Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. 45 V Enneitt metið Enn eitt Islandsmetið var sett ný- lega þegar hvorki meira né minna en níu hundruð og sextíu manns luku keppni í Reykjavíkurmaraþoni. Þátttakendur voru á öllum aldri og fjölda þjóðerna en óumdeilanlegur sigurvegari var Frakkinn Chaibi. Hann renndi sér vegalengdina á 2: 20,30 og blés lítt úr nös eftir afrekið. Chaibi var ánægður með tæra loftið hérlendis, sagðist yfirleitt hlaupa nokkra tíma á dag og þetta er hans þrítugasta maraþonhlaup til þessa. Sjötugur og síungur - Svíinn Sture Hinn franski Chaibi nálgast markið og er þegar farinn að Margur hefur orðið þyrstur af minni ástæðu en einu Sandwall. DV-myndir Bj.Bj. halla höfðinu svo það smelli í kransinn. maraþonhlaupi. Fyrrum vandræðaunglingurinn Joe treystir á Ted, föðurbróður sinn, og Sheilu, eiginkonu sína, sem stuðningsmenn í baráttunni fyrirforsetatitlinum. Hinn nýi Kennedy Þegar Joseph Kennedy var sextán ára bar hann kistu föður síns, Ro- berts Kennedy, til grafar. Við það tækifæri sór hann þess eið að koma aldrei nálægt stjórnmálum. Næstu árunum eyddi hann þannig að almenningur kallaði hann vand- ræðaungling Kennedyfjölskyldunn- ar. Svarti sauðurinn var annað vinsælt viðurnefni. Og enginn lét sig dreyma um að hann yrði arftaki föð- urins á opinberum vettvangi. „Það hvílir bölvun yfir Kennedy- nafninu," sagði Joseph og reyndi að forðast fjölskylduna sem mest á þess- um árum. Þegar svo David, bróðir hans, lést af of stórum kókaín- skammti á hótelherbergi á Miami fékk hann enn frekari staðfestingu á bölvun ættarnafnsins. En svo breyttust viðhorfin, hann klóraði sig í gegnum háskólann í Massachusetts og sneri sér síðan að hinum ógnvænlegu stjórnmálum. í þeirri baráttu treystir hann aðallega á stuðning Teds, föðurbróður síns, og eiginkonu sinnar, Sheilu Rauch. Hún er dóttir bankastjóra í Philad- elphiu og hefur andstyggð á stjóm- málum. En auðvitað styður hún eiginmanninn í baráttunni eins og sannri Kennedykonu sæmir. Saman eiga þau hjónin tvö börn - tvíburana Metthew og Joseph. Við uppeldi þeirra gætir Joe þess að stríðsleikföng komi hvergi nærri. Morðin á föður hans og föðurbróður hafa innrætt honum mikla and- styggð á vopnum og byssuleikir eru bannaðir á heimilinu. Joe Kennedy virðist orðinn staðfastur heimilis- faðir með sterka konu sér við hlið. Ekki spillir að hann erfði hið marg- fræga bros Kennedyanna þannig að allt þetta saman eykur mjög líkurnar á að Joe Kennedy verði næstur innan fjölskyldunnar til þess að verma for- setastól Bandaríkjanna. Velferð gæludýra Andlát, barnsfæðingar, flutningar og skilnaðir hafa mikil áhrif á sálar- líf gæludýra og skyldi þeim sérstakur gaumur gefinn þegar eitthvað slíkt stendur yfir. Hávær rifrildi særa við- kvæm eyru dýranna og hin annars örugga veröld þeirra virðist að hruni komin. Allt slíkt tilfinningarót er þeim miður heppilegt. Þetta allt og meira til um sálarlíf dekurhnoðr- anna má lesa í nýlegri breskri rannsókn og bendir allt til að aðgát skuli sem áður höfð í nærveru sálar - einkum og sér í lagi gæludýrasálar. Sviðsljós Ólyginn sagði... Ted Kennedy reif ræðuna st'na í þúsund tætlur og sagðist ekkert hafa um málið að segja. Þetta var gullkornasafn sem ætlunin var að flytja við stúdentsút- skrift sonarins en sá ágæti Kennedy hafði það af að falla í reikningi. Karl faðir hans sagðist ekki sjá nokkra ástæðu til þess að fagna þeim stórmerkilega árangri. Madonna lét sig dreyma um ferðalag um suðurhluta Frans íklædd sumarbúningunum sínum óteljandi - reglulega gott og slakandi leyfi átti að vera dagskráin. En þá fékk eigin- maðurinn dyntótti - Sean Penn - hlutverk í kvikmynd sem taka átti á Manhattan. Stöðunni fylgdi sú rúsína að hann hefði eiginkonuna með sér í sumar senurnar. Madonna vildi ekki neita, því ennþá er hún að reyna að lappa upp á hjónabandið og puðar nú við myndatökur í miðri Nújork og draumur- inn um hvíldina góðu fokin út í veður og vind. Vinir hennar hafa miklar áhyggjur af framgangi mála og vonast til að hennar næsti leikstjóri, James Foley, reyni að þvinga hjónakornin í slökun áður en taka filmunnar Slammer hefst nú í byrjun vetrar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.