Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Page 29
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 8. APRÍL1986.
29
Sviðsliós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Fyrir um íjörutíu árum æfðu önnur
feðgin skyldar listir hérna á Is-
landi. Þorfinnur Isaksson með
dóttur sína, Magneu. Myndin er
tekin á Norðfirði.
Síðar tóku þau djarfari stefnu í
jafnvægislistinni.
Húsið að
Þverholti 11
Tímaritið Newspaper Techniques birti í febrúarhefti sínu grein um
nýbyggt hús við Þverholt 11 í Reykjavík, Islandi. Eins og margir vita er
hér um DV-húsið að ræða. Greinarhöfundur, Siegfried Diergardt, nefnir
i upphafi að „það hafi litið út sem undur í augum Reykvíkinga þegar
DV fiutti allt i einu ofan úr Síðumúla - þar sem vinna var í fullum gangi
löstudaginn 22. nóvember og hóf starfsemi í Þverholti mánudaginn 25.
nóvember. Hið nýja hús hafði laumast upp án þess að verulega væri tek-
ið eftir því, það var ekki fyrr en starfsemin flutti að fólk áttaði sig á þvi
hvað hafði gerst“.
Síðan segir frá húsnæðismálum blaðsins fyrir fiutningana, að starfsem-
in hafi verið dreifð um borgina og haft samtals 1780 fermetra gólfpláss,
en nú sé hún nær öll á einum stað og hafi um ,3000 fermetra gólfpláss.
Þá er og farið nokkrum orðum um ýmis tæknileg atriði við vinnslu
blaðsins, einkum varðandi tölvuvæðinguna.
Að lokum er þess getið að tækjabúnaður og aðstaða DV standist strön-
gustu kröfur og jafnist á við það sem best þekkist í Evrópu og Ameríku.
-JSÞ
Konunglejur
klæðaskápur
Karl Bret'aprins á bæjarins besta
fataskáp í London - og þótt víðar
væri leitað. Hinn konunglegi
klæðaskápur telur rúmlega eitt
hundrað jakkaföt, jafnmikinn
gölda einkennisbúninga, óteljandi
skyrtur og hlaða af skóm. í Buck-
ingham Palace er eitt fataherbergi
fyrir prinsinn og annað í Kensing-
Hvítur einkennisbúningur til að
klæðast í hitabeltinu.
ton Palace þar sem hann býr. Engin
jakkaföt kosta undir sjötíu þúsund
krónum og skyrturnar eru allar
handsaumaðar. Einkennisbúning-
unum er öllum pakkað í plast og
þeir eru svo vandaðir að endingar-
tíminn er sennilega lengri en á
skrokki prinsins. Því er hentugra
að gæta vel að línunum svo ótrú-
legir fjármunir tapist ekki gersam-
lega á nokkrum vikum - matgræðgi
er sumsé bönnuð í höllinni.
Verðandi kóngar þurfa að passa i
pils, fínir fætur eru stórt atriði.
Her hans hátignar er hafður glerf- Hefðbundin jakkaföt eru líka nauð-
ínn í tauinu. synjaplagg - þessi kosta lágmark
um sjötiu þúsund krónur.
Ólyginn
sagði...
Gillian
Taylforth
er ung, nýuppgötvuð leikkona
sem nýtur nú mikiila vinsælda i
Bretlandi fyrir leik sinn í þáttum
sem kallast EastEnders. Það olli
talsverðu fjaðrafoki þegar hún
lýsti þvi yfir að hún svæfi aldrei
ein, hvort sem hún ætti kærasta
eða ekki þá kæmi ekki til greina
að hafa engan i rúminu hjá sér.
Og henni duga ekki minna en
tveir hverja nótt! Reyndar hafa
þeir ekkert með ástarlíf hennar
að gera þvi þeir eru báðir lif-
lausir, heita Bubble og Squeak
og eru bangsar. Þess vegna
varð fjaðrafokið þó ekki meira.
Tony
Curtis
hefur verið boðið að koma fram
i Dynasty og há laun eru i boði.
Það er samt ekki fjárupphæðin
sem mest er talað um vestra
?essa dagana heldur mótleikar-
inn. Janet Leigh skal það verða
að dómi stjórnenda en þau Tony
og Janet voru eitt sinn harðgift.
Við skitnaðinn lenti allt i bál og
brand og hafa þau ekki talað sam-
an aukatekið orð siðan.
Janet
Leigh
segir þau hafa skilið vegna nísku
Curtis. Hann víldi, aö hennar
sögn, ekki lánað öldruðum föður
Janet aura og neitunin varð til
þess aö faðirinn stytti sér aldur
nokkrum dögum síöar. Harð-
brjósta fír, Curtis, og leikkonan
dáða gerði sér lítiö fyrir og henti
honum umsvifalaust á dyr.