Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Page 33
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986.
45
Eins og
ngill
Það hafa fleiri fugl á höfði en Egill
Stuðmaður. Þessi fjarskyldi frændi
vestra heitir Karl og leikur sér löng-
um stundum við Gillu andarunga
sem lætur sér vel lika þegar hann
hnoðast með hana sér til skemmt-
unar. Annars er Karl þessi mikið
kvennagull, þykir með afbrigðum
kynþokkafullur og myndin af honum
með þennan síkvika fjaðraskúf á
skallanum vermdi ótalin ungmeyjar-
hjörtu.
Nokkur ár eru liðin siðan dag-
blöðin urðu sér úti um sólar-
stúlkur á siðurnar jafnskjótt og
sást til sólar. Sólardrengur
Sviðsljóssins að þessu sinni
heitir Guðmundur Birgisson og
hann sat ekki auðum höndum i
góða veðrinu heldur múraði
veggi Morgunblaðshallarinnar
af miklum dugnaði. Viðgerð fór
fram á götuhæðinni enda mikil-
vægt að undirstöður haldist vel
traustar.
DV-mynd Óskar örn
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Díana prinsessa
mætti topplaus til vígslu sjúkra-
húss í Wales. Að vísu var það
hatturinn hennar sem toppinn
vantaði á en það vakti ómælda
athygli og heilmiklar bollalegg-
ingar. Kunnugir segja frúnni
hreint alveg ótrúlega heitt á
höfðinu við opinber tækifæri og
hún hafi reynt að fá siðameist-
ara hirðarinnar til að samþykkja
hattleysi við slíkar athafnir i
framtíðinni. Svarið var þvert nei
og þá ákvað Díana að réttast
væri að fara bil beggja eins og
I öllum meiriháttar samninga-
viðræðum. Því fékk kúfurinn að
fjúka.
Peter Grönvall
segist alls ekki þurfa einn eyri
af aurum föður síns - Benny
Andersons í ABBA-grúppunni
velþekktu. Hann býr með kær-
ustunni Angelique í lítilli íbúð
og spilar tónlist öllum stundum.
Framtíðardraumurinn er að lesa
þá umsögn í einhverjum blaða-
dálki og faðir Peters Grönvall
hafi heitið Benny Anderson og
sá hafi ekki verið slæmur músi-
kant heldur. Annars er samband
fegðanna ágætt eftir að óhætt
þótti að kynna þennan son
Bennys fyrir aðdáendum. Tilvist
Peters var haldið stranglega
leyndri þegar mestu vinsælda-
hrinurnar stóðu yfir því ekki
þótti ráðlegt að sýna soninn
opinberlega. Nú hefur komið i
Ijós að Abba-Benny átti ekki
aðeins eitt heldur tvö börn á
unglingsárunum - Peter fæddist
þegar foreldrar hans voru tæp-
lega sextán ára gamlir.
Don Johnson
er á lausu og segist sjálfur vera
heimsins besti elskhugi. Þetta
er að hans sögn einstakt tæki-
færi fyrr 'iær stúlkur sem hlusta
vilja og treista gæfunnar - en
einhverja tortryggni vekur að
ekki eitt einasta orð um málið
hefur enr.þá fengist frá fyrrum
eiginkonunni, Patti. Eftir hefð-
bundna meðferð hefur leikaran-
um tekist að komast yfir
óskaplega eiturlyfja- og brenni-
vínsflkn en kvennafíknin hefur
vaxið að sama skapi. Konurnar
í llfi kappans eru löngu orðnar
óteljandi og ekkert lát á ósköp-
unum - Don Johnson hefur
megna andstyggð á því að
reyna að standa á eigin fótum.
«•