Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Page 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986.
17
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Dóra Sif sigurvegari á
fímleikamóti í Belgíu
- íslenska kvennalandsliðið sigraði á mótinu
íslenska kvennalandsliðið í fim-
leikum sigraði á alþóðlegu fimleika-
móti í Torhout í Belgíu á sunnudag
og Dóra Sif Óskarsdóttir, Gerplu,
varð i fyrsta sæti í einstaklings-
keppninni. Keppendur voru 24. Island
hlaut 93,50 stig. Belgia varð i öðru
sæti með 92,05 stig og Holland í þriðja
sæti.
Dóra Sif hlaut mjög góða einkunn,
þegar hun sigraði, eða 33,90 stig. Síð-
an komu tvær belgískar stúlkur en
jafnar í f'jórða sæti urðu Lára Hrafn-
kelsdóttir, Björk, og Ingibjörg
Sigfúsdóttir, Armanni, með 29,20
stig.
íslenska piltalandsliðið var í þriðja
sæti á mótinu. Holland sigraði, -
hlaut 144,70 stig. Belgía í öðru sæti
með 143,60 stig og ísland í þriðja með
125,20 stig. Davíð Ingason, Ármanni,
var bestur íslensku keppendanna.
Varð í tíunda sæti. Islenska fimleika-
fólkið kemur heim í dag úr keppnis-
förinni.
-hsím
Vésteinn kastaði
kringlunni 63,40 m
- Sigurður Einarsson náði mjög góðum árangri í spjótkasti. ís-
lendingar sigursælir á mótum í frjálsum íþróttum í USA
■■Shbhhhh
n< sr ■
in igur
deildar leikmanna iviðSjóvá
1500 krónur úr eigin vasa en mun fá
greitt úr sjóðnum hafi hann slasast
við æfingar eða keppni og svo fram-
arlega sem hann sé á lista viðkom-
andi félags. Sjóvá og samtök
leikmannanna hafa að öðru leyti séð
um að greiða trygginguna niður.
Samningurinn er sá fyrsti í þessum
dúr hér á landi en fordæmi eru fyrir
slíkum samningum á hinum Norð-
urlöndunum.
Frá Ólafi Guðgeirssyni, blaðamanni
DV í Bandaríkjunum:
Vésteinn Hafsteinsson kringlu-
kastari virðist vera í miklu og góðu
formi þessa dagana. Fyrir skömmu
náði hann einum albesta árangri í
kringlukasti í heimninum er hann
kastaði 63,98 metra. Um siðustu helgi
keppti Vésteinn ásamt mörgum
frjálsíþróttamönnum íslenskum á
miklu móti í Cape Girardeaö í Misso-
uri. Vésteinn náði mjög góðum
árangri og kastaði 63,40 metra og
sigraði á mótinu.
Eggert Bogason keppti einnig í
kringlukastinu en náði sér ekki vel
á strik. Eggert kastaði 55,50 metra.
Hann keppti einnig í sleggjukasti og
kastaði 54,50 metra og hafnaði í
þriðja sæti.
Sigurður mjög góður í spjótinu
• Iris Grönfeldt keppti í spjótkasti
og sigraði með 52,60 metra kasti. Sig-
urður Einarsson er til alls líklegur
um þessar mundir og um helgina
kastaði hann nýja spjótinu 77,16
metra sem er með betri árangri sem
náðst hefur í heiminum í ár. Að sögn
frjálsíþróttafólksins íslenska telur
það Sigurð vera í mjög góðri æfingu
og hann eigi eftir að ná enn betri
árangri í framtíðinni.
• Kristján Harðarson keppti í lang-
stökki og var nokkuð frá sínu besta.
Kristján stökk 7,05 metra.
• Ragnhildur Ólafsdóttir keppti í
boðhlaupum og vann sveit Ragn-
hildar bæði hlaupin. Fyrra boð-
hlaupið var 4x800 metrar en í því
síðara voru hlaupnir 400, 800, 1200
og 1600 metrar.
