Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. Fréttir___________ Kreppuástand á Kjarvalsstöðum Þóra Kristjánsdóttir, listráðu- nautur Kjarvalsstaða, hefur hætt störfum. Mun Gunnar Kvaran, list- fræðingur og forstöðumaður Ásmundarsafiis, taka við starfi hennar til bráðabirgða. „Ég er búin að starfa við Kjarvals- staði í tæp átta ár og hef ekki í hyggju að halda því áfram er sumar- leyfi mínu lýkur innan skamms,“ sagði Þóra í samtali við DV en vildi ekki að öðru leyti rekja ástæður brotthvarfe síns. Samkvæmt áreið- anlegum heimildum DV hefur samstarf listráðunautar og Alfreðs Guðmundssonar, forstöðumanns Kjarvalsstaða, verið stirt og veldur því meðal annars að Þóra kýs nú að hætta . Fyrirrennarar hennar í starfi, þeir Frank Ponzi og Aðal- steinn Ingólfeson, yfirgáfu einnig Kjarvalsstaði af svipuðum ástæðum. „Þóra var ráðin til fjögurra ára og sú ráðning síðan framlengd um önnur ijögur ár. Ráðningartíminn er nú liðinn og Gunnar Kvaran tek- ur við starfi Þóru til bráðabirgða. Staða listráðunautar verður svo auglýst eins og aðrar stöður innan borgarkerfisins. Ég neita því ekki að ýmsar breytingar eru fyrirhugað- ar á rekstri Kjarvalsstaða en vil ekki tjá mig frekar um þær,“ sagði Katrín Fjeldsted, borgarfulltrúi og varamaður í stjóm Kjarvalsstaða. I samtali við DV sagðist Alfreð Guðmundsson ekki hafa í hyggju að draga sig í hlé og kannaðist ekki við neinn ágreining við listráðunauta: „Ég er ekki að hætta,“ sagði hann. -EIR Borholan í Sleggjubeinsskarði skömmu eftir aö henni var hleypt upp. Hún er um 1800 metra djúp og sú fyrsta sem tekin er í notkun í Kolviðarhólslandi. DV-mynd EJ Borholu hleypt upp á KoMðarhóli „Þetta er fyrsta holan sem við hleypum upp í Kolviðarhólslandinu, hún er í meðallagi kraftmikil raiðað við borholumar Á Nesjavöllum, gefur 38 kflógrömm á sekúndu af blönduðu vatni og guiú, og er metin á 51 mega- vatt,“ sagði Gunnar Kristinsson, verkfræðingur hjá Hitaveitu Reykja- víkur, um borholu sem Hitaveitan hleypti upp í Sleggjubeinsskarði við Kolviðarhól á mánudaginn. Holan var boruð í nóvember sl. en hefúr staðið ónotuð í vetur. „Orkan í henni er svipuð og við var búist,“ sagði Gunnar „Þama hafa far- ið fram margs konar mælingar til að kanna það, en erfitt er þó að segja um hve lengi orkan í henni endist. Á næstunni verður síðan athugað hvort fleiri holur verða boraðar í landi Kol- viðarhóls, með frekari mæhngum og tilliti til þess hvemig þessi reynist.“ -BTH Á líðandi stundu: Stjómendur verða sex Tvö þriggja manna lið munu stjóma sjónvarpsþættinum Á lfðandi stundu í vetur. Er þegar búið að ráða fimm af sex væntanlegum umsjónarmönn- um. í öðrum hópnum verða Jón Gúst- afeson sjónvarpsmaður, Elín Hirst blaðamaður og Asdís Loftsdóttir fata- hönnuður. f hinum hópnum verða Ólafúr Hauksson rítsfjóri, Dröfii Hreiðarsdóttir háskólanemi en í þriðja sætið er óskipað eftir að Guðrún Guð- laugsdóttir blaðamaður varð að hætta við sökum annarra starfa. Umsjónarmenn þáttarins í fyrra voru þau Ómar Ragnarsson, Agnes Bragadóttir og Sigmundur Emir Rúnarsson. -KMU Nýmastein- ar og appel- sínusteinar - skiptar skoðanir um C-vrtamín „Ákvörðun Lyfjanefndar byggir á því að neysla eins.gramms af C-vítam- íni á dag getur leitt til myndunar nýmasteina," sagði Guðbjörg