Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986.
Spumingin
Ertu hlynnt(ur) kjarn-
orkuvopnalausum
Norðurlöndum?
Anna Antonsdóttir verkakona: Já,
hiklaust.
Sigrún Bjarnadóttir bóndi: Já, það
er ég svo sannarlega.
Hjalti Gunnarsson bóndi: Já, það er
ég eindregið.
Þröstur Magnússon teiknari: Já,
frekar.
Nína Reynisdóttir bamfóstra: Já, það
er ég.
Lesendur
DV
,Bitlamir voru, eru og verða númer eitt“
Afar poppsins
Konráð Friðfinnsson skrifar: Menn
hafa oft haft tilhneigingu til að útn-
efna þennan eða hinn afa poppsins.
Poppið hefur enn ekki slitið sínum
bamsskóm og er þar af leiðandi ófert
að tala um afa í því sambandi.
, Ekki eru böm afar og ömmur, eða
hvað? En það verða þau ef guð leyfir.
Framtíðin býður poppinu brosandi
faðminn. Ef'tir kannski tvö til þijú
hundmð ár verður tímabært að titla
einhvem sem afa eða ömmu. Að mínu
mati eru það Bítlamir sem ættu þann
heiður skihnn. Sú stórkostlega og sí-
vinsæla hljómsveit sló í gegn víða um
heim á sinn eftirminnilega hátt sem
líkast til aldrei aftur verður endurtek-
ið. Margt breyttist með tilkomu þeirra,
ekki bara tónlistin heldur og líka
klæðaburðurinn.
Það vom Bítlamir sem skópu þetta
myndarlega afkvæmi sem poppið er.
Það vom þeir sem öfluðu því vin-
sælda, eins og svo mörgum er í fersku
minni, og það verða Bítlamir sem
halda uppi merki poppsins, ásamt að
sjálfsögðu einhveijum öðrum. Bítlam-
ir vom, em og verða númer eitt. Þeir
em meistaramir sem aldrei gleymast,
frekar en Mozart eða Bach.
Á Listahátíð 1986 var poppið í háveg-
um haft og ber að fagna því. Þar
mættu til leiks allgóðar grúppur sem
að vísu höfðuðu mest til ungu kynslóð-
arinnar en henni þarf að sjálfsögðu
að sinna sem öðrum. Klassísku verk-
unum þarf einnig að sinna en þeim
hafa reyndar ætíð verið gerð góð skil
á listahátíðum og er ekki nema gott
eitt um það að segja, listahátíð er fyr-
ir alla, ekki satt?
Mig langar til að benda á eitt atriði
sem mér hefur fundist vanta á þessa
ágætu hátið en það er að fá til lands-
ins hljómsveitir sem ekki endilega
tróna í efstu sætum vinsældalistans
en eiga sér samt tryggan hlustenda-
hóp. Ég get nefht til dæmis Little river
band, Supertramp, Eric Clapton, Lou
Reed, að ég tali nú ekki um stórsveit-
ir á borð við Rolling Stones, David
Bowie og fleira og fleira. Ég hefði til
dæmis ekkert á móti því að fá að sjá
og heyra í Moody Blues á Listahátíð
1987.
„Akureyri ætti að vera höfuðborgin
Akureyringur hringdi: Með allri virð-
ingu fyrir Reykjavík og án allrar
öfundsýki langar mig til þess að koma
með þá tillögu að Akureyri verði höf-
uðborg íslands. Hér á Akureyri er nær
alltaf gott og stillt veður, því fyndist
mér æskilegt að hún yrði höfuðborg
landsins.
Akureyri er fallegur staður og allt
umhverfið í grennd við Akureyri.
Þetta hefur nú sitt að segja til dæmis
í sambandi við að laða að útlendinga
og auðvitað fælir veðrið ekki frá eins
og það getur oft gert í Reykjavík.
Mér fyndist ekkert vitlaust að þetta
yrði tekið til athugunar. Eins og ég
segi, Akureyri ætti að vera höfuð-
borgin.
Buit meo
þulumar
Sparsamur glápari skrifar:
Nú á tímum spamaðar og félags-
hyggju hef ég fundið mig knúinn til
að koma upp með ágætis spamaðar-
hugmynd fyrir Ríkisútvarpið, sjón-
varp.
Þar á ég við þulumar í sjónvarpinu
sem em engum til góðs nema þeim
sem vilja tefia fyrir dagskrá kvölds-
ins. Maður les dagskrá sjónvarpsins
þrisvar á dag í blöðunum og síðan
heyrir maður þetta allt endurtekið
hjá þulum sjónvarpsins um kvöldið.
Væri ekki nær að hafa texta á
undan hveijum dagskrárlið fyrir sig.
Þá myndi sjónvarpið spara svo mik-
inn pening að þeir gætu hafið
útsendingar á fimmtudögum. Ég
vona að útvarpsráð taki þessa tillögu
mína til gaumgæfilegrar athugunar.
,M gista á Eddu-
hótelf er ekki dýrt“
Pétur Magnússon hringdi: Ég hef
heyrt marga segja að það sé dýrt að
gista á Edduhótelum og að þjónust-
an hjá þeim sé ekki góð.
Ég mótmæli þessu harðlega þvi ég
hef ekki rekið mig á annað en þjón-
ustan hjá þeim sé góð og verðið
sanngjamt. í sumar gisti ég á
Hrafiiagili í Eyjafirði og hef ekki
yfir neinu að kvarta, það er svo langt
í frá. Ég dvaldi þar í vikutíma og
allan tímann varð ég aðnjótandi
góðrar þjónustu og fyrir hana borg-
aði ég ekki mikið, að mínu mati.
Ég vil svo í lokin þakka starfs-
fólkinu á Hrafhagili fyrir hina góðu
þjónustu sem ég fékk þar í sumar.
Ur tapaðist
í Broadway
Rós Hauksdóttir skrifar: Ég týndi
úrinu mínu í Broadway laugardags-
kvöldið þann 16. ágúst.
Skífan er svört en ólin gulllituð. Ég
hef senniléga verið á dansgólfinu þeg-
ar ég týndi því. Ef einhver veit um það
er hann eða hún vinsamlega beðin að
hringja í síma 685302 eða 83157. Með
fyrirfram þökk.
Svarið er að
sjálfsögðu nei
Konráð Friðfinnsson skrifar: Viljum
við búa í moldarkofum til eilífðar? var
spurt á lesendasíðu DV um daginn.
Svarið við spumingunni er að sjálf-
sögðu nei enda býr enginn í þvílíkum
kofum í dag. Jú, kartöflur, þeim líkar
vistin vel að ég tel. Óeðlið í þessum
jarðeplum er með ólíkindum. En áfram
með framfarimar, framfarasinnar.
Skilaðu skónum!
Sundlaugargestur hringdi: Ég fór í
Laugardalslaugina fimmtudaginn 21,
ágúst og var í nýjum skóm en þeim
var stolið frá mér og er ég að sjálf-
sögðu mjög svekktur yfir því.
Þetta em hvítir öklaháir Hummel
karlmannsskór og keypti ég þá þennan
sama dag.
Ég vona að sá sem tók skóna sjái
að sér og skili þeim aftur í Laugardals-
laugina, svo að ég þurfi ekki að ganga
á sokkaleistunum.