• Stefán Þór Stefánsson keppti í
tugþraut í Austin í Texas og hlaut
Stefán 6.800 stig sem er nokkuð mik-
ið frá íslandsmetinu. Ekki náðist í
Stefán í gær en þó frétti ég að hann
hefði hlaupið 100 metrana á 10,90
sekúndum, stokkið 7,05 metra í lang-
stökki, kastað kringlu 30 metra,
kúlunni 10,58 metra, stokkið 3,40
metra í stangarstökki og kastað
spjótinu 52 metra slétta.
Steaua gegn
meisturum M.
Plastica
- í Evrópukeppninni í
handknattleik
Stórliðin Steaua, Búkarest, Rúm-
eníu, og Metaloplastica Sabac,
Júgóslaviu, drógust saman í undan-
úrslitum Evrópukeppni meistaraliða
í handknattleiknum þegar nýlega var
dregið í undaúrslit í Evrópumótin
þijú. Júgóslavneska liðið er núver-
andi Evrópumeistari. í hinum leikn-
um leika Wvbrzeze Gdansk, Póllandi,
og Atletico Madrid, Spáni.
í Evrópukeppni bikarhafa leika
annars vegar saman Minaur Baia
Mare, Rúmeníu, og Grosswallstadt,
Vestur-Þýskalandi en hins vegar
Epitök Veszprem, Ungverjalandi, og
Barcelona, Spáni.
I IHF-keppninni leika Tecnisa Alic-
ante, Spáni, og Lugi, Lundi, Svíþjóð,
annars vegar en í hinum leikjunum
í undanúrslitum Raba Vasas Eto
Györ, Ungveijalandi, og Proleter
Zrenjanin, Júgóslavíu. -hsím
• íslenska frjálsíþróttafólkið hefur
æft af miklu kappi undanfarið og er
til alls líklegt á komandi mótum.
Þeir Vésteinn Hafsteinsson kringlu-
kastari og Sigurður Einarsson
spjótkastari eru greinilega á meðal
þeirra bestu í sínum greinum í heim-
inum og verður fróðlegt að fylgjast
með árangri þeirra í sumar.
-SK
| • Sigmar Þröstur Óskarsson
I
I
I
I
1
I
hyggst ffytja til
Reykjavíkur
Frá Þrání Stefánssyni, frétta-
I
I
*
I
I
• Vésteinn hefur sýnt það og sann-
að á mótum i kringlukasti í
Bandarikjunum að hann er kominn
í fremstu röð í heiminum. Um helg-
ina kastaði hann 63,40 metra sem
er mjög góður árangur.
Imanni DV á Akureyri. I
Markvörðurinn kunni í hand-
I knattleik, Sigmar Þröstur |
“ Óskarsson frá Vestmannaeyum, ■
I sem var einn af adalmönnum KA |
■ i 1. deildinni í vetur, hefur ákveð-1
I ið að flytja til Reykjavikur á I
Inæstunni. Hann mun því ekki I
leika með KA á Akureyri næsta *
■ Ieiktimabil. Það er áfall fyrir I
■ KA-menn að missa þennan Z
| snjalla markvörð úr liði sínu. |
• Á þessari mynd sést hluti þeirra handknattleiksmanna frá Selfossi sem unnið hafa sér rétt til að leika í úrslitum
yngri fiokka yfirstandandi íslandsmóts í handknattleik.
IBR
KRR
REYKJAVIKURMOT
MEISTARAFLOKKUR
í kvöld kl. 20.30
FRAM - FYLKIR
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
FIRMAKEPPNI
Firmakeppni HK í innanhússknattspyrnu fer fram í
íþróttahúsi Digraness 18., 19. og 20. apríl næstkom-
andi. Leiktími 2x10 mín.
Þátttökutilkynning tilkynnist Lárusi S. Ásgeirssyni í
heimasíma 46324 og í vinnusíma 28777 fyrir 15. apríl.