Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1986, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 15. JULÍ 1986.
17
Hans fér ekki
aftur til Spánar
„Leik hér heima næsta vetur/1 segir Hans Guðmundsson
„Það er alveg 100% öruggt að
ég leik ekki á Spáni næsta vetur.
Eg hafði samband við forráða-
menn Maritim í gærkvöldi og
þeir sögðu mér að fjárhagur fé-
lagsins væri það slæmur að þeir
hefðu ekki ráð á að hafa mig
áfram hjá liðinu,“ sagði hand-
knattleiksmaðurinn Hans
Guðmundsson í samtali við DV
í gærkvöldi.
Hans lék sem kunnugt er með
2. deildar liðinu Maritim á síð-
asta keppnistímabili og stóð sig
mjög vel. Var langmarkahæsti
leikmaður liðsins. Hvað er nú
framundan hjá Hans Guðmunds-
syni? „Það er ekki ákveðið ennþá
með hvaða hði ég spila hér á
landi næsta vetur. Það hafa
nokkur félög haft samband við
mig en ég hef ekki gert upp hug
minn,“ sagði Hans í gærkvöldi.
Er þá ekki öruggt að þú leikir
með FH?
„Nei, það er ekki öruggt. Það
eru nokkur félög inni í myndinni
hjá mér og ég tek ákvörðun um
í hvaða lið ég fer á næstu dög-
um,“ sagði Hans Guðmundsson.
-SK.
Sögu- >
legur j
dráttur!
- í þýska bikamum j
Atli Mlmaisson, DV, Þýskalandi; |
Mesta hneyksli í 43 ára sögu |
þýsku bikarkeppninnar átti sér ■
stað í gær þegar dregið var um I
hvaða lið leika saman í fyrstu |
umferð keppninnar. Einhvem .
veginn í ósköpunum komst mið- |
inn með nafhi Stuttgarter ■
Kickers upp úr hattinum og datt I
á gólfið. Enginn tók eftir þessu I
fyrr en í lok dráttarins. Þá kom ■
í Ijós að nafn TB Berlin var eitt
eftir í hattinum. Síðan var
ákveðið að TB Berlin ætti að
leika gegn Stuttgarter Kickers.
Mörg lélegri liðanna í Þýska-
landi fengu feitan bita í gær er
þau drógust gegn frægum liðum
og tekjumöguleikamir slógu
glampa í augu forráðamanna
litlu liðanna. Sá glampi var þó
fljótur að hverfa þegar fram kom
kæra frá Stuttgarter Kickers.
Ákveðið var að draga aftur og
gerðust menn nú æfareiðir. Þá
breyttist drátturinn vitanlega
mikið en það var kannski furðu-
legast að l’B Berlin og Stutt-
garter Kickers' drógust aftur
saman.
„Bikarbrandarinn"
Hér í Þýskalandi eiga menn
ekki orð yfir þunnan mikla
klaufaskap. Kicker segir í stórri
fyrirsögn: „Bikaibrandarinn'* og
segir fyrirsögnin kannski allt
sem segja þarf um þetta ein-
kennilega mál. Vera kann að
þessum mest umtalaða drælti í
sögu þýsku bikarkeppninnar sé
ekki lokið enn. Hugsanlegt er
að félög sem drógust gegn „ris-
um“ í fyrri drættinum muni kæra
síðari dráttinn. Mjög yrði það
spaugilegt ef draga þyrfti í þriðja
sinn.
I
Islendingaslagur
Merkilegasti leikurinn í fyrstu I
/umferð þýska/bikarsins verður *
án nokkurs vafa viðureign Bayer I
Uerdingen og Stuttgart. Þar .
munu „íslendingaliðin" í Þýska- |
landi eigast við, Stuttgart, með ■
Ásgeir Sigurvinsson í broddi I
fylkingar, og Uerdingen, með þá I
Láms Guðmundsson og Atla ■
Eðvaldsson innanborðs. Leikim- I
ir í fyrstu umferð fara fram um ■
mánaðamótin ágúst/september. I
L.________—
• Stefán Jóhannsson markvörður gerir hér örvæntingarfulla tilraun til að bjarga skoti Grétars Einarssonar en án
árangurs. Knötturinn fer i markið og sigurmarkið er staðreynd. DV-mynd Brynjar Gauti
Fallbaráttan nálgast
- hjá KR-ingum eftir 0-1 tap gegn Víði
Það var ekki burðug knattspyma
sem boðið var upp á í leik KR og Víðis
í gærkvöldi á Laugardalsvellinum.
Kýlingar fram og aftur og það var
sjaldnast að boltinn Ienti hjá sam-
herjum. Víðismenn sigmðu í leiknum,
1-0, og verður sigur þeirra að teljast
nokkuð sanngjam því þeir misnotuðu
meðal annars vítaspymu. Barátta og
samstaða Víðismanna fleytir þeim
langt og þó að knattspyrna sú sem lið-
ið sýnir sé ekki áferðarfalleg þá nær
liðið inn sínum stigum.
Þetta var slakur leikur hjá KR-
ingum og nú er streita fallbaráttunnar
farin að nálgast þá. Eftir góðan sigur
á Þór í bikarkeppninni í síðustu viku
væntu margir þess að nú færi liðið
aftur að sýna knattspymu í líkingu
við það sem það sýndi í upphafi keppn-
istímabilsins. Það var hins vegar ekki
raunin. Langspymur fram völlinn þar
sem Bjöm Rafnsson átti að taka við
boltanum var það eina sem sást til
KR-inga. Barátta Víðismanna setti þá
alveg út af laginu þó það væri auðvit-
að hlutur sem mátti ganga að sem
vísu. Miðvallarleikmenn KR sáust
ekki og liðið virtis vera ófært um að
breyta leikstíl sínum þó ljóst væri að
það kæmist ekkert áleiðis gegn sterkri
vöm Víðis.
f upphafi leiksins voru KR-ingar heldui-
meira með boltann og þeir áttu fyrsta færi
leiksins á 18. mínútu. Ásbjöm Bjömsson
skaut þá framhjá i dauðafæri eftir góða
fyrirgjöf Bjöms Rafnssonar.
• Á 31. mínútu kom sigurmark leiks-
ins. Grétar Einarssoli fékk þá langa
sendingu fram völlinn. H<uin náði að leika
aðeins álram og þrumaði síðan boltanum
í markið af um 30 metra færi. Hvort liarm
var búiim að sjá að Stefán Jóhaimesson
markvörður hætti sér fullframarlega skal
ósagt lútið. Stefún revndi að bakka en
náði ekki til knattarins sem sveif yfir hann
og inn. Þetta var glæsilega gert hjá Grét-
ari en Stefán virtist ekki vera alveg með
staðsetningu sína á hreinu.
Misnotað víti hjá Víði
Hafi verið um mistök hjá Stefáni að
ræða við markið þa bætti hann svo sarrnar-
lega fyrir það þrent mínútum fyrir leikslok.
Þá skellti Gunnar Gíslason. fyririiði KR.
Mark Duflíeld inn í vítateignum og ekkert
aimað en vítaspyma kom til greina.
Spymuna tók Guðjón Guðmundsson en
Stefán fór í rétt horn og varði vel lausa
spymu Guðjóns. Þama sluppu KR-ingar
með skrekkinn.
Ekki virtust KR-ingar liressast í leik-
hlénu. Leikurinn hélt áfram í sama farinu
og komust þeir lítið Aleiðis. Þegar líða tók
á hálfleikinn fór að gæta örvæntingar hjá
þeim og þeir urðu heldur mistækir í þeim
færum sem þeir fengu. Á 70. mínútu var
til dæmis mikili darraðardans inni í víta-
teig Víðismanna og þeir vörðu hvað eftir
annað á línu en inn viidi boltinn ekki.
Þrem mínútum síðar var Willum Þór ailt
í einu frir inni í vítateig en skaut í þver-
siána. Þar með rann síðasta tækifæri
KR-inga út í sandinn.
Gleði Víðismanna var hins vegar mikil
í lokin. Þeir em nú með 11 stig í deildinni
og eiga þar að auki möguleika á að fá 3
stig í viðbót þegar dæmt verður í kærumál-
inu gegn Keflavík. Þá hafa, Víðismenn
jafnmörg stig og KR-ingar. Á því hefðu
sjálfsagt ekki margir átt von eftir fyrstu
umferðimar í mótinu.
Víðisliðið birrðist vel í þessum leik eins
og aður sagði. Vömin var traust með
Daníel sem akken og Gísli var ákaflega
ömggur í markinu. Hann greip mjög vel
inn í leikinn og var með góðar staðsetning-
ar. Mark var sterkur á miðjunni en frammi
ógnuðu þeir Helgi og Grétar þó Víðismenn
ættu ekki mörg færi í leiknum.
Leikmenn KR vilja án efa sem fyrst
gleyma þessum leik en mikil deyfð var
yfir KR liðinu. Það var eins og leikmenn
treystu sér ekki til að spila boitiuium. Það
var hugsað um það eitt að kvla fram. Þá
vom leikmenn lélegir við að hlaupa í eyð-
ur og skapa sér rými. Það vakti furðu hve
seint varamönnum var skipt inn á en Gor-
don Lee virðist mikið treysta á sama
hópinn leik eftir leik.
Ahorfondur voru 409.
Dómari var Magnús Theódórsson og var
hann slakm-, hann heföi til dæmis mátt
hafa hagnaðarregluna í huga í nokkur
skipti.
Liðin: KR. Stefán Jóhannesson, Jósteinn
Einarsson (Guðmundur Magnússon á 70.
mínútu), Hálfdán Örlygsson, Lofttu- Ólafs-
son, Willum Þór Þórsson, Gunnar Gísla-
son, Ágúst Már Jónsson, Bjöm Rafiisson,
Sæbjöm Guðmundsson og Júlíus Þor-
finnsson (Gunnar Skúlason á 70. mínútu).
Víðir. Gísli Heiðarsson, Klemenz Sse-
mundsson, Bjöm Vilhelmsson, Vilhjálmur
Einarsson, Ólafur Róbertsson, Guðjón
Guðmundsson, Vilberg Þorvaldsson
(Þórður Þorkelsson á 73. mínútu), Mark
Duffield, Grétar Einarsson, Helgi Bents-
son og Daníel Einarsson.
Maður leiksins: Gísli Heiðarsson
-SMJ
íþróttir
• Teitur Þórðarson.
Teitur skor-
aði tvrvegis
- í varaliði Öster
Gunrilaugur A.Jónssan, DV, Sviþjóð.
„Þetta fer að lagast hjá okkur á ný
þegar Teitur Þórðarson byrjar með af
fullum krafti. Hann hefur ekki úthald
enn til að leika heilan leik en það kem-
ur fljótt og þá förum við að skora.“ sagði
þjálfari Öster eftir að Teitur hafði skor-
að tvö mörk með varaliði öster i 4-2
sigri í síðustu viku á Halmstad.
Keppnin í Allsvenskan hófst á ný um
helgina eftir sumarfríið. Öster sigraði
þá Norrköping 1-0 í Vaxjö og færist við
sigurinn upp um þrjú sæti. Teitur kom
inn sem varamaður þegar 16 min. voru
eftir af leiknum. Halmstad tapaði á
heimavelli fyrir Brage, 1-2, og er nú í
neðsta sæti Allsvenskan. Eggert Guð-
mundsson lék ekki með Halmstad frekar
en fyrir sumarfnið. Hins vegar allar lík-
ur á að hann vinni sæti sitt á ný í
aðalliðinu. Markvörður liðsins gegn
Brage fékk afleita dóma í blöðum. Það
voru aðeins þrir leikir um lielgina. í
þeirn þriðja tapaði Elfsliorg, 2-4, á
heimavéíli fy-rir Hammarby.
Kunnasti leikmaður Sria. Torbjöm
Nilsson hjá Gautaborg. er hættur
keppni. Sama hvað forráðamenn Gauta-
borgarliðsins reyndu til að fá hann til
að halda áfrafti - alltaf þvert nei hjá
Þorbimi. Fyrir sumarfríið var hann
markahæstur í Allsvenskan með 9 mörk.
hsim
Allir bestu
til Hafnar
- á mikið frjálsíþróttamót
AUt besta frjálsíþróttafólk íslands
keppir á miklu frjálsiþróttamóti í Kaup-
mannahöfh dagana 19.-22. júlí nk. en
síðan halda einhvorjir úr hópnum á mót
í Svíþjóð. Alls em 25 keppendur frá ís-
landi. Það em: Sigurður Einarsson, Á,
Einar Vilhjálmsson, UÍA, Vésteinn Haf-
steinsson, HSK, Oddur Sigurðsson, KR,
Helga Halldói-sdóttir, KR, íris Grön-
feldt, UMSB, Ragnheiður Ólafsdóttir,
FH, Sigurður P. Sigmundsson, FH, Eg-
gert Bogason, FH, Svanhildur Kris-
tjónsdóttir, UMSK, Oddný Ámadóttir,
ÍR, Guðrún Ingólfsdóttir, KR, Sigurður
Matthíasson, UMSE, Kristján Giss-
urarson, KR, Aðalsteinn Bernharðsson,
KR, Sigurður T. Sigurðsson, FH, Egill
Eiðsson, UÍA, Guðmundur Sigurðsson,
UMSK. Helgi Þór Helgason, USAH,
Kristján Harðarson,. Á, Softla Rósa
Gestsdóttir, HSK, Jóhann Jóhannsson,
ÍR, Unnai- Vilhjálmsson, UlA, Þórdís
Gísladóttir, HSK, og Stefán Þór Stefáns-
son, ÍR.
Fararstjórar verða Jón M. Ivarsson
og Ólafttr Unnsteinsson. hsím