvaldssontvö. j
• Derby County sigraði Gillingham
í 3. deildinni ensku í gærkvöldi, 2-0.
-SK
Námskeið um byggingu íþróttahúsa
SeKbss með
7 flokka í
úrslitum
Mikill áhugi er hjá mörgum sveitar-
félögum um byggingu íþróttahúsa.
Fyrirhugaðar eru byggingar allt að
þrjátíu íþróttahúsa á næstu árum.
Hér er um umtalsverðar fjárfestingar
að ræða því áætla má byggingar-
kostnað iþróttahúsa á bilinu 25-35
milljónir króna, eftir því hvaða bygg-
ingargerð er valin. Sveitarfélög og
íþróttafélög leita þvi leiða til þess að
koma upp hagkvæmum og hentug-
um íþróttahúsum á ekki alltof
löngum tíma.
Ákveðið er því að efna til sérstaks
námskeiðs um skipulagningu og
verkefnastjómun í sambandi við
undirbúning og byggingu íþrótta-
húsa. Á þessu námskeiði verður
fjallað um kröfur hinna ýmsu áhuga-
aðila um byggingu íþróttahúsanna,
bygginga- og verkefnisstjórn. Þá
verður fjallað um gerð starfs- og
kostnaðaráætlana svo og fjármögn-
unarleiðir. Farið verður yfir helstu
atriði, sem varða byggingu íþrótta-
húsa og einkum þau er orðið gætu
til lækkunar á stofn- og rekstrar-
kostnaði þeirra.
Námskeið þettaverður haldið dag-
anna 11.-12. apríl næstkomandi og
er þegar góð þátttaka á námskeiðið.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða verkfræðingarnir Jón Hjalta-
lín Magnússon og Gunnar Torfason
og veita þeir allar nánari upplýsing-
Frá Sveini Sigurðssyni, blaðamanni
DV á Selfossi:
Greinilegt er að mjög mikil gróska
er í handknattleiknum um þessar
mundir hér á Selfossi.
Selfyssingar sendu sjö flokka til
keppni í yfirstandandi íslandsmóti
og fimm þeirra eru nú komnir í úr-
slit. Það eru eftirtaldir flokkar: 2.
flokkur karla, 3. flokkur karla, 4.
flokkur karla, 6. flokkur karla og 4.
flokkur kvenna. -SK.
-fr. E3Í-51. mswwn fTRSK?*-
var staðreynd. Juventus fékk
mörg tækifæri til að skora í leikn-
um, einkum þeir Antonio Ca-
brini, Michael Laudrup og Michel
Platini, en ekkert heppnaðist.
Á sama tíma sigraði Roma
Sampdoria, 1-0. Eina mark leiks-
ins skoraði miðheijinn Franc-
esco Graziani á 73. mín.
Gífurlegur fögnuður var í Róma-
borg eftir sigurinn þegar fréttist
að Juventus hefði tapað í Flor-
ence. Dansað á götum langt fram
á nótt. Sigurinn var þó dýr. Pól-
veijinn Boniek og aðalmarka-
skorari Roma, Roberto Pruzzo,
meiddust í leiknum og komu
varamenn í þeirra stað. Þá var
Brasilíumaðurinn Toninho
Cerezo rekinn af velli á 71. mín.
eða rétt áður en sigurmarkið var
skorað. í innbyrðisviðureign
Milano-liðanna sigraði Inter, 1-0.
Giuseppe Minaudo skoraði eina
mark leiksins á 77. mín. Hann lék
í stað Þjóðverjans Karl-Heinz
Rummenigge, sem á við meiðsli
að stríða. Lecce féll i 2. deild á
sunnudag eftir jafntefli, 1-1, við
Pisa. hsím
Fram - Fyikir
Einn leikur fer fram á Reykja-
víkurmótinu i knattspyrnu í
kvöld. Fram leikur gegn Fylki á
gervigrasinu í Laugardal og hefst
leikur liðanna klukkan hálfníu.
Framarar sigruðu KR-inga í sín-
um fyrsta leik en leikur Fylkis í
kvöld er fyrsti leikur liðsins i
mótinu. -SK.
Hafa unnið
tvisvar
Sú leiða villa slæddist inn á íþrótta-
siðu í gær að Liverpool hefði aldrei
sigrað í ensku bikarkeppninni. það
er ekki rétt. Liðið hefur tvivegis unn-
ið þann titil, 1965 og 1974. Liverpool
aðdáendur eru beðnir afsökunar á
þessum mistökum. -fros
Allt gengur nú á afturfótunum
hjá Evrópumeisturum Juventus,
tap gegn Fiorentina á sunnudag
og Torino-liðið hefur nú aðeins
eins stigs forustu á Roma í 1.
deildinni ítölsku. Um tíma í vetur
hafði Juventus átta stiga forustu.
Aðeins þijár umferðir eftir og
Rómar-liðið virðist eiga léttari
leiki eftir. Leikur í Pisa nk.
sunnudag, síðan heimaleik gegn
Lecce en lokaleikurinn verður í
Como. Juventus á eftir að leika
við Sampdoria og Lecce á útivöll-
um en AC Milano heima.
Fyrirliði argentínska landsliðs-
ins, Daniel Passarella, skoraði
fyrra mark Fiorentina gegn Ju-
ventus með þrumuskalla í sínum
síðasta leik fyrir italska liðið.
Hann heldur nú i æfingabúðir
argentínska landsliðsins fyrir
HM í Mexíkó. Næsta leiktímabil
mun hann leika með Inter
Milano. Síðara markið skoraði
Nicola Berti á síðustu mínútu
leiksins i 2-0 sigrinum og fyrsta
tap Juventus í Florence í sex ár
• Daniel Pasarella, fyrirliði argentínska landsliðsins í knatt-
spyrnu, lék í síðasta skipti með Fiorentina gegn Juventus og
skoraði glæsilegt mark með skalla.
• Ólafur Lárusson dæmir í 1. deild-
inni í sumar.
Ólafur dæmir í
1. deild
- tekur sæti Kjartans
Tómassonar frá Akureyri
Frá Þráni Stefánssyni, fréttamanni
DV á Akureyri.
Kjartan Tómasson, knattspyrnu-
dómari í Þór hér á Akureyri, sem
dæmdi í 1. deildinni sl. sumar, hefur
ákveðið að dæma ekki í sumar. Ólaf-
ur Lárusson, KR, er varadómari fyrir
1. deildina og mun taka við dómara-
störfum Kjartans þar i sumar.
-hsím
Hrun hjá Juventus
- hefur nú aðeins eins stigs fonistu á Roma