Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. Utlönd Spænsk löggjöf um fostureyðingar til endurskoðunar: 90.000 spænskar konur eyddu fóstri eriendis í fyrra Pétur Pétuisaam, DV, Barodona; Nú um þessar mundir er eitt ár lið- ið síðan sett var löggjöf sem leyfði fóstureyðingar með ákveðnum tak- mörkunum á Spáni og olli málið geysilegum deilum á sínum tíma. Þótt Spánn hafi verið fyrsta Ev- rópuríkið til að gefa fóstureyðingar frjálsar árið 1932 fylktu andstæðingar þeirra liði með kirkjunnar menn í far- arbroddi. Hart var deilt á þingi og þrátt fyrir mikinn meirihluta í báðum deildum náði stjómin ekki að keyra í gegn frumvarpið sem í upphafi gerði ráð fyrir mun frjálslyndari löggjöf en raun ber vitni. Fyrir utan siðferðislega hlið málsins er það ljóst að gífurlegir hagsmunir voru í veði því læknastofur í einkaeign hafa af því geysimiklar tekjur að fram- kvæma ólöglegar fóstureyðingar. En allar tilraunir sósíalista að eiga við einkageirarm í heilsugæslumálum, sem blómstrar hér á staðnum sakir slakrar heilsugæslu sjúkrasamlaga og sem hefur verið nefndur viðskipti ald- arinnar, hafa nú farið út um þúfur. Píslarganga Löggjöfin var því á endanum aðeins svipur hjá sjón og var leyfð með allm- iklum takmörkunum. Og þurfa þær konur sem sækja um fóstureyðingar á löglegan hátt að ganga þvílíka píslar- göngu milli stofhana að ef leyfi fæst eru oftar en ekki liðnar þær 12 vikur meðgöngu sem reglugerðin nær til. En á þrettándu viku er talið að fóstrið sé orðið það mikil manneskja að sið- ferðislega sé ekki réttlætanlegt að eyða því. Þó leyfi fáist er ekki þar með sagt að læknirinn sem á í hlut taki það í mál að eyða fóstrinu því læknar þurfa líka að stríða gegn taugaspennu. Á haustvikum 1985 hófu kvenrétt- indakonur mikla baráttu gegn lögun- um sem að þeirra mati eru hjóm eitt og geta aldrei staðist. Þær gripu til harðra aðgerða til að vekja athygli á málstaðnum. 1 nóvember lokuðu þús- undir þeirra sig inni í leikhúsi einu í Barcelona og framkvæmdu þar nokkr- ar fóstureyðingar sem voru teknar upp á myndsegulband. Því næst kærðu þær sig allar fyrir glæpinn til að sýna að löggjöfin virkar ekki sem skyldi. Eyða fóstri erlendis Löglegar fóstureyðingar hér voru aðeins 200 síðastliðið ár á meðan 90. 000 spænskar konur létu eyða fóstri erlendis, aðallega í London og Amst- erdam. Enginn leið er til að komast að því hve mikill fjöldi lét eyða fóstri á ólöglegum læknastofum, oft undir hroðalegum kringumstæðum. Kvensjúkdómalæknir nokkur í Lon- don, Timothy Rutter að nafni, hefur vakið málið á nýjan leik. Hann hefur eytt 8.000 fóstrum spænskra kvenna síðastliðið ár. Hann hefur nú lýst því yfir að hann muni ekki framkvæma aðgerðir á fleiri spænskum konum fyrr en lögin verði endurskoðuð eða að minnsta kosti breytt á annan hátt því að ensku lögin séu mjög svipuð, það er að segja aðeins er leyft að eyða fóstri ef hægt er að sýna fram á að það geti stofnað lífi móður í hættu, fæðist vangefið eða vanskapað á ein- hvem hátt eða um nauðgun hafi verið að ræða. Rutter segir það ekki vera í sínum verkahring að leyna ástandinu og hvetur stjómina til aðgerða. Hann hefur nú látið gera leiðbeiningablað er auðveldi konum leiðina gegnum lagafrumskóg þann er fara þarf um til að láta eyða fóstri á löglegan hátt hér á Spáni auk þess sem hann hefur látið þýða ensku lögin yfir á spænsku og sent ásamt afriti af þeim spænsku helstu stofhunum í landinu til saman- burðar. Fjaðrafok Umfjöllun hans hefur valdið svo miklu fjaðrafoki hér að á dögunum lýsti Alfonso Guerra, varaforseti ríkis- stjómarinnar, því yfir að stjómin væri með til athugunar tillögur ýmissa kvennasamtaka til breytinga á lögun- um þar sem ljóst væri að þau virkuðu ekki sem skyldi. Tillögur kvennasamtaka em flestar á einn veg, að fóstureyðingar verði gefnar algjörlega fijálsar og að þær verði öllum að kostnaðarlausu. Þetta sé eina leiðin til þess að koma á kné þeim neðanjarðarlæknastöðvum sem nú séu starfandi með vitneskju og samþykki allra meðan núverandi lög em við lýði og ekki sé við það ástand unandi. BreUand: Verða veiðihundar atvinnulausir? Breskur aðall sá rautt í gær er Verkamannaflokkurinn gerði kunna áætlun sína um að banna refaveiðar. Háværar raddir sögðu þetta vera af- skiptasemi og að það myndi ekki bæta hlutskipti refsins. Var Verkamanna- flokkurinn ásakaður fyrir að heyja gamaldags stéttabaráttu, það væri rangt að líta á refaveiðar eingöngu sem íþrótt heldri manna ríðandi á hestbaki í rauðum jökkum. Þetta væri íþrótt stunduð af öllum þjóðfélags- hópum úti á landsbyggðinni. Verkamannaflokkurinn segist munu leggja til að allar veiðar með blóð- hundum verði bannaðar ef hann kemst til valda. Það mundi hafa í for með sér að 400 hópar veiðihunda missa atvinnuna. Á hverju ári fara um 50.000 Bretar ríðandi á veiðar og veiða 40.000 refi með hunda sér til liðs. Loforði flokksins var vel fagnað meðal dýravina og þeirra sem árum saman hafa barist gegn því sem þeir álíta grimma og ómannúðlega íþrótt. r Spænska stjómin er nú meö til athugunar tillögur frá kvennasamtökum um breytingar á fóstureyöingalöggjöfinni þar sem hún virkar ekki sem skyldi. Bam tekið með valdi frá fósturforeldmm sínum Málaferii vegna umráðaréttar yfir bami vekja athygli í Noregi Gauti Grétarsaan, DV, Þiándheimi: Norska sjónvarpið sýndi nýverið fréttaþátt er vakið hefúr mikla at- hygli hér í Noregi. Þar var skýrt frá sögu fimm ára gamallar stúlku er tekin var frá fósturforeldrum sínum er alið höfðu hana upp í fimm ár. Bamið var grátandi tekið með valdi fógeta og bamavemdamefndar og afhent foður sínum og stjúpmóður. Litla stúlkan hafði alist upp hjá afa sínum og ömmu í fimm ár. Móð- irin hafði fengið krabbamein stuttu eftir að stúlkan fæddist. Bjó móðirin ásamt dóttur sinni í foreldrahúsum þar til hún lést tveim árum eftir bamsburðinn. Var hún þá að fullu skilin frá eigin- manni sínum. Faðirínn fékk for- eldraréttinn árið 1983 en stúlkan átti að búa áfram hjá afa sínum og ömmu. Faðirinn stundaði nám þessi ár og vann að auki fjarri heimili sínu á olíusvæðum Norðmanna í Norð- ursjó, svo takmarkaðir möguleikar vom fyrir hann að hitta dóttur sína. í fyrravor hófst deilan. Faðirinn krafðist umráðaréttar yfir baminu en fósturforeldramir töldu baminu fyrir bestu að vera áfram hjá sér. Faðirinn flutti málið sjálfur fyrir dómstólnum og féll dóm- ur á þann veg að hann fékk umráðarétt yfir dótturinni. Fógeti og bamavemdamefnd komu síðan síðastliðinn fostudag og tóku stúlkuna frá fósturforeldrum sínum. Norskir fjölmiðlar hafa fjall- að mikið um þetta mál að undan- fömu og vilja ýmsir sérfræðingar meina að ekki hafi verið rétt að þessu staðið hjá dómstólum og bamavemdamefrid. „Að þetta skuli gerast í Noregi er ótrúlegt," sagði fólk er hringdi til norskra fjölmiðla eftir að útsendingu lauk á föstudag. Enn ber mikið á milli í frásögn fóst- urforeldra fimm ára stúlkubamsins og flölskyldu hins raunverulega foð- ur um samband föður og dóttur. Faðirinn sjálfúr hefur ekki viljað tjá sig um málið í fjölmiðlum en syst- ir hans segir að fósturforeldramir hafi gert allt er hægt hafi verið til að auka á fjarlægðina á milli dóttur- innar og foðurins. Eðlileg aðlögun í samskiptum föð- ur og dóttur hafi verið mjög erfið vegna afstöðu fósturforeldranna. Til dæmis hafi þau ferðast til sólarlanda þegar faðirinn hafi ætlað að heim- sækja dóttur sína. Það hafi verið erfitt að venja dótturina við náið samband við föðurinn sökum ýmissa uppátækja fósturforeldranna. Fósturforeldramir halda því hins- vegar fram að faðirinn hafi ekki haft áhuga á að nýta sér möguleika sína til að heimsækja dótturina. Hann hafi verið velkominn hvenær sem er og hafi þau reynt allt er á þeirra valdi var til að viðhalda eðli- legu sambandi dóttur við föður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.