Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986. 13 DV Þeir sem reykja á vinnustaö valda ofi manneskjunni á næsta borði veru- legum óþægindum. Flestir vilja vinna í hreinu lofti og eiga reykingamenn að taka tillit til jjeirra. í byrjun þessa árs voru settar reglur um takmarkan- ir á reykingum á vinnustöðum. Dv-mynd Óskar Öm. Heilsu- sælgætí Stutt er síðan við fjölluðum um heilsuverslanir og hvað þær selja. Heilsusælgæti er meðal þess vamings sem þar fæst. Niðri í Austurstræti rák- runst við á þessar stöllur þar sem þær voru að selja súkkulaðihjúpaða ban- ana og epli sem líklega flokkast undir heilsusælgæti. Einnig selja þær ávaxt- asafa sem þær pressa sjálfar. „Djús- barinn“, en svo kalía þær þetta fyrirtæki sitt, hefúr verið starfræktur í allt sumar og hafa viðskiptin verið mjög blómleg enda hefur góða veðrið leikið við höfuðborgarbúa og margt fólk lagt leið sína til þessara hressu stelpna. -Ró.G. Neytendur DV-mynd Óskar Öm Varmi Bílasprautun HVAR VORU 0 m m m m Hvar voru 360.734 svínapylsur etnar og teigaöar BVi milljónir lítra af þýskum gæðabjór \ október 1985? sjá blaðsíðu 17. Reyk- lausir vinnu- staðir Nokkuð er um það, bæði hér á landi og erlendis, að tekið sé fram í atvinnu- auglýsingum að óskað sé eftir starfs- fólki sem reykir ekki. í nýjasta hefti Heilbrigðismála kem- ur fram að samkvæmt fyrirmælum í tóbaksvamarlögum voru í byijun þessa árs setttar nýjar reglur um tó- baksreykmengun á vinnustöðum, en þar segir að þess skuli sérstaklega gætt að þeir sem reykja ekki verði ekki fyrir óþægindum af völdum tó- baksreyks á vinnustöðum. Gerð hafa verið veggspjöld sem dreift hefur verið á vinnustaði til kynningar á takmörk- unum á reykingum. Reiknað hefúr verið út að hver starfsmaður sem reykir kosti vinnu- veitenda sinn tugi þúsunda króna á ári umfram þann starfsmann sem reykir ekki. Er þá átt við fleiri veik- indafjarvistir, aukinn kostnað við loftræstingu og þrif sem og fleiri þætti. Á sumum vinnustöðum hefur verið gengið skrefi lengra en áskilið er í þessum reglum. Sem dæmi má nefiia að hús Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík er „reyk- laust“ hús. í könnun sem Hagvangur gerði fyrir Tóbaksvamanefnd í fyrra voru 93,2 prósent þeirra sem tóku afetöðu hlynntir takmörkunum á reykingum á vinnustöðum. Athyglisvert var að ekki reyndist mikill munur á afetöðu reykingamanna og þeirra sem reykja ekki. Eftir gildistöku nýju tóbaksvama- laganna í ársbyijun 1985 hefúr dregið úr sölu tóbaks hér á landi. Árið 1985 seldist 4,6 prósent minna tóbak en árið óður og fyrri helming þessa árs var tóbakssalan 3,8 prósent minni en á sama tímabili í fyrra -Ró.G. L" mkw alla vikuna fffjpl I 111 1 msEr M , dB mmw:' $ é 1 1 JBp 1 H - | mf A 1 W L 1 R BJ ÞO ARGAJ RSl E>U ÞÉ rAi R!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.