Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986. 39 Lottó ÍSÍ og Öryrkjabandalagsins fer af stað í nóvember: Enginn stofnkostnaður Knattspymugetraunimar em nú að fá harðan keppinaut hérlendis sem er svokallað lottó. Lottó þetta fer nú sem eldur í sinu um Evrópu og Bandaríkin og á flestum stöðum hefur það tekið getraununum langt fram um vinsældir. Lottó er eins konar bingó. Gefnir em út talnaseðlar með mismörgum tölum, til dæmis 25 talna seðlar, 36 talna seðlar og svo framvegis. Við- komandi velur sér einhverjar tölur sem hann telur líklegar til vinn- ings. Á 25 talna seðlunum til dæmis má velja sér 6 tölur og svo fram- vegis. Síðan verður dregið einu sinni í viku og tölumar birtar. Vinningshafar em svo þeir sem hafa valið sér sömu tölur og þær sem dregnar hafa verið út. Það em Öryrkjabandalagið og Iþróttasamband íslands sem standa fyrir þessari nýjung hér á landi. Það fyrmefhda mun eiga 40% í fyrirtæk- inu og það síðamefnda 60%. Samkvæmt upplýsingum DV verður stofnkostnaður þessara sambanda lítill sem enginn þar sem þau munu gera 5 ára leigusamning um tækin við bandarískt fyrirtæki sem þannig mun taka þátt í áhættunni. Það fyr- irtæki mun fá ákveðna prósentu af veltunni þessi fimm ár en að þeim liðnum munu Öryrkjabandalagið og íþróttasambandið eignast tækin. Tæki þessi verða mjög fullkomin enda öll tölvuvædd. Úti um allt land verður komið upp sölukössum þar sem fólk getur keypt sér talnaseðlana. Líklega mun seðill með 25 talna röð kosta 25 krónur. Sennilega verður svo dregið á laug- ardögum og úrslit birt i sjónvarpi eins og oftast er gert í þeim löndum þar sem þessar getraunir eru. Vinn- ingar verða í formi peningaverð- launa og verða þau að minnsta kosti 40% af seldum seðlum í hverri viku. Áformað er að fara af stað með þennan talnaleik um miðjan nóv- ember. -KÞ Fiðlaramótið á Akureyri: Kópavogsbúi hélt norður og sigraði Jón G. Haukssan, DV, Akuieyii Böðvar Þórisson, 19 ára siglinga- maður úr Kópavogi, kom, sá og sigraði á siglingamóti veitingastað- arins Fiðlarans á Akureyri. Böðvar dreif sig norður með seglbrettið sitt og vann glæsilega, fékk ekkert refsi- stig en þess í stað glæsilegan bikar og málsverð í Fiðlaranum. I öðru sæti varð Sigurgeir Einars- son og Eggert Sigtryggsson í því þriðja, báðir heimamenn á Akur- eyri. Þetta var í fyrsta skipti sem Fiðlaramót í siglingum er haldið og verður það haldið árlega héðan í frá. Friðjón Árnason, einn eigenda Fiðlarans, afhendir sigurvegaranum, Böðvari Þórissyni úr Kópavogi, bikar fyrir sigurinn. Til hægri við þá eru Sigurgeir Ein- arsson og Eggert Sigtryggsson, báðir frá Akureyri. Nú stendur yfir átak i að fraesa götur borgarinnar og verða um 40.000 fermetrar fræsaöir en það nemur um 4.000 tonnum af malbiki. Þetta malbik er siðan endurnýtt til að malbika úr. Verða fjölmargar götur fræsaðar og reynt að vinna við þær fjölförnustu á nóttunni. Stendur átakið fram í miðjan september en fræsarinn er leigður af íslenskum aðalverktökum. JFJ/DV-mynd S Austfjarða- bátar sam- bandslausir „Þetta er alvarlegt mál. Nokkrir bátar, sem fóm út snemma um morg- uninn, gátu ekki látið vita af sér fyrr en Nesradíó var opnað klukkan átta um morguninn," sagði Ámi Sig- urbjömsson, starfemaður Tilkynn- ingaskyldu íslenskra skipa. Smærri bátar á Austurlandsmiðum vom sambandslausir við land í þrjár til fjórar klukkustundir á morgni þriðjudags. Virðist sem símasam- band milli Nesradíós og Gufuness hafi rofnað. Bátar með örbylgjutalstöð ein- göngu gátu ekki náð sambandi við land. Stærri skip með miðbylgju hefðu getað náð sambandi um aðrar loftskeytastöðvar, til dæmis Siglu- fjarðarradíó, að sögn Guðmundar Höskuldssonar, starfsmanns Nesradíós. Nesradíói er þessa dagana fjarstýrt frá Gufimesi frá miðnætti til klukk- an átta að morgni. Hefur þessi tilhögun valdið óánægju á Aust- fjörðum. „Það em allir aJveg sjóðandi út af þessu,“ sagði Gunnar Hjaltason á Reyðarfirði, stjórnarmaður Slysa- vamafélagsins á Austurlandi. Taldi hann sambandsleysið á þriðjudags- morgun það annað eða þriðja á skömmura tíma. -KMU Ný klæðning á bama- skólann Eegína Thorarensen, DV, Gjögii Um þessar mundir em þrír trésmið- ir að vinna við að setja nýja klæðningu á bamaskólann að Finnbogastöðum. Er þetta mikil fjárfesting og stórar framkvæmdir fyrir snautt Jireppsfélag eins og Ámeshrepp en þó ekki óyfir- stíganlegt fyrir ötula stjómendur. Smiðimir em þrír eins og áður sagði. Er einn þeirra úr Skagafirði og bundu ungir hestamenn í Ámeshreppi vonir við að þar væri mikill hestamaður á ferð. En sú von brást eins og svo margt annað í þessu jarðneska lífi því að smiðurinn vill ekki tala um neitt ann- að en nýja bíla. Margir undrast hversu miklar fram- kvæmdir eiga sér stað í þessum fámenna hreppi. I fyrra hófu t.d. ung hjón í Kjörvogi byggingu nýs íbúðar- húss. Flytja þau í húsið í haust. Heyskap lokið á Ströndum Regína Thoiaransen, Gjögii; Heyskap er víðast hvar lokið í Ár- neslireppi. Spretta var talsvert minni en í fyira, allt upp í 40 vögnum minni á sumum bæjum. Fáir bændur þurfa þó að kaupa hey. Heyskapur gekk fljótt og vel enda tíðarfar gott. Gátu bændur ekið heyj- um sínum grasþurrum í flatgryfjur. Það er hvergi betra kjöt að fá en hér enda kindum gefið eingöngu súr- hey og svo lifa lömbin og mæður þeirra á háfjallagrösum á sumrin. Kjötið er ekki feitt og fer mikið í stjömuflokk liéma. VIKAN AUGLÝSINGADEILD Þverholti 11, sími 27022 F YRIRTÆKI - ATVINNUREKENDUR! VIKAN selst jafnt og þétt, í dreifbýli og þéttbýli. Þess vegna geta auglýsendur treyst því að auglýs- ing í VIKUNNI skilar sér. VIKAN Síminner 27022 SMÁAUGLÝSINGAR EV MARKAÐSTORG TÆKIFÆRANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa, Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö. Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum. Þaö er bara aö grípa pau. Þú hringir...27022 Viö birtum... Það ber áranguri Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 o ER SMÁAUGLÝSINGABLACHD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.