Krist- insdóttir, ritari Lyfjanefridar, í samtali við DV. Eins og kunnugt er af fréttum hefur Lyfjanefnd ákveðið að banna sölu á C-vítamíni, þar sem hæfilegur dag- skammtur er auglýstur eitt gramm á umbúðum, í verslunum og apótekum. Áfram verður þó hægt að kaupa 500 milligramma töflur án lyfeeðils. Kemm- þessi ákvörðun Lyfjanefndar ýmsum spánskt fyrir sjónir enda ekki til þess vitað að slík takmörkun á sölu vítamína þekkist annars staðar í ver- öldinni. Ýmsir lyfjafræðingar hafa bent á það í samtölum við DV að engar vísinda- legar rannsóknir tengi mikla notkun C-vítamina nýmasteinum. Þvert á móti hafi ýmsir vísindamenn tröllatrú á C-vítamínum og nægi í því sambandi að benda á nóbelsverðlaunahafann Linus Pauling sem mæli með 10 grömmum af C-vítamíni sem hæfileg- um dagskammti. Pauling mun nú vera á tíræðisaldri og laus við nýmasteina. Þá má geta þess að í einum lítra af hreinum appelsínusafa má gera ráð fyrir einu grammi af C-vítamíni. í einni appelsínu em um 100 milligrömm af C-vítamíni þannig að fólk verður að torga 10 stykkjum til að ná bannmarki Lyfjanefndar. „Það borðar enginn 10 appelsínur í einu án þess að fá niðurgang," sagði Guðbjörg Kristinsdóttir. Til fróðleiks má geta þess að manns- líkaminn er talinn þurfa 50 milligrömm af C-vítamíni á dag til þess eins að koma í veg fyrir skyrbjúg. -EIR Concorde í Kefla- vík á morgun Hljóðfrá Concorde-þota kemur til Islands á morgun, laugardag. Lending á Keflavíkurflugvelli er áætluð klukk- an níu í fyrramálið. Með þotunni koma um eitt hundrað breskir lífeyrisþegar sem keypt hafa sér dagsferð gegnum hljóðmúrinn til íslands. Ferðaskrifetofan Úrval tekur við hópnum og sýnir honum Vest- mannaeyjar, Bláa lónið og Reykjavík. Brottför er áætluð frá Keflavík klukk- an 19. Þetta verður í þriðja sinn í sumar sem hópur kemur með Concorde í dagsferð til fslands. Íslandsflug með Concorde er einnig á dagskrá um næstu jól. -KMU Helga Möller í hópi keppinauta í Bergen síðastliðið vor. Til vinstri er full- trúi Dana og til hægri fulltrúi Svía. DV-mynd GVA Eurovision aftur á sljá „Það er ástæðulaust að leggja nið- ur skottið eftir fyrstu umferð. Við höfúm ákveðið að verða með í næstu Eurovision-keppni og höfum til- kynnt þátttöku okkar,“ sagði Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri sjónvarpsins. „Keppnin hér heima verður þó eitthvað einfaldari í snið- um og ódýrari en síðast.“ Ýmsar leiðir hafa verið ræddar varðandi framkvæmd keppninnar hér á landi. Til greina kemur að þátttakendur verði látnir senda inn fullunnið efrú á myndböndum en það myndi takmarka fjölda laga vegna kostnaðar. Þá þykir einnig koma til greina að fela einum eða fleiri laga- höfundum að semja sérstakt lag í tilefiii keppninnar. Engin endanleg ákvörðun hefúr verið tekin hvað þetta varðar. „Ríkisútvarpið hefur frjálsar hend- ur varðandi val lags í þessa keppni og því eru allar leiðir færar,“ sagði Pétur Guðfinnsson. „Einnig er ekki ólíklegt að val dómnefridar verði með öðrum hætti en síðast." Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva verður haldin í Belgíu næsta vor, heimalandi Söndru Kim er sigraði eftirminnilega í Bergen 3. maí síðastliðinn. Gleðibanki Magn- úsar Eiríkssonar hafiiaði þá í 16. sætiaf20. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.