Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986.
9
Utlönd
Fjölskylda flúði gegn-
um Berlínarmúrinn
13 létu
Ivfið
í felli-
Austur-þýsk fjölskylda flúði
skömmu eftir miðnætti í nótt gegn-
um Berlínarmúrinn við Checkpoint
Charlie í skothríð austur-þýskra
landamæravarða. Að því er talsmað-
ur vestur-þýsku lögreglunnar sagði
meiddist hvorki maðurinn, konan
né bamið á flóttanum.
Óku þau vörubíl, merktum ríkis-
eigðu fyrirtæki, á hindranir og
komust á síðustu sekúndu gegnum
stólhlið sem lokast sjálíkrafa þegar
viðvörunarkerfi hefur farið í gang.
Vestur-þýskur lögreglumaður, sem
var á vakt við Checkpoint Charlie,
það hlið sem hermenn, sendifulltrúar
og útlendingar fara í gegnum til og
frá Austur-Berlín, sagði að flóttinn
hefði aðeins tekið fimm til tíu sek-
úndur.
Eftir flóttann stóðu óeinkennis-
klæddir öryggisverðir og sérstaklega
útkallaðar sveitir vopnaðar rifflum
vörð við hindranirnar, sem keyrt
hafði verið á, meðan embættismenn
gengu um og könnuðu skemmdimar
eftir vömbílinn.
Lögreglumaður vestan megin við
hliðið reyndi að stoppa vörubílinn
sem hélt áfram á fullri ferð inn í
borgina þar sem flóttamennimir
gáfú sig fram við vestur-þýsk yfir-
völd.
Var þetta í annað sinn á einum
sólarhring sem austur-þýskir landa-
mæraverðir skutu á flóttamenn, að
ví er vestur-þýska lögreglan segir.
fyrra tilfellinu tókst þeim að ná
flóttamanninum, sem var einn síns
liðs. Á myndsegulbandi, sýndu í
vestur-þýska sjónvarpinu, var hann
leiddur burt af austur-þýskum landa-
mæravörðum sem miðuðu á hann
byssu. Virtist hann ómeiddur.
Það er orðið tiltölulega sjaldgæft
að reynt sé að flýja yfir múrinn í
kringum Vestur-Berlín síðan gerðar
vom miklar endurbætur á honum.
Fyrir sjö mánuðum hljóp símvirki í
gegn en hann hafði verið að vinna
að endurbótum á öryggiskerfi við
Checkpoint Charlie sem gerðar vom
í tilefni 25 ára afmælis múrsins.
Hann hljóp af stað er hann allt i
einu sá ekki lengur landamæraverði
þá er stöðugt höfðu gætt hans og
beint í fangið á vestur-þýskum toll-
verði.
Samkvæmt vestur-þýskum skýrsl-
um hafa 39.000 manns flúið yfir
múrinn eða landamærin síðan múr-
inn var reistur 1961, 134 hafa beðið
bana og 4.000 særst.
byl
Að minnsta kosti 13 manns létu
h'fið er fellibylurinn Vera fór yfir
Kína og Suður-Kóreu í gær. Þús-
undir manna em heimilislausar
eftir að heimili þeirra eyðilögðust.
Hafnargarðar, hafnir og bátar
eyðilögðust af stormöldum við
ferðamannaeyjuna Cheju þar sem
þúsundir ferðamanna vom tepptar
vegna veðursins.
Saknað er flutningaskips frá
Singapore með 25 manna áhöfh.
Hemaðarastandi
lýstynr
Stjóm Bólivíu lýsti í gær yfir hem-
aðarástandi í landinu til 90 daga. Haft
er eftir vitnum að vopnum búnir skrið-
drekar hafi farið á móti göngu 5000
námuverkamanna sem ráðgerðu að
koma til La Paz í dag til að hefja hung-
urverkfall í kirkjum og skólum. Em
þeir að mótmæla spamaðarráðstöfun
forsetans, Victor Paz Estenssoro.
Embættismenn stjómarinnar sögðu
að herliðið hefði fengið skipun um að
tvístra göngumönnum sem höfðu
gengið 155 kílómetra frá heimkynnum
sínum.
Samtök verkalýðsfélaga hafa lýst
yfir að felld verði niður vinna í einn
dag til þess að bjóða göngumenn vel-
i Boliviu
komna sem óttast uppsagnir vegna
spamaðarráðstafana í námuiðnaði.
En hjá næststærsta fyrirtækinu í
landinu, Comibol, nam rekstrarhall-
inn i fyrra 246 milljónum dollara vegna
verðfalls á tini.
Lögreglan hefur handtekið marga
verkalýðsleiðtoga og herflugvélar
vom á sveimi yfir höfuðborginni. Á
meðan á hemaðarástandi stendur get-
ur stjómin sent borgara í útlegð.
Þegar hemaðarástandi var síðast lýst
yfir í Bólivíu í september 1985 vom
um 1000 verkamenn handteknir og 200
verkalýðsleiðtogar sendir í útlegð til
afskekktra frumskóga.
Norskir hvalveiðimenn
í mótmælaaðgerð gegn
Bandaríkjunum
Norskir hvalveiðimenn ætla að
mótmæla stefriu Bandaríkjanna í fisk-
veiðum þegar heræfingar Atlantshafs-
bandalagsins hefjast í Norður-Noregi
í dag.
Talsmaður hvalveiðimannanna
sagði að milli 20 og 30 skip myndu
sigla á móti flugmóðurskipinu Nimitz
og beina skutlum sínum að því.
Steinar Bastensen, formaður hval-
veiðinefhdarinnar í Norður-Noregi,
sagði að efnt væri til mótmæla vegna
þess að með því að hóta því að hætta
innflutningi á norskum fiski hefðu
Bandaríkjamenn neytt Noreg til að
tilkynna bann við hvalveiðum frá og
með næsta ári.
Norska stjómin lýsti því yfir í sfð-
asta mánuði að hvalveiðum í við-
skiptaskyni yrði hætt en þrætti fyrir
þrýsting af hálfu Bandaríkjanna.
Nunnur og prestar
mótmæla við sendiráð
Suður-Afríku í Róm
Um 75 manns söfnuðust saman fyrir
utan sendiráð Suður-Afríku i Róm í
gær til þess að mótmæla varðhaldi
kaþólsks prests í Suður-Afríku. Flestir
mótmælenda voru nunnur og prestar
sem mótmæltu varðhaldinu á fóður
Smangaliso Mkhatshwa, aðalritara
kaþólska biskuparáðsins í Suður-Afr-
íku, en hann er blökkumaður.
Var hann handtekinn 12. júní síðasb
liðinn, sama dag og neyðarástandi var
lýst yfir. Fréttir hafa borist af því að
honum hafi verið misþyrmt.
Peningafalsaiar teknir til fanga
Franska lögreglan hefur handtekið
fjóra peningafalsara og komist yfir 70
milljónir í fölsuðum 100 franka seðl-
um.
Einn hinna handteknu er Serge Liv-
rozet, höfundur glæpa- og visinda-
skáldsagna, en hann stofnaði
réttindasamtök fanga árið 1973. Var
hann handtekinn ásamt vinkonu sinni
í Suður-Frakklandi í fyrradag.
Stjórnin í Bólivíu hefur lýst yfir hernaöarástandi um allt landið og eru allar aögerðir stéttarfélaga bannaðar en
mörg þúsund námuverkamenn voru i gær i mótmælagöngu á leið til höfuðborgarinnar.
SAAB 900, 3 dyra, beinskiptur, 5 gíra, vökvastýri, diskabremsur, 4 strokka vél, 100
hestöfl din við 5500 s/m
TÖGGUfí HF. SAAB UMBODIÐ
Bíldshöfða 16 - Símar 68-15-30 og 8-31-04
SAAB 900 turbo 16, 4 dyra, beinskiptur, 5 gíra, vökvastýri, litað gler, rafdrifin sóllúga,
rafdrifnar rúður, rafdrifnir speglar, rafdrifnar læsingar, cruise control o.fl. 4 strokka
vél, 175 hestöfl din við 5300 s/m
Við eigum eftirfarandi bíla til á lager
af árgerðinni 1986, til afgreiðslu strax.