Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Side 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL1986.
Andlát
Guðmunda Þórunn Gísladóttir lést
28. mars sl. Hún fæddist 20. janúar
1893 í Eymu á Eyrarbakka, dóttir
hjónanna Margrétar Guðmundsdótt-
ur og Gísla Jónssonar. Guðmunda
giftist Engilbert Magnússyni, en
hann lést árið 1955. Þeim hjónum
varð ekki barna auðið. Útför Guð-
mundu verður gerð frá Dómkirkj-
unni í dag kl. 13.30.
Snorri Jónsson lést 31. mars sl. Hann
fæddist i Bolungarvík 10. júlí 1911.
Hann var sonur hjónanna frú Elísa-
betar Hafliðadóttur og Jóns Jareds
Hafliðasonar. Snorri var kvæntur
Björgu Kristjánsdóttur og eignuðust
þau tvö börn. Björg og Snorri slitu
samvistum eftir nokkurra ára sam-
búð. Síðustu áratugina hefur Snorri
búið með frú Margréti Halldórsdótt-
ur. Flest starfsár sín hefur Snorri
stundað verslunarstörf, ýmist sjálf-
stætt eða í þjónustu annarra. Útför
Snorra verður gerð frá Fossvogska-
pellu í dag kl. 15.
Guðmundur Kristjánsson lést 29.
mars sl. Hann fæddist í Vestmanna-
eyjum 23. júní 1915. Eftirlifandi
eiginkona hans er Sigríður Kristj-
ánsdóttir frá Eskifirði. Útför
Guðmundar verður gerð frá Kópa-
vogskirkju miðvikudaginn 9. apríl
kl. 15.
Gerða Ólafsson verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
10. apríl kl. 13.30.
Útför Jónínu Eyþóru Guðmunds-
dóttur, Hringbraut 73, Reykjavík, fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudag-
inn 8. apríl kl. 13.30.
Guðmundur Kristjánsson frá Vest-
mannaeyjum, Alfhólsvegi 153,
verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju miðvikudaginn 9. apríl kl. 15.
Kveðjuathöfn um Finn Þorleifsson,
sem lést 29. mars fer fram í Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 10. apríl kl.
10.30. Jarðsett verður frá Staðar-
hólskirkju föstudaginn 11. apríl kl.
14. Vestfjarðarleið fer frá Umferðar-
miðstöðinni kl. 8.
Geirrún Ivarsdóttir, verður jarð-
sungin frá Kotstrandarkirkju mið-
vikudaginn 9. apríl kl. 14.
Tilkynningar
Sigurður Jónasson deildarstjóri,
Grýtubakka 24, Reykjavík, er látinn.
Guðmundur Lúðvík Þorsteinsson,
Ólafsvegi 19, Ólafsfirði, andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri,
sunnudaginn 6. apríl.
Júlíus Davíðsson, dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri, andaðist sunnudag-
inn 6. apríl.
Magnús Sigurjónsson úrsmiður, Nes-
haga 14, lést í Landspítalanum 4.
apríl.
Guðmundur Konráðsson andaðist á
Hvítabandi 6. apríl.
Sigurður Auðunsson, hagræðingar-
ráðunautur, Efrahvoli, Mosfells-
sveit, lést af slysförum laugardaginn
5. apríl.
Útför Einöru A. Jónsdóttur sauma-
kennara, Þórsgötu 21, er lést 27.
mars, verður gerð frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 9. apríl kl. 13.30.
23
ÖÓOA#
OÁTUg
Heimiliskrossgátur
Út er komið annað hefti af Heimilis-
krossgátum. í blaðinu eru 23 góðar
gátur, þrautir, barnaefni og fleira.
Blaðið kostar 95 krónur.
Garðyrkjufélag íslands
Laukarnir tilbúnir til afhendingar.
Opið þessa viku til föstudags frá kl.
14-18.
■ aystí!
VINNURETTUR
Ný útgáfa
Vinnuréttur
Út er komin hjá Máli og menningu
bókin Vinnuréttur ný útgáfa, eftir
Arnmund Backman og Gunnar Ey-
dal. Er þetta önnur útgáfa verksins,
mjög aukin og endurbætt, en það
kom fyrst út 1978.
Tilgangur bókarinnar er, eins og
höfundar segja í íörmálsorðum, „að
gefa almennt yfirlit vfir meginefni
vinnuréttar á íslandi.“ í sérstökum
köflum er íjallað um stéttarfélög,
kjarasamninga, vinnudeilur og verk-
föll, réttindi og skyldur atvinnurek-
enda og starfsmanna og bætur og
tryggingar. Með atriðisorðaskrá og
spássíugreinum er reynt að gera
Vinnurétt að sem aðgengilegasti
handbók fyrir launþega og atvinnu-
rekendur, en heimildaskrá og skrá
yfir dóma og lög auðvelda notkun
hennar þeim sem fást við málefni
vinnuréttar að staðaldri. Auk nýrrar
lagasetningar voru það ekki síst þeir
fjölmörgu dómar, sem fallið hafa á
síðustu 7 árum, sem gert höfðu end-
urskoðun fyrri útgáfunnar tíma-
bæra.
Vinnuréttur ný útgáfa er 216
blaðsíður að stærð og unninn í
Prentsmiðjunni Hólum hf.
Flugslys á
Snæfellsnesi
1959
Síðasta flugslys á Snæfellsnesi var.
1959 en ekki 1941. Fjögurra sæta flug-
vél, TF-EVE Cessna 180, frá Bimi
Pálssyni fórst í Sátudal á Snæfellsnesi
24. apríl 1959 á leið til Reykjavíkur í
sjúkraflugi. Þrír létust í slysinu.
-sos
Utvarp
Sjónvarp
Halldór Halldórsson prentari:
Mánudagar oft þungir
Eftir að hafa kynnt mér dagskrá
útvarps og sjónvarps í gærkvöldi get
ég ekki sagt að hún hafi boðið upp
á íjölbreytni. En þrátt fyrir það er
ekki þar með sagt að dagskráin hafi
verið alvond því til dæmis daglegt
mál Amar ðlafssonar var mjög
áheyrilegt. Svo var einnig erindið
um daginn og veginn sem flutt var
af séra Þorbergi Kristjánssyni. Bæði
var efnið áhugavert og vel flutt.
Leikrit Strindbergs, Til Damaskus,
er sjálfsagt gott verk en helst til of
þungt á mánudegi. Ég svissaði því
fljótlega yfir á sjónvarpið og barði
þar augum Landsmót ungmennafé-
lags íslands í Keflavík 1985. Þetta
var hressileg mynd en mjög sundur-
slitin enda verkefnið stórt. Þama
þeyttu íþróttamenn og -konur
kringlum og spjótum en enginn hafði
hina minnstu hugmynd um hversu
langt. Annars er alltaf skemmtilegur
blær yfir þessu landsmóti.
Kanadíska myndin, Önnur veröld,
fannst mér mjög áhrifamikil og vel
gerð. Á meðan ég horfði á hana hef-
ur Martin Berkofsky píanóleikari
sennilega átt stórleik með sinfóníu-
hljómsveitinni í útvarpinu, en það
er erfitt að þjóna tveim herrum sam-
tímis. Annars var þessi mánudags-
dagskrá nokkuð þung, það er eins
og það fylgi alltaf mánudögum.
-JSÞ
Afmæli
80 ára verður á morgun, miðvikudag-
inn 9. apríl, Guðrún Bjömsdóttir, nú
til heimilis að Dalbraut 25, þjónustu-
íbúðum aldraðra. Hún og eigin-
maður hennar, Guðbjörn Benedikts-
son, vona að sem flestir vinir og
vandamenn sjái sér fært að heilsa
upp á þau og þiggja kaffi i aðalsaln-
um að Dalbraut 27 frá kl. 20 á
afmælisdaginn.
90 ára afmæli á í dag, 8. apríl, frú
Halldóra Ásmundsdóttir, Lindargötu
52, Reykjavík. Hún verður að heiman
í dag.
Tapað-Fundið
Auglýsingaskilti í óskilum
Rautt auglýsingaskilti, sem stóð fyrir
utan Sól Salon á horni Laugavegar
og Snorrabrautar, hvarf um miðjan
mars. Þetta er eina skiltið sinnar
gerðar hér á landi. Hæðin er 120x80
cm og vegur 20 kg. 1500 króna fund-
arlaun fyrir þann sem getur bent á
hvar það er að finna.
Fundir —
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík
er með félagsfund í Drangey, Síðu-
múla 35, miðvikudaginn 9. apríl kl.
20.30. Þar verður rætt um fjáröflun
1. maí og spilað bingó.
Helgi fékk
120 þúsund
Helgi Ólafsson hafnaði í 3.-7. sæti
á opna New York-skákmótinu sem
lauk i nótt. Hlaut Helgi sex og hálfan
vinning og tæpa þrjú þúsund dollara
í verðlaun eða um 120 þúsund krónur.
Ungverjinn Sax og Tékkinn Smej-
kal urðu jafnir með sjö vinninga af
níu mögulegum. Tefla þeir í dag hrað-
einvígi um efsta sætið.
í lokaumferðinni sömdu jafntefli
Helgi og Djuric frá Júgóslavíu, Mar-
geir og Frias frá Chile, Karl og Alburt
frá Bandaríkjunum en Jón L. vann
Zaltsman frá Bandaríkjunum.
Jón L. hlaut sex vinninga ásamt níu
öðrum skákmönnum, Margeir fimm
og hálfan og Karl fimm vinninga.
-KMU
Pétur samdi til 70 daga við Lakers:
Allt að 30
leikir eftir
Sextugur er í dag, 8. apríl, Davíð Kr.
Jensson, byggingaeftirlitsmaður hjá
Pósti og síma, til heimilis að Langa-
gerði 60, Reykjavík. Davið dvelst nú
ásamt konu sinni, Jennýju Haralds-
dóttur, og tveimur dætrum þeirra, í
leyfi á Kanaríeyjum.
„Þetta er auðvitað stórkostlegt,
launin út af fyrir sig eru í lágmarki
en að fá þennan samning núna gefur
miklu betri möguleika næsta ár og
meiri en ef ég hefði byrjað með liðinu
sem nýliði í haust,“ sagði Pétur Guð-
mundsson körfuknattleiksmaður í
morgun. Þá var nýþornað blekið á
undirritun samnings um að hann leiki
með Los Angeles Lakers, frægasta
atvinnumannaliði í körfuknattleik.
Það ber meistaratitilinn í Bandaríkj-
unum frá í fyrra.
Lakers Ijúka við fjóra síðustu leiki
í undankeppni NBA-deiIdarinnar
fram á sunnudag. I þrem úrslitahrin-
um geta orðið allt að 26 leikir. Pétur
verður því örugglega í sviðsljósinu
jafnt hér og vestra fram í júní. Hjá
Lakers á hann tvo tíu daga samninga
að baki, sem færðu honum nú 70 daga
samning eftir góða frammistöðu með-
al frægustu körfuknattleiksmanna
heims. Pétur vildi ekki gefa upp laun-
in sín. „Þetta eru nýliðalaun, meðal-
laun í deildinni eru rúmlega milljón
krónur á mánuði en hæstu mánaðar-
launin eru nálægt tíu milljónum
króna.“
-HERB