Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1986, Qupperneq 32
Frjálst, óháð dagblaö
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1 986.
Skilyrða
. hlutafé
í Arnar-
flug
Um tíu aðilar, fyrirtæki og einstakl-
ingar, hafa boðist til að leggja fram
60 milljóna króna hlutafé til Arnar-
flugs gegn því að ákveðnar forsendur
séu uppfylltar. Hefur stjóm Amar-
flugs framlengt, í þriðja sinn, áskrift-
arfrest að hlutafé, nú um eina viku,
meðan skilyrðin eru athuguð.
. Þessir aðilar eru ferðaskrifstofum-
ar Samvinnuferðir og Atlantik,
hótelin Saga og Holt, Guðlaugur
Bergmann í Karnabæ, Pétur Bjöms-
son í Vífilfelli, Hörður Einarsson og
Sveinn R. Eyjólfsson, Frjálsri fjöl-
miðlun, og Magnús Gunnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Am-
arflugs og VSÍ. Enginn verður
áberandi stór hluthafi. Hugsanlegt er
að fleiri aðilar bætist í þennan hóp.
Aðilarnir bjóðast til að kaupa
hlutaféð í ljósi upplýsinga sem liggja
fyrir um vilyrði stjómvalda fyrir rík-
^sábyrgð að tveggja milljóna dollara
láni og annarri aðstoð, svo sem niður-
fellingu lendingargjalda og skuld-
breytingu.
Skilyrði þeirra er að núverandi
hlutafé verði fært verulega niður eða
'selt. -KMU
TF-ORM var
ekki ofhlaðin
Það bendir ekkert til að TF-ORM
hafi verið ofhlaðin. Flugvélin var sex
manna, tveggja hreyfla Piper Aztec.
.^Siö manns voru um borð í henni þeg-
‘ar hún skall í Ljósufjöll. Búið er að
kanna þyngd flugmanns og farþega
ásamt þyngd farangurs og bensíns
sem var í vélinni. Samanlögð þyngd
var vel undir hámarksburðarþoli
flugvélarinnar. -SOS
Geriö verösamanburö
og pantiö
úr
^Simi: 52866
LOKI
Þeir eru greinilega
ekki fiug-leiðir, sem
vilja Arnarflug!
„Fóstureyðingamar
undirrót vandans
ÆpStíSpS segja félagar í íslenskrí ættíeiðingu
hjón. sem ekki geta eignast börn, stöðvað ættleiðingamar um stund- þannig að einu samböndin sem ís-
verða að leita til útlanda ef þau arsakir nieðan verið er að leita lensk ættleiðing hefúr em um
vilja ættleiða böm. Hér er yfir 700 skýringa á atviki sem kom upp við Holland við lögfræðing á Sri Lanka.
fóstrum eytt á hverju ári á meðan ættleiðingu bams frá Sri Lanka fyr-
innan við 1(X) hjón vilja ættleiða jr skömmu. Síðustu misseri hefur Neiti dómsmálaráðuneytið eftir-
börn. Það er þetta misræmi sem er reynst ómögulegt að fá böm til ætt- leiðis að samþykkja hann eru þau
undirrót vandans." leiðingar frá öðmm löndum. hjón, sem vilja ættleiða böm, í
Þannig farast félögum í samtök- Hugsanlegt er því að ættleiðingar vanda stödd þvi erfitt gæti reynst
unum lslensk ættleiðing orð þegar þaðan verði endanlega stöðvaðar. að finna ný sambönd. Mörg ríki
leitað er skýringa á ásókn íslenskra „Yfirvöld geta ekki bannað ætt- þriðja heimsins hafa nú lagt bann
foreldra í að ættleiða böm frá lönd- leiðingar bama en þau geta neitað við ættleiðingum,“ sagði Engilbert
um þriðja heimsins. að afgreiða einstök mál ef þeim lík- Valgarðsson, forsvarsmaður sam-
Dómsmálaráðuneytið hefur nú ar ekki framkvæmdin. Nú erstaðan takanna.
Engilbert sagði að samtökunum
hefði verið gerð grein fyrir stöðvun-
inni núna. Hingað til hefðu íslensk
yfirvöld heldur alls ekki lagst gegn
ættleiðingum erlendra barna. Það
ætti einnig við um sendiráðið í
Hollandi og sendiherrann, Einar
Benediktsson. Einar hefur, sem
kunnugt er, skrifað utanríkisráðu-
neytinu bréf þar sem hann varar
við ættleiðingunum. „Við vitum um
þetta bréf og að í því er lagst gegn
þessu máli. Okkur kom sú afstaða
á óvart,“ sagði Engilbert Valgarðs-
son. -GK
Snemma í morgun var slökkviliðið í Reykjavík kallað út vegna elds sem menn héldu að hefði
brotist út í Mjólkurstöðinni við Laugaveg. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var aðeins um
minniháttar óhapp að ræða og samkvæmt upplýsingum frá Slökkvistöðinni þurfti að slökkva eld i
geymsluskúr á lóð timburverslunar Árna Jónssonar við Laugaveg. kb
DV-mynd KAE.
Veðrið á morgun:
Norðaustan-
vindur og
bjart sunnan-
ogvestanlands
Á morgun verður allmikil hæð
norður af landinu en minnkandi
lægðardrag við suðausturströndina.
Vindur verður af norðaustri, fremur
hægur og hitastigið á bilinu 2 stiga
frost til 5 stiga hiti út við ströndina.
Á Suður- og Suðvesturlandi verð-
ur bjart veður en hálfekýjað á
Norður- og Austurlandi með úr-
komu, þótt hún verði væntanlega
ekki mikil. -S.Konn
Bolungarvíkur-
samkomulagið:
„Engar for-
sendur fýrir
slíku sam-
komulagi“
- segir formaður
launanefndar
sveitarfélaganna
„Ég get ekki séð að þessi samningur
geti haft áhrif á samninga hjá öðrum
sveitarfélögum. Það er búið að ganga
frá aðalkjarasamningum hjá þeim öll-
um,“ sagði Einar Ingi Halldórsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði og formaður
launanefridar sveitarfélaganna, er
hann var spurður um hvort nýgerður
kjarasamningur bæjarstjórnar Bol-
ungarvíkur og starfemanna bæjarfé-
lagsins gæti haft áhrif á samninga
annarra sveitarfélaga. Eins og kunn-
ugt er var samið um á sömu nótum
og VSÍ og ASÍ-samningamir gera ráð
fyrir en að auki að frá og með 1. sept-
ember yrðu lægstu laun ekki lægri
en 30 þúsund krónur.
Einar sagði að engar forsendur
væru hjá sveitarfélögunum fyrir að
semja á þessum nótum. Þau hefðu
ekki bolmagn til að semja um annað
og meira en samið var um í aðalkjara-
samningunum.
Sérkjarasamningar eru á flestum
stöðum ófrágengnir. Frá þeim á að
ganga eigi síðar en 45 dögum eftir
aðalkjarasamning. Einar sagði að
ekki væri óeðlilegt að halda að Bol-
ungarvíkursamkomulagið kæmi upp
í þeim viðræðum. „En það á ekki er-
indi þangað því markmið sérkjara-
samninganna er aðeins að raða
launahópum í launaflokka sam-
kvæmt aðalkjarasamningi.
Formenn stjómai'flokkanna em
ekki hrifnir af Bolungarvíkursam-
komulaginu og telja það brjóta í bága
við nýgerða kjarasamninga á vinnu-
markaðinum. Margir forystumenn
verkalýðsfélaganna telja hins vegar
að í næstu samningum eigi þetta sam-
komulag eftir að hafa áhrif.
-APH