Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 30
42 ^iríF^ Smáskffa vlkunnar Joe Strummer - Love Kills (CBS) Hér er maður sem ekki svíkur uppruna sinn, gamla Clash sándið ómar af þessu lagi langar leiðir. Hér er kraftur, fjölbreytni og fanta góð laglína. Ómót- stæðilegt lag. Afram Strummer. Önnur lítið síðri The Smithereens - Blood and Roses (ENIGMA) Þetta eru Ameríkumenn þótt það heyrist ekki glöggt. Þeir eru ekki með neitt nútímakjaftæði, gamla heiðarlega rokkið blífur hér af mjúkum krafti. Þeim er ekki alls vamað í henni Ameríku enn að minnsta kosti. Aðrar þónokkuð góðar Human League - Human (VIRGIN) Ég sem hélt að þetta lið væri dautt úr öllum æðum. En því fer fjarri, þetta nýja lag er prýðisgóð ballaða, nokkuð ólík því sem maður átti von á frá Human League. Við bjóðum hana velkomna aftur. Huey Lewis & The News - Stuck With You (CHRYSALIS) Og þá er nú óhætt að bjóða þessa kappa velkomna aft- ur. Það er alltaf einhver sjarmi yfir Huey kallinum; og þetta nýja lag er engin undantekning frá því, hressilegt rokk í léttum dúr með skemmtilegum rödd- unum og ekki má gleyma orgelinu. Glass Tiger - Don’t Forget (WHEN l’M GONE) (MANHATTAN) Þetta er hins vegar kana- dískt rokk, sver sig í bandarísku ættina, iðnað- arrokk í mýkri kantinum með íburðarmikilli útsetn- ingu og kraftmiklum söng. Bassinn áberandi hljóð- færi. Mistök vfkunnar Communards - Don’t leave me this way (LONDON) Hér er illa farið með gott lag. Jimi Sommerville hef- ur tekið illilega skakkan pól í hæðina þegar hann hermir eftir diskóútgáfuna af þessu gamla lagi sem Harold Melvin og bláu nót- umar gerðu frægt fyrir mörgum árum. Sommer- ville verður að fara að sýna eitthvað af sjálfum sér. Öðruvísi gengur þetta ekki. -SÞS- David Lee Roth - Eat ’Em And Smile Gullkom inná milli Slagurinn milli Van Halen og fyrr- um söngvara hljómsveitarinnar David Lee Roth er með því skrautlegra sem er að gerast vestur í Ameríku þessa dagana. Heiftin milli þessara fyrrum félaga er svo mikil að þeir láta einskis ófreistað til að koma höggi hver á krafsinu að fá heilmikið af ókeypis auglýsingum en hvort það hefur síðan skilað sér í aukinni plötusölu veit ég ekki. Van Halen eða þeir bræðumir frá Hæli einsog kalla mætti þá á íslensku, voru fyrri til að gefa út plötu eftir skilnaðinn við David Lee Roth og hefur sú plata gert það bærilega gott vestanhafs í sölu, hefur selst í rúmlega tveimur milljónum eintaka þegar hér er komið sögu. David Lee Roth hefur einnig selt plötu sína bærilega vel, hún er um þessar mundir í fjórða sæti bandaríska breiðskífulistans á uppleið. Þessar tvær plötur eru keimlíkar um margt, báðir aðilar róa á svipuð mið, tónlistin er í þyngri kantinum í heild- ina en er kiydduð með léttari lögum inná milli. Léttara efhið sækir David Lee Roth gjaman aftur í tímann, tekur gamal- fræg lög, poppar þau upp og gerir þau hin líflegustu. Frægasta dæmið um þetta er lagið vinsæla Just A Gigolo/ Ain’t Got Nobody, sem naut mikilla vinsælda víða um heim í fyrra og nýt- ur enn á danshúsum hérlendum. Á þessari nýju plötu flaggar David Lee Roth tveimur lögum í þessum dúr, f’m Easy og gamla Frank Sinatra laginu That’s Life. Bæði em hin áheyrilegustu lög, smekklega útsett og flutningurinn ekki síðri, húmorinn geislar þar af hverri nótu. Önnur lög plötunnar em ósköp venjulegar þungarokksæfingar með tilheyrandi dúndri og vælandi gítur- um. Þrátt fyrir þetta verður það ekki skafið af David Lee Roth að hann er litríkur rokkari sem veit hvað hann er að gera og hefur þessa líka fanta- góðu rödd. -SþS- annan. Báðir aðilar hafa haft það uppúr Ýmsir - Enn er von Kristilegur boðskapur Enn er von er plata sem innheldur níu frumsamin lög sem ekki hafa heyrst áður. Lögin em í heild hin sæmileg- asta lagasmíð og ættu þess vegna vel uppá pallin hjá flestum. Textamir aft- ur á móti em allir trúarlegs eðlis og því verður að segja að þrátt fyrir ágæt- ar tónsmíðar og góðar útsetninghar þá höfðar pfatan til þröngs hóps. Sá sem virðist aðalmaðurin á bak við gerð plötunnar er Birgir Jóhann Birgisson. hefur hann samið sex lag- anna, syngur, útsetur og spilar á hljómborð. Birgir er mér að öllu ókunnugur fyrr en nú. greinilegt er samt að þar er á ferðinni tónlistarmað- ur með góða hæfileika. Flest þeirra sem einnig koma við sögu em sömu- leiðis ókunn í íslenskum plötubransa. Aftur á móti hefur hópuyrinn fengið til liðs við sig ýmsavalinkunna tónlist- armenn. Má þar nefha Mezzoforte strákana Kristinn Svavarsson, Jó- hann Ásmundsson og Friðrik Karls- son og eins og þeirra er von og vísa komast þeir vel frá sínu. Lögin í heild em nokkuð jafngóð. Þó er eitt lag sem að mínum dómi sker sig nokkuð úr. Er það Ég var í eilífð. Virkilega grípandi og vel útsett lag eftir Loft S. Guðnason. Textinn er einnig eftir Loft og þrátt fyrir góða viðleitni er það einmitt textinn sem gerir það að verkum að þetta ágæta lag mun aðeins ná til þeirra sem áhuga hafa á málefninu. Öll vinna við Enn er von er góð og í raun er ótrúlegt hversu vel hefur tekist þegar mið er tekið af því að fólk- ið sem að henni stendur hefur ekki mikla reynslu í gerð hljómplatna. HK. Ei DeBarge - El DeBarge Dísætur negrakoss E1 DeBarge er enn eitt afsprengi Motown útgáfunnar í Bandaríkjun- um. Hann fellur ákaflega vel inn í þá söngelsku fjölskyldu. Af þessari samnefndu plötu hans hefúr lagið Who’s Johnny vakið hvað mesta athygli. Þetta er allra snotrasta popplag og komst hátt á lista í Banda- ríkjunum. Who’s Johnny er jafriframt það lag sem er áberandi frískast á plöt- unni. E1 DeBarge virðist nefnilega vera nokkuð hrifinn af ballöðum. Hann syngur linnulítið um refilstigu ástarinnar: Ég elska hana, Hún yfirgaf mig, Ég elska hana fyrir því... Ekki geta þetta þó verið einlægar tilfinning- ar því að lögin em öll eftir aðra. Auk þess að pródúsera plötuna á Peter Wolf til að mynda topplagið, Who’s Johnny, og Diane Warren á þátt í að minnsta kosti ljórum lögum. Platan er þrátt fyrir þetta merkilega heil- steypt og ýmsar ballöðumar em bara snotrar. E1 er greinilega einstaklega lífs- glaður maður. Hann þakkar tónlistar- mönnum, upptökumönnum, fjölskyldu sinni og guði innilega fyrir aðstoð við gerð plötunnar. Flestir þessara aðila hljóta þvi að hafa átt þátt í gerð breið- skífunnar, beint eða óbeint. Jafnframt sendir hann hlustendum ástarkveðjur. Ekki ónýtt fyrir almúgann að vera settur með almættinu. Þessi breiðskífa E1 DeBarge er í alla staði ákaflega þægileg. Sumar dísætu ballöðumar væm vel brúklegar sem „rétt fyrir þijú lög“ á dansstöðum. Ástin fellur aldrei úr gildi. Hins vegar skal ekki mælt með plötunni að stað- aldri, nema fyrir afar ástsjúka ein- staklinga. Þetta er fyrst og fremst stundargaman. -ÞJV FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. r I " ' SMÆLKI r Sæl nú!. . Stórir útíhljóm- leikar ætla seint að losna við ofbeidi og skrilslæti; fyr- irnokkru var tildæmis ungur aðdáandi hl jómsveit- arinnar Queen stunginn til bana á Knebworth hljóm- leikahátíðinní, skammt frá sviðinu þar sem Queen var að leika. . .Breska popp- pressan er nú i mikilli lægð hvað sölu snertir og sam- kvæmt nýjustu tölum hafa öll helstu poppblöðin utan eitt tapað kaupendum svo þúsundum skiptir. Mesta hrunið á sér stað hjá blaðinu No 1, en það hefur á einu ári tapað hvorkí meira né minna en 34,4 prósentum af kaupendum sínum. Hin blöð- in hafa mínnkað í sölu á bilinu eitt til 16,7 prósent. Eina blaðíð sem er í vexti er Kerrang!, blað þungarokk- ara sem bætir við sig 5,4 prósentum. Söluhæsta poppblaðið í Bretlandi er Smash Hits, en það selst í rúmlega 522 þúsund eintök- um vikulega, sem er meira en helmíngur af allri sölu poppblaða í Bretlandi... í fyrsta sinn i sögunni hef- ur sala á kassettum i Bret- landi farið framúr sölu á plötum. Á tirnabilinu apríl til júní seldust 12,5 milljón- ir af kassettum á móti 9,5 milljón plötum. Allt bendir til þess að þetta sé bara undanfari þess að gömlu góðu vinilplöturnar hverfi smám saman af markaön- um.. .Hans konunglega ótukt Prince var á hl jóm- leikaferð i Bretlandi á dögunum, þeirri fyrstu í fimm ár. Gestirnir á fyrstu hljómleikunum voru ekki af lakari endanum; Phíl Coll- ins, Elvis Costello, George Nlichael, Bob Geldof, liös- menn Duran Duran, Queen, Sigue Sigue Sputnik og Te- ars For Fears, svo einhverjir séu nefndir. Á lokatónleik- unum smelltu þeir Sting og Ron Wood sér uppá svið og tóku undir i laginu Miss You, sem reyndar er gainall Stones slagari.. .Páll páfi annar ætlar að verða fy rstur páfa til að fara á popptón- leika. Hann ætlar að sjá AC/DC. . ,nei reyndar er það Jean-Michel Jarre sem verð- ur þess heiðurs aðnjótaudi að hafa ekta páfa meðal áheyrenda. Og þessi sögu- legi viðburður mun eiga sér stað í Lyons i Suður-Frakk- landi í október næstkom- andi. . .Þáerbaraaðdrifa sig.. "SÞS -